Morgunblaðið - 30.04.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996 15
LANDIÐ
Snarræði nágranna kom
í veg fyrir stórbruna
Hvolsvelli - Litlu munaði að einn
elsti skógarlundur landsins yrði eldi
að bráð á laugardag í Múlakoti í
Fljótshlíð. Það var fyrir snarræði
fjölda fólks sem dreif að til að hjálpa
við slökkvistarfið og slökkviliðsins
á Hvolsvelli að ekki fór verr.
Grunur leikur á að glóð hafi
leynst í rusli sem brennt var á föstu-
dag og hafi hún komist í véla-
skemmu sem brann. I vélaskemm-
unni var ný sláttuvél sem eyðilagð-
ist. Þá tókst með naumindum að
bjarga tveim nýlegum hjólhýsum
sem voru í geymslu rétt við véla-
skemmuna.
Eldurinn æddi upp fjallshlíðina
fyrir ofan bæinn og hefði hann kom-
ist í sinuna í skóginum hefði ekki
þurft að spyija að leikslokum. Fyrstu
tijánum í lundinum í Múlakoti var
plantað rétt upp úr aldamótum og
er trjálundurinn upp í brekkunni
fýrir ofan bæinn frá 1937.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
ÞÁTTTAKENDUR í námskeiði RKÍ við Staðarflöt. Kristján Sturluson
lengst til vinstri og Guðmundur R.J. Guðmundsson til hægri.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
20 ára afmæli Lands-
banka Islands á Hellis-
sandi og í Olafsvík
TUTTUGU ár eru liðin í dag, 800 milljónir kr., segir í fréttatil-
þriðjudaginn 30. apríl, frá því kynningu.
útibú Landsbanka íslands á Hellis- Útibússtjóri á báðum stöðum er
sandi og í Ólafsvík tóku til starfa. Kolbrún Stefánsdóttir. I tilefni
Um síðustu áramót námu innlán dagsins er viðskiptavinum boðið upp
útibúanna 593 milljónum kr. en á á kaffiveitingar auk þess sem
sama tíma voru útlán til fyrir- starfsmenn veita upplýsingar um
tækja og einstaklinga á svæðinu ýmsar nýjungar í þjónustu bankans.
Fá réttíndi
sem flokk-
stjórar í
fjöldahjálp
Hvammstanga - Rauði kross ís-
lands hélt námskeið í Staðarflöt í
Hrútafirði um síðustu helgi. Nám-
skeiðið sóttu fulltrúar RKÍ af
Ströndum, Húnaþingi og Skaga-
firði. Þátttakendur fengu staðfest-
ingu á réttindum sínum sem flokk-
stjórar í fjöldahjálp.
Leiðbeinendur voru Kristján
Sturluson og Guðmundur R.J. Guð-
mundsson. Að sögn Kristjáns hefur
RKÍ haidið þessi námskeið vítt um
landið síðan í október 1994 og er
markmiðið að veita flokksstjórum
aukna þekkingu og réttindi í fjölda-
hjálp. Benti hann þar á nærtækt
dæmi, sem var hópslysið í Hrúta-
firði sl. haust, þegar um 40 manns
lentu í einu slysi. Þar kom fram
mikilvægi samræmdra aðgerða
björgunarsveita á svæðinu, en RKI
rekur sjúkrabifreiðar í Hvamms-
tangalæknishéraði.
Kristján sagði mikilvægt fyrir
starfsemi RKÍ að hafa góðan stuðn-
ing almennings í öllum byggðum
landsins, og taldi hann félagsmenn
á Norðurlandi vestra ekki vera und-
ir 600 manns. Svæðisskrifstofa er
á Sauðárkróki, með einum föstum
starfsmanni.
Vortllboð
flug og gistmg
gildir 1. maí
til 15. júní
Verðflrá
á mann í tvíbýli i eina viku.
Lágmarks- og hámarksdvöl er ein vika (7 dagar).
Síðasti heimkomudagur er 1S. júní.
Hafðu samband vlð sölufólk okkar, ferðaskrifstofumar
eða í síma SO 50 100 (svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 -
19 og á laugard. frá kl. 8 -16.)
Blómskrúð, geislandi kátína og „gezelligheid“
FLUOLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi