Morgunblaðið - 29.03.1996, Page 55

Morgunblaðið - 29.03.1996, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996 55 FRETTIR Morgunblaðið/Gunnlaugur NOKKRAR stúlknanna að búa sig undir myndatöku hjá Helenu Jónsdóttur. Fegurðardísir kynntar á Borginni Yfirlýsing frá stjórn Nýherja MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi yfirlýsing frá Nýherja: „í fréttatíma Stöðvar 2 í gær- kvöldi birtist frétt um Nýherja og starfslok Gunnars M. Hans- sonar forstjóra. Af fréttinni hefði mátt ráða að starfslokin mætti að einhveiju leyti rekja til sam- keppni á tövlumarkaði og erfið- leika í rekstri Stöðvar 3. Því fer fjarri. Gunnar M. Hánsson hefur verið forstjóri Nýherja frá stofn- un árið 1992 og undir forystu hans hefur fyrirtækið verið leið- andi á sviði tölvu-, skrifstofu- og tæknibúnaðar hér á landi. Gunnar var áður forstjóri IBM á íslandi og stýrði því fyrirtæki með góðum árangri þar til Ný- herji var stofnaður og rekstur IBM féll inn í nýja fyrirtækið. Umskiptin úr tölvufyrirtæki í alhliða tæknifyrirtæki eru mikið verk og Gunnar er aðalhöfundur að nýja fyrirtækinu, þessi um- skipti voru nauðsynleg ef fyrir- tækið vildi áfram vera í farar- broddi. A undanförnum fjórum árum hefur hlutafé í Nýheija skilað eigendum nálægt 30% ársávöxt- un að jafnaði þegar tekið er til- lit til arðgreiðslna og gengis á hlutafjármarkaði. Vandfundin mun fjárfesting sem skilað hefði hiuthöfum betri jafnaðarávöxtun á þessu tímabili. Gunnar M. Hansson tilkynnti stjórn það að hann hygðist láta af störfum á yfirstandandi ári vegna persónulegra ástæðna. Þessi tíðindi komu stjórn mjög á óvart, en hún varð að sjálfsögðu að virða ásetning Gunnars. Að samkomulagi hefur orðið að hann gegni starfi áfram fram eftir ári. Gunnar hefur reynst dugmikill forstjóri og mikill keppnismaður og það er fjarri lagi að gefa í skyn að hann hopi af hólmi við samkeppni. Sá hluthafi sem hóf máls á því á hluthafafundi að ákvarðan- ir við stjórnun félagsins hefðu ekki verið í samræmi við sam- þykktir og útboðslýsingu á hluta- bréfum síðastliðið sumar mun hafa keypt sín hlutabréf nokkr- um dögum fyrir aðalfundinn. Það er undarlegt að hann skyldi hætta fimm þúsund krónum í fyrirtæki sem hann taldi svo við- sjái’vert. Tilgangurinn virðist hafa verið sá einn að setja á svið „frétt“ til þess að ófrægja Nýheija og Gunnar M. Hansson forstjóra með ósmekklegum hætti. Fyrir hönd stjórnar, Benedikt Jóhannesson (sign.) stjórnarformaður Ný- heija.“ Söfnun fyrir Staðarfell Rauði krossinn með átak í skyndihjálp Nýjum ökumönn- um boðið RAUÐI kross Íslands býður öll- um þeim sem öðlast almenn ökuréttindi á þessu ári á nám- skeið í skyndihjálp án endur- gjalds. Hundruð nýrra ökumanna um land allt hafa nú þegar fengið boð félagsins um þátt- töku í námskeiði ásamt bækl- ingi þar sem fjallað er um nokk- ur grunnatriði í skyndihjálp. Bæklingnum fylgir ávísun fyrir námskeiðsgjaldi allt að 4.000 kr. og gildir hún í eitt ár frá útgáfudegi. Verkefnið er unnið í samvinnu við Umferðarráð. Dagur stjórn- málafræði STJÓRN Félags stjórnmála- fræðinga stendur fyrir svoköll- uðum Degi stjórnmálafræðinn- ar laugardaginn 30. mars. Tilefnið er tvíþætt. Annars vegar fyrirhuguð uppstokkun á námi í stjórnmálafræði við HÍ og hins vegar aðalfundur fé- lagsins. Fundurinn verður hald- inn í Litlu-Brekku (bak