Morgunblaðið - 01.06.1996, Page 34

Morgunblaðið - 01.06.1996, Page 34
34 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Hvað er að lög- gæslunni í Reykjavík? NÚ Á síðari árum hefur það færst svo mjög í vöxt, að bílar séu númerslausir á götum Reykjavík- ur, að nú get ég ei orða bundist. Þeir skipta hundruðum, en eru þó með númer ýmist að aftan eða framan. Hvers vegna tekur lög- reglan ekki þessa bíla úr umferð og sektar ökumenn þeirra eða eig- endur? Það getur skipt sköpum, ef ökuníðingur er á númserslaus- um bíl að framan og ekur á vegfar- anda, hvort hinn seki næst eða ekki. Annaðhvort sefur lögreglan á verðinum, eða mannfæð er or- sökin. Sumir viðmælendur mínir hafa haft uppi þá skoðun, að ung- ir menn skrúfi númerin af, því það sé talið „töff“ að vera aðeins með annað númerið. Slöpp löggæsla grefur undan virðingu manna fyrir lögunum og leiðir að lokum til skrílræðis. Eg skora á lögreglu- stjórann í Reykjavík, Böðvar Bragason, að taka þetta mál föst- um tökum og það strax. Slöpp löggæsla, segir Leifur Sveinsson, grefur undan virðingu manna fyrir lögunum. Einstefna ekki virt Fýrir stuttu var tekin upp ein- stefna á hluta Tjarnargötu hér í borg, frá Skothúsvegi að innkeyrslu Ráðhúss, frá suðri til norðurs. Engin kynn- ing var á þessari breyt- ingu, aðeins auglýsing í Lögbirtingablaðinu. Við íbúar Tjarnargötu unnum að því í sjálf- boðavinnu að kynria ökumönnum þessa breytingu og tóku flestir ábendingum okkar vel. Þó reyndi taugatrekkt leirskáld að aka mig niður, er ég benti honum kurteis- lega á að hann yrði að snúa við og aka í norð- ur. Kærði ég hann fyrir tiltækið, en hefi ekki heyrt um lyktir málsins, en lögreglu- stjórinn getur kannske upplýst mig um það. Kæran var send honum. Leifur Sveinsson Það hefur aldrei verið auðveldara að spila í Lottóinu. Akureyri Reykjavík Hagkaup, Skeifunni Flugterían, Reykjavíkurflugvelli Nóatún, Kleifarseli 18 Shellstöðin, Suðurfelli 4 Shellstöðin, Dalvegi 20 Söluturninn, Hraunbergi 4 Taktu strikið, Gylfaflöt 1 Nesti, Ártúnshöfða Söluturninn, Grundarstíg 12 Söluturninn, Sporhömrum 3 Söluturninn Allt í einu, Jafnaseli 6 Söluturninn Hálogaland, Gnoðarvogi 46 íshöllin, Melhaga 2 18 nyir sölustaðir! ® Nýir sölustaðir (g) Sölustaðir m -vertu viðbúinm vinningi f>ér miðu fyrir kl 20.-“ 1 kvold. Hámarkshraði er ekki virtur 30 km hámarks- hraði er í hluta Suður- götu, a.m.k. frá nr. 2-39. Þetta er fyrir vestan hús mitt í Tjarnargötu 36. Engin hús eru við Suðurgötu frá 15-29 að austan, en á móti er gamli kirkjugarðurinn. Fáir halda sér við þessi hraðamörk, en strætis- vagnastjórar eru þar verstir. í vetur áttu þeir í launadeilu við húsbændur sína og „hótuðu þá að aka á lögiegum hraða“, væri ekki gengið að öllum kröfum þeirra. Hvar erum við Reykvíkingar staddir, þegar slíkar yfirlýsingar birtast? Kannske verða þeir uppstoppaðir saman, geirfugl- inn og „síðasti löghlýðni borgar- inn“. Stefnubreyting í New York Nýlega bárust þær fréttir frá New York borg, að þar hefðu glæp- um fækkað um 40% vegna- þess, að lögreglumenn hættu að aka um í bílum eingöngu, en fjölgað var lögregluþjónum á götunum. Væri ekki athugandi að breyta eitthvað til hér í borg í svipaða átt? Securit- as og Vari hafa nú tekið við hluta af því starfi, sem lögreglunni var ætlað hér áður fyrr. Eg greiði t.d. tæpar 50.000 krónur fyrir öryggis- gæslu á ári hjá Securitas, auk kr. 220.000 stofnkostnaðar í upphafi. Þetta er frábær þjónusta, en erum við ekki að borga á tveim stöðum fyrir sömu þjónustuna? Kostnaðinn við löggæsluna borgum við jú með sköttum okkar. Reglur um hundahald brotnar Hundaeigendur þverbrjóta allar reglur um hundahald, þótt örfáar undantekningar séu þar á. Iðulega mætir maður hundum með menn í bandi á götum, sem slíkt er bann- að. Austurstræti og Laugavegur t.d. Yfírvöld ættu að varast, að hér þró- uðust mál eins og í þeim borgum, sem ég hefi kynnst og hundaskítur þekur flestar gangstéttir, eins og t.d. Róm. Ágæt lausn hefði verið að leyfa hundahald í Reykjavík, en takmarka það við íslenska fjárhund- inn. Að leyfa útlend hundakyn var stórslys. En nú er þetta of seint. Lokaorð Þýðingarmikið er að gott sam- band sé á miili lögreglu og. borgar- anna. Reykvíkingar hafa verið svo gæfusamir að hafa á að skipa hæfum lögreglustjórum og vel þjálfuðu og góðu lögregluliði. Lög- reglumenn eiga að vera vinir fólks- ins og fóikið vinir lögreglumann- anna. Gagnkvæmur skilningur og virðing á að ríkja milli þeirra. I barnæsku minni var oft hálka mik- il á Skothúsvegi og renndum við drengirnir okkur á sleðum eftir gangstéttinni. Þá kom lögreglan og bar sand á stéttina. Þá reidd- umst við mjög og ortum: „Óreglu- fjandinn er að moka sandinn" og þóttumst að meiri menn. Nú þegar ég hefi slitið barnsskónum er ég stoltur að geta talið iögreglumenn meðal minna bestu vina. Höfundur er lögfræðingur. Tölvufyrirtækið OZ valdi Stólpa bókhaldskerfið BH KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.