Morgunblaðið - 29.03.1996, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996,
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sýslumaður í Hafnarfirði tók haffærisskírteini togarans Anyksciat í fyrrakvöld
Skipveijar með ísaxir
Morgunblaðið/Þorkell
LÖGREGLUÞJÓNAR fara framhjá skipverjum um borð í Anyksciat í fyrrinótt.
Sog hf. hefur lagt um
60 milljónir kr. í tækja-
búnað og viðgerðir á lit-
háíska togaranum
Anyksciat. Þrátt fyrir
það kannast eigandi
skipsins ekki við að Sog
hf. hafi skipið á leigu.
Guðjón Guðmundsson
skoðar ágreining sem
risið hefur um leigu á
togaranum til íslands.
SÝSLUMAÐURINN í Hafnarfirði
tók svokallað mælibréf litháíska
togarans Anyksciat, sem liggur við
festar í Hafnarfjarðarhöfn, í sína
vörslu í fyrrakvöld vegna skulda.
Togarinn hefur því ekki haffæris-
skírteini og kemst hvergi. í fyrra-
kvöld tók fyrirtækið IceMac flökun-
arvél úr skipinu með aðstoð fjöl-
menns lögregluliðs. Fyrirtækið
Friðrik A. Jónsson hf., er að meta
það hvort það fari sömu leið og
IceMac og fjarlægi höfuðlínusónar
úr skipinu, tæki sem kostar um
þrjár milljónir króna.
Mælibréf er nokkurs konar skoð-
unarvottorð sem hvert skip verður
að hafa um borð og er það nánast
réttlaust án þess. Guðmundur Soph-
usson sýslumaður í Hafnarfirði
sagði að embættið hefði óskað eftir
mælibréfi skipsins síðastliðinn
mánudag, en þá neitaði skipstjórinn
að láta það af hendi. Skuldir vegna
togarans eru einkum hafnargjöld
og afgreiðslugjöld sýslumannsemb-
ættisins. Þær nema um eða yfir
einni milljón kr.
Ögmundur Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Friðriks A. Jónssonar
hf., segir að hugsanlega verði kaup-
samningi um höfuðlínusónar, sem
fyrirtækið gerði við Sog hf., rift.
Samningurinn er með eignarréttar-
fyrirvara. „Skipið kemst ekki langt
svo það verður ekki farið í þetta á
næstunni," sagði Ögmundur í gær.
Með ísaxir og sleggjur að vopni
Guðmundur sagði að við lögreglu-
aðgerðina í fyrrakvöld hefðu skip-
veijar verið með ísaxir, sleggjur og
önnur barefli. „Við getum þó ekki
fullyrt að þeir hafí ætlað að nota
þetta gegn lögreglunni eða þeim sem
ætluðu að ná í flökunarvélina. Alt-
ént þótti okkur ástæða til þess að
vera vel undir það búnir að fara í
skipið. Lögreglumenn voru með kylf-
ur og skildi. Allir voru þeir með
hjálma á höfði,“ sagði Guðmundur.
Reynir Amgrímsson, fram-
kvæmdastjóri IceMac, segir að skip-
stjóri Anyksciat hafí viljað fresta
þessari aðgerð. „Það tók sjö manns
ekki nema einn og hálfan tíma að
taka vélina í sundur og skipveijam-
ir hefðu þess vegna getað gert hið
sama og látið hana hverfa. Við verð-
um að gæta okkar réttar,“ sagði
Reynir.
Samstarf Sogs og IceMac
Fullt samstarf var á milli Sogs
hf. og IceMac um þessa aðgerð.
Sog hf. hafði greitt um 200 þúsund
kr. af flökunarvélinni, sem kostar
um fjórar milljónir kr. Vélin hafði
verið um borð í skipinu frá því í
desember. Gísli Jónsson, stjórnar-
formaður Sogs hf. sagði að aðgerð-
in í fyrrakvöld hefði verið á vegum
Sogs hf.
„Við vorum búnir að gera tvær
tilraunir til þess að ná vélinni í land
áður en skipstjórinn neitaði að af-
henda hana. Við misstum því tvisv-
ar sinnum af sölu á vélinni. Núna
gátum við selt hana á góðu verði
og það var ákveðið í samráði við
IceMac að fara þessa leið. IceMac
er að sjálfsögðu að tryggja sína
hagsmuni því véiin var í skuld.
Okkar mál verða gerð upp á núlli,“
sagði Gísli.
Gísli sagði að afskiptum Sogs
hf. af Anyksciat væri ekki lokið.
„Búnaðarbankinn í Litháen hefur
lýst því yfír að hann ætli að taka
af okkur skipið. Þrátt fyrir þetta
segist hann ekkert kannast við Sog
hf. en segir jafnframt að fyrirtækið
skuldi þeim 250.000 dollara.
