Morgunblaðið - 01.06.1996, Page 36
36 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Ein mikilvægasta
spurning stjórnenda er:
Hvað má það kosta?
EIN mikilvægasta
spurning flestra
stjórnenda varðar
hvað framleiðsluvörur
eða þjónusta fyr-
irtækja þeirra eða
stofnana megi kosta.
D'r. Thomas T. Nagle
hjá Strategic Pricing
Group í Boston hefur
ritað athyglisverða
bók um þetta efni sem
prófessor Philip Kotl-
er hefur sagt að sé það
besta sem gefið hafi
verið út á syiði verð-
lagningar. Bókin
nefnist The Strategy
and Tactics of Pricing.
Dr. Nagle segir að nauðsynlegt
sé að móta verðstefnu sem tekur
tillit til allra þátta í rekstrinum.
Ef markmiðið er eingöngu að eiga
fyrir kostnaði, ná sölumarkmiðum
eða efla samkeppnisforskot dregur
úr hagnaði, arðbærum tækifærum
er sólundað og dregið er úr verð-
mætamyndun. Mótun verðstefnu
er nauðsyn hvort heldur sem
stjórnendur búa við harða sam-
keppni á fyrirtækjamarkaði eða
starfa hjá stofnunum eða fyrir-
tækjum í eigu ríkis og sveitarfé-
laga. Allt hefur verðmiða - ekkert
er ókeypis.
Verðlagning er listin að nýta
helstu auðlind fyrirtækisins - verð-
mæti vöru þess eða
þjónustu. Að mati dr.
Nagle líta stjórnendur
oftar en ekki á verð-
lagningu sem tæki til
að ná skammtíma-
markmiðum i stað
þess að móta verð-
stefnu sem tekur til
allra þátta í rekstrin-
um með langtímaarð-
semissjónarmið að
leiðarljósi. Skilaboð
dr. Nagle eru þau að
verðstýring hafi skjót-
ari áhrif á vöxt og við-
gang fyrirtækja en
nokkur önnur stefnu-
mótandi ákvörðun.
Stjórnunarfélag íslands hefur
nú fengið dr. Thomas T. Nagle
hingað til lands og stendur fyrir
námstefnu um lögmál og leikregl-
ur verðlagningar frá kl. 9 til 17
miðvikudaginn 5. júní nk. að
Scandic Hótel Loftleiðum. Dr.
Nagle er í hópi viðurkenndustu
fyrirlesara hjá Management Cen-
tre Europe í Brusöel.
Dr. Thomas T. Nagle varði dokt-
orsritgerð sína í hagfræði við
UCLA í Kaliforníu og var síðar
prófessor í markaðsfræði og hag-
fræði við Chicago-háskóla, sem er
frægur fyrir marga Nóbelsverð-
launahafa í hagfræði. Bók dr.
Nagle, sem þátttakendur á nám-
Á ráðstefnunni
á miðvikudaginn,
segir Árni Sigfússon,
verður fj allað um
lögmál verðlagningar.
stefnunni fá afhenta, hefur tryggt
sér sæti sem eitt helsta fræðirit á
þessu sviði og er hún kennd við
fjölmarga háskóla viða um heim.
Á námstefnunni nk. miðvikudag
verður fjallað um lögmál verðlagn-
ingar með áherslu á tækifæri til
að hagnast og varast algengar
hættur. Dr. Nagle mun fjalla um
mörg dæmi hvernig hefðbundnar
áætlanir grafa undan hæfileika
fyrirtækisins til að gera sér grein
fyrir mögulegum hagnaði. Þátt-
takendur munu kynnast aðferðum,
hugmyndum og leiðum til að há-
marka arðsemi fyrirtækja sinna
og vaxtarmöguleika. Þeir munu fá
hagpýt ráð og greinargóðar upp-
lýsingar sem nýtast þeim strax í
samkeppnisumhverfi þeirra, allt
frá undirbúningi til framkvæmdar
arðbærrar verðstefnu, auk þess
sem dr. Nagle mun fjalla um dæmi
um rétta og ranga verðlagningu.
