Morgunblaðið - 30.04.1996, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Island á fundi Alþjóðaviðskiptastofn-
unarinnar um frelsi í fjarskiptum
Sömu reglur og
á EES-svæðinu
Morgunblaðið/Ásdís
TELJA má líklegt að hermitækið í Laugardal eigi eftir að höfða
til yngstu kynslóðarinnar.
Rússíbanahermir í
Laugardalnum
MIKIL óvissa ríkir um niðurstöðu
fundar Alþjóðaviðskiptastofnunar í
Genf um aukið frelsi í fjarskiptum,
en ráðgert er að fundinum ljúki í
dag. Astæðan er einkum sú að
Bandaríkjamenn eru mjög ósáttir
við hversu skammt tilboð margra
annarra ríkja, einkum Asíuríkjaj í
þessum efnum ganga. Tilboð Is-
lands í viðræðunum var lagt fram
sl. föstudag og samkvæmt því er
gert ráð fyrir að frelsi í fjarskipta-
málum gildi hér að mestu leyti frá
ársbyijun 1998.
Guðmundur B. Helgason, sendi-
ráðsritari og varafastafulltrúi ís-
lands hjá Alþjóðaviðskiptastofnun-
inni, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að mikil óvissa ríkti
um lyktir fundarins vegna óánægju
Bandaríkjamanna og eflaust myndi
niðurstaðan ekki skýrast fyrr en í
lokin í dag. Gagnrýni Bandaríkja-
manna beindist ekki síst að þeim
ríkjum sem væru með einokun í
ALÞINGI samþykkti í gær breyt-
ingu á skaðabótalögunum en sam-
kvæmt henni hækkar svonefndur
margföldunarstuðull, sem mælir
íjárbætur vegna örorku, úr 7,5 í
10 hinn 1. júlí næstkomandi.
Lagabreytingin gerir einnig, ráð
fyrir að skipuð verði nefnd til að
vinna að heildarendurskoðun skaða-
bótalaga og dómsmálaráðherra
leggi nýtt frumvarp fram á Alþingi
ekki síðar en í október á næsta ári.
Alþingi samþykkti einnig í gær
fjarskiptamálum og vildu viðhalda
slíku kerfi áfram. Samkvæmt til-
boðum margra þessara ríkja væri
ekki gert ráð fyrir breytingum þar
á. Þessi ríki vildu ekki skuidbinda
sig til að koma á fijálsræði og gert
væri ráð fyrir að hugsanleg sam-
keppni grundvallaðist á leigðum
rásum frá einokunaraðila.
Opinn samkeppnismarkaður
Guðmundur sagði að tilboð okkar
á fundinum væri í aðalatriðum í
samræmi við afstöðu Norðmanna
og Evrópusambandsríkjanna. Sam-
kvæmt tilboðinu væri gert ráð fyrir
að þær reglur sem giltu í þessum
efnum á Evrópska efnahagssvæð-
inu giltu einnig gagnvart þeim ríkj-
um sem ættu aðild að Alþjóðavið-
skiptastofnuninni. Það þýddi í
stærstu dráttum að frá 1. janúar
1998 væri fjarskiptamarkaðurinn
nokkuð opinn samkeppnismarkað-
breytingu á umferðarlögum, sem
gerir ráð fýrir því að heimilt verði,
gegn 25 þúsund króna gjaldi, að
leyfa bíleigendum að velja sér
einkanúmer á bíla sína, í stað þeirra
númera sem nú eru notuð. Þing-
menn stjórnarandstöðunnar sátu
hjá við afgreiðslu lagabreytingar-
innar, að undanskildum Kristni H.
Gunnarssyni Alþýðubandalagi og
Jóhönnu Sigurðardóttir Þjóðvaka
sem greiddu atkvæði með ásamt
þingmönnum stjórnarflokkanna.
SETTUR hefur verið upp hermir
við sundlaugina í Laugardal.
Hermirinn líkir eftir raunveru-
legum atburðum eða ímynduð-
um. Fjórtán manns komast í
herminn í einu og hver ferð tek-
ur að jafnaði um fimm mínútur.
