Morgunblaðið - 28.03.1996, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Breyting á starfsháttum embættis byggingafulltrúa
Skilið á milli faglegra
og pólitískra ákvarðana
BREYTINGAR verða gerðar á af-
greiðslum embættis byggingafull-
trúa á Akureyri, en gengið var frá
nýrri samþykkt fyrir embættið á
síðasta bæjarstjórnarfundi. Um er
að ræða tilraun til fjögurra ára sem
Akureyrarbær gerir sem reynslu-
sveitarfélag.
Litið er svo á að með samþykkt-
inni sé stigið stórf skref í þá átt
að skilja á milli faglegra og póli-
tískra ákvarðana sem gæti orðið
til eftirbreytni á fleiri sviðum.
Breytingin felst í því að skipta
verkum milli bygginganefndarinn-
ar og embættisins. Á sama tíma
er réttur umsækjenda um lýðræð-
islega meðferð gætt með áfrýjun-
arrétti til aðila sem kjörinn er af
bæjarstjórn, þ.e. bygginganefndar.
Nefndin mun nú hafa meiri tíma
og ráðrúm til að huga að stefnu-
mótandi málum sem snerta bygg-
ingarmál og einnig til að sinna
ágreiningsmálum. Það er því um
talsverðan ávinning að ræða fyrir
stjórnsýslu Akureyrarbæjar og er
litið til verkefnisins með það í
huga, auk þess sem þjónusta við
viðskiptavini byggingarfulltrúa er
bætt.
Aukinn afgreiðsluhraði
Embætti byggingafulltrúa mun
afgreiða allar umsóknir um bygg-
ingaleyfi sem uppfylla skilyrði laga
og reglugerða án þess að bíða stað-
festingar bygginganefndar. Það
hefur í för með sér aukinn af-
greiðsluhraða sem væntanlega
kemur þeim sem í framkvæmdum
standa vel.
Hlutverk bygginganefndar
breytist á þann hátt að hún verður
áfrýjunarnefnd, umsækjendur um
byggingarleyfi geta ávallt áfrýjað
úrskurði embættisins til nefndar-
innar sætti þeir sig ekki við niður-
stöðu þess. Nefndin mun áfram
sinna verkefnum eins og úthlutun
lóða, gerð byggingaskilmála og
gerð tillagna um nöfn gatna, torga
og bæjarhluta.
Þess er vænst að breytingin taki
gildi um miðjan apríl.
Morgunblaðið/Kristján
Fráveituframkvæmdir á áætlun
ÞEIR unnu af kappi við að leggja
yfirfallslögn frá nýrri skolpdælu-
stöð á Torfunefsbryggju i sól-
skininu Pétur Halldórsson, Rand-
ver Karlesson, Eyþór Guðmunds-
son, Gunnþór Hákonarson og bíl-
stjórarnir Viðar Pálmason og Ari
Jónsson. Á meðan á framkvæmd-
um stendur er einungis hægt að
nota aðra akrein Glerárgötunnar
til norðurs.
Gunnar Jóhannesson verk-
fræðingur hjá Akureyrarbæ
sagði að fráveituframkvæmdir
væru á áætlun, skolpdælustöðin
yrði afhent 30. apríl næstkom-
andi og siðan yrðu lagnir lagðar
i vor.
5TRFRFENN
KVH flzimuth
ndvr lausn^
6VH0H0NPHS
Með KVH Azimuth®fæst frábær stefnu-
nákvæmni og þannig næst besti árangur út úr
sjálfstýringunni
Hinn nýji KVH Azimuth°gyro kompáshefur
hlotið viðurkenningu Bandaríska flotans
KVH Azimuth®gyro kompás er tilvalinn kostur
fyrir smærri skip og báta
KVH Azimuthegyro kompás er kjörinn
varakompás fyrir stærri ski"
!<IVJHJ
ÖVlhdJ
ÖVlfcdJ
KlVÍHl
KlViHI
KlVihU
KjVIHI
KIVIHJ
Wá
mii
ml
Hvannavöllum 14 b
600Akureyri
Sími462 7222
S Fax 462 7690
E-maH haf@ismennt. is
FERÐAFÉLAG
AKUREYRAR
Laust er skálavarðarstarf
í Laugafelli á sumri komandi.
Varsla er í júlí og ágúst. Einnig er laus 75% staða á skrif-
stofu félagsins í júní-júlí og ágúst. Umsækjendur um þessi
störf þurfa að hafa góða tungumálakunnáttu og þekkingu
á íslenskri náttúru.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk. Umsóknir skulu sendast
til Ferðafélags Akureyrar, þósthólf 48, 602 Akureyri.
Upplýsingar hjá Ragnhildi, sími 462-5798, og Ingvari,
sími 462-7866 eftir kl. 19.00 dagiega.
Stjórn FFA.
ÁRÍÐANDI TILKYNNING!
Þeir sem ætla að gista í skálum Ferðafélags Akureyrar, Bræðrafelli,
Þorsteinsskála, Dreka, Dyngjufelli, Laugafelii og Lamba, á timabilinu
mars til júní 1996, skulu panta gistingu hjá Ferðafélagi Akureyrar.
Þeir sem hafa pantað og hafa kvittun fyrir gistingu, sitja fyrir.
Stjórn FFA.
