Morgunblaðið - 01.06.1996, Síða 1
80 SIÐUR B/C/D
121. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Netanyahu sigurvegari leiðtogakjörsins í Israel
Kveðst stefna að
varanlegnm friði
Jerúsalem. Reuter.
Reuter
JOAO Havelange,
forseti FIFA.
HM í Japan
og S-Kóreu
árið 2002
Ziirich. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA, ákvað í gær að fyrsta
heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu á næstu öld yrði haldin
í Japan og Suður-Kóreu. Þetta
verður í fyrsta sinn sem keppn-
in fer fram í Asíu og jafnframt
í fyrsta sinn sem tvö lönd deila
henni með sér.
Ákvörðunin kom mjög á
óvart og er áfall fyrir forseta
sambandsins, Joao Havelange,
sem hafði lagst gegn því að
heimsmeistarakeppnin árið
2002 færi fram í báðum lönd-
unum.
Japanir og Suður-Kóreu-
menn höfðu barist um keppn-
ina af miklum móð og eytt
milljörðum króna til að tryggja
sér hana.
BENJAMIN Netanyahu, leiðtogi
Likud-flokksins, vann nauman sig-
ur á Shimon Peres í forsætisráð-
herrakjörinu í ísrael, samkvæmt
lokatölum sem birtar voru í gær.
Netanyahu hringdi í Hosni Mubar-
ak, forseta Egyptalands og
mikilvægan milligöngu-
mann í friðarviðræðum
ísraela og araba, og kvaðst
staðráðinn í að beita sér
fyrir varanlegum friði í Mið-
austurlöndum.
Netanyahu er 46 ára og
verður yngsti forsætisráð-
herrann í sögu ísraels.
Hann fór í gær að Grát-
múrnum í Jerúsalem til að
þakka fyrir sigurinn
skömmu eftir að kjörstjórn-
in tilkynnti að hann hefði
náð kjöri með aðeins 0,9
prósentustiga mun. Hann
ávarpaði ekki stuðnings-
menn, sem þyrptust að hon-
um og hrópuðu gælunafn
hans, „Bibi“.
Netanyahu fékk 50,4%
atkvæðanna og Shimon
Peres um 49,5%. Peres ósk-
aði sigurvegaranum til
hamingju og hét því að beij-
ast áfram fyrir friði í Mið-
austurlöndum.
Úrslitin valda mörgum aröbum
áhyggjum og þeir efast um að
Netanyahu ljúki því friðarferli sem
Peres hóf ásamt Yitzhak Rabin,
fyrrverandi forsætisráðherra, sem
var myrtur í nóvember. Yasser
Arafat, leiðtogi sjálfstjórnarsvæða
Palestínumanna, vildi ekki tjá sig
um úrslitin en einn af æðstu ráð-
gjöfum hans sagði að Palestínu-
menn hefðu samið við Ísraelsríki
BENJAMIN Netanyahu við Grát-
múrinn í Jerúsalem í gær.
en ekki Verkamannaflokkinn og
nýrri stjórn bæri því að virða frið-
arsamningana.
Úrslitin eru einnig áfall fyrir
Bandaríkjastjórn, sem hefur byggt
stefnu sína í málefnum Miðaustur-
landa að miklu leyti á Verka-
mannaflokknum. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti óskaði Netanya-
hu til hamingju með sigurinn og
hét því að halda áfram samvinnu
við ísraela til að tryggja
varanlegan frið í Miðaustur-
löndum. Warren Christop-
her, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tók í sama
streng og kvaðst vonast eft-
ir „góðu samstarfi" við Net-
anyahu. Arabar mættu ekki
„dæma hann fyrirfram".
Meirihlutastjórn líkleg
Likud-flokkurinn fékk 32
sæti í þingkosningunum, en
var með 40. Verkamanna-
flokkurinn fékk 34 þingsæti
og tapaði tíu.
Netanyahu fær nú 45
daga til að mynda stjóm og
tryggja henni stuðning
a.m.k. 61 þingmanns.
Stjórnmálaskýrendur telja
að auðvelt verði fyrir hann
að mynda meirihlutastjórn
með stuðningi tveggja
flokka heittrúaðra gyðinga,
flokks rússneskra innflytj-
enda og hreyfingar fyrrver-
andi stuðningsmanna
Verkamannaflokksins sem er and-
víg þvi að ísraelar gefi Gólan-hæð-
irnar eftir.
■ Netanyahu óskrifað bIað/22
Reuter
Klaus
spáð sigri
Prag. Reuter.
TVEGGJA daga þingkosningar hóf-
ust í Tékklandi í gær og er búist
við að fjögurra flokka hægristjórn
Vaclavs Klaus forsætisráðherra
haldi velli, svo fremi sem minnsti
stjórnarflokkurinn, Lýðræðislega
borgarabandalagið, nær 5% markinu
sem nauðsynlegt er til að koma
manni inn á þing.
