Morgunblaðið - 19.12.1995, Page 73

Morgunblaðið - 19.12.1995, Page 73
) ) ) > > I I I i i I 1 I fl fl fl fl fl fl fl fl fl fl fl fl MORGUNBLAÐIÐ_____________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 73 _ NÝJAR PLÖTUR Fágaður jólasöngur TONOST Gcisladiskur JÓLASÖNGVAR Flytjendur Kvartettinn Rúdólf: Ses- selja Kristjánsdóttir, alt, Sigrún Þor- geirsdóttir, sópran, Skarphéðinn Þór Hjartarson, tenór, Þór Heiðar Ás- geirsson bassi. Gestasöngvarar eru Hulda Björk Garðarsdóttir og Valdi- mar Másson. Jóhaiui Hjörleifsson leikur á slagverk. Upptökur annaðist Jón Ólafsson í Eyranu í október síð- astliðnum. Auglýsingastofan Hér og nú gerði umslag og Bára Kristins- dóttir yósmyndari tók myndir. Kvartettinn Rúdolf gefur út. Dreif- ing Spor. 39,17 mín, 1.999 kr. ÞAÐ er sannur jólablær yfír þess- ari geislaplötu. Á textablaði segir að Kvartettinn Rúdolf hafi verið stofn- aður í desember 1992 og einkum flutt jólalög af öllu tagi. Platan ber þess vitni að kvartettinn hefur víða leitað fanga í ríkulegum sjóði söngva tengdum jóium. Á plötunni eru 20 innlend og erlend jólalög og sálmar, flest við íslenska texta en nokkur á ensku. Skarphéðinn Þór Hjartarson hefur raddsett 13 laganna fyrir kvartettinn og hefur honum farist það vel úr hendi. Söngvarnir eru allir fluttir án und- irleiks, að undanskildum þremur lög- um þar sem jólabjöllum og öðru slag- verki er beitt til að ýta undir jóla- stemmninguna. Flutningurinn ber þess vott að kunnáttufólk hefur hér stillt saman raddir. Söngur án undirleiks gerir miklar kröfur til flytjenda, ekki síst í miskunnarlausri nálægð hljóðnema, að ekki sé talað um ef náttúruieg endurómun er lítil þar sem sungið er. Kvartettinn kemst yfirleitt mjög vel frá flutningum. Á einstaka stað, þar sem reynir á tóneyrun til hins ýtrasta, má greina óöryggi í intóner- ingu, sem getur stafað af aðstæðum við upptökuna. í heildina má Kvart- ettinn Rúdolf vera stoltur af þessari plötu. Guðni Einarsson Þorvaldur á heimaslóð Eftir hálfrar aldar starf að tónlist, og laga- smíðar lengstum, lét Þorvaldur Jónsson loks verða af því að gefa út breiðskífu, sem hann kallar Á heimaslóð. Hann segir að laga- smíðarnar hafi ekki látið hann í friði. ÞORVALDUR Jónsson hefur fengist við tónlist frá unga aldri, í hálfa öld með hléum að eigin sögn, en sagan hermir að hann hafi fyrst troðið upp með harmonikkuna níu ára gamall þegar harmonikkuleikari sem lék fyrir dansi á balli í Jökulsárhlíðinni ör- magnaðist. Síðar fluttist Þorvaldur suður og starfrækti þar hljómsveit um árabil og starfrækir enn. Sam- hliða því að spila lög eftir aðra hefur hann samið grúa en ekki gefið neitt út af því fyrr en nú að Á heimaslóð kemur út. Þorvaldur segir að mikið af tón- list hans hafi týnst, enda hafí þetta verið eins og hvert annað tóm- stundagaman. „Vinir og vanda- menn hafa svo þrýst á mig í gegn- um árin að taka þetta nú ekki allt saman með mér í gröfma, en ég hef reyndar alltaf sagt að þetta væri nú best komið þar. En fyrir þrýsting frá þeim varð af þessu ævintýri,“ segir Þorvaldur. Hann segist hafa sett það sem skilyrði Þorvaldur Jónsson. Morgunblaðið/Sverrir þegar farið var af stað að fenginn yrði til þess sá mannskapur sem starfað hefði með honum í gegnum árin en ekki leitað til annarra. Ljóð úr Lesbók Meðfram því að leika lög eftir aðra hefur Þorvaldur laumað inn á dagskrána lögum eftir sjálfan sig, ekki síst til að tryggja að þau gleymdust ekki, en hann segir að þegar til kom að velja á plötuna hafi sér fundist þau lög of gömul svo hann valdi ný lög að mestu. Textar laganna eru ljóð eftir hina og þessa sem hann hefur fundið til í Lesbók Morgunblaðsins, oft ljóð sem hafa hrifið hann,-en hann seg- ir að yfirleitt séu þetta textar sem hafi kveikt með honum lag. „Höf- undarnir hafa tekið þessu framtaki mínu afskaplega vel,“ segir Þor- valdur, „og fjórir þeirra hafa sent mér ljóðabækur í kjölfarið." Þorvaldur er iðinn lagasmiður og segist hafa sankað að sér nokkru af lögum um árin, hann eigi lög á annan disk til og fleiri en einn og fleiri en tvo. „Þetta er eitthvað sem lastur mig ekki í friði,“ segir hann. „Ég hef alltaf verið mikill tónlistar- unnandi og haft gaman af að hlusta á tónlist, alla tónlist, en mest gam- an hef ég af því að setjast við hljóð- færið sjálfur og gera eitthvað." Ágæt aukabúgrein Þorvaldi til liðs við plötugerðina eru dóttir hans og tengdasonur og að nokkru sonur hans - og „einn ennþá sem hefur verið kallaður fóst- ursonur minn,“ segir Þorvaldur og kimir. Hann segist hafa haft af- skaplega gaman af að koma inn í hljóðver „á gamals aldri“ og tekur ekki fyrir það að hann eigi eftir að gefa meira út, „Ég veit ekki hvað máður á eftir að halda þetta út í þessu í ellinni," segir hann og hlær við. „Tónlistin hefur verið mér ágæt aukabúgrein um ævina og verður það vonandi áfram.“ Kæru rélaqar Bolirnir eru komnir og þið skuluð því þramma ut í ykkar sparisjdð þar sem starFsmennirnir taka á moti ykkur með bros á vör oq aFhenda ykkur Flottan bol með mynd aF okkur tvíburunum oq indíánastelpunni Pocahontas. | éS*. Ykkar vinir Króni 09 Króna * - ■ Kmú W&t mm y bolinn b Fyrir stelpur oa stráka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.