Höfundur er framkvæmdnstjórí
Stjórnunarfélags íslands.
Árni
Sigfússon
ig g * *» « « & áiemfc m w mtm* m »
Upplysingar um Honde Civsc 5 dyre '96
kpaftmikill 90 hestafla létfcmálmsvél
1 G venta og bein innsprautun
hraðatengt vökva- og veltistýni
þjófavörn
rafdrifnar púðun og speglan
viðaninnrétting í maelaborði
1 4 tommu dekkjastaenð
útvanp og kassettutaeki
styrktanbitar í hurðum
sénstaklega hljóðeinangnaðup
fáanlegun sjálfskiptup
samlaesing á hurðum
spontsaeti
— núðuþurnka fynin aftunnúðu
— fnamhjóladnifin
— 4na hnaða miðstöð
með inntaksloka
— haeðanstillanlegun
fnamljósageisli
— stafnaen klukka
— bnemsuljós í aftunnúðu
— eyðsla 5,6 I á 90 km/klst.
— 4,31 metni á lengd
— nyðvönn og sknáning innifalir
■ boðar nýja tima -
Ounnai Burnhard hl., Vatnagöröum 24, Reykjavík, sími 568 9900
Hafnaraðstaða
er nauðsyn
MIKIL uppbygging
er og hefur átt sér stað
í Kópavogi undanfarin
ár. Verið er að bijóta
nýtt land undir at-
vinnustarfsemi sem og
ný íbúðarhverfi. Kópa-
vogur er miðsvæðis á
höfuðborgarsvæðinu
og að honum liggja
góðar umferðaræðar
til allra átta. Þessi
nýju atvinnusvæði
bjóða því upp á mikla
möguleika. Við höfn-
ina í Kópavogi hefur
verið unnið mikið átak
í að koma upp viðlegu-
kanti sem vonast er til
að verði lokið á næstu
Sigurrós
Þorgrímsdóttir
á næstu árum. Á
hafnarsvæðinu eru miklir og ónýtt-
ir möguleikar fyrir fyrirtæki sem
þurfa á hafnaraðstöðu að halda. Á
þeásu svæði ætti því að geta risið
öflug og ijölbreytt starfsemi í fram-
tíðinni.
Hafnarsvæðið
í Kópavogi eru hafnarskilyrði
óvíða betri á höfuðborgarsvæðinu.
Innsiglingin er með besta móti og
sérlega vel gerð af náttúrunnar
hendi, bæði er rnjög aðdjúpt og
hafaldan nær ekki inn í höfnina.
Liðin eru um fjörutíu ár frá því að
farið var að huga að hafnarfram-
kvæmdum í Kópavogi, en Finnbogi
Rútur Valdimarsson var helsti
frumkvöðull að hafnargerðinni. Um
árabil var ekkert aðhafst í þessum
málum en fyrir rúmum áratug var
hafist handa að nýju og byrjað á
gijótgarði til suðurs og síðan vest-
urs. Nú umlykja þessir garðar góða
bátahöfn þar sem tugir smærri
fiskibáta og skemmtibáta hafa
góða aðstöðu. Undanfarin ár hefur
verið unnið við uppbyggingu á svo-
kölluðum Norðurgarði en hann á
fullbúinn að verða tæpir 140 metr-
ar. Garðurinn er gerður úr gijótfyll-
ingu sem hefur verið safnað saman
undanfarin ár. Viðlegukanturinn
verður úr stálþili en bryggjudekkið
steypt. Áætlað er að setja þilið nið-
ur nú í haust, ef fjármagn fæst,
og þá ættu stór skip að geta lagst
að bryggju í Kópavogi.
Mætt litlum
skilningi
Bæjaryfirvöld hafa um árabil
lagt mikla áherslu á að fá fjár-
magn í höfnina frá fjárveitingar-
valdinu á Alþingi en
mætt litlum skilning.
