Morgunblaðið - 29.03.1996, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 29.03.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996 51 l I I I ► & $ > I i ) f I I I 3 i 4 4 4 4 4 4 4 4 H SIG URBJÖRG PÉTURSDÓTTIR + Sigurbjörg Pét- ursdóttir fædd- ist á Útnyrðings- stöðum á Völlum 14. febrúar 1908. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 22. mars síðastliðinn. Foreldrar Sigur- bjargar voru Pétur Pétursson, f. 1874, d. 1936, vinnumað- ur og póstur á Hér- aði, síðar verka- maður og múrari í Neskaupstað, og Una Stefanía Stefánsdóttir hús- móðir fædd 1882, d. 1950. Systkini Sigurbjargar: Jón, f. 25.6. 1903, Ragnheiður, f. 9.8. 1904, Sigurður, f. 21.12. 1905, látinn, Sigríður, f. 13.1. 1907, Eva, f. 29.10. 1908, Mar- grét, f. 3.5. 1911, Þorgerður, f. 3.8. 1913, Sveinbjörg, f. 11.5. 1912, Stefán, f. 13.11. 1915, Guðný, f. 31.7. 1917, María, 8.11. 1923 og Ragna, f. 1919, dó á fyrsta ári. Þá dóu tveir drengir i fæðingu 1910 og 1921. Hinn 17. september 1931 giftist Sigurbjörg Pétri Björg- vini Jónssyni skósmíðameist- ara, f. 27.11. 1889, d. 1956. Börn þeirra: Bogi, f. 3.2. 1925, forstöðumaður Barnaheimilis- ins á Ástjörn, maki Margrét Magnúsdóttir, þau eiga eitt barn. Stefanía, f. 29.3. 1926, maki Sigurður Þórðarson, lát- inn. Jóna Vilborg, f. 21.11. 1927, maki Matthías Jóhanns- son, látinn. Þau eiga níu börn. Guðlaug, f. 6.6. 1930, maki Karl Hjaltason, þau eiga fimm börn. Stefán, f. 8.5. 1931, söðlasmiður og for- sljóri. Maki hans er Kristbjörg Magnús- dóttir, þau eiga fimm börn á lífi en misstu dóttur, Júlíu, 9 ára gamla. Hjálm- ar, f. 20.5. 1931, úrsmiður. Sambýl- iskona Hjördís Ein- arsdóttir. Hjálmar á tvo syni frá fyrra hjónabandi. Jón Pétur, f. 5.3. 1934, fyrrver- andi skipstjóri. Maki Guðrún Lárusdóttir. Sigurlína, f. 4.4. 1936. Maki Eyvind Pétursson frá Vogi í Færeyjum, þau eiga þijú börn. Halldór, f. 2.10.1941, rafvirkjameistari og umsjónar- maður. Maki hans er Bryndís Björnsdóttir, þau eiga tvær dætur. Ingi Kristján, f. 22.7. 1943, afgreiðslumaður. Maki Helga Jónsdóttir, þau eiga fimm syni. Þorsteinn, f. 27.5. 1945, tollfulltrúi. Maki Snjólaug Ósk Aðalsteinsdóttir, þau eiga þrjá syni. Jóhanna Fanney, f. 26.2. 1923, maki Lesley Ashton, bæði látin. Þau eignuðust níu börn. Elísabet, f. 1922, d. 1946. María, f. 1924, d. 1968. Valgerð- ur, f. 1937, dó nokkurra vikna. Sigurbjörg og Pétur bjuggu lengst af á Akureyri. Utför Sigurbjargar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Mér er það bæði Ijúft og skylt að minnast móður minnar, Sigur- bjargar Pétursdóttur, sem borin er til grafar í dag. Ég tel mig lánsam- an mann að hafa hafnað hjá henni vegna þess hvernig ég er í heiminn kominn. Kona sem fer á fund ann- arrar konu sem eignast hefir barn með manni hennar og býðst til að taka barnið og ala það upp með öðrum börnum sínum, hlýtur að búa yfir mikilli ást og kærleika, en fað- ir minn hafði þá tekið hliðarspor með annarri konu. En ást og kær- leikur var einmitt það sem Sigur- björg móðir mín átti í svo ríkum mæli. Sigurbjörg, sem ég af eðlilegum ástæðum kalla alltaf móður mína, fæddist á Útnyrðingsstöðum á Hér- aði 14. febrúar 1902 og var því nýlega orðin níutíu og fjögurra ára. Hún ólst upp á Hallormsstað í miklu ástríki Elísabetar húsfreyju þar, sem hún kallaði ávallt fóstru sína og mat mikiis. Árið 1921 giftist hún föður mínum, Pétri Björgvin Jóns- syni, f. 26.11. 