Morgunblaðið - 01.06.1996, Side 50
50 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF • FORSETAKJÖR
ÍDAG
Er forseti til sölu?
Frá Rögnu Ólafsdóttur: .
JÞAÐ er umhugsunarefni, nú þegar
forsetakosningar fara í hönd, að
markaðssetning og auglýsinga-
mennska skuli skipa slíkt öndvegi
í kosningabaráttunni og raun ber
vitni. Máttur auglýsinganna er
mikill, svo mikill að auglýsinga-
stofunum tekst jafnvel að fram-
kvæma þvílík hamskipti á per-
sónuleika og fasi sumra frambjóð-
endanna að þeir þekkjast varla
sem sama fólkið. En eitt er að
auglýsa sápu, annað að auglýsa
forsetaframbjóðanda. Má treysta
því að næsti forseti haldi áfram
að vera eins og auglýsingarnar eru
búnar að selja hann, eða er aðeins
um nokkurra vikna sjónarspil að
ræða?
Við reynum að kenna bömunum
okkar að sjá í gegnum auglýsingar
og taka þær ekki of bókstaflega.
Flókin sálfræði liggur að baki aug-
lýsingagerð og oft er einskis svif-
ist til að klæða vöruna í þann
búning sem selur. En auglýsingar'
eru ekki einungis varhugaverðar
út frá því sem þeim er ýmist ætlað
að framkalla eða fela, þegar um
sjálft embætti forseta Islands er
að ræða. Auglýsingar kosta pen-
jnga og þar sitja ekki allir við
sama borð. Það eru gömul sann-
indi, að ef eitthvað er endurtekið
nógu oft smýgur það undir hör-
undið. Brosandi frambjóðandi á
veltiskilti heldur áfram að brosa
við okkur á strætisvagninum og
tekur síðan brosandi á móti okkur
þegar heim kemur hvort sem er í
blaðinu eða á skjánum. Smám
saman fer okkur að líka vel við
þetta rándýra bros, jafnvel þótt
málflutningur viðkomandi sé okk-
ur ekki fyllilega að skapi.
Þetta minnir óneitanlega á hin
stóru útlönd, þar sem auðmenn
takast á um valdastólana. Hvað
kostar stóllinn og hverjir hafa efni
á honum? Viljum við íslendingar
láta þetta yfir okkur ganga eða
þykir okkur meira um vert að for-
setaframbjóðendur séu metnir
samkvæmt verðleikum sínum og
málflutningi á jafnréttisgrund-
velli? Hvert og eitt okkar ber
ábyrgð á því að velja einstakling
til að gegna embætti forseta ís-
lands. Okkur þykir mikils um vert
að það embætti skipi verðugur
fulitrúi fólksins og því verðum við
að rýna fastar í eigið bijóst en á
skjáinn eða skiltið, þegar við ger-
um upp hug okkar. Að öðrum
kosti eigum við á hættu að breyta
eðli forsetaembættisins stórlega,
nema það sé einmitt það sem við
viljum.
RAGNA ÓLAFSDÓTTIR,
sálfræðingur og námsráðgjafi,
Bergstaðastræti 9, Reykjavík.
Um hlutverk forseta
Frá Jóni Kjartanssyni:
í UMRÆÐUM um forsetakjörið
hafa a.m.k. tveir stjórnmálamenn
látið í Ijós þá skoðun að forseta-
pmbættið sé valdalaus tignarstaða
sem gjarnan mætti leggja niður.
Þarna eru greinilega stjórnlyndis-
menn á ferð sem álíta að fólk eigi
ekki að hafa önnur afskipti af
störfum valdamanna en þau að
kjósa þá á fjögurra ára fresti.
Þeir munu einnig lítt hrifnir af
þjóðaratkvæðagreiðslum.
Það er rétt að forseti er ekki
stjórnmálamaður í venjulegri
merkingy og á ekki að vera það,
þótt hann sinni formsatriðum eins
og að setja þing og gefa umboð
til stjómarmyndunar. Forseti er
fyrst og fremst fulltrúi þjóðarinnar
gagnvart valdhöfum og gegnir því
mikilvæga hlutverki að staðfesta
■iög. Staðfesting forseta er trygging
fyrir því að rétt sé staðið að setn-
ingu laga og kannski eina trygging
þjóðarinnar varðandi það.
Ég er ekki sammála því að for-
áeti skuli neita að staðfesta lög
að eigin geðþótta. Þá væri hann
i að blanda sér í lagasetninguna
sem ekki er á hans verksviði. Hér
vantar hinsvegar lög um þjóðarat-
kvæðagreiðslur.
Vissulega hefur framkoma for-
seta áhrif á ímynd þjóðarinnar
útávið og skiptir því máli. Ég tel
þó ekki að helsta hlutverk forseta
sé að dansa í útlöndum og taka í
nefið með frægu fólki. Ég sé skyld-
ur forseta fyrst og fremst hér í
heimatúninu sem leiðbeinanda
þjóðar með ruglað gildismat frá
verðbólgutíma, hrakandi almenna
menntun, samfélagslega óvirkni
og vanrækslu í uppeldi. Þetta hef-
ur m.a. birst í gjaldþrotum þús-
unda heimila sl. 8 ár og nú fara
jafnvel börn gjaldþrota að heiman.
Við þurfum leiðbeinanda sem get-
ur kennt þjóðinni að meta hin
mannlegu verðmæti meira en
pijál, hégóma og hlutadýrkun, að
innihaldið skipti meira máli en
umbúðimar, heimilið meira en
húsið.
Ég vildi fá Pál Skúlason pró-
fessor í forsetaframboð, en úr því
hann fékkst ekki hef ég ákveðið
að kjósa Guðrúnu Agnarsdóttur
lækni til forseta og vil biðja þá
óráðnu að íhuga hvort þeír geti
ekki verið mér sammála.
JÓN KJARTANSSON
frá Pálmholti,
formaður
Leigjendasamtakanna.
18 sjónvarpsþættir með
forsetaframbjóðendum
Frá Ólafíu B. Rafnsdóttur:
KRISTJÁN Torfason lögfræðingur
heldur því fram í bréfi um forseta-
kjör, sem birtist í Morgunblaðinu
30. maí, að Ólafur Ragnar Gríms-
son hafí einn forsetaframbjóðenda
ekki lýst áhuga á meiri umfjöllun
Ríkissjónvarps um forsetakosning-
ar. Þarna er verið að snúa út úr
ummælum frambjóðandans vegna
. þess að það sem Ólafur Ragnar
sagði var einfaldlega að sér sýndist
,að umfjöllun fjölmiðla yrði talsvert
'mikil að vöxtum á næstu vikum.
Þar leit hann yfir allt sviðið en
ekki einvörðungu á hlut Ríkissjón-
varpsins, sem eflaust má telja rýr-
•. ari en ástæða væri til.
Ólafur Ragnar hafði að sjálf-
sögðu talsvert til síns máls því að
í sjónvarpi verða þrír almennir
i umræðuþættir frambjóðenda, tveir
á Stöð 2 og einn hjá Ríkissjón-
varpi, fimm viðræðuþættir á hvorri
stöð, tíu í allt, fimm ávörp forseta-
frambjóðenda á Stöð 2, eða sam-
tals 18 sjónvarpsþættir fram að
kosningum. Þá eru ótalin frétta-
viðtöl og frásagnir af kosninga-
fundum.
I útvarpi verða síðan margir við-
táls-, umræðu- og fréttaþættir á
Rás 1, Rás 2 og Bylgjunni svo eitt-
hvað sé nefnt. Dagblöð og vikublöð
munu svo ekki láta sitt eftir liggja
í júní.
Þegar litið er yfir fjölmiðlasviðið
í heild er ómögulegt annað en að
álykta sem svo að frambjóðendur
fái góð tækifæri til þess að kynna
sig og sín sjónarmið.
ÓLAFÍA B. RAFNSDÓTTIR,
skrifstofustjóri Kosningamiðstöðvar
Ólafs Ragnars Grímssonar.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Óskilakettir
íKattholti
ÞESSIR fímm kettir, haldinn basar og flóa-
ásamt mörgum öðrum eru markaður í Kattholti.
í óskilum í Kattholti. Eig- Hannhefstkl. 14ogstend-
endur þeirra eru beðnir að ur eitthvað fram eftir degi.
vitja þeirra hið fyrsta. í Ágóði af sölunni rennur til
dag og á morgun verður Kattholts.
4 Húsaleigan
hækkar
KONA, sem er öryrki,
hringdi og sagðist mjög
óánægð með framkomu
núverandi borgarstjórnar-
meirihluta við öryrkja. Hún
segist búa í húsnæði sém
borgin á og eingöngu hafa
örorkubæturnar sér til
framfærslu. Eftir að R-list-
inn komst til valda í borg-
inni segir hún að tekið
hafi verið upp það fyrir-
komulag að hækka sífellt
húsaleiguna, um eitthvert
smáræði, hér um bil í
hveijum mánuði. Hún er
ekkert látin vita af þessum
hækkunum og þó það sé
ekki mikið í einu þá safn-
ast þegar saman kemur.
