Morgunblaðið - 01.06.1996, Side 9

Morgunblaðið - 01.06.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 9 FRÉTTIR Aukin fram- lög til Vest- fjarða- flugvalla FYRIRSJÁANLEGT er að tekjur ríkisins af flugvallargjaldi verði meiri en áður var áætlað, vegna síaukinnar flugumferðar, og á að vetja umframtekjunum á næstu þremur árum til flugvalla á Vest- ijörðum. Þetta kemur fram í áliti sam- göngunefndar Alþingis á flug- málaáætlun 1996-1999 sem á að afgreiða fyrir þinglok. Gert er ráð fyrir að tekjur af flugvallagjaldi verði 15 milljónum hærri á ári en áður var áætlað næstu þrjú ár, eða 442 milljónir í stað 427 milljóna. Samgöngunefnd leggur til að á næsta ári verði 15 milljónum veitt til viðbótar_ til að endurbæta fiug- stöðina á ísafirði, en umferð um flugvöllinn hefur aukist mjög eftir að Islandsflug hóf þangað áætlun- arflug. Þá leggur nefndin til áð árin 1998 og 1999 verði samtals 30 milljónum veitt til að undirbúa flug- vallargerð í Dýrafirði. Ekki sé enn ákveðið hvar framtíðarflugvallar- stæði fjarðarins verði, en ljóst sé að veita þurfi fé til Þingeyrarflug- vallar, enda sé hann eini malarvöll- urinn sem notaður er fyrir flugvélar Flugleiða. Samgöngunefnd leggur einnig til að á þessu ári verði veitt 3 milljón- um til að ljúka við flugstöðvarbygg- ingu á Þórshöfn, sem nú er fokheld. ------» ♦ ♦----- 61% nema í MR hefur neytt ólög- legra vímuefna í KÖNNUN sem jafningjafræðslu- hópur Menntaskólans í Reykjavík gerði, og birt er í nýútkomnu skóla- blaði MR, kemur fram að mikill meirihluti aðspurðra hefur neytt vímuefna af einhverju tagi. Af 930 nemendum skólans tók 821 þátt, eða tæplega 90%. 714 sögðust hafa neytt vímuefna af einhveiju tagi en 107 ekki. 717 manns kváðust hafa neytt áfengis og langfiestir byijuðu þá neyslu við 15 ára aldur. Ólöglegra vímuefna kváðust 211 manns hafa neytt og byijuðu flestir þá neyslu við 16 ára aldur. 61% höfðu neytt ólöglegra vímu- efna einu sinni til fimm sinnum, 24% kváðust gera það einu sinni í mánuði eða sjaldnar, 10% tvisvar til þrisvar í mánuði og 5% fjórum sinnum í mánuði eða oftar. 92% þeirra sem höfðu neytt ólög- legra vímuefna kváðust hafa neytt hass, 21% amfetamíns, 13% E- taflna, 17% sveppa, 3% sýru og 3% kókaíns. 75% kváðust neyta ólög- legra vímuefna af forvitni. 84 að- spurðra kváðust ætla að neyta ólög- legra vímuefna oftar en 135 ekki. Gamlar setjaraskúffur/liíllur og amcrískar „Country" trcvörur til sölu í dag, laugardag, frá kl. 14-17 og nk. mánud.-flmmtud. á Skúlagötu 32-34, 2. hícð. Jíeiðraðu hjónabandið í sumar. LlfÐU Buxur og ermalausar síðar blússur kr 6.400 TGSS i nef5 neöst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið virka daga kl.9-18, " laugardaga kl. 10-14. Komdu og kynntu þér Acer Aspire margmiðlunartölvuna í dag í Heimilistækjum, í Sætúni 8. Acer Aspire hlaut nýverið 1. verðlaun í flokki heimilistölva hjá hinu virta tölvutímariti PC Magazine: Nýstárlegt og fallegt útlit Uppsetning á hvers manns færi »Hönnuð með þægindi og réttar vinnustellingar í huga Að auki er hún aflmikil og gædd öllum þeim tæknilegu kostum sem margmiðlunartölva nútímans þarf að vera búin. Heimilistæki hf . glæsileg, öflug og metnaðarfull

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.