Morgunblaðið - 21.12.1995, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
Þórir Jón varð strax áberandi í
skólalífmu, hann tók virkan þátt í
íþróttum óg á vordögum í fyrsta bekk
var hann kjörinn til formennsku í
skemmtinefnd nemaendafélagsins
Mímis. Það var aðeins byijunin því
hann gegndi eftir það miklum trúnað-
arstörfum í þágu Mímis, fyrst sem
fulltrúi nemenda í skólastjóm og síðar
var hann kjörinn stallari, formður
nemendafélagsins. Þessi mikli áhugi
á félagsmálum var honum í blóð bor-
inn. Hann var mjög metnaðargjam en
gerði fyrst og fremst kröfur til sjálfs
sín og vann aldrei á kostnað annarra,
enda átti hann marga og trausta vini.
Þórir Jón var sérstæð manngerð
sem bjó yfir góðum gáfum og rök-
festu. Hann var hreinn og beinn og
sagði umbúðalaust hvað honum
fannst um málefnin sem rætt var um.
Hann lét viðmælanda sinn ekki kom-
ast upp með neitt múður heldur sýndi
honum fram á hið rétta í málinu með
sterkum og vel framsettum rökum.
Einnig var sérstakt við Þóri að hann
þurftf ekki að hugsa sig tvisvar um
þegar taka átti ákvarðanir. Ef hann
eða einhver annar fékk góða hugmynd
um að gera eitthvað þá sagði Þórir
oftast: „Já, gerum það“, og síðan ar
það framkvæmt en ekki verið að velta
sér upp úr hugsanlegum vandamálum.
Eftir stúdentspróf datt Þóri í huga
að skella sér í Iþróttakennaraskóla
íslands. Þar kynntist hann eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Önnu Maríu
Guðmann. Þaðan luku þau prófi vor-
ið 1988 og fluttust norður til Akur-
eyrar. Jafnframt vinnu stundaði
hann nám í rekstrrarfræði við Há-
skólann á Akureyii og lauk þaðan
prófi í vor er leið. í frístundum lék
hann körfubolta með íþróttafélaginu
Þór á Akureyri.
Síðastliðið vor fengum við þau
slæmu tíðindi að Þórir væri alvarlega
veikur. Þetta var mikið áfall fyrir okk-
ur öll, því Þórir var alla tíð ímynd hins
hrausta manns sem var bæði reg-
lusamur og líkamlega vel á sig kominn.
Þóri var ekki fisjað saman því hann
lét veikindin ekki aftra því að hann
héldi sínu striki. Að sjálfsögðu var
Amí sú stoð sem hann gat alltaf reitt
sig á. Þau hjónin fluttu í sumar frá
Akureyri með litlu stúlkuna sína og
settust að í nýju og glæsilegu húsi á
Voðmúlastöðum. Framtíðin var björt
og þau höfðu áform um að gera svo
margt. En margt fer öðruvísi en ætl-
að er. Við vissum að viðureignin við
krabbameinið endar oft á einn veg
en við trúðum á okkar baráttujaxl
og vildum ekki viðurkenna annað en
hann myndi hafa sigur í þessari bar-
áttu, hann hafði sigrað svo oft á
íþrótta- og á menntabrautinni. Við
ætluðum alltaf að hringja á morgun
eða koma við seinna á Voðmúlastöð-
um. Við vissum ekki að við hefðum
svona nauman tíma því þegar maður
er ungur er dauðinn svo fjarlægur.
Elsku Amí og Þórey Lísa, hugur-
inn er hjá ykkur því þið hafið misst
svo mikið. Við trúum því að minning-
in um Þóri verði ljósið í myrkrinu,
Ijósið sem þið þurfið á að halda núna
í skammdeginu.
Við viljum einnig senda foreldrum
Þóris, systkinum, tengdaforeldrum
og öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Við erum þakklát fyrir að hafa feng-
ið að kynnast Þóri, hvíli hann í friði.
Kveðja frá
íþróttafélaginu Þór
Enn einu sinni er hoggvið skarð í
raðir okkar Þórsara. Fregnir af and-
láti Þóris Jóns Guðlaugssonar eru
okkur þungbærar, þótt segja megi
að séð hafi verið um nokkurn tíma
hvert stefndi. Þegar félagi okkar í
blóma lífsins sem var okkur öllum
kær var hrifinn burt, fylgir vissulega
sársauki og söknuur.
Öll framganga Þóris Jóns einkend-
ist af ljúfmennsku og yfirvegun.
Hann var hinn dæmigerði góði liðs-
maður og félagi og því ekki erfitt
að skilja hvers vegna honum voru
falin ýmis störf fyrir félagið okkar
sem hann innti af hendi af samvisku-
semi með sama rólega yfirbragðinu
og einkenndi alla hans framgöngu.
Ég veit að félagar hans í körfu-
knattleiksdeild Þórs sakna góðs fé-
laga og vinar. Þórir Jón var um ára-
bil leikmaður okkar í körfuknattleik
og hann tók einnig að sér ábyrgðar-
störf fyrir körfuknattleiksdeildina og
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 39
MINNINGAR
var m.a. liðsstjóri meistaraflokks
karla fram að yfirstandandi keppnis-
tímabili. í það starf var hann kjörinn
og ég veit að ég tala fyrir munn fé-
laga hans þegar ég segi að mönnum
leið vel í návist hans sem einkenndist
af ljúfmennsku og tillitssemi.
Ég vil fyrir hönd íþróttafélagsins
Þórs votta eiginkonu hans, Onnu
Maríu Guðmann, dóttur þeirra Þór-
eyju Lísu, og öðrum ástvinum okkar
dýpstu samúð. Minningin um góðan
dreng lifir í hugum okkar.