„Við erum eins og saklausir
áhorfendur að þessu máli sem snýst
um ágreining milli Jura Liutas og
eiganda skipsins. Við getum hins
vegar skotið málinu fyrir Verslun-
ardómstólinn í London ef ágreining-
ur verður milli okkar og Jura Liut-
as. Slíkur ágreiningur er þó alls
ekki fyrir hendi. Samningur okkar
við Jura Liutas er gerður á alþjóð-
lega staðlaðan pappír um verslunar-
skip með viðauka sem passar fyrir
fiskiskip,“ sagði Gísli.
Hefur lagt 60 milljónir í skipið
Sog hf. hefur fjármagnað tækja-
búnað sem er um borð í Anyksciat.
Frá því skipið kom í desember 1994
og þar til það fór í sína fyrstu veiði-
ferð lagði Sog hf. í það um 60
milljónir kr., í viðhald, tæki og veið-
arfæri. Framtíð Sogs er ekki björt
ef skipið fer héðan, að sögn Gísla.
„Það gefur augaleið að ef skipið
fer og enginn rekstur er lendir fyrir-
tækið í greiðsluerfíðleikum. Það velt-
ur því allt á því að við komum skip-
inu aftur til veiða sem fyrst. Eg
ætla rétt að vona að málið leysist á
einni eða tveimur vikum og við fáum
að fara með skipið til veiða eins og
við ætluðum okkur," sagði Gísli.
Engin svör frá Litháen
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins kom skeyti frá Búnaðar-
bankanum í Litháen í fyrrakvöld til
talsmanns bankans hér á landi,
Rimantas Bendorius, um að um-
boðssamningi við Skipavarahluti hf.
hefði verið rift og Gára hf. hefði
tekið við. Við lögregluaðgerðirnar
í fyrrakvöld var viðstaddur fulltrúi
frá skipamiðluninni Gáru hf., en það
fyrirtæki er umboðsaðili litháíska
togarans Migelbaga, sem hefur leg-
ið í Hafnarfjarðarhöfn og er í eigu
Bendorius.
Kári Valvesson hjá Gáru segir
að fyrirtækið hafi ekki verið um-
boðsfyrirtæki togarans í fyrrakvöld.
„Að vísu var kallað á okkur því
sýslumaðurinn hafði heyrt að við
værum umboðsmenn skipsins en
það vorum við alla vega ekki í
gær. En hvað gerist í framtíðinni
veit ég ekki. Gára greiðir ekki
skuldir Anyksciat nema peningar
berist frá eiganda skipsins," sagði
Kári.
Sigurður Grétarsson hjá Út-
hafsafurðum, sem var með togar-
ann Vydunas á leigu, ræddi við
Alfreð Steinar Rafnsson, einn ís-
lensku skipveijanna fjögurra um
borð í Vydunas, í gær. Sigurður
sagði að íslendingarnir ættu eftir
að ganga frá einhveijum formsatr-
iðum enn áður en málum þeirra
yrði lokið í Litháen.
Morgunblaðið hefur ítrekað reynt
að fá viðhorf Vaclovas Litvanis,
stjórnarformanns Búnaðarbankans
í Litháen, til þessa máls en hann
hefur ekki svarað fyrirspurnum.
Ekki hefur heldur náðst í talsmenn
Jura Liutas Sem framleigði Anyksc-
iat til Sogs hf.
Að hasla sér völl
TÓNLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Bizet, Mascagni,
Sibelius, Mozart og Tsjaíkovski. Ein-
leikari: Peter Máté. Stjórnandi:
Guðni Emiisson. Fimmtudagurinn
28. mars 1996
ÞAÐ eru stór tíðindi er ungur
hljómsveitarstjóri kveður sér hljóðs
og ekki síst vegna þess að fáir ís-
lendingar hafa fetað þann torsótta
veg, sem þeir þurfa að rata, er
ætla sér að verða hljómsveitarstjór-
ar, að vera verkstjórar yfir 60 sér-
menntuðum tónlistarmanneskjum
og hafa á valdi sínu þá óskilgreindu
galdra, er öll góð list býr yfir. Það
er ekki fýsilegt fyrir íslending að
hasla sér völl hér heima sem hljóm-
sveitarstjóri, því segja má að vinnu-
staðurinn sé aðeins einn og það er
sjálf Sinfóníuhljómsveit íslands.
Þrátt fyrir lítið olnbogarými hafa
nokkrir ungir tónlistarmenn leitað
sér menntunar erlendis og er Guðni
Emilsson einn þeirra en hann starf-
ar sem hljómsveitarstjóri við Sinf-
óníuhljómsveit æskunnar við há-
skólann í Tiibingen.