Þeir sem ráða fjár-
streyminu til upp-
byggingar hafna víðs-
vegar um landið virð-
ast ekki líta á Kópa-
vogshöfn sem æski-
lega framkvæmd sem
nauðsynlegt sé að
styðja við bakið á.
Margir telja að það
sé að bera í bakkafull-
an lækinn að byggja
enn eina höfnina á
höfuðborgarsvæðinu
og telja að Hafnar-
fjörður og Reykjavík
geti fyllilega fullnægt
TANAKA 422 vélorf fyrir
bæjarfélög- og verktaka 2,3 hö.
kr. 45.790 stgr.
TANAKA 355 vélorf fyrir
sumarbústaði 2,0 hö.
kr 43.605 stgr.
TANAKA 4000 vélorf fyrir
heimili og sumar-
bústaði 0,8 hö.
kr 19.760
TANAKA 2800
heimilisvélorf
0,9 hö.
kr.17.670 stgi
VETRARSOL
Hamraborg 1-3, norðanme'gin
Kópavogi. 564 18 64
þörfinni á þessu svæði. Þingmenn
Reykjaneskjördæmis virðast held-
ur ekki hafa mikla trú á þessum
framkvæmdum og hafa sýnt þeim
lítinn áhuga. Á meðan flestöll önn-
ur sveitarfélög, sem liggja að sjó,
fá úthlutað milljónum til hafnar-
framkvæmda hefur Kópavogur
ekki fengið fjármagn til að ljúka
þessari mikilvægu framkvæmd.
Ég skora á þingmenn
Reykjaneskjördæmis,
segir Sigurrós
Þorgrímsdóttir, að
leggja lið hafnarfram-
kvæmdum í Kópavogi.
Þrátt fyrir að Kópavogshöfn hafi
ekki enn hlotið náð í augum fjár-
veitingavaldsins hafa bæjaryfir-
völd, sem betur fer, ekki gefist
upp og haldið sínu striki, þótt
hægt fari.
Eitt það mikilvægasta fyrir hvert
sveitarfélag, sem liggur að sjó, er
góð hafnaraðstaða. Kópavogur er
þar engin undantekning. Hafnar-
gerð fyrir okkur Kópavogsbúa er
ekkert smámál sem endalaust er
hægt að ýta á undan sér. Á hafnar-
svæðinu er mikið og ónýtt bygging-
arsvæði sem nauðsynlegt er að
geta úthlutað sem fyrst. Nokkur
fyrirtæki eru þegar farin að sækj-
ast eftir lóðum á þessu svæði en
halda að sér höndum þar til höfnin
rís. Fyrirtæki í fiskiðnaði verða að
hafa góða aðstöðu til að skipa upp
afurðum sínum og þjónusta skip
sín. Með hafnaraðstöðunni gefst
líka fjölmörgum öðrum fyrirtækj-
um færi á að hasla sér völl á þessu
svæði sem er mjög hentugt undir
margskonar starfsemi.
Þingmenn leggi
þessu máli lið
Sveitarfélögin í landinu eru stöð-
ugt að taka á sig fleiri verkefni og
eru flest þegar talin of skuldsett.
Það er því nokkur beigur í sveitar-
stjórnarmönnum að stofna til enn
frekari skulda. En núverandi meiri-
hluti gerir sér grein fyrir að hafnar-
aðstaðan verður mikil lyftistöng
fyrir atvinnulífið í bænum og því
sé nauðsynlegt að ljúka henni sem
fyrst svo þessi mikla Ijárfesting
geti farið að skila arði. Það er mjög
aðkallandi að þilið verði sett niður
nú í sumar og koma viðlegukantin-
um í viðunandi horf svo hægt verði
að taka á móti skipum nú í haust
og efla um leið atvinnuuppbygg-
ingu á Kársnesinu.
Eg skora því á alla þingmenn
Reykjaneskjördæmis að leggja
þessu máli lið og stuðla að því að
ijármunir fáist frá fjárveitingar-
valdinu, svo hægt verði að ljúka
hafnargerð í Kópavogi á þessu ári.
Höfundur er formaður
atvinnumálanefndar Kópavogs.