Hermirinn líkir eftir rússíbana,
skíðabruni og kappakstri.
Hermirinn er klefi sem situr á
vökvastýrðum tjökkum sem
hreyfa klefann til að líkja eftir
atburðum sem farþegar sjá á
skjá. Vökvastýrðu tjökkunum er
stýrt af tölvu. Ferðin kostar 400
kr. og börn á aldrinum 4-14 ára
komast aðeins í herminn í fylgd
með fullorðnum. Að sögn Sigurð-
ar Kolbeinssonar, sem stendur
að þessu framtaki, verður herm-
irinn við sundlaugina í Laugardal
næstu fimm mánuði en eftir það
verður hann staðsettur á
Kringlutorginu.
38% fall í
bóklegu
ökunámi
HLUTFALL ökunema sem
falla á bóklegum hluta öku-
náms eykst verulega um þetta
leyti árs. í apríl féllu 38% af
þeim sem prófið þreyttu.
Kjartan Þórðarson hjá Um-
ferðarráði segir að um 25%
þeirra sem Jireyta skriflegt próf
nái að jafnaði ekki lágmarks-
einkunn en í aprílmánuði komi
toppur enda sé mikill álagstími
þá hjá unglingum þár sem þeir
séu í prófum í skólum.
Ný skrifleg próf voru fyrst
lögð fyrir ökunemendur 1993
og 1. apríl var aksturspróf einn-
ig þyngt. Kjartan segir að þeim
nemendum sem falli í aksturs-
prófi hafi fjölgað talsvert. Áður
var hlutfall þeirra sem féllu
1-2% en er nú um 15%.
Ökunemar fá þtjár tilraunir
til að standast skriflegt próf og
tvær tilraunir til að standast
aksturspróf. Ein vika verður að
iíða milli prófa. Þurfi þeir fleiri
tilraunir verða þeir að greiða
nýtt prófgjald 4.500 kr. og það
verða að líða tvær vikur milli
prófa. Ætlast er til þess að
ökunemi sem fellur á aksturs-
prófi taki 2-3 ökutíma hjá öku-
kennara áður en hann þreytir
prófið á ný.
Úr lífshættu
DRENGURINN sem meiddist
á höfði við fall af kletti í Elliða-
árdal á föstudag er kominn úr
lífshættu, að sögn læknis á
gjörgæsludeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
Líðan hans og batahorfur
eru eftir atvikum góðar. Dreng-
urinn var enn á gjörgæslu í gær
en vonast var til að hann færi
á almenna deild í dag.
Rændi veski
út um bíl-
glugga
MAÐUR teygði sig út um bíl-
glugga og hrifsaði veski af
konu sem var á gangi á Hverf-
isgötu aðfaranótt laugardags-
ins.
Konan var ásamt vinkonu
sinni á gangi á Hverfisgötu,
móts við Frakkastíg, þegar
grárri Mazda 626 bifreið var
ekið að henni. Farþegi teygði
sig út um glugga og kippti í
veski konunnar. Hún taldi að
skorið hefði verið á ólina. Þjóf-
urinn náði til sín veskinu og
ók síðan á brott.
Konan sagði lögreglu að
hún hefði í fyrstu talið að um
grín væri að ræða en þegar
hún áttaði sig á að hún hefði
verið rænd á þennan bíræfna
hátt ákvað hún að kæra.
Málið er til rannsóknar.
Fimm menn ákærðir í fyrsta dómsmálinu sem snýst um
innflutning og sölu á E-pillum hér á landi
Játar að hafa selt um
200 ungmennum E-pillur
MÁL ákæruvaldsins gegn fimm mönnum, 23-26
ára, sem eru ákærðir fyrir innflutning og sölu
á um 850 E-pilluny var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. í málinu liggja fyrir játning-
ar tveggja mannanna um að hafa selt E-pillur
til ungmenna, þar af hefur annar þeirra játað
að hafa selt allt að 200 ungmennum efnið. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa játn-
ingar og upplýsingar um svo víðtæka smásölu
á fíkniefnum sjaldan eða aldrei legið fyrir við
meðferð fíkniefnamáis fyrir dómstólum hér á
landi.
