Morgunblaðið - 01.06.1996, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
STARFSSTULKA Vinnslu-
stöðvar með humarbakka.
Morgunblaðið/Sigurgeir
SIGHVATUR Bjarnason fer fyrir kynnisferð um Vinnslustöðina
hf. sem nýlega var farin í tilefni af hlutafjárútboði.
Vfo <lÍ
b)Ó6<t loo VVMHMt
í fovnbíÓÍM
Ef þú tekur þátt í Hundaleiknum í Hagkaupi
getur þú orðið einn af 200 vinningshöfum
sem fá 4 boðsmiða á teiknimyndina
ROKNA TÚLI með íslensku tali.
Fylltu út þátttökuseðil í Hagkaup
og skilaðu strax inn í þar til gerðan kassa.
sunqmck
fflHMlF
m
URVAl-UTSYN
Takið þátt og
góð a skemmtun!
Vinnslustöðin hf. með sama magn af
humri og alla vertíðina í fyrra
90 þúsund tonn í
bræðslu á þessu ári
REIKNAÐ er með að 90 þúsund tonn
af hráefni fari í bræðslu hjá Vinnslu-
stöðinni hf. á þessu rekstrarári. Það
samanstandi af 73 þúsund tonnum
af ioðnu og 17 þúsund tonnum af
síld. í fyrra var landað 55 þúsund
tonnum af loðnu og 12 þúsund tonn-
um af sfld hjá Vinnslustöðinni hf.
„Aukninguna má þakka betri skil-
yrðum í loðnu- og síldveiðum," segir
Sighvatur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Vinnslustöðvarinnar hf. „Við
byggjurn afkomu okkar að miklu
leyti á loðnu og síld og útlitið er
mjög gott þannig að allt stefnir í
að við náum meira magni á næsta
ári en á þessu ári.“
Sighvatur segir að bolfiskveiðarn-
ar hafi verið heldur hefðbundnar.
„Við erum að veiða úthafskarfa og
það hefur gengið vel eins og hjá
öðrum,“ segir hann. „Við höfum tek-
ið þá stefnu að vinna ekki annan
bolfisk en úthafskarfa vegna þess
að afkoman er döpur í hefðbundinni
bolfiskvinnslu. Okkar bátar veiða
kvótann og svo seljum við hann
hæstbjóðandi.“
Hann segir að vinnslan sé bundin
af vinnslu á úthafskarfa og humri
eins og stendur og verði það fram
eftir sumri. „Humarvertíðin hefur
farið vel af stað hjá okkur,“ segir
hann. „Við erum komnir með sama
magn að landi og alla vertíðina í
fyrra þannig að líkur eru á að vert-
íðin verði með eðlilegum hætti á
þessu ári.“
Sjómannadagsblað
Austurlands kemur út
SJÓMANNADAGSBLAÐ Aust-
urlands kemur út í dag. Blaðið
er um 100 blaðsíður að stærð og
inniheldur á annað hundrað ljós-
myndir. Efni er að vanda fjöl-
breytt og kemur frá nær öllum
þéttbýliskjörnum á Austurlandi
og reyndar víða að. Greinarhöf-
undar eru um tuttugu og meðal
efnis má nefna hugleiðingu um
sjóarafla og „söguskoðun" spak-
vitringa eftir Vilhjám Hjálmars-
son úr Mjóafirði, Gunnar Sigm-
arsson frá Vopnafirði segir frá
sjósókn í Vopnafirði á 19.öld, Vil-
hjálmur Einarsson á Egilsstöðum
segir sjóferðasögu, sr. Brynhildur
Óladóttir á Bakkafirði segir sögu
úr reynsluheimi viðvanings og
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, flytur kveðju til sjó-
manna auk ýmis annars efnis.
Utan Austurlands verður blaðið
selt í verslunum Eymundsson í
Reykjavík og bókaverslunum á
Akureyri, Húsavík, Vestmanna-
FORSÍÐUMYNDIR tók Karl
Hjelm í Neskaupstað.
eyjum, ísafirði og víðar. Ritsljóri
blaðsins er Kristján J. Kristjáns-
son.
Morgunblaðið/Muggur
NORSKI síldarbáturinn Slatteroy H 12 AV
að dæla úr nótinni í lögsögu Jan Mayen.
Síldveiðar svipað-
ar og í fyrra
„ÞAÐ GENGUR ekki mikið núna
eftir því sem ég hef frétt,“ segir
Kristinn Sigurðsson, hjá Síldar-
vinnslunni hf. í Neskaupslað. „Það
er heldur dauft yfir veiðunum. Ég
held að það séu líka fáir bátar eftir
á miðunum. Flestir eru komnir inn
fyrir sjómannadaginn."
142 þúsund tonnum
landað á vertíðinni
Börkur er á leiðinni til hafnar í
Neskaupstað með fullfermi eða
1250 tonn. „Það eru nokkrir bátar
í viðbót sem versla við okkur,“ seg-
ir Kristinn. „Sumir eru reyndar
búnir með kvótann. Við erum komn-
ir með um 15 þúsund tonn á þess-
ari vertíð. Það er mjög svipað og í
fyrra.“
Alls hefur tæpum 142 þúsund
tonnum verið landað á þessari síld-
arvertíð. Þar af hafa landanir úr
erlendum skipum verið rúm 9.620
tonn. Heildarkvóti er 182 þúsund
tonn og því eru 50 þúsund tonn eft-
ir af aflaheimiidum.
Hjá SR-Mjöli á Seyðisfirði hefur
verið landað mestu á vertíðinni eða
rúmum 16 þúsund tonnum. Næst
kemur Síldarvinnslan hf. í Neskaup-
stað með um 15 þúsund tonn og
Hraðfrystihús Eskifjarðar með rúm
14 þúsund tonn.
í Hraðfrystihúsi Þórshafnar hefur
verið landað 11.584 tonnum, hjá
SR-Mjöli á Raufarhöfn tæpum 11
þúsund tonnum og Loðnuvinnslunni
hl'. í Fáskrúðsfirði rúmum tíu þúsund
tonnum.