við Lækjarbrekku) og hefst með umræðum um námið í stjórn- málafræði kl. 14.30. Áætlað er að aðalfundurinn heflist ekki síðar en kl. 16.30. Basar o g kaffisala VORBASAR verður haldinn í Dagdvöl Sunnuhlíðar laugar- daginn 30. mars kl. 14. Seldir verða ýmsir munir unnir af fólki í Dagdvöl og einn- ig heimabakaðar kökur og luk- kupokar. Kaffisala verður í þjónustukjarna og heimabakað meðlæti á boðstólum. Allur ágóði rennur til styrkt- ar starfsemi Dagdvalar þar sem eldra fólk dvelur daglangt og nýtur ýmissar þjónustu. Aðalfundur BHM AÐALFUNDUR Bandalags há- skólamanna 1996 verður hald- inn dagana 29. og 30. mars að Grand Hótel Reykjavík. Ein- kunnarorð fundarins eru: Menntun, samstaða, réttindi. Á fundinum verður ijallað um ráðningarréttindi, lífeyris- réttindi og samningsrétt félags- manna og lögð fram drög að heildstæðri stefnuskrá fyrir bandalagið. Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir alþingismaður flytur er- indi um stöðu velferðarkerfisins á íslandi en einnig verða flutt erindi um endurmenntun há- skólamanna, jafnréttismál, flutning grunnskólans og gerð kjarasamninga. Á aðalfundi sitja 103 kjörnir fulltrúar 25 aðildarfélaga Bandalags háskólamanna. Grandadagur GRANDI HF. heldur í dag, föstudaginn 29. mars, sinn ár- lega Grandadag sem haldinn er undir yfírskriftinni: Fiskur - já takk. Reiknað er með því að um 2 þúsund grunnskólanemar og kennarar heimsæki Gr-anda auk eldri borgara og 20 fegurð- • ardrottninga. Sett hefur verið upp sögusýn- ing í matsal að Norðurgarði. Gestum verður kynnt nútíma fiskvinnsla, boðið að smakka á fiskréttum og loks hefur verið komið upp fiskasafni þar sem meðal annars má líta ýmsa kynjafiska. HIN árlega fegurðarsamkeppni Reykjavíkur verður haldin á Hótel Islandi föstudaginn 12. apríl nk. Stúlkurnar sem taka þátt í keppninni hafa að undanförnu verið á æfingum undir stjórn Helenar Jónsdóttur. í kvöld, föstudag, verða stúlkurnar kynntar á sérstöku kynningar- 100 ÁR verða liðin 1. apríl 1996 síð- an ullarverksmiðjan á Álafossi var stofnuð. Af því tilefni vill ÍSTEX hf. sem tók við 95 ára samfelldum rekstri Álafoss árið 1991 vekja at- hygli á starfseminni og merkilegri sögu ullariðnaðar í Mosfellsbæ. Opið hús verður hjá ÍSTEX í Mos- fellsbæ laugardaginn 30. mars kl. 13-17 þar sem starfsmenn sýna spunaverksmiðjuna og framleiðslu á ullarbandi Auk þess hefur sérstök sýning verið sett upp. Sérstak kynningarrit um ullariðn- að í Mosfellsbæ fyrr og nú er gefið út í tilefni sýningarinnar. Hönnunarsamkeppni um hand- kvöldi á Hótel Borg. Þar munu þær koma fram og gestir verða fræddir um undirbúning keppn- innar. Sýndur verður fatnaður frá Filippíu Elísdóttur og frum- saminn dans eftir Helenu Jóns- dóttur. Kvöldið hefst með fordrykk klukkan 19 en síðan verður boðið upp á þriggja rétta máltíð. prjón hefur staðið yfír undanfarna mánuði og hefur þátttaka verið mjög góð því um 370 handpijónaðar flíkur hafa verið sendar inn. Síðustu vikur hafa flíkurnar verið skoðaðar og myndaðar og mun dómnefnd á næstu dögum úrskurða um þijár bestu hug- myndirnar sem verðlaunaðar verða sérstaklega. 