Morgunblaðið - 21.12.1995, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 51
FRÉTTIR
Gáfu slysa-
deild augn-
skoðunartæki
NÝLEGA afhentu konur úr
Reykjavíkurdeild Rauða kross Is-
lands veglega gjöf til Slysadeildar
Borgarspítala. Þetta eru fullkom-
in augnskoðunartæki sem staðsett
verða á slysadeild.
Við sameiningu Borgarspítala
og Landakots í Sjúkrahús Reykja-
víkur mun augndeild Landakots
taka að sér þjónustu við augn-
sjúklinga á slysadeild. A
dagvinnutíma er þessum sjúkling-
um sinnt á göngudeild augndeild-
ar að Öldugötu 17 en um kvöldin
og helgar er sjúklingum ráðlagt
að leita beint á slysadeild.
Augnlækningaatækin eru ríku-
lega útbúin og er andvirði þeirra
um 2 milljónir króna. Gjöfin er
því ríkuleg og vorum gefendum
færðar þakkir.
Morgunblaðið/Þorkell
Á MYNDINNI eru: Einar Stefánsson, augnlæknir (sitjandi),
Haraldur Sigurðsson, augnlæknir á augndeild Landakots, Sigur-
veig H. Sigurðardóttir, formaður kvennadeildar Rauða krossins
og Brynjólfur Mogensen, forstöðulæknir slysadeildar.
SAMANTEKT FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR Á SÖLU GEISLAPLATNA FYRIR JÓLIN 1995 • 10.-17. DESEM-
BER 1995 • UNNIÐ FYRIR MORGUNBLAÐIÐ, RÍKISÚTVARPIÐ OG SAMBAND HUÓMPLÖTUFRAMLEIÐENDA.
Plötusölulisti
1 EMILÍANA TORRINI CROUgiE D’OÚ LÁ • Dreifing: Japis (4)
2 BUBBI MORTHENS í SKUGGA MORTHENS • Skífan (2)
3 REIF í SKÓINN SAFNDISKUR • Spor (3)
4 PÁLLÓSKAR PALLI • Dreifing: Japis (5)
5 POTTPÉTT 95 SAFNDISKUR • Spor O)
Geisladiskurinn Mahalia Jackson var á sérstöku mánaðartilboði.
6MAHALIA JACKSON ( )
CHRISTMAS WITH MAHALIA
JACKSON • Dreifing: Tónaflóð.
7KK ( )
GLEÐIFÓLKIÐ •Japis
8BORGARDÆTUR ( )
BITTE NU • Spor
9POTTÞÉTT 2 (8)
SAFNDISKUR •Skífan
dA BJÖRGVIN HALLDÓRSSON O.FL.(7)
1 HÆRRA TIL ÞÍN • Dreifing: Skífan
Erlenf
Börn
Einstakir flokkar:
íslenskt
1EMILÍAIMA TORRINI (3)
CROUgiE D’OÖ LÁ
• Dreifing-.Japis
2BUBBIMORTHEIMS (1)
í SKUGGA MORTHENS Skitan
3REIF í SKÓINN (2)
SAFNDISKUR • Spor
4PÁLL ÓSKAR (4)
PALLI • DreiBng: Japis
5POTTÞÉTT 95 (7)
SAFNDISKUR • Spor
6KK (10)
GLEÐIFÓLKIÐ • Japis
7BORGARDÆTUR (8)
BITTE NU • Spor
8POTTÞÉTT 2 (6)
SAFNDISKUR* Skifan
9BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
O.FL. (5)
HÆRRA TIL ÞÍN • Dreifmg: Skífan
A RAGNAR BJARNASON ( )
1U HEYR MITT LJÚFASTA LAG
• Spor
1MAHALIA JACKSON ( )
CHRISTMAS WITH MAHALIA
JACKSON • DreiBng: Tónaílóð
2ENYA (2)
THE MEMORY OF TREES
• Spor
3PAN PIPE CHRISTMAS (1)
ÝMSIR FLYTJENDUR
4 0ASIS (9)
(WHAT'S THE STORY)
MORNING GLORY?
• Spor
5TWO UNLIMITED (6)
HITS UNLIMITED* Spor
6WHIGFIELD (3)
WHIGFIELD • Spor
7BEATLES (5)
ANTHOLOGY, VOLUME I
• Sklfan
8QUEEN (4)
MADEINHEAVEN
• Skífan
9BLUR (8)
THE GREAT ESCAPE • Skífan
|A DANGEROUS MINDS (7)
1 U ÚR KVIKMYND • Skíían
Pam Pipe Christmas og Mahalia Jackson voru á
sérstöku mánaðartilboði.
1KARDEMOMMUBÆRINN (4)
• Spor
2HALLIOG LADDI (2)
í STRUMPALANDI
• Spor
3EINAR JÚLÍUSSON ( )
JÓLABALL MEÐ GILJAGAUR
• Geimsteinn, dreifing: Japis
4BARNABR0S 2 FRÁ ÍTALÍU (1)
SAFNPLATA
• Hijóðsmiðjan, dreifing: Japis
5MAGGI KJARTANS O.FL. (3)
GÖNGUM VIÐ í KRINGUM
• Rymur, dreifing: Japis ,
GVERKSTÆÐI (9)
JÓLASVEINANNA
SAFNDISKUR • Spor
7DÝRIN í HÁLSASKÓGI (10)
• Spor
8ÉG GET SUNGIÐ AF GLEÐI (7)
ÝMSIR BARNAKÓRAR
• Dreifíng: Japis
9ÓMAR RAGNARSSON ( )
SYNGUR FYRIR BÖRNIN
• Spor
-|f| ENIGA MENIGA (8)
■ U OLGA GUÐRÚN
ÁRNADÓTTIR • Spor
VILLUR voru í plötulistanum þegar hann birtist í blaðinu
í gær og birtfst hann því aftur í heild.