Aðalsteinn Sigurgeirsson,
formaður Þórs.
Okkur sett hljóð þegar fregnin
barst um andlát vinar okkar og fyrr-
verandi samstarfsmanns, Þóris J.
Guðlaugssonar, en hann lést á heim-
ili sínu að Voðamúlastöðum í Austur-
Landeyjum, Rangárvallasýslu, 14.
desember sl. Fregnin kom okkur þó
ekki alveg á óvart, því Þórir hafði
átt við veikindi að stríða. Fylgdumst
við öll með baráttu hans og oft hvarfl-
aði hugurinn til hans með bæn um
að hann hefði betur. Það er ávallt
sárt þegar ungt fólk er kallað burt í
blóma lífsins. Þórir hóf störf í Lands-
bankanum á Akureyri 1. júlí 1988,
þá nýútskrifaður frá Laugarvatni.
Þórir var einstaklega geðfelldur ung-
ur maður, góðum gáfum gæddur og
vann störf sín af mikilli kostgæfni.
Gerði bankinn sér miklar vonir um
áframhaldandi störf hans og voru
honum falin ýmis trúnaðarstörf í
bankanum, sem hann lesyti öll vel
af hendi. Hann var glaðvær og vel
liðinn, og varð fljótt vel til vina bæði
meðal samstarfsfólks og viðskipta-
vina. Verkin léku í höndum hans og
án fyrirstöðu greindi hann hvers
manns vanda. Síðustu tvo vetur
stundaði Þórir nám við Háskólann á
Akureyri með vinnu sinni í bankanum
og útskrifaðist síðastliðið vor sem
rekstrarfræðingur. Þó fór svo að hann
ákvað að hætta bankastörfum og
gerast bóndi að Voðmúlastöðum.
Með Þóri er genginn góður dreng-
ur, og mun minning hans lifa okkur
til eftirbreytni. Eiginkonu Þóris, Önnu
Maríu Guðmann, og litlu dótturinni
Þóreyju Lísu, svo og öllum vanda-
mönnum, vottum við innilega samúð
okkar og biðjum algóðan Guð að styðja
þau og styrkja í sorg þeirra og söknuði.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið logaskæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(F.G.Þ.)
Samstarfsfólk í Lands-
banka íslands, útibúinu á
Akureyri.
Hann var hár vexti, grannur og
léttur í spori eins og íþróttamenn
gjaman eru. Dálítið íhugull og al-
vörugefinn við fyrstu kynni en stutt
í geislandi drengjalegt brosið. Alltaf
vinsamlegur í umgengni við aðra og
kaus venjulega að leiða það hjá sér
ef umræður urðu óvægnar. Þórir Jón
Guðlaugsson var óvenjulega aðlað-
andi og vel gerður ungur maður.
Leiðir okkar lágu saman í rekstr-
ardeild Háskólans á Akureyri haustið
1994. Þórir hafði nokkra sérstöðu í
deildinni. Námið sem tók fullan
vinnudag hjá flestum okkar stundaði
Þórir með nærri fullu starfi hjá
Landsbankanum og æfði auk þess
og spilaði með úrvalsdeildarliði Þórs
í körufknattleik. Prófín sín tók hann
jafnan með ágætum. Hann var eftir-
sóttur félagi í verkefnavinnu í skól-
anum, virtist aldrei þurfa að flýta
sér en hafði þó oftast forskot á aðra.
Hans góðu gáfur, vinnusemi og prúð-
mannleg framkoma hefðu áreiðan-
lega fleytt honum langt í lífinu.
Raunar brosti lífið við honum.
Hann og Anna María áttu heimili
að Helgamagrastræti 43 á Akureyri.
Hún var að læra myndlist og kenndi
auk þess eróbikk í Stúdíó Plús. Fjölg-
unar var von í fiölskyldunni og lítil
dóttir fæddist þeim í vor. Þórir var
að útskrifast sem rekstrarfræðingur
og þau voru að byggja sér hús á
jörð föður hans, Voðmúlastöðum í
Austur-Landeyjum. Litla íjölskyldan
þeirra Önnu Maríu og Þóris var á
leiðinni út í lífið full af bjartsýni.
Þórir veiktist um það leyti sem við
vorum að hefja vinnu við lokaverk-
efnin okkar í rekstrarfræði. Erfiðar
læknisaðgerðir beygðu ekki þennan
unga mann. Við undruðumst æðru-
leysið og sálarstyrkinn sem hann bjó
yfir. Lokaverkefninu sínu lauk hann,
þrátt fyrir veikindin og útskrifaðist
með okkur hinum í vor.
Nú hefur Þórir kvatt þetta líf sem
virtist um tíma brosa svo bjart við
honum. Hugur okkar er núna hjá
Önnu Maríu og litlu dótturinni. Við
sendum þeim innilegar samúðarkveðj-
ur og biðjum Guð að geyma góðan vin.
Skólafélagar í rekstrar-
deild Háskólans á
Akureyri.
MYNDBÖND
AUSTU RLENSK
GJAFAVARA
og mikið úrval af annarri vöru
ó ótrúlega góðuverði
0o^TIÐ
$ A \ %
4
Nýr lítill GSM
á kynningarverbi
Audiovox GSM - 650
263 g með rafhlöðunni
sem fylgir símanum •
Rafhlaða endist í 70 mín.
samtal eða 18 klst. bið •
Tekur stórt kort
KOLAJPORTIÐ Jólamarkaður
Fimmtudag og föstudag kl. 12-22
og Þorláksmessu kl. 11-22
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, sími 550 780
Þj&nustumiðstöð í Kirkjustræti, simi 550 6670
Söludeild Kringlunni, sími 550 6690
Póst- og símstöðvum um land allt