Morgunblaðið - 01.06.1996, Side 44
44 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
RAÐAUGí YSINGAR
Bakarar
Óskum eftir að ráða bakara sem fyrst til fram-
tíðarstarfa hjá Björnsbakaríi, Austurströnd.
Upplýsingar hjá Arna milli kl. 11 og 14 í síma
561 1433.
Einbýlis-, raðhús eða
góð sérhæð
miðsvæðis í Reykjavík óskast til leigu strax.
Vinsamlega hafið samband í síma 562 4670
eða 854 0483.
Stýrimaður
Vanan stýrimann vantar strax til afleysinga
í sumar á 270 tonna dragnótabát frá Þorláks-
höfn.
Upplýsingar í símum 483 3000 og 483 3787.
Til sölu
1. Setberg 7 (einbýlishús), Þorlákshöfn.
2. Fiskvinnsluhús við Dalbraut, Snæfellsbæ.
Upplýsingar um eignirnar veitir Páll Jónsson,
Byggðastofnun, Engjateigi 3, 105 Reykjavík,
sími 560 5400, græn lína 800 6600.
Kvikmyndagerðarmenn athugið
Nordisk Panorama
Heimildar- og stuttmyndahátíðin Nordisk
Panorama 1996 verður haldin í Kaupmanna-
höfn 25.-29. september nk. Dagskrá hátíðar-
innar skiptist í tvo flokka, annars vegar dag-
skrá stuttmynda, þ.e. barnamyndir, teikni-
myndir og aðrar myndir, og hins vegar dag-
skrá heimildarmynda. í báðum flokkunum er
keppt til verðlauna.
Jafnframt verður starfræktur markaður þar
sem framleiðendum gefst kostur á að sýna
myndir sínar á myndbandi. Skráningargjald
vegna markaðssýninga er DKK 500.
Nánari upplýsingar og umsóknargögn liggja
fyrir á skrifstofu Kvikmyndasjóðs íslands.
Myndum skal skilað á VHS-spólum með
enskum texta á skrifstofu sjóðsins fyrir
10. júní 1996.
Kvikmyndasjóður Islands,
Laugavegi 24, 101 Reykjavík,
sími 562 3580, fax 562 7171.
Gjöf Jóns Sigurðssonar
Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóðnum
Gjöf Jóns Sigurðssonar „til verðlauna fyrir
vel samin vísindaleg rit og annars kostar til
þess að styrkja útgáfu merkilegra heimildar-
rita". Heimilt er að „veita fé til viðurkenning-
ar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem
hafa vísindarit í smíðum". Öll skulu rit þessi
„lúta að sögu íslands, bókmenntum þess,
lögum, stjórn og framförum".
Þeir, sem óska að rit þeirra verði tekin til
álita um verðlaunaveitingu, skulu senda
nefndinni eitt til þrjú eintök. Æskilegt er að
umsögn viðurkenndra fræðimanna, sér-
fróðra um efni ritsins, fylgi.
Framangreind gögn skulu send forsætis-
ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, 150
Reykjavík, en stíluð til verðlaunanefndarinn-
ar, fyrir 1. september næstkomandi.
Reykjavík, 30. maí 1996.
Verðlaunanefnd GjafarJóns Sigurðssonar.
Sigurður Líndal prófessor,
Sigþrúður Gunnarsdóttir háskólanemi,
Magdalena Sigurðardóttir skólafulltrúi.
Hundaeigendur
f Reykjavík
Með vísan til 6. gr. gjaldskrár nr. 45/1996
fyrir hundahald í Reykjavík á árinu 1996 er
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur heimilt að
lækka gjöld samkvæmt 2. og 3. gr. gjald-
skrárinnar um allt að helming, hafi hundaleyf-
ishafi lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi
viðurkenndu af Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Kröfur Heilbrigðiseftirlitsins um framangreint
gunnnámskeið liggja frammi í skrifstofu eftir-
litsins í Drápuhlíð 14, þar sem viðkomandi
aðilar geta vitjað þeirra.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Þingmenn til viðtals
Þingmenn Þjóðvaka hafa
fasta vikulega viðtalstíma á
skrifstofum sínum í Austur-
stræti 14, efstu hæð.
