Morgunblaðið - 19.12.1995, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 19.12.1995, Blaðsíða 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ - Aukahlutasett 1.990,- ef keypt meff ryksugupúkanum (+ póstkröfu og burðargjald kr. 395,- / innifalið ef greitt er með greiðslukorti) Sími 564 4000 Nýbýlavegi 18, Kóp. Póstverslun Aðeins kr. 5.990 NÝJAR PLÖTUR Sunnanrok TÓNLIST G c i s 1 a d i s k u r DRULLUMALL DruUumaU Botnleðju. Botnleðju skipa Haraldur Freyr Gíslason tronunuleikari, Ragnar PáU Sveins- son bassaleikari og Heiðar Örn Krist- jánsson gítarleikari og söngvari. Lög og textar eru eftir þá félaga. Upptök- um stýrði Jón „Skuggi“ Steinþórs- son. Rymur gefur út, Japís dreifir. 29,47 mín., 1.999 kr. ROKKTRÍÓIÐ hafnfirska Botn- leðja kom sá og sigraði í Músíktil- raunum Tónabæjar snemma í vor með einföldu kraftmiklu rokki og íslenskum textum. Fyrir vikið fékk sveitin 25 hljóðverstíma í verðlaun og þeir dugðu til að taka upp og hljóðblanda Drullumall; tíundi hluti þess sem almennt fer í upptökur hér á landi. Einhveijum fmnst eflaust upptökuhraðinn vera á kostnað gæða, en eins og einn liðsmanna orðaði það: „Einfaldleikinn er lang flottastur.“ Heima er best er orðið sígilt lag í íslensku neðanjarðarrokki og fleiri slík lög eru á plötunni, til að mynda Hinn óbyggilegi heimur, Súrmjólk, Ferðalagið, Húsi, Útsölusnakk og Súpertilboð. I Músíktilraununum naut Botn- leðja ekki síst þess hve sveitin er geysiþétt og það fer ekki á milli mála á Drullumalli. Haraldur Freyr á stórleik á trommurnar, Ragnar Páll er vel þéttur bassaleikari, til að mynda í Útsölusnakki, og Heiðar Örn er sérdeilis hugmyndaríkur og kraftmikill gítarleikari, aukinheldur sem hann öskrar sannfærandi þegar við á. Að hlusta á Botnleðju er eins og vera tekinn kverkataki og hristur ærlega; ekki ferskur andblær — frekar sunnanrok með til- heyrandi úrhelli og ósköp- um sem feykir vonandi hal- lærislegum enskuvælandi hermisveitum út í hafs- auga. Víst eru textar sveit- arinnar einfaldir, á stund- um full einfaldir, og upp fullir með málvillum og siangri, en það skiptir ekki öllu, aðalatriðið er að þeir spegla veruleika höfund- anna, en ekki gerviveröld alþjóðlegrar sölumennsku. Botnleðja sannar það eftir- minnilega á Drullumalli að þar fer framtíðarsveit sem á ekki annað eftir en 'verða betri og segir sitt um íslenskan út- gáfuheim að það sé smáfyrirtæki sem gefur plötuna út. Árni Matthíasson BOTNLEÐJA er framtíðarsveit sem á ekki annað eftir en verða betri. Rigning hjá Orra TÓNLIST Gcisladiskur STÓRI DRAUMURINN Annar geisladiskur Orra Harðarson- ar. Á disknum koma fram auk Orra Jakob Smári Magnússon, Jóhanna G. Þórisdóttir, Eðvarð Lárusson, Ing- ólfur Sigurðsson og Bubbi Morthens. Stjóm upptöku Orri Harðar og Sig- urður Bjóla. Jepsen gefur út en Jap- is dreifir. 39,53 min. 1999 kr. ORRI Harðar vakti athygli fyrir tveimur árum eftir að hafa gefið út fyrstu plötu sína, Drög að heim- komu. Hann kom fram á sjónarsvið- ið sem einstæðingur af Akranesi, gaf sjálfur út og hafði takmarkaða fjármuni á bak við sig. Hann var þó metinn að verðleikum sem lunk- inn laga- og textasmiður og fékk nægar undirtektir til að halda áfrani. Stóri draumurinn er á svipuðum nótum og fyrri platan, að mestu rólegheit og ljúfar stemmningar í textunum. Orri semur flest lögin og alla texta sjálfur og tekst ágætlega. Textamir eru sterkasta hlið Orra, daprir, falla vel að mýktinni í tónlistinni og sneiða yfirleitt hjá því að verða of væmnir. TÓNLIST Gcisladiskur HITTU MIG Hittu mig, geisladiskur Vina Dóra. Hljómsveitina skipa Halldór Braga- son gítarleikari og söngvari, Jón Ólafsson bassaieikari og Ásgeir Ósk- arsson trommuleikari. Aðstoðar- menn eru Þorsteinn Magnússon gít- arleikari og Pétur Hjaltested hljóm- borðsleikari. Lög eru eftir Vini Dóra, Ásgeir Óskarsson á eitt Iag og Jón Ólafsson eitt, en eitt lag er eftir J.J. Cale. Pjetur Stefánsson á alla texta. Straight Ahead Records gefur út, Japís dreifir. 