1889, d. 8.11. 1966, frá Þuríðarstöðum á Eyvindardal í S-Múlasýslu, og hófu þau búskap á Eskifirði. Hafði faðir minn lært skósmíði á Seyðisfirði og setti hann upp skósmíðaverkstæði á Eskifirði. Seinna hóf hann þar vörubílaakstur fyrstur manna. Var hann ýmist kaliaður Pétur skó, eða Pétur bíl- stjóri. Erfitt var þeim sem og flestu almúgafólki að framfleyta sér vegna kreppunnar á þeim tíma. Þegar þau höfðu eignast sjö börn tók faðir minn áðurgetið hliðarspor. Eignaðist hann mig með konu sem hét Ingibjörg Sigurðardóttir og var vinnukona á prestsetrinu þar í sveit. Barst það til eyrna Sigurbjargar að barnið væri alltaf vejkt, væri meðal annars kviðslitið. Fátæk vinnukona á þeim tíma hafði litla möguleika á að ala upp barn. Það var þá sem Sigurbjörg samdi við Ingibjörgu um að hún tæki barnið til sín og annaðist það sem eitt af sínum börnum. Hún setti þó það skilyrði að Ingibjörg skipti sér ekki frekar af barninu. Þetta hlýtur að hafa verið erfið ákvörðun fyrir þær báðar, unga móðurina að afsala sér barninu sínu, og hina verðandi fóst- urmóður að koma með barnið heim til mannsins síns. „Þetta barn átt þú góði og við ölum það upp með öðrum börnum þínum,“ sagði hún. Allt var þetta gert með handsali og loforðum sem í þá daga gilti sem lög. Fór Ingibjörg til Reykjavíkur, giftist þar og átti fimm börn með sínum manni. Vorið 1938 kom til Eskifjarðar Jakob Þorsteinsson, Þorsteins M. Jónssonar, bókaútgefanda og skóla- stjóra, frænda okkar. Hvatti hann foreldra mína til að flytja til Akur- eyrar, þar væri uppgangur í iðnaði og Pétur mundi geta fengið vinnu í hinni nýju skóverksmiðju Iðunni. Fór hann um sumarið til Ákureyrar og hóf þar störf. Hann fékk eins og margir sem fluttu til bæjarins á þeim tíma, inni á Gamla hótelinu, sem var í innbænum á gömlu Akur- eyri. Ekki var húsnæðið mikið, eitt stórt herbergi og afnot af eldhúsi. í september þá um haustið fór móðir mín norður. Þá voru börnin orðin 12, ég þá meðtalinn. Ákveðið var að hún tæki fjögur börn með sér, en hinum var komið fyrir hjá ættingjum og vinum. Sum þurftu að ljúka við skóla og annað kom ekki til mála hjá móður minni en að ég færi með. I þessum þrengslum bjuggum við um veturinn, en síðar fluttum við í betra húsnæði. Svo kom að stóru stundinni, þeg- ar ég var upplýstur um sannleikann um upphaf mitt. Ég var níu ára og var að koma úr skólanum og varð hissa þegar ég kom inn á aðra hæð í gamla Hlíðarshúsinu í Lækjargili. Þar inni í stofu sat mamma og kona sem bjó á neðri hæðinni og segja þær mér að koma inn. Eins og á stóð flaug í gegnum huga minn refsing vegna prakkarastrika, sem ég þá gat ekki munað. Þá sagði móðir mín mér allt um tilkomu mína og að þetta hefði hún lengi ætlað að segja mér. Hún hefði þó ekki haft kjark til þess, en hafði nú sér til fulltingis vinkonu sína. Þegar þetta var afstaðið tók ég utan um háls hennar og sagði: „Þú ert nú samt mamma mín.