Þýskur togari með fullfermi
Morgunblaðið/Kristján
Aflaverðmætið um
80 milljónir króna
ÞÝSKI togarinn Eridanus, sem er
í eigu Mecklenburger Hochseefisch-
erei, dótturfyrirtækis ÚA, kom til
Akureyrar í vikunni með fullfermi,
eða um 320 tonn af frystum flökum
eftir tæplega tveggja mánaða túr.
Um 80% aflans eru þorskur ogtil
viðbótar ufsi og ýsa og er aflaverð-
mæti togarans um 80 milljónir
króna.
Eridanus var við veiðar í norskri
landhelgi en gert er ráð fyrir að
togarinn haldi á karfaveiðar á
Reykjaneshrygg nk. laugardag, að
sögn Bjartmars Péturssonar, fram-
leiðslustjóra MHF. Þar eru fyrir
fjögur önnur skip MHF á karfaveið-
um. í gær lauk vinnu við endurbæt-
ur og viðhald á sjötta togara félags-
ins, Dorado, hjá Slippstöðinni Odda
hf. og var ráðgert að togarinn héldi
til veiða á Reykjaneshrygg í gær-
kvöld.
í vetur hefur verið unnið við
umfangsmiklar endurbætur og við-
hald á fjórum togurum MHF hjá
Slippstöðinni Odda og var Dorado
sá fjórði í röðinni. Skipin hafa tekið
hreint ótrúlegum breytingum und-
anfarna mánuði og eru nú hin
glæsilegustu að sjá. Bjartmar segir
að þær breytingar sem voru gerðar
hafi komið vel út og skipin reynst
vel.
Heims-
mynd
stjarnvís-
indanna
HEIMSMYND stjarnvísind-
anna: Sannleikur eða skáld-
skapur?, er heiti á fyrirlestri
dr. Einars H. Guðmundssonar
dósents í stjarneðlisfræði sem
hann flytur í stofu 24 í húsi
Háskólans á Akureyri við Þing-
vallastræti næstkomandi
laugardag, 30. mars, en hann
hefst kl. 13.15.
í erindinu verður drepið á
ýmsa þætti heimsmyndarinnar
og hugað að forsendum hennar
með það fyiir augum að kanna
hversu traust undirstaðan er.
Þá verður rætt um gerð heims-
líkana í heimsfræði, um náttúru-
lögmálin og hlutverk þeirra í
heimsfræði, sjóndeildina og þau
takmörk sem hún setur kenn-
ingasmiðum og þær vísbending-
ar sem fundist hafa um þróun
veraldarinnar í heild sinni.
Einar lauk doktorsprófi í
stjarneðlisfræði frá Háskólan-
um. í Kaupmannahöfn, hann
varð sérfræðingur á eðlisfræði-
stofu Raunvísindastofnunar
1982 og skipaður dósent í
stjarneðlisfræði við eðlisfræði-
skor HÍ 1991, fyrsti skipaði
kennarinn í stjarnvísindum við
háskólann.
Kári Arnór Kárason um hugsanlegt framboð sitt til forseta ASÍ
Gæti orðið til að efna
til óþarfa átaka
KÁRI Arnór Kárason, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norður-
lands, segir að miðað við núverandi
stöðu mála gæti framboð hans til
forseta Alþýðusambands íslands
allt eins orðið til þess að efna til
óþarfa átaka innan hreyfingarinn-
ar. Hann geti því að óbreyttu ekki
gefið kost á sér.
„Það hefur afskaplega lítil um-
ræða farið fram á milli forystu-
manna hreyfingarinnar um hvort
hægt sé að finna sameiginlega
lausn á forystumálum hreyfingar-
innar, sem víðtæk sátt væri um.
Ef menn vilja hins vegar fara (inn-
byrðisátök þá er ég ekki hluti af
þeim.“
Starfið framundan skiptir
mestu máli
Kári Arnór segir ekki aðalmálið
að fara inn á ASÍ-þing og vinna
þar kosningu, heldur sé það starfið
framundan sem máli skipti. „Þetta
snýst ekki bara um starf forseta,
heldur einnig um varaforseta, mið-
stjórn og aðra í forystu sambands-
ins. Mér finnst að þeir sem hafa
skorað á mig að gefa kost á mér
ættu fremur að kanna um hvaða
leið gæti náðst sem víðtækust sátt,
slíkt er vænlegra en að vera í opin-
berum áskorunum á einstaka menn.
Við þær aðstæður sem nú ríkja get
ég því ekki gefið kost á mér, til
þess þarf breiðari samstaða að
nást,“ segir Kári Arnór.
Um þelmingur félagsmanna inn-
an ASÍ er úr röðum Verkamanna-
sambandsins og hafa aðilar í þeim
armi lagt að Kára Arnóri að gefa
kost á sér í embætti forseta. Sú
hugmynd hefur hins vegar fengið
lítinn hljómgrunn innan raða for-
ystumanna verslunarfólks, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Þá hefur Benedikt Davíðsson, for-
seti ASÍ, enn ekki gefið út afdrátt-
arlausa yfirlýsingu um að hann
gefi ekki kost á sór áfram í emb-
ættið. Þing Alþýðusambands Íb-
lands fer fram í Kópavogi 20.-24.
maí nk.