Allir eru velkomnir í þessi við-
töl og kaffi er á könnunni.
í dag frá kl. 10.00 til 12.00:
Jóhanna Sigurðardóttir.
Innritun - sumarnámskeið
1. Innritun í öll 4 stig skipsstjórnarnámsins
til 10. júní.
Með reglugerð 21. maí 1996 er eitt af
inntökuskilyrðum í Stýrimannaskólann
6 mánaða siglingatími eftir 15 ára aldur
á skipi yfir 12 rúmlestir.
2. Fjarskipanámskiptanámskeið - GMDSS
verður 18. júní til 27. júní.
3. Ratsjárnámskeið ARPA verður í beinu
framhaldi af GMDSS námskeiðinu 28.
júní; 1., 2. og 3. júlí.
Upplýsingar í símum 551 3194, 551 3046,
bréfsími 562 2750.
Skólameistari.
Aðalfundur
Aðalfundur lax- og silungsræktarfélagsins
Látravíkur ehf. verður haldinn föstudaginn
14. júní 1996 kl. 14.30 í fundarsal SVFR,
Háaleitisbraut 68, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar. Lagt verður fram frum-
varp að nýjum samþykktum vegna nýrra
laga um einkahlutafélög. Einnig er gert
ráð fyrir að ákvæði um hámark á atkvæð-
isrétti hluthafa verði fellt niður.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
l ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboð-
um í:
RARIK 96007, stækkun á stálgrindahúsi
á Hvammstanga og breytingu á eldri
skrifstofuhluta.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
RARIK við Höfðabraut 29, Hvammstanga;
Ægisbraut 3, Biönduósi; og Laugavegi
118, Reykjavík, frá og með mánudeginum
3. júní 1996 gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Verkkaupa er heimilt að leysa til sín skila-
trygginguna, hafi útboðsgögnum ekki verið
skilað innan fjögurra vikna frá opnunardegi
tilboða.
Skila þarf tilboðum á skrifstofu RARIK,
Blönduósi, fyrir kl. 14.00 mánudaginn
24. júní 1996. Tilboðin verða þá opnuð í
viðurvist þeirra bjóðenda, sem óska að
vera nærstaddir. Þóknun fyrir gerð tilboða
er engin.
• Verkinu á að vera lokið að fullu föstu-
daginn 18. október 1996.
Vinsamlega hafið tilboðin í lokuðu um-
slagi, merktu: RARIK 96007, Hvamms-
tangi - húsnæði.
'
Ét RARIK
Laugavegi 118 • 105 Reykjavik
Si'mi 560 5500 • Bréfasími 560 5600
■BsuwsBaHimwaiaamiBausKSMattw
Hvammsvík fyrir alla
Mikil veiði, vænn fiskur, um 4.000 fiskar í
vatninu. Nýbúið að sleppa í vatnið 2.500 fisk-
um. Ódýr veiðileyfi, 5 fiska kvóti. Kanóar og
seglbretti. Siglið og leikið ykkur í fögru um-
hverfi. Ódýr golfvöllur, hestaleiga, tjaldstæði
og grill.
Tökum á móti einstaklingum og hópum.
Upplýsingar í síma 566 7023.
SUMARHÚS/-LÓÐIR
Sýning í dag á sumarhúsi
Sýningarhús okkar er 52 fm og alveg full-
búið með útigeymslu og 3 svefnherb.
Til sölu með verulegum sýningarafslætti.
Til sýnis kl. 10-16 við verslun Húsamiðj-
unnar, Skútuvogi 16, Reykjavík.
Hamraverk ehf., sími 555 3755.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtaldri fasteign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Ólafsvegur 36, Ólafsfirði, þinglýst eign Davíðs H. Gigja, eftir kröfu
Lífeyrissjóðs Norðurlands, fimmtudaginn 6. júní nk. kl. 10.00.
Ólafsfirði, 28. maí 1996.
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði,
Björn Rögnvaldsson.
Uppboð
Framhald uppboðs á neðangreindri eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Hafnarbraut 2a, Neskaupstað, þingl. eig. Steinunn Rósa Einarsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Landsbanki islands, 5. júní 1996, kl. 14.00.
Sýslumaðurinn i Neskaupstað,
30. mai 1996.