Þetta er fyrsta dómsmálið hér á landi sem
snýst um innflutning og dreifingu á E-pillum í
svo miklu magni. Mennirnir komu fyrir dóm í
gær og játuðu fjórir þeirra sakargiftir í aðalatrið-
um en einn sagði ákæruna ranga.
Þrír mannanna fimm eru ákærðir fyrir brot
á 173. grein a. í almennum hegningarlögum en
þar er allt að 10 ára fangelsi lagt við því að
láta mörgum mönnum í té ávana- og fíkniefni
eða afhenda þau gegn verulegu gjaldi eða á
annan saknæman hátt.
Tveimur þeirra er gefið að sök að hafa í fé-
lagi flutt til landsins samtals um 500 töflur sem
þeir hafi talið að innihéldu allar efnið MDMA
og teldust því E-pillur.
Töflurnar hafi mennirnir, sem játuðu sakar-
giftir í gær, keypt í London á 570 þúsund krón-
ur, eða rúmlega 1.000 krónur hvetja töflu. ís-
lendingur, ‘sem í samræmi við framburð mann-
anna tveggja er sakaður um að hafa selt þeim
efnin í London, ber af sér sakargiftir.
Seldi 332 E-pillur frá júlí fram í október
Eftir að hafa keypt töflurnar 500 af honum
er mönnunum tveimur gefið að sök að hafa flutt
þær inn til landsins í þvi skyni að skipta hagn-
aði af sölu þeirra með sér að jöfnu. Hluti efnis-
ins sem þeir fluttu inn reyndist ekki vera inni-
halda MDMA sem er hið virka efni í E-piilum
heldur ketamín/endorfín.
Þeir seldu svo manni um 350 töflur fyrir
2.000-2.800 krónur hveija töflu en 85 töflur
fundust við handtöku innflytjendanna tveggja.
Sá sem keypti töflurnar af þeim játaði í gær
sakargiftir. Þær eru að hafa fram í október selt
efnið á um 3.500 krónur hveija töflu til fjöl-
margra ungmenna i Reykjavík. Hann átti eftir
18 töflur þegar hann var handtekinn.
Mannréttindasáttmáli Evrópu
Jafnframt játaði hann að hafa ásamt félaga
sínum, sem er fimmti sakborningur málsins,
áður flutt inn 342 E-pillur sem þeir keyptu í
London fyrir um 300 þúsund krónur, og selt þær
á 3.000 krónur stykkið hér á landi. Þessar töfl-
ur fluttu mennirnir inn í rhars 1995 og gengu
þær til þurrðar um mánaðamótin maí/júní það ár.
Við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær tók Egill Stephensen sækj-
andi málsins fram að ákæruvaldið óskaði eftir
að hinum ákærðu yrðu ekki kynntir framburðir
hver annars fyrr en eftir að þeir hafa gefið
skýrslu fyrir dómi. Vísaði Egill m.a. til dóms
Hæstaréttar frá í apríl 1994 þar sem verjendum
sakborninga í hinu svonefnda Stóra fíkniefna-
máli, var meinað að kynna skjólstæðingum sínum
framburði.
Sigurbjörn Magnússon hri., veijandi þess
mannanna sem kveðst saklaus af ákærum í
E-pillumálinu, mótmælti ósk ákæruvaldsins í
gær og kvaðst áskilja sér rétt til að kynna
umbjóðanda sínum gögn málsins.
Ákæruvaldið krafðist ekki úrskurðar um þetta
atriði en Guðjón St. Marteinsson, dómari máls-
ins, bókaði að hann teldi að með lögfestingu
Mannréttindasáttmála Evrópu hér á landi — en
hann öðlaðist lagagildi hér á landi nokkrum
klukkustundum eftir að fyrrgreindur dómur
Hæstaréttar féll — hefði réttarstaða breyst frá
því í Stóra fíkniefnamálinu. Því yrði nú ekki
lagt bann við því að veijendur kynntu umbjóð-
endum sínum gögn málsins.
Alþingi breytir
skaðabótalögum
Stuðullinn hækkar úr 7,5 í 10