Tónleikarnir hófust á forleiknum
að óperunni Carmen eftir Bizet og
þar á eftir fýlgdi Intermezzo úr
óperunni Cavalleria rusticana, eftir
Pietro Mascagni og í þriðja við-
fangsefninu, 3. þættinum úr Kar-
elia-svítunni, eftir Sibelius, var ekki
annað að sjá en Guðni Emilsson
kynni hið besta að stjórna hljóm-
sveit, því þessi einföldu og vinsælu
PETER Máté píanóleikari og
stjórnandinn Guðni Emilsson
verk voru fallega og líflega flutt.
Efnisskrá tónleikanna er valin
eftir því hvaða verk voru oftast
nefnd í könnun, sem gerð var í
fyrra, en það liggur í hlutarins
eðli, að vinsæl smáverk verða oft-
ast nefnd, svo að slík könnun getur
verið villandi, sérstaklega er stærri
viðfangsefnin dreifast á marga
titla.
Hvað sem þessu líður munu
reyndir tónleikagestir varla leggja
mikla áherslu á að heyra hæga
þáttinn í píanókonsert nr 21, eftir
Mozart, þó að hann sé hin fegursta
tónsmíð. Þessi þáttur var mjög vel
fluttur bæði af einleikaranum Peter
Máté og hljómsveit en það var fyrst
með Rómeó og Júlíu eftir Tsjaí-
kovskí, sem reyndi á hljómsveitar-
stjórn Guðna Emilssonar og það
var auðheyrt, sérstaklega í átaks-
köflum verksins að Guðni hefur
meiningar um það hvernig verkið
skuli flutt. í hægum inngangi
verksins og niðurlagi vantaði að
hann næði að magna upp stemmn-
ingu og var flutningurinn í þessum
hluta verksins aðeins áferðarfalleg-
ur en alltof hlutlaus og blátt áfram
leikinn.
Andlát
ÁSGRÍM-
UR HALL-
DÓRSSON
Hornafirði. Morgiinblaðið.
LÁTINN er Ásgrímur Halldórsson,
heiðursborgari á Hornafirði, 71 árs
að aldri. Ásgrímur var í forystusveit
þeirra athafnamanna sem lögðu
grunninn að vexti og viðgangi
Hornafjarðar. Hann var í 11 ár í
hreppsnefnd Hafnar og nokkur ár
sem oddviti.
Ásgrímur var kaupfélagsstjóri
KASK frá 1953-1975. Framkvæmd-
arstjóri Fiskimjölsverksmiðju Horna-
fjarðar frá upphafi til 1975, um tíma
framkvæmdastjóri Skipatryggingar
Austfjarða og stofnaði fískvinnslu
og útgerðafélagið Skinney hf á Höfn.
Eftirlifandi eiginkona Ásgríms er
Guðrún Ingólfsdóttir og eiga þau 5
uppkomin börn, Ingólf skipstjóra og
útgerðarmann á Höfn, Halldór utan-
ríkisráðherra, Önnu Guðnýju skrif-
stofumann, Elínu leikskólakennara,
og Katrínu garðyrkjufræðing.
--------------♦ ♦ ♦-------
Togararall
Niðurstaða
í fyrsta lagi
í næstu viku
„EG kalla okkur góða ef við klárum
að vinna úr mælingum togararallsins
í næstu viku, en svo mikið er víst
að engar upplýsingar er að hafa fyr-
ir þann tíma,“ sagði Jakob Jakobs-
son, forstjóri Hafrannsóknarstofnun-
ar, í gær
Togararalli Hafrannsóknarstofn-
unar er lokið og niðurstöðu mælinga
á fiskstofnum að vænta fljótlega.
Jakob sagði að á síðasta ári hefðu
verið gefnar út bráðabirgðaniður-
stöður, en margir verið ósáttir þegar
endanlegar niðurstöður rímuðu ekki
við þær að fullu. Því ætlaði Hafrann-
sóknarstofnun ekki að fara þá leið
núna, heldur vinna strax úr upplýs-
ingum til fulls.
í LArlesiennne-svítunni, en flutt-
ir voru þættir 1. og 2., óx Guðna
ásmegin og náði hann oft að magna
upp sterk tilþrif, sérstaklega í hin-
um kontrapunktíska Farandole-
þætti úr seinni svítunni. Peter
Máté lék 1. þáttinn í píanókonsert
nr.l eftir Tsjaíkovskí og eins og
þegar hann lék hann síðast var
flutningur hans glæsilegur en
nokkuð hrárri að þessu sinni. Máté
er frábær píanóleikari og hefði ver-
ið glæsilegt að hafa hann með í
Ameríkuferðina.
Tónleikunum lauk með Finlandíu
eftir Sibelíus og þar gat að heyra
ágæta motun Guðna á þessu vin-
sæla verki og eftir því sem dæmt
verður af einum tónleikum er Guðni
efnilegur stjórnandi og verður fróð-
legt að fylgjast með þroska hans
sem listamanns og sjá og heyra
hann takast á við viðfangsefni, er
hann sjálfur velur sér og veit sig
best kunna.
Jón Ásgeirsson