Vaclav Havel, forseti Tékklands,
hefur ekki verið talinn á meðal
stuðningsmanna Klaus en lýsti yfir
stuðningi við stjórn hans daginn
áður en kosningarnar hófust. Bar
Havel lof á samsteypustjórnina og
sagði hana hafa staðið sig með prýði
á kjörtímabilinu sem er að ljúka.
Havel sagði að stjórnin hefði lagt
mikið af mörkum til að styrkja stöðu
landsins á alþjóðavettvangi og aukið
tengsl þess við ýmsar evrópskar
stofnanir. Forsetinn hafði áður verið
óragur við að gagnrýna stjórnina
og varað við afleiðingum markaðs-
umþóta fyrir tékkneskan almenning.
Á myndinni að ofan ritar Klaus
nafn sitt á hendur barna við skóla,
sem var á meðal kjörstaðanna.
Reuter
Jeltsín kynnir stefnuskrá sína fyrir kosningarnar
Lofar bættum kjörum
o g auknum hagvexti
Reuter
Vopnahlé í hættu
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
kynnti í gær stefnuskrá sína fyrir
kosningarnar 16. júní, lofaði að
halda verðbólgunni í skefjum og
stuðla að auknum hagvexti.
Stefnuskráin er 127 blaðsíður
og Jeltsín lofar þar að koma verð-
bólgunni niður í 5% á ári fyrir alda-
mót og að hagvöxturinn verði ekki
minni en 4% á ári á næsta kjör-
tímabili. Forsetinn viðurkenndi
þegar hann kynnti stefnuskrána
að sér hefðu orðið á mistök frá
því hann hóf efnahagsumbæturnar
árið 1992. Taka hefði þurft harðar
á spillingu og skattsvikum og yfir-
völd hefðu gert fáum útvöldum
kleift að auðgast með því að mis-
nota íjármuni ríkisins. „Ég ber
ábyrgð á mörgum þessara mis-
taka. En ég veit hvernig bæta má
úr þeim - og hef þegar hafið það
starf,“ sagði Jeltsín.
Forsetinn kvaðst ætla að styrkja
rússnesk fyrirtæki, einkum á sviði
hátækniiðnaðar. Hann sagði að til
greina kæmi að setja innflutnings-
kvóta til að vernda rússnesk fyrir-
tæki og takmarka útflutning á
vörum, sem mikil þörf væri fyrir
á heimamarkaði.
Stefnt að hallalausum
fjárlögum
Jeltsín sagði að gætt yrði að-
halds í peningamálum, dregið yrði
úr fjárlagahallanum á næsta ári
og stefnt að hallalausum fjárlög-
um árið 2000. Lokið yrði við einka-
væðinguna og stuðlað að því að
bújarðir kæmust í einkaeigu.
„Yrði þessari stefnuskrá fram-
fylgt yrði það frábært," sagði Tom
Reed, deildarstjóri í verðbréfa-
fyrirtækinu Alliance Menatep í
Moskvu. „Þarna er lýst ýmsum
markmiðum en engum aðgerðum.
Ekki er sett fram áætlun um
hvernig fylgja eigi markmiðunum
eftir.“
Herferð gegn ofbeldi
Jeltsín lofaði ennfremur að
skera upp herör gegn ofbeldis-
glæpum með því að efla lögregl-
una. Gerðar yrðu ráðstafanir til
að ellilífeyrir hækkaði í samræmi
við framfærslukostnaðinn ög lána-
kerfið yrði bætt til að auðvelda
fólki að kaupa eigið húsnæði.
Hann lofaði að beita sér fyrir
hærri launum en bætti við að þörf
væri á meiri aga á vinnustöðum.
VIÐRÆÐUM um framkvæmd
vopnahléssamnings Rússa og
tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna
var frestað um óákveðinn tíma
í gær og fregnir hermdu að
bardagar hefðu blossað upp í
Tsjetsjníju skömrnu áður en
vopnahléið átti að taka gildi
klukkan átta í gærkvöldi.
Viðræðurnar áttu að fara
fram i Dagestan í dag og frest-
unin vakti efasemdir um að
vopnahléssamningurinn héldi.
Rússneskar hersveitir skutu
sprengjum á bæinn Shali, nálægt
Grosní, og tsjetsjenskir skæru-
liðar svöruðu í sömu mynt. Yfir-
maður rússnesku hersveitanna
jók spennuna frekar með því að
hóta áhlaupi á bæinn í dag gæf-
ust skæruliðarnir ekki upp.
Á myndinni er rússneskur
hermaður borinn í brynvagn
eftir að hafa særst af völdum
jarðsprengju í tsjetsjenska
þorpinu Bamut.