Morgunblaðið - 01.06.1996, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LÁGIR gluggar á jólahúsinu auðvelda börnunum að kíkja inn í jólalandið, en grýlukerti á þakskeggi
og risavaxið lakkrískonfekt setja líka svip sinn á húsið.
SVALBARÐSSTROND
Sumarhús til leigu
gegnt Akureyri.
Húsið er fullbúið með rúmum
fyrir 9 manns og er 8 km
frá Akureyri.
Nánari upplýsingar veita Haraldur
og Sigurbjörg í síma 462 4921.
Til sölu
Hafnarstræti 96,
(París) Akureyri.
Jól allt árið í
Eyjafjarðarsveit
JÓLAGARÐURINN skammt frá
Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit
var opnaður í sól og sunnan-
vindi í gær, en þar munu jólin
ráða ríkjum allt árið um kring.
Eigendur Jólagarðsins eru
hjónin Benedikt Ingi Grétars-
son matreiðslumeistari og smið-
ur og Ragnheiður Hreiðarsdótt-
ir húsmóðir en þau búa ásamt
þremur börnum sínum að Sléttu
í Eyjafjarðarsveit, steinsnar frá
garðinum. Þau hafa undanfarin
ár rekið Hótel Vin á Hrafnagili
í félagi við Hreiðar bróður
Ragnheiðar og konu hans Þór-
dísi Bjarnadóttur.
Sveitarstjórinn í Eyjafjarðar-
sveit, Pétur Þór Jónasson opn-
aði garðinn formlega með því
að taka upp , jólapakka", skilti
sem komið er fyrir við veginn
að Jólagarðinum. Sagði hann
m.a. við það tækifæri að frábær-
lega vel hefði tekist til með
uppbyggingu garðsins og já-
kvæð áhrif hans á atvinnulíf í
sveitarfélaginu þegar komin í
ijós, en munir handverksfólks
eru seldir þar. Þá taldi hann
tilkomu hans vera jákvæða við-
bót í uppbyggingu ferðaþjón-
ustu á svæðinu.
Jólaöl og laufabrauð
Við opnun garðsins voru leik-
in jólalög fyrir gesti og þá af-
hjúpaði ung og efnileg eyfirsk
listakona, Sunna Björk ellefu
jólatákn sem komið hefur verið
fyrir við bílastæði við garðinn.
Jólagarðurinn er lítið hús og
TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI
Sveins Heiðars er tíu ára um þess-
ar mundir og af því tilefni efnir
fyrirtækið til sýninga á fjóriim
ibúðum á mismunandi byggingar-
stigi við Huldugil í Giljahverfi nú
um helgina, í dag og á morgun
og einnig þá næstu,
dagana 8. og-9. júní.
Sýningin stendur
yfir frá kl. 9 til 17
alla sýningardagana.
Fyrirtækið hefur
áður staðið fyrir slíkri
kynningu á íbúðum
sínum og komu þá
um 3.500 manns til
að skoða. Á kynning-
unni nú verða sýnd
listaverk eftir Guð-
mund Ármann, Ölur
hf. hefur smíðað allar
innréttingar í íbúð-
irnar sem sýndar
verða, húsgögn verða
starf við okkar kaupendur og
þeir eru með í ráðum um hvernig
íbúðin endanlega lítur út. Við
gerum allt til að mæta óskum
okkar viðskiptavina, því þarfir
þeirra eru mismunandi," sagði
Sveinn Heiðar.
>ms m
Morgunblaðið/Kristján
SVEINN Heiðar í stofunni í einni af
íbúðunum við Huldugil sem sýndar
verða tvær næstu helgar.
frá Önd-
vegi, ýmsar vörur frá byggingar-
vörudeild KEA, Trésmiðjunni
Berki, heimilistæki frá AEG og
skilti frá gullsmíðastofunni Skarti.
Sextíu íbúðir á tíu árum
Sveinn Heiðar Jónsson fram-
kvæmdastjóri sagði að fyrirtækið
hefði einkum staðið að bygging-
um raðhúsaíbúða og byggt um
60 slíkar frá upphafi. Helstu
breytingarnar á þessu tímabili
sagði hann vera að íbúðunum
væri í auknum mæli skilað full-
búnum til kaupenda nú til dags.
„Við leggjum höfuðáherslu á að
klára sem allra mest áður en
kaupandi fær íbúðina í hendur,
en við höfum ævinlega gott sam-
Fyrirtækið fékk lóðir við Huldu-
gil og hefur séð um alla verk-
þætti, allt frá hönnun hverfisins
og til lagningu gatna, en íbúamir
sjá um að gera leiksvæði og torg
sem er fyrir miðju hverfisins.
í fyrsta reitnum sem fyrirtækið
fékk voru byggðar 15 íbúðir, þá
eru 16 íbúðir í þeim reit sem nú
er að ljúka og þegar hefur verið
hafist handa við byggingu íbúða
í þeim þriðja, en þar verða 16-17
íbúðir.
Allar íbúðirnar eru á einni hæð,
þær eru seldar frá því að vera til-
búnar undir málningu og upp í
að vera fullbúnar. Stærð þeirra
er frá 84 fermetrum til 140 fer-
metra auk bílskúrs, en áföst bif-
reiðargeymsla fylgir hverri íbúð.