“ Eg fékk síðan mitt mjólkurglas og brauð og fór út að leika mér. Þetta hafði engin áhrif á mig og breytti mér í engu. Nú vissi ég þetta og þar með búið. Á Akureyri bættust við þrír synir þeirra og höfðu þau þá átt saman 14 börn. Foreldrar mínir töldu það mikla gæfu síðar á æfinni að hafa ráðist í flutninginn til Akureyrar og hugs- uðu ávallt hlýlega um Jakob sem góðan örlagavald. Á Eskifirði blasti ekki annað við þeim, frekar en mörgum öðrum þar í kreppunni, en að þiggja sveitarstyrk en það var ekki að þeirra skapi. Því var að hrökkva eða stökkva. Börnin fóru síðan að tínast í foreldrahús til Akureyrar hvert af öðru. Elsta barnið, Elísabet, sem var skírð í höfuð fóstru móður minnar, lést í Akureyrarveikinni svokölluðu árið 1946. Bogi, elsti sonurinn, kom vorið 1939 og hóf störf í Iðunni og vann þar alla tíð, eða í 48 ár, en þá var starfseminni hætt. Hann var foringinn í systkinahópnum og stoð og stytta foreldra okkar. Um miðjan fimmta áratuginn gekk hann til liðs við Sjónhæðarsöfnuð Arthurs Gooks, og síðar fleiri systkini mín. Öll sóttum við þar sunnudagaskóla. Um fermingu hættu sum en önnur héldu áfram og gengu í söfnuðinn. Öll vorum við alin upp í guðstrú og góðum siðum. Síðan skírðust foreldrar mínir inn í þennan söfnuð, sem er mjög fijálslyndur og öll vor- um við í Þjóðkirkjunni. Foreldrar mínir voru mikið trúfólk og þá sér í lagi móðir mín. Þau voru heiðarleg mjög, kunnu ekki að skulda öðrum og mátti ekki vamm sitt vita. Þess verð ég að geta, vegna mik- ils fjölda heimilisfólks, en auk þess var mjög gestkvæmt, að ein dóttir- in, María, sem lést 1966, fórnaði sér árum saman fyrir fjölskylduna með því að vera móður minni til aðstoðar á heimilinu. Eitt síðasta verk móður minnar var að kveðja á sinn fund þann son sinn sem hafði með fjármál að gera, í sambandi við þrjár gjafir, 60 ára, 70 ára og fermingu sonarsonar. Hann sagðist mundi sjá um þetta og að hún gæti verið alveg róleg. En það var ekki við annað komandi en að hann kæmi til hennar, hann ætti að vita að hún gæti ekki skuld- að öðrum neitt. Hann skrapp því til hennar úr vinnunni og hún gekk frá sinni hlið vegna gjafanna. Þetta var tveimur dögum fyrir andiát hennar. Móðir mín var síðustu æviárin á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri þar sem henni leið mjög vel. Hrósaði hún oft starfsfólkinu þar fyrir góða umönnun og einstakan velvilja í sinn garð. Á Hlíð fann hún sig í góðra vina hópi meðal starfsfólks og annarra vistmanna. Vil ég senda öllum þessum góðvinum móður minnar hlýjar þakklætiskveðjur. Á Dvalarhéimilinu Hlíð veiktist hún fyrir nokkrum dögum og var þá lögð inn á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sem er skammt frá Hlíð, og þar lést hún nýlega orðin níutíu og ijögurra ára. Þar sem ég er búsettur í Reykja- vík sá ég móður mína aðeins í sum- arleyfum mínurn hin síðari ár en ég veit að varla leið sá dagur að eitthvert systkina minna liti ekki til hennar og bræður mínir skiptu með sér, nokkrir saman, að koma til hennar einn dag í viku hverri til að eiga með henni bænastund. Uppáhaldsvers hennar á þeim stundum var „Vertu guð faðir, fað- ir minn“. í lokin læt ég fylgja með vísu eftir föður minn sem á vel við. Finn ég þrátt mig þrýtur