Morgunblaðið - 01.06.1996, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
I
I
i
I
i
)
?
i
FRÉTTIR
Maður sýknaður af brotum á skattalögfum og hlutafélagalögum vegna fyrndra saka
Vinnubrög'ð RLR
stórlega ámælisverð
að mati héraðsdóms
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær Magnús Hreggviðsson,
stjórnarformann og stjórnanda Fijáls
Framtaks hf., af ákærum um rang-
færslur í bókhaldi og ársreikningum
og fyrir rangar tilkynningar til hluta-
félagaskrár um innborgun 41,9 m.kr.
hlutafjár í félaginu. Dómurinn telur
Magnús þó hafa gerst sekan um flest
þau atriða sem hann var ákærður
fyrir en sýknan byggist á því að sök
sé fyrnd. Átelur dómurinn harðlega
vinnubrögð RLR í málinu og telur
þau brot á ákvæðum stjómarskrár
og mannréttindasáttmála Evrópu,
auk ákvæða laga um meðferð opin-
berra mála.
Dómurinn segir að sá stórfelldi
dráttur sem varð á rannsókn máls-
ins, þar sem RLR sinnti henni ekki
í fjögur ár, frá í desémber 1991 tii
október 1995, hafi m.a. verið and-
stæður því ákvæði mannréttindasátt-
mála Evrópu að hver sá, sem borinn
er sökum um refsiverða háttsemi,
skuli án tafar fá vitneskju í smáatrið-
um um eðli og orsök þeirrar kæru
er hann sætir.
Jafnframt hafi verið brotið gegn
rétti sakaðs manns, samkvæmt
mannréttindasáttmála Evrópu, til
réttlátrar og opinberrar málsmeð-
ferðar innan hæfílegs tíma fyrir sjálf-
stæðum og óvilhöllum
dómstóli en sams konar
ákvæði er að finna í stjórn-
arskrá íslands, segir í
niðurstöðum Guðjóns St.
Marteinssonar, héraðs-
dómara, sem dæmdi í málinu ásamt
meðdómendunum Halldóri Arasyni
og Stefáni D. Franklín, löggiltum
endurskoðendum.
3,9 m.kr. dregnar undan
Magnúsi Hreggviðssyni var gefið
að sök að hafa á árunum 1985-1988
í blekkingarskyni ranglega gjald-
fært í bókhaldi og ársreikningum
Ftjáls framtaks fjárhæðir án þess
að um væri að ræða frádráttarbær-
an rekstrarkostnað.
Þannig hafi hann dregið undan
3,9 milljónir króna á árunum 1985-
1988 sem leiddi til rúmlega 1,9 millj-
óna króna lægri tekjuskatts en átti
að vera.
M.a var um að ræða flugfarseðla
sem notaðir voru af hálfu Flugleiða
sem greiðsla til Fijáls framtaks en
voru aldrei tekjufærðir í bókhaldi
þess þótt við notkun farseðlanna
væru þeir gjaldfærðir eins og fyrir
þá hefði verið greitt sérstaklega.
Þá hafi verið tví- eða þrífærð
sömu útgjöld samkvæmt mismun-
andi greiðslugögnum. Einnig hafi
verið gjaldfærð persónuleg útgjöld
mannsins og fjölskyldu Magnúsar,
sem voru félaginu óvið-
komandi. Þá var hann
ákærður fýrir að hafa
fært kostnað án fylgi-
skjala eða eftir fylgiskjöl-
um sem hann útbjó sjálf-
I niðurstöðum dómsins er Magnús
talinn hafa gerst sekur um þessi
brot. Hann var þó sýknaður af hluta
ákæra vegna útgjalda hans og fjöl-
skyldu hans og einnig af öllum
ákærum um að hafa gjaldfært á
félagið kostnað vegna byggingar og
endurbóta á fasteign hans. Dómur-
inn sagði að engin gögn hafi verið
lögð fram af hálfu ákæruvaldsins
sem geti vikið til hliðar framburði
hins ákærða um að hluti hússins
hafi verið notaður í þágu félagsins.