Morgunblaðið/Kristján
HJÓNIN Ragnheiður og Benedikt eigendur Jóiagarðsins í, jólaskapi".
garður umhverfis það. Húsið er
hið sérkennilegasta, gluggar
lágir, ofvaxinn arinn, grýlukerti
á þakskeggi og lakkrískonfekt
af stærri gerðinni á þakinu.
Innan dyra má finna blöndu af
íslensku handverki og varningi
"íða að úr heiminum. Skjólgarð-
ur er umhverfis húsið og getur
fólk keypt sér veitingar, jólaöl,
laufabrauðskökur eða önnur
sætindi eða tekið með sér nesti.
Hugmyndin að Jólagarðinum
kviknaði á liðnu ári og hefur
undirbúningur og bygging
hússins staðið yfir í vetur með
góðri hjálp veðurguða, ættingja
og vina þeirra Benedikts og
Ragnheiðar.
Lítil hækkun á rekstrarkostnaði FSA á síðustu árum
Arangur aðhalds, sparn-
aðar og hagræðingar
HALLDÓR Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, sagði á árs-
fundi FSA í vikunni athyglisvert
að sjá hversu lítið rekstrarkostnað-
ur hefði hækkað á síðustu árum
þrátt fyrir aukna starfsemi, en það
undirstrikaði í reynd það aðhald,
sparnað og hagræðihgu sem beitt
hefði verið með árangri á liðnurn
árum.
„Með samstilltu átaki allra
starfsmanna og stjórnenda hefur
tekist að stýra rekstrinum innan
þess ramma sem stofnuninni hefur
verið settur, þrátt fyrir skerðingar
á fjárveitingum á hverju ári. Á
sama tíma hefur tekist að taka upp
nýja starfsemi eða auka aðra sem
fyrir hefur verið,“ sagði Halldór.
Fram kom í máli hans að á síð-
ustu 7 árum hefði stöðuheimildum
við sjúkrahúsið fjölgað um liðlega
16% en rekstrarkostnaður nettó á
föstu verðlagi ejnungis hækkað um
rúmlega 9%. Á sama tíma hefði
kostnaður á legudag á föstu verð-
lagi lækkað um tæp 17%. Margvís-
iegur árangur hefði því augljóslega
náðst í rekstri og starfsemi sjúkra-
hússins á undanförnum árum.
Áætlanir til lengri
tíma en eins árs
Halldór telur afar mikilvægt að
ákvarðanir og stefna í heilbrigðis-
málum liggi fyrir með góðum fyrir-
vara og áætlanir séu gerðar til
lengri tíma en eins árs í senn.
Vissulega hefði margt áunnist á
síðustu misserum í áætlanagerð
og fjármálastjórn ríkisins en gera
þyrfti enn betur, þriggja til fimm
ára áætlanir væru nauðsynlegar
þar sem meginlínur yrðu lagðar
varðandi framkvæmdir og rekstur
og stjórnendum á hveijum stað þar
með ljóst innan hvaða ramma
starfsemi skuli vera og hver sé
staða viðkomandi stofnunar. Þá
sagði hann ekki síður mikilvægt
að íbúar landsins vissu hvers vænta
mætti í þjónustu opinberra aðila.
Stöðugildi við FSA eru um 460
talsins, en töluverður hluti vinnur
í hlutastarfi þannig að á sjöunda
hundrað starfsmanna starfa hjá
stofnuninni. Sjúkrarúmin eru 214
talsins og á síðasta ári var sjúkl-
ingafjöldinn um 4.700.
Opið alla virka daga frí kl. 10-12 og 13-17.
Sími 462 1878. Myndriti46l 1878.
Hermann Jónsson, sölustjórí, hs. 462 5025.
Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars tíu ára
Kynning á íbúðum
við Huldugil
Glæsilegt hús í miðbænum.
Hugsanlegt er að selja einnig
Klæðaverslun Sigurðar Guðmundssonar
og Blómabúðina Laufás.
Fasteignasalan ehf.,
Gránufélagsgötu 4, Akureyri.
MESSUR
AKUREYRARPRESTA-
KALL: Messað verður. í Akur-
eyrarkirkju á morgun, sunnu-
dag, kl. 11.
GLERÁRKIRKJA: Sjó-
mannaguðsþjónusta á morgun
kl. 11. Kristjana Þ. Ólafsdóttir
flytur hugleiðingu. Heiðrun fer
fram.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Bænastund kl. 19.30 á morg-
un, samkoma kl. 20. Nemend-
ur frá Biblíuskólanum Troens
Bevis í Noregi taka þátt.
H VÍT ASUNNUKIRKJ AN:
Miðnætursamkoma í Dyn-
heimum í kvöld kl. 23. Safnað-
arsamkoma á morgun kl. 11,
ræðumaður Adreas frá Nor-
egi, vakningarsamkoma kl. 20.
Sameiginleg samkoma kl.
20.30 á þriðjudag, og einnig á
fimmtudag á sama tíma með
KFUM og K. Kristniboðssam-
korna á föstudag kl. 20.30,
Lilja Óskarsdóttir talar og sýn-
ir myndir.