1 verðlaun eru 120.000 kr. fyrir fyrsta sætið, 100.000 kr. fyrir annað og 80.000 kr. fyrir þriðja sæti. Auk þess er ráðgert að keyptar verða a.m.k. 20 hugmyndir á 25.000 kr. hver þeirra. Álafosskórinn selur kaffi og ný- bakaðar vöfflur. SÁÁ mun í dag, föstudaginn 29. mars, standa að söfnun á Rás 2 til að byggja upp meðferðarstarfíð á Staðarfelli í Dölum. Söfnunin nefnist: Stöndum með Staðarfelli og er tekið á móti framlögum í síma 5-687-123. Söfnunin fer af stað í framhaldi af því að síðastliðinn þriðjudag var gengið frá samningum milli SÁÁ og ríkisins um ótímabundna framtíð meðferðardeildar SÁÁ að Staðarfelli. í fréttatilkynningu segir m.a. að Tuttugu stúlk- ur í Elite-keppni STÚLKURNAR, sem eru í úr- slitum í Elite- ljósmyndafyrir- sætukeppninni, koma frain á Café Óperu í kvöld, föstudags- kvöldið 29. mars. Þar fer fram kynning á keppninni sjálfri og keppendum sem koma fram á tískusýningu. Að þessu sinni tóku á annað hundrað stúlkur þátt í keppn- inni en tuttugu voru valdar til þess að taka þátt, í úrslitakeppn- inni hér á landi sem fram fer á Hótel Islandi miðvikudaginn 3. apríl. Sigurvegari þá tekur þátt í alþjóðakeppni sem fram fer næsta liaust í Monte Carlo. mikil þörf sé á að byggja upp Stað- ; arfell. Ovenju mikið hafi verið af * ungu fólki á Staðarfelli undanfarna > mánuði. Meirihluti sjúklinga er undir 25 ára aldri og eru flestir þeirra í fyrsta sinn í meðferð. Þessi fjölgun unga fólksins kemur í framhaldi af amfetamínfaraldri sem hefur gengið yfir síðustu misseri. Þennan faraldur má að stórum hluta rekja til þess að unga fólkið fer að neyta amfetam- íns eftir að hafa prófað E-pilluna. Langur laug- ardagur á morgun LANGUR laugardagur verður á Laugavegi og nágrenni 30. mars og verða verslanir opnar frá kl. 10-17. , Að þessu sinni verður lögð áhersla , á páskana með Páskaeggjaleik Nóa- . Síríus. Viðskiptavinir eiga þess kost að ( taka þátt í Páskaeggjaleik þeirrar ' verslunar sem þeir versla við og geta átt von á að hreppa páskaegg frá Nóa-Siríus í lok dagsins. Jafnframt bregða Strumparnir sér á leik um svæðið. Hitt Húsið verður í samstarfi við menntamálaráðuneytið, íþróttir fyrir alla, Heilsueflingu, Mátt og Félag framhaldsskólakennara með ratleik um miðbæ Reykjavíkur þennan laug- ardag og hefst hann á Ingólfstorgi kl. 13.30. Þetta framtak er í sam- bandi við þemamánuð tengdum heil- brigðu líferni í Hinu húsinu 16. mars til 10. apríl. Reynt er með þessu móti að höfða til ungs fólks með nýstárlegum hætti og fá þaö til að spreyta sig og hafa gaman af um leið, segir í fréttatilkynningu. Kaupmenn verða með páskatilboð og afslætti þennan dag og frítt er í bílastæðahúsum á laugardögum. /^i/dfms/zeöíf/ver/hir JSt rí tií/totkvmkfirí £/.1820 fáffiiréttuo mríftidfrrí Sfcoíflbni nylUDAPAPTANIR í SlMA 5&244SS Breskir seljend- ur á kompudög- um í Kolaportinu KOLAPORTIÐ efnir til sérstakra kompudaga um helgina og býður þá seljendum notaðra muna sérstakan afslátt af básaverði. Er efnt til slíkra daga öðru hveiju til að hvetja sem flesta til þátttöku, en svokallað kompudót er vinsælt á markaðstorg- inu og aldrei nóg af slíkum varn- ingi, að sögn forráðamanna Kola- portsins. Það er hins vegar nýjung að bresk- ir seljendur verði meðal seljenda kompudóts um helgina, en þeir bjóða einnig upp á ýmsar nýjar vörur á hagstæðu verði. Á kompudögum um helgina bjóðast seljendum sölubás á 1.800 kr. í stað 2.800 kr. og er Kola- portið opið laugardaga og sunnudaga. Ullariðnaður á Álafossi í Mosfellsbæ 100 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.