Hann var einnig ákærður fyrir
að hafa gefíð tvær rangar tilkynn-
ingar til hlutafélagaskrár, í ágúst
1987 og nóvember 1988. Þar var
tilkynnt um að hlutafé Fijáls fram-
taks hefði verið aukið um 30 milljón-
ir í fyrra skiptið og 11.976 þúsund
krónur í hið seinna og, samkvæmt
ákærunni, ranglega tilkynnt að
hlutafjáraukningin væri öll greidd
án þess að þess væri getið að félag-
inu bærist ekki nýtt hlutafé þar sem
hlutafjáraukningin hafði verið
greidd með útgáfu tveggja vaxta-
lausra og óverðtryggðra skuldavið-
urkenninga, til 14 og 17 ára.
í niðurstöðum dómsins um þetta
atriði segir að við mat á því hvont
unnt sé að meta útgáfu ákærða á
skuldabréfunum sem greiðslu í
reiðufé í skilningi laga beri að líta
til þess hvort væntanlegir viðskipta-
menn og Iánardrottnar hlutafélags-
ins hafi getað áttað sig á fjárhags-
grundvelli þess.
Dómurinn telji að svo geti verið
„enda séu slíkar skuldaviðurkenn-
ingar ekki til svo langs tíma, sem
lýst er í ákærunni. Þá verður jafn-
framt að gera þá kröfu að skuldavið-
urkenningar beri eðlilega vexti og
verðbætur og að eðlilegar trygging-
ar liggi fyrir,“ segir í dóminum.
Ennfremur segir að ætla megi að
skuldaviðurkenningar eins og þær
sem ákærði gaf út, óverðtryggt og
vaxtalaust til margra ára, hafi á
verðbólgutímum verið verðlitlar eða
verðmætið a.m.k. ekki í neinu sam-
ræmi við nafnverð.
Dómurinn telur því að tilkynning-
arnar til hlutafélagaskrár hafi verið
til þess fallnar að vekja rangar hug-
myndir út á við gagnvart hlutafélag-
inu og þær hafi verið í andstöðu við
ákvæði hlutafélagalaga.
RLR beið niðurstöðu
yfirskattanefndar í 4 ár
Rannsókn skattrannsóknarstjóra
á ætluðum brotum hófst í ágúst 1988
og unnu fleiri en tveir starfsmenn
samfellt við rannsóknina
fram í desember 1991.
Magnús var aldrei kallað-
ur til skýrslutöku á þeim
tíma.
Skattrannsóknarstjóri
vísaði málinu til RLR í desember
1991 með beiðni um að gripið yrði
til nauðsynlegra ráðstafana til að
koma í veg fyrir hugsanlega fymingu
sakarefna.
Magnús var kallaður fyrir hjá RLR
30. desember 1991 þar sem rann-
sóknarlögreglustjóri kynnti honum
sakarefni og kynnti að lögreglurann-
sókn væri hafin.
Ekki var þá tekin skýrsla af Magn-
úsi um sakarefnið. í dóminum kemur
fram að ákæruvaldið hafi gefið þá
yfírlýsingu að þessari fyrirtöku hafí
verið ætlað það eitt að ijúfa fyrning-
arfrest málsins. Dráttur hafi orðið á
rannsókn málsins vegna þess að beð-
ið var niðurstöðu af meðferð málsins
hjá yfírskattanefnd. Ekki var tekin
af Magnúsi skýrsla hjá lögreglunni
vegna málsins fyrr en 4. október
1995, nær fjórum árum eftir að RLR
barst- málið.
Þá segir dómurinn að RLR fari
lögum samkvæmt með frumrann-
sókn brota og sú rannsókn eigi að
vera sjálfstæð rannsókn á ætluðum
brotum. Fái ákærði þá réttarstöðu
sakaðs manns. RLR hafi ekki verið
rétt að bíða niðurstöðu skattkerfisins
uns hafist var handa við þá rannsókn
sem RLR var falin samkvæmt lögum.
Fyrirtakan hinn 30. desember
1991 hafi því ekki verið til þess fall-
in að ijúfa fyrningarfrestinn og ekki
heldur skýrslutakan hjá RLR í októ-
ber 1995.