Vettvangsferðir á
vetrarsólstöðum
NÁTTÚRUVERNDARFÉLAG
Suðvesturlands, NVSV, stendur
fyrir sjö vettvangsferðum á vetrar-
sólstöðum sem ber upp á föstudag-
inn 22. desember. Hægt verður
að mæta á hveijum stað fyrir sig
og taka þátt í því sem þar er að
bjóða. Fargjald í rútu verður 500
kr.
Viðfangsefni vettvangsferð-
anna er að kynna hvað er í boði
fyrir áhugasama einstaklinga og
fjölskyldur á Suðvesturlandi sem
vilja afla sér upplýsinga og kynna
sér lífverur og vistkerfi sjávar. Á
leiðinni verður rætt um hvort hefð-
bundin náttúrugripasöfn og sæ-
dýrasöfn þjóni nægilega vel þessu
áhugasama fólki. Öllum er vel-
komið að taka þátt í ferðunum.
V ettvangsf erðirnar
Kl. 8 verður morgunganga frá
sælífskerjunum á Miðbakka með
sjónum inn á Sólfar. Þar verður
minnt á sólstöðumínútuna kl. 8.18
á viðeigandi hátt. Síðan verður
gengið til baka og upp Grófina
suður í Tæknigarð. Þar tekur Dou-
glas A. Brotchie, forstöðumaður
Reiknistofnunar Háskólans, á móti
hópnum og fjallar um nýjungar í
tölvusamskiptum og nýja notkun
netsins við upplýsingaöflun í sjáv-
arlíffræði. Að því loknu lýkur
göngunni niður á Miðbakka um
kl. 10.
Þeir sem fara í rútuferðirnar
mæti kl. 10.30 við Norræna húsið.
Síðan verður komið við í sýningar-
sal Náttúrufræðistofnunar kl.
10.45, í Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs við sólris kl. 11.22, í Til-
raunaeldisstöð Hafrannsókna-
stofnunar Stað í Grindavík kl. 13,
í Sæfiskasafninu í Höfnum kl. 14
og Fræðasetrinu í Sandgerði við
sólsetur kl. 15.30. Áætlað er að
koma úr rútuferðinni að Norræna
húsinu um kl. 17.
-------» ♦ 4-------
■ MIÐSVETRARBLÓT verður
haldið í hofi Vors siðar í Grinda-
vík fimmtudagskvöldið 21. desem-
ber, á vetrarsólhvörfum. Dimmustu
nótt ársins munu náttdýrkendur
vaka við eld og minnast megindóma
á myrkustu nótt ársins en um kl.
00.28 á aðfaranótt 22. desember
er myrkasti tími ársins.
■ JÓN Gnarr og Sigurjón Kjart-
ansson hafa ákveðið að endurtaka
sýningu sína í Kaffileikhúsinu
föstudagskvöldið 22. desember nk.
Sýningin hefst kl. 22 og er aðgangs-
eyrir 750 kr. Húsið opnað kl. 21.
Á MYNDINNI eru, talin f.v., Bjarnar Ingimarsson, fjármála-
sljóri, Pétur Sveinbjarnarson^ formaður stjórnar Sólheima,
Rannveig Rist, deildarstjóri, Ulfar Óskarsson, forstöðumaður
skógræktarstöðvar og Tómas Grétar Ólason, varaformaður
stjórnar Sólheima.
ísal styrkir
skógrækt
á Sólheimum
FRAMKVÆMDASTJÓRN ís-
lenska álfélagsins hf. hefur veitt
Styrktarsjóði Sóllieima í Gríms-
nesi fjárstyrk til starfseminnar
á Sólheimum.
Afliending styrksins fór fram
í álverinu þann 4. desember sl.
og fylgdi sú ósk að fénu yrði
varið til eflingar skógræktar-
stöðvarinnar Ólurs sem heimilis-
menn á Sólheimum starfa við.
Skógræktarstöðin tók til
starfa 1991 og eru þar notaðar
lífrænar aðferðir við uppeldi
plantna sem yfir 60 ára hefð
er fyrir á Sólheimum. í Ölri er
áhersla lögð á plöntur til skóg-
ræktar en einnig er ræktað fjöl-
breytt úrval plantna í garða og
auk þess er unnið markvisst til-
rauna- og þróunarstarf í skóg-
rækt og lífrænni ræktun.
Skógræktarstöðin er í örum
vexti og styrkur Islenska álfé-
lagsins mun renna til fram-
kvæmda en nú er unnið að bygg-
ingu þjónustuhúss og vinnuskóla
við stöðina.
Aðventu-
kvöldí Að-
ventkirkjunni
KÓR Aðventkirkjunnar í
Reykjavík heldur aðventu-
kvöld föstudaginn 22. desem-
ber kl. 20 í Aðventkirkjunni,
Ingólfsstræti 19 í Reykjavík.
Kórinn mun syngja nokkur
jólaiög. Páll Sigurðsson, fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri flytur
hugvekju og fjölbreytt tónlist-
aratriði verða á dagskránni
ásamt almennum söng. Kór-
stjóri og undirleikari kórsins
er Krystyna Cortes og hefur
hún verið stjórnandi kórsins
undanfarin ár. Kórinn býður
upp á heitt súkkulaði á eftir
og piparkökur.
Allir hjartanlega velkomnir.
-leikur að liera!
Vinningstölur 20. des. 1995
6*11*13*15*17.18*21
Eldri úrslit á símsvara 568 1511