mátt, þrotin brátt er glíma. Guð, mig láttu sofna í sátt, sígur að háttatíma. (P.B.J.) Hvíl í friði móðir mín. Þinn sonur, Hjálmar Pétursson. Móðursystir mín, Sigurbjörg Pét- ursdóttir, er látin 94 ára að aldri. Sigurbjörg var elst systkina sinna en þau voru 15 og móðir mín næstyngst. Var því nokkur aldurs- munur á þeim. Þær ólust heldur ekki upp saman, því vegna fátækt- ar var flestum systkinum fengið fóstur hjá vandalausum. Einungis þijú þau yngstu voru alltaf hjá for- eldrum sínum sem þá höfðu flust niður á Norðfjörð. Sigurbjörg eign- aðist sjálf 14 börn og ól auk þess upp eitt fósturbarn. Var hún ein af þeim hetjum hversdagslífsins sem eiga sér hvað merkasta sögu, eins og rakið hefur verið annars staðar. Hér mun ég aðeins minnast persónulegra kynna af frænku minni. Fyrstu búskaparár Sigurbjargar og Péturs B. Jónssonar skósmiðs, eiginmanns hennar, þjuggu þau á Eskifirði, en síðar flutti fjölskyldan búferlum til Akureyrar og þar man ég fyrst eftir þessu frændfólki mínu. Á þeim árum sem ég var að al- ast upp í Neskaupstað voru ferðalög á milli landshluta heldur sjaldgæfir viðburðir og tengdust gjarnan nauðsynlegum erindum af einhveiju tagi. Gestakomur voru því kærkom- ið tilhlökkunarefni og ekki síst hlökkuðum við til þegar fréttist að von væri á Sigurbjörgu og Pétri, strákunum þeirra og oft fleirum úr íjölskyldunni. Þeim fylgdi ætíð mik- il gleði, þau voru svo elskuiegar og hlýjar manneskjur að í huga mínum eru þessar heimsóknir samfelldir dýrðardagar. Ég man að mig dreymdi oft um að fá að fara til Akureyrar og víst var eitthvað um það rætt þótt ekki yrði af því fyrr en mörgum árum síðar. Ég öfundaði því ekki lítið systur mína þegar hún fór með íjöl- skyldunni norður að lokinni einni heimsókn þeirra eystra. Erindið var raunar þess efnis að taka áttí úr henni hálskirtlana en það þótti mér víst smámunir þegar um það var að ræða að fá jafnframt að fara í slíka ferð. Systur minni er þessi rútuferð í fersku minni. Pétur var afar fróður og áheyrilegur sögu- maður og skemmti hann samferða- fólki sínu stóran hluta leiðarinnar. Sú þakkarskuld sem ég sjálf stend fyrst og fremst í við Sigur- björgu frænku mína tengist þó ár- unum sem ég var í Menntaskólanum á Akureyri. Þá urðu Gleráreyrar 2 mitt annað heimili og betri sama- stað hefði enginn unglingur getað kosið sér. Þótt húsrými væri ekki mikið og ijölskyldan stór var hjarta- rými nóg - enda gestkvæmt með afbrigðum. Um hveija helgi var ég þar í mat, og var það bæði mikill og hollur viðurgjörningur. Þess utan var ég velkomin hvenær sem var, hvött til að koma sem oftast og þá gjarnan með vinkonur mínar með mér. Ekki má heldur gleyma veisl- unum, þar sem mínar eigin eru mér minnisstæðastar, því alltaf var haldið upp á afmælið mitt og til þess ætlast að ég byði þeim með mér sem ég óskaði. Þegar ég útskrifaðist sem stúd- ent komu foreldrar mínir norður og gistu að sjálfsögðu hjá Sigurbjörgu og Pétri. Þá héldu þau mér hina veglegustu stúdentsveislu. Eftir að verðandi eiginmaður minn kom til sögunnar varð hann sami aufúsugestur á Gleráreyrum. Mitt fólk var þeirra fólk, þeirra heimili var mitt heimili. Fyrir allt þetta og miklu meira en það sem