Morgunblaðið - 18.05.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MAÍ1996 23
ERLENT
Metkjörsókn á Gíbraltar eftir mjög harða kosningabaráttu
Jafnaðarmenn
vinna sigur og
fella sljórnina
Gíbraltar. Reuter.
FLOKKUR jafnaðarmanna vann
stórsigur í kosningum á Gíbraltar á
fimmtudag og batt þar með enda á
átta ára stjórnarsetu sósíalista. Hart
var tekist á í kosningabaráttunni,
sem leiddi til metkjörsóknar, yfir
90%.
Peter Caruana, leiðtogi jafnað-
armanna og næsti forsætisráðherra
Gíbraltar, hét því í gær að stjórn sín
myndi leggja mesta áherslu á að
skapa fleiri störf og að ijúfa ekki
tengslin við Bretland en Gíbraltar
er bresk nýlenda á suðurodda Spán-
ar.
Hefur oft skorist í odda með lönd-
unum tveimur vegna Gíbraltar en
Spánverjar fuliyrða að eiturlyf og
annar smyglvarningur eigi greiða
leið til Spánar frá Norður-Afríku um
Gíbraltar. Hét Caruana því að bæta
samskiptin við spænsk yfirvöld en
sagði jafnframt að ekki kæmi til
greina að verða við kröfum Spán-
veija um yfirráð á Gíbraltar.
Flokkur Caruana, sem telst til
hægri í stjórnmálum, hlaut 52% at-
kvæða í kosningunum en sósíalistar
43%. Er þetta mikill ósigur fyrir þá
síðarnefndu, sem hlutu 73% atkvæða
í síðustu kosningum. Ástæðu tapsins
má m.a. rekja til ásakana á hendur
leiðtoga sósíalista, Joe Bossano, um
spillingu. Fullyrt er að hann hafi
ekki beitt sér sem skyldi í barátt-
unni við smyglara.
Caruana er lögfræðingur að
mennt. Hann hefur heitið því að
leggja minni áherslu á að ijúfa
tengslin við Breta en Bossano, sem
nýtur lítillar hrifningar Breta fyrir
herskáar yfirlýsingar sínar. Hann
hefur m.a. krafist þess að hinir
18.400 íbúar Gíbraltar fái að hafa
meiri áhrif í viðræðum Spánveija
og Breta um framtíð Gíbraltar.
Reuter
STUÐNINGSMAÐUR kyssir
Joe Bossano, leiðtoga sósíal-
ista á Gíbraltar, þegar hann
mætti á kjörstað á fimmtudag.
Forsetakjör í Domin-
íska lýðveldinu
Sljórnar-
andstæð-
ingnr sig-
urstrang-
legur
Santo Domingo. Reuter.
FYRSTU tölur í forsetakosningun-
um í Dóminíska lýðveldinu á
fimmtudag bentu til sigurs fram-
bjóðanda stjórnarandstöðunnar,
Jose Francisco Pena Gomez í Dóm-
iníska byltingarflokknum. Var hann
með rúm 45% fylgi er búið var að
telja 5% atkvæða.
Leonel Fernandez, frambjóðandi
Dóminíska frelsisflokksins, var
næstur með rúm 36% en Jacinto
Peynado varaforseti var þriðji með
tæp 18,5%. Hinn 89 ára gamli for-
seti landsins síðustu áratugina, Jo-
aquin Balaguer, sem er blindur og
lítt fær um gang, mun ekki hafa
stutt varaforseta sinn en veðjað á
Fernandez.
Fyrir tveim árum sigraði Balagu-
er Pena mjög naumlega og var al-
mennt talið að beitt hefði verið
kosningasvikum. Niðurstaðan varð
sú að kjörtímabil Balaguers var
stytt í tvö ár og hann hét því að
fara ekki fram á ný.
Fái enginn frambjóðandi meiri-
hluta verður kosið á ný milli tveggja
efstu. Erlendir eftirlitsmenn töldu
að allt hefði farið lýðræðislega fram
að þessu sinni en kjörkössum var
þó rænt í kjördæmi þar sem Pena
var talinn öflugur.
Dominíkumaður af haítískum
uppruna var skotinn til bana er
deilur hófust um kynþátt hans og
rétt til að kjósa en Haítimenn eru
flestir svártir eða blandaðir. And-
stæðingar Pena hafa reynt að gera
hann tortryggilegan vegna svarts
litarháttar hans en meðal Dómin-
íkumanna, sem eru spænskumæl-
andi og flestir hvítir, er andúð á
haítísku grönnunum útbreidd. Ha-
ítímenn tala franska mállýsku en
ríkin eru bæði á eyjunni Hispaníólu.
Þrefaldur
1. vinningur!
A T H V G í Ð t
-vertu viðbúinm) vinningi
Vegna
Söngvakeppni
evrópskra
sjónvarpsstöðva
verður \icegt að
kaupa lottómða
til kl. 21.45
í kvöld'
HVÍTA HÚSID / SÍA