38,08 mín., 1.999 kr. VINIR Dóra er helsta blússveit landsins og hefur útbreitt sitt bláa evangelíum um allt land. Frá sveit- inni hafa komið blúsplötur, en sú plata sem hér er til umfjöllunar, Hittu mig, er annars kyns þó bláir tónar séu aldrei langt undan. Lögin eru einfaldur samsetningur, en víða er prýðilega farið með hug- myndir, til að mynda í Jón & Yoko, skemmtileg sveitastemmnig er i Við viljum pulsur (svo), og eini eiginlegi Orri er mjög lagvís, lögin eru öll mjög auðmelt án þess að vera inni- haldslaus popplög, honum tekst þó mun betur til í rólegu lögunum en þeim kröftugri og rafmagnaðri. í raun er hægt að segja að lögin verði betri eftir því sem þau verða hæg- ari. Goðsögn gærdagsins og Stóri draumurinn II eru góð dæmi um þetta og svo Fyrir handan, skemmti- leg ballaða, sennilega besta lagið á plötunni með sérstaklega góðum takti sem endar svo í einhverskonar Pink Floyd gítardraumórum. Á fyrri plötu Orra hafði hann söngkonu sér til fulltingis sem var vel því rödd hans er frekar óslípuð og fellur oft ekki að tónlistinni, Orri sjngur með hæsi ekki ólíkri Daníels Ágústs Haraldssonar og yfirleitt ágætlega en missir sig stundum svo söngurinn. verður flatur, sérstaklega þar sem reyna þarf á raddböndin. Hanri hefði átt að láta öðrum eftir sönginn og einbeita sér að lagasmíð- unum. Söngurinn kemur þó vel út í Fyrir handan, áreynslulaus og hreinn. Hljóðfæraleikurinn er mjög góður, sérstaklega rafgítarleikur Eðvarðs og bassaleikur Jakobs Smára. Orri Harðar er orðinn fullmótaður lista- maður og gerir svo vel sem hann blúsinn á plötunni, Blús fyrir þig, kemur skemmtilega út, þó gítar sé full fjarlægur í upphafskaflanum. Þeir Jón og Ásgeir eru skotheldir í hrynsveitinni, Pétur Hjaltested á víða bráðsnjöll hljómborðainnskot og Þorsteinn Magnússon fer á kostum á gítarinn, sérstaklega í upphafslagi plötunnar. Mest mæðir á Halldór Bragasyni, Dóra, og hann kemst afskaplega vel frá sínu sem söngv- ari, þó ekki hafi hann mikla rödd eða þróttmikla. Það er helst að hon- um verði fótaskortur á lágu nótun- um, til að mynda í Upphafi og Al- staðar (svo). Halldór er blúsgítar- leikari í hæsta gæðaflokki, með skemmtilega óhreinan tón og trega- fullan, því treginn kallar ekki á fim- leika eða skalaæfingar. Gott dæmi er einleikskafli hans í Blús fyrir þig, sem er smekklega útfærður og fim- Iega leikinn. Einnig er gítar í Hjart- anu, skemmtilega groddalegur og bjagaður og þar eru hljómborð líka notuð skemmtilega; minnir á Pink Floyd á köflum. Textar eru úr smiðju Pjeturs Stef- ánssonar, eins og áður hefur komið fram, og flestir allsæmilegir. Hann á þó til að fara illa út af sporinu Morgunblaðið/Ásdís Orri Harðarson getur á plötunni, hún er full af af- bragðs og vel útfærðum hugmynd- um, líður helst fyrir einfaldanir á útsetningum og þunnan söng. Umslagið er eins og sniðið að þema plötunnar, grábláar og daprar myndbandsmyndir sýna Orra niðurl- útan, gráleitt hús og veggjakrot. Það er langoftast rigning hjá Orra og þar tekst honum vel upp. Gísli Árnason Halldór „Dóri“ Bragason og þannig er textinn við titillagið hreint afleitur. Hittu mig kemur eflaust þeim á óvart sem þekkja til Vina Dóra, en þeir eiga eflaust eftir að njóta plöt- unnar engu að síður, aukinheldur sem þeir sem gaman hafa af þéttu bláleitu rokki fá nokkuð fyrir sinn snúð. Árni Matthíasson Bláleitt rokk i € C € C 5 i i i i ( J I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.