Stórlega ámælisvert
Brot þau sem ákært var fyrir vegna
tilkynninga til hlutafélagaskrár fyrn-
ast á fímm árum. I dóminum segir
að fyrningarfrestur hafi fyrst verið
rofínn 28. mars 1996 með fyrirtöku
málsins fyrir dómi. Þá hafí annars
vegar 7 ár og fjórir mánuðir og hins
vegar átta og hálft ár verið liðin frá
því að þau voru framin.
Sök vegna skattalaga-
brota fyrnist á 6 árum mið-
að við upphaf rannsóknar.
Sakir séu fyrndar þar sem
meira en 7 ár hafí verið lið-
in frá yngsta brotinu þegar málið var
tekið fyrir í dómi.
„Það er skoðun dómsins að sakar-
efni máls þessa hafí verð fyrnt við
útgáfu ákæru í málinu. Dómurinn
telur vinnubrögð rannsóknaraðila
máls þessa stórlega ámælisverð," seg-
ir í dóminum.
Magnús Hreggviðsson var því
sýknaður af öllum kröfum og sakar-
kostnaður felldur á ríkissjóð, þar með
talin málsvamarlaun Jóns Steinars
Gunnlaugssonar, hæstaréttariög-
manns.
Stórfelldur
dráttur á
rannsókn
ur.
3,9 milljónir
dregnarund-
an skatti
207 útskrifast frá
Verzlunarskólaniim
Morgunblaðið/Þorkell
EVA Hlín Dereksdóttir og Ragnar Jónasson sköruðu fram úr
öðrum nemendum V.I. á stúdentsprófum að þessu sinni.
207 STÚDENTAR og verslunar-
menntamenn voru brautskráðir frá
Verzlunarskóla íslands í gær við
hátíðlega athöfn, þegar skólanum
var slitið, þar af 158 stúdentar úr
dagskóla V.í. Bekkjarsystkinin
Ragnar Jónasson og Eva Hlín Der-
eksdóttir, 6-X, voru með hæstu aðal-
einkunn úr stúdentsprófum, Ragnar
dúx með 9,62 í einkunn og Eva
Hlín semidúx með 9,47 í einkunn.
Ragnar hlaut meðal annars verð-
laun fyrir framúrskarandi árangur
í íslensku, fyrir hæstu meðaltalsein-
kunn í erlendum tungumálum og
fyrir bestan árangur í viðskipta-
greinum á stúdentsprófí, þ.e. í bók-
færslu, rekstrarhagfræði og þjóð-
hagfræði.
Sterkari og fallegri rósir
Eva Hlín fékk meðal annars verð-
laun fyrir afburða árangur í eðlis-
fræði og ólesinni stærðfræði.
Við brautskráninguna aflienti
Einar Benediktsson varaformaður
Verslunarráðs íslands Ragnari
verðlaun ráðsins, Haukur Þór
Hannesson fráfarandi forseti NFVÍ
flutti ávarp af hálfu nýstúdenta og
Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sem á
40 ára stúdentsafmæli, tók til máls.
Þorvarður Elíasson skólastjóri
V.í. líkti lífinu við rósagarð í ræðu
sinni við athöfnina, sem blómstraði
á vorin en felldi blöð og blóm á
haustin. Þar skiptust á skin og skúr-
ir og væri hvort tveggja nauðsyn-
legt uppvexti gróðurs.
„Þannig hefur lífið verið í Verzl-
unarskólanum þau ár sem þið hafið
dvalið hér við nám og starf. Hér
hafa stilkar verið klipptir þegar vor
nálgast, til þess að nýir sprotar
gætu vaxið og komið sterkari og
fallegri rósir,“ sagði Þorvarður
meðal annars.
Dúxinn
þýðir reyf-
ara í frí-
stundum
RAGNAR Jónasson, dúx Verzl-
unarskóla Islands í ár, segist
ánægður með aðaleinkunn sína,
9,62, en á prófunum var hann
með tíu í einkunn í sjö fögum, 9,5
í átta fögum, 9,0 í einu fagi og 7,5
í leikfimi.