hér hefur verið tjáð með orðum er mér bæði ljúft og skylt að þakka nú að leiðarlokum. Við Ögmundur, Helga og Ólafur sendum börnum Sigurbjargar og Dragttr, kjólar, blússur og pils. Ódýr náltfatnaöur Nýbýlavegi 12, sími 554 4433 fjölskyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur. Gengin er góð kona en minning hennar lifir. Ragna Ólafsdóttir. Sigurbjörg Pétursdóttir á Akur-- eýri er látin í hárri elli. Hún var fædd á prestssetrinu Vallanesi á Völlum á Héraði, elst ijölmargra barna Péturs Péturssonar sem lengi var vinnumaður þar og konu hans, Stefaníu Stefánsdóttur. Pétur hafði lítið fyrir sig að leggja í Vallanesi. Stefanía var þar vinnukona og börnin komu hvert af öðru í heiminn. En launin sem þau hjónin höfðu á prestssetrinu voru ekki hærri en það að þau gátu ekki haft nema einn ómaga á fram- færi sínu. Börnunum var þess vegna* komið í fóstur um Velli og Skóga hveiju af öðru. Einu sinni valdi Stefanía þann kostinn að láta hvít- voðunginn í fóstur vikugamlan heldur en barnið sem hafði fæðst næst á undan. Henni var farið að þykja svo vænt um það. Sigutbjörg varð að fara til vanda- lausra hálfs þriðja árs að aldri. Hún fór að Hallormsstað til hjónanna Elísabetar og Páls. Þar fékk hún einstaklega gott atlæti og undi hag sínum eins og hjá bestu foreldrum. Elísabetar fóstru sinnar minntist hún ætíð með sérstakri hlýju þegar talið barst að unglingsárunum. Sigurbjörg var léttlynd, styrk i skapi og ófeimin. Var til þess tekið* hve einarðlega hún gat komið fyrir sig orði sem unglingur við þá sem hærra stóðu í mannfélagsstiganum. Naut hún þar bæði eðlis síns og þeirrar alúðar og umhyggju sem hún naut hjá fósturforeldrunum. Sigurbjörg giftist ung Pétri B. Jónssyni frá Tunguhaga á Völlum en þau voru bræðrabörn. Pétur var þá fluttur til Eskiíjarðar. Hann var lærður skósmiður og kom sér upp- verkstæði á Eskifirði. Hann var einnig vörubílstjóri þar og var mik* ið í flutningum og vegávinnu. Hann flutti einnig fólk á vörubílnum á skemmtanir um helgar, fyrst á bekkjum á opnum pallinum en síðar í húsi, sem var sett á pallinn til að flytja farþega, svokölluðu boddíi. Þau Sigurbjörg og Pétur eignuð- ust 14 börn. Sá var munur á að- stöðu þeirra og foreldra Sigurbjarg- ar að þau gátu séð öllum börnunum farborða. Það var kannske vegna minninganna um móður sína að Sigurbjörg tók að sér að ala upp son Péturs sem hann eignaðist utan hjónabands. Sigurbjörg og Pétur voru sam- hent í uppeldi barnanna. Þau veittu þeim eins vel og hægt var af veraldt legum gæðum ásamt góðu atlæti og ómældri ástúð. Ég var heima- gangur hjá þeim í marga vétur á Gleráreyrum 2 meðan ég var í skóla á Akureyri. Þó að oft væri margt um manninn heima hjá þeim þá var kliðurinn í hópnum hlýr og ljúfur. Því réð Sigurbjörg. Þegar ég tók stúdentspróf fékk ég nellikuna mína frá Gleráreyrum 2. Börn Sigurbjargar og Péturs voru öll mannvænleg, vel gerð og heilsteypt eins og þau áttu kyn til. Þau hafa reynst traustir borgarar hvert sem leiðir þeirra hafa legið. Sigurbjörg var farsæl kona og hún veitti öðrum farsæld í vegai-- nesti. Megi minning hennar lengi lifa. Stefán Aðalsteinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.