Morgunblaðið - 29.03.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996 19
Alcatel með mesta tap
aldarinnar í Frakklandi
París. Reuter.
ALCATEL ALSTHOM hefur skýrt
frá mesta tapi fyrirtækis í Frakk-
landi á þessari öld eftir mikil út-
gjöld vegna endurskipulagningar og
misheppnaðra kaupa á fyrirtækjum
á Italíu, í Bandaríkjunum og Þýzka-
landi.
Alcatel er fjórða stærsta fyrirtæki
Frakklands og umsvif þess ná frá
ijarskiptum til hraðskreiðra járn-
brautarlesta. Hreint tap þess nam
25.6 milljörðum franskra franka
(5.05 milljörðum dollara) 1995,
samanborið við hagnað upp á 3.6
milljarða 1994.
Tapið stafaði nær eingöngu af
sérstökum útgjöldum að upphæð
23.9 milljarðar.
Kostnaður vegna endurskipu-
lagningar nam 13.4 milljörðum
franka og afskriftir óáþreifanlegra
eigna námu 13.5 milljörðum franka.
í yfirlýsingu frá fyrirtækinu sagði
að sérstök útgjöld endurspegluðu
„breytingu á markaðshorfum nokk-
urra fyrirtækja“, sem Alcatel hefði
eignazt, þar sem horfurnar væru
mun „óhagstæðari en gert hefði
verið ráð fyrir.“
Frá tapinu er greint í fyrstu árs-
reikningum nýs stjórnarformanns,
Serge Tchuruk, eftirmanns Pierre
Suard, sem var neyddur til að segja
af sér vegna dómsrannsóknar á
meintu misferli í fyrra. Tchuruk
kvaðst vona að Alcatel kæmi slétt
út 1996.
Tchuruk sagði á blaðamanna-
fundi að stjórn Alcatel, sem er eitt
fremsta fyrirtæki heims á sviði fjar-
skiptabúnaðar, væri þess fullviss að
fyrirtækið mundi aftur skila vænum
hagnaði 1998 þegar endurskipu-
lagningu yrði lokið.
Hann sagði að tapið hefði verið
mest hjá Alcatel Italia, STC í Banda-
ríkjunum og AEG Kabel -en öll
þessi fyrirtæki voru keypt í tíð Su-
ards.
Sérfræðingar sögðu að Alcatel
hefði verið lengi að laga sig að
breyttum fjarskiptamarkaði í Evr-
ópu, þár sem ríkiseinokunarfyrir-
tæki stæðu nú andspænis sam-
keppni við harðsnúin einkafyrirtæki.
Tapið er mun meira en hjá ríkis-
bankanum Crédit Lyonnais, sem
tapaði 12.1 milljarði franka, ogjárn-
brautarfyrirtækinu SNCF, sem tap-
aði 16.6 milljörðum 1995.
Vífilfell hf.
Pétur
Bjömsson
stjórnar-
formaður
í FRÉTT á forsíðu viðskiptablaðs
Morgunblaðsins í gær um ráðningu
nýs framkvæmdastjóra Vífilfells hf.
var ranglega sagt að Pétur Guð-
mundarson hefði verið starfandi
stjórnarformaður undanfarin tvö ár.
Hið rétta er að Pétur Björnsson
hefur verið forstjóri og starfandi
stjórnarformaður Vífilfells mörg
undanfarin ár og hefur engin breyt-
ing verið á því gerð. Þá skal það
tekið fram að Pétur Guðmundarson
er ekki lögmaður fyrirtækisins.
Lögmaður þess er Hreinn Loftsson
hrl. Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Innanhúss-
sjónvarp hjá
Sainsburys
London. Reuter.
J. SAINSBURY Plc, stærsta kjör-
búðakeðja Bretlands, hyggst koma
á fót innanhússsjónvarpi í verzlunum
sínum og verða þær tengdar um
gervihnött.
JS-TV, eins og stöðin verður köll-
uð, á að „gera starfsliði stórverzlana
okkar kleift að fylgjast með því sem
er að gerast í greininni,‘‘ að þvi er
David Sainsbury stjórnarformaður
sagði í yfirlýsingu. „Við teljum að
það muni veita Sainsbury mikilvæga
yfírburði í samkeppni with aðra,“
sagði hann.
hingað og ekki lengra!
Nýherji Radiostofan
veitir ráðgjöf
sérfræðinga með
sérmenntun á sviði
öryggismála
<o>
NÝHERJI RADIOSTOFAN
Skipholti 37 sími 569 7600
Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum
komið myndarlega til móts við þörfina á
fleiri bílastæðum í hjarta borgarinnar meðal
annars með byggingu bflahúsa, sem hafa
fjölmarga kosti framyfir önnur bflastæði.
rólegheitum inni í björtu og vistlegu húsi
9g síðan sinnt erindum sínum áhyggjulausir.
í bflahúsi rennur tíminn aldrei út,
þú borgar aðeins fyrir þann tíma
sem notaður er.
Nú þegar vorar er fátt skemmtilegra en að
rölta um miðborgina og njóta mannlífsins,
verslananna og veitingahúsanna.
Þeim fjölgar stöðugt sem hafa uppgötvað
þau þægindi að geta lagt bflnum í
Og síðast en ekki síst eru bflahúsin staðsett
með þeirn hætti að frá þeim er mest þriggja
mínútna gangur til flestra staða í miðborginni.
Nýttu þér bflahúsin.
Þau eru þægilegasti og besti kosturinn!
Bflastæðasjóður
Gisli B S SKÓP