Ragnar kveðst seint vilja við-
urkenna að hann sé kúristi, en
hann læri hins vegar eins mikið
og þurfi til að hafa hreina sam-
visku. „Læri ég of lítið veit ég
af því sjálfur og fæ samviskubit,
þannig að ég veiti sjálfum mér
aðhald,“ segir hann.
Ragnar segir sér hafa gengið
vel í námi frá því að skólaganga
hans hófst og hann reyni að læra
vel fyrir hvern dag og sérstaklega
vel fyrir próf, einkum skyndipróf.
Eðlisfræði og stærðfræði hafi
reynst honum meiri áskorun en
ýmis fög önnur, enda erfið viður-
eignar um margt, en þó kveðst
hann hafa haft ánægju af glím-
unni við þau.
Valiðámilli laga ogíslensku
Ragnar segist stefna á nám í
lögfræði í Háskóla íslands í haust.
„Það er ákveðin og traust framtíð
í lögfræði, en að vísu togar ís-
lenskan talsvert mikið í mig. Ég
sé mig hins vegar ekki fyrir mér
sem kennara eða þess háttar,“
segir hann.
Bekkjarsystir Ragnars, Eva
Hlín Dereksdóttir, varð semidúx
og mætti ætla að milli þeirra ríki
mikil samkeppni. Ragnar segir
keppnina hins vegar góðlátlega,
og ekki sé hugsað um hvar í ein-
kunnarröðinni þau lendi þegar
próf eru þreytt. Hann segir mikla
námshesta í 6-X, en hann er eini
bekkurinn á stærðfræðibraut í
árganginum.
I frístundum hefur Ragnar þýtt
á íslensku bækur eftir breska
glæpasagnahöfundinn Agöthu
Christie fyrir bókaútgáfuna
Skjaldborg, bæði á sumrin og með
skólanum. Búið er að gefa út tvær
þeirra, Sígaunajörðina og, en í
vetur þýddi hann þriðjung bókar
sem hefur ekki fengið íslenskan
titil. Á ensku heitir hún hins veg-
ar The Body in the Library.
Hann hefur jafnframt starfað
hjá Rás 2 á sumrin og tekið viðtöl
fyrir dægurmálaútvarpið, auk
þess að keppa í spurningakeppni
framhaldsskólanna.
Aðspurður um önnur áhugamál
nefnir Ragnar gamlar kvikmyndir
og kveðst hann vera kominn með
vísi að safni myndbandaspóla sem
geyma fornfrægar kvikmyndir frá
gullöld Hollywood. „Ég held að
Casablanca sé í eftirlæti fyrir þær
sakir hvað hún er skemmtileg í
alla staði,“ segir hann.
Keppir með landsliðinu
Eva Hlín Dereksdóttir kveðst
hafa stefnt að ágætiseinkunn og
hún sé sátt við árangurinn. Hún
fékk tíu í fimm fögum, 9,5 í sex
fögum, 9,0 í fimm fögum og 8,5
í einu fagi, skriflegri íslensku.
„Óbeint hvetur það mig meira að
keppa við ágæta námsmenn á
borð við Ragnar, en annars læri
ég fyrst og fremst fyrir sjálfa
mig, 20-25 tima á viku að meðal-
tali,“ segir hún. Meðfram námi
æfir hún íþróttir og keppir með
landsliðinu í tennis, auk þess að
synda og skokka sér til ánægju
og heilsubótar.
Hún segir styrk sinn liggja á
sviði raungreina og stefnir á að
hefja nám í verkfræði við Há-
skóla Islands í haust. Sem stendur
beinist ahuginn að iðnaðarverk-
fræði.
Bróðir hennar lauk í vor próf-
um frá Grunnskóla Kópavogs og
var hæstur í einkunn, auk þess
sem nafrænka hennar var önnur
„Eg myndi því segja að náms-
metnaðurinn sé til staðar innan
fjölskyldunnar," segir Eva Hlín
Morgvnblaðjð/Þorkell
MIKILL fögnuður rikti á meðal nýstúdenta Verzlunarskóla Islands
við brautskráninguna í gær og brugðu margir á leik við það tækifæri.