Áður var hún þó látin vita
bréflega en nú er þessu
bara skellt á án nokkurrar
aðvörunar.
Tapað/fundið
Lyklakippa
tapaðist
Á BÍLASTÆÐINU við
Hallveigarstíg eða í ná-
grenni tapaðist lyklakippa
merkt Toyota á svörtu leðn
sl. miðvikudagskvöld. Á
kippunni voru fjórir lyklar,
þrír venjulegir húsiyklar
og lítill hjólalykill. Skilvís
finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband
við Ágústu í s. 562-3664
eða 552-2449.
Gleraugu
töpuðust
LJÓSBLÁ lesgleraugu töp-
uðust að öllum líkindum á
bílastæði sundlaugar
Breiðholts/Pjölbrautaskóla
Breiðholts. Þetta eru lítil
létt gleraugu í ljósblárri
umgjörð. Hafa þau eflaust
runnið upp úr vasanum.
Þetta er mikið tap fyrir
eiganda og einu gleraugun
sem hann á. Þeir sem
kynnu að hafg fundið gler-
augun, vinsamlegast
hringi í síma 5675166 eða
skili þeim í afgreiðslu
sundlaugarinnar.
SKAK
llmsjón Margcir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á öflugu
skákmóti í Jerevan i Arme-
niu i vor. Aleksonder Khalif-
man (2.650), Rússlandi var
með hvítt, en heimamaðurinn
Smbat L])utjan (2.580) hafði
svart og átti leik.
48. - Hxf4+! 49. Rxf4 -
Hxf4+ 50. Ke2 (Engu betra
var 50. Kgl - c3 51. Hd3
- Hxd4! og svartur vinnur)
50. - Kf5 51. Hfl - Hxfl
52. Kxfl - Ke4 53. Kel -
c3 54. Hf2 - Kd3 og
hvítur gafst upp, því
svarta c peðið kostar
hann heilan hrók.
Úrslit mótsins: 1-2.
Lputjan og Predrag Ni-
kolic.Bosníu 7V2 v. 3.
Gulko, Bandaríkjunum
7 v. 4. Svidler, Rúss-
landi 6 72 v. 5. Ehlvest,
Eistlandi 6 v. 6. Akopjan
5 V2 v. 7-8. Anastasjan
og Vaganjan 5 v. 9-10.
Episín, Rússlandi og
Hracek, Tékklandi 4V2
v. 11. Khalifman, Rúss-
landi 4 v. 12. Minasjan 3 v.
Þarna hafa væntanlega bæði
armenskir skákmenn og
skákstjórar verið að hita upp
fyrir Ólympiuskákmótið sem
hefst I Jerevan þanh 16.
september.
Það er frí á Skákþingi ís-
lands í dag vegna aðalfundar
Skáksambands íslands.
HÖGNIHREKKYÍSI
Víkveiji
ÞAÐ fer ekki á milli mála að sjón-
varpsverslun hefur náð fót-
festu hér á landi og Sjónvarpsmark-
aðurinn og Sjónvarpskringlan orðnir
fastir liðir í íslensku ljósvakaflórunni.
Víkveiji dagsins hefur ávallt verið
þeirrar skoðunar að þetta sé nokkuð
undarlegt sjónvarpsefni þó að aug-
lýsingarnar á undratækjunum, sem
stundum eru boðin til kaups, geti
vissulega verið hið besta skemmti-
efni, þó ekki af þeim ástæðum, sem
auglýsendur ætlast til.
Auðvitað hlaut að koma að því að
auglýsingasjónvarp af þessu tagi,
sem hefur lifað góðu lifi í Bandaríkj-
unum um langt skeið og á evrópskum
gervihnattarásum í skemmri tíma,
bærist hingað líkt og annað.
Greinilegt er að þessar vikurnar
er mikil áhersla er á alls kyns tæki
er eiga að grenna fólk og gera þáð
stæltara, fallegra og almennt ánægð-
ara með sjálft sig. Fær Víkveiji ekki
betur séð en að sum þessara tækja,
t.d. ákveðinn magaþjálfari, séu kom-
in inn á annað hvert heimili í land-
skrifar...
inu. Tæki þessi eiga sum að vera
þeim töfrakostum búin að breyta
vaxtarlagi fólks jafnvel þótt að þau
séu einungis notuð í „tvær til þijár
mínútur á dag“. Víkveiji á mjög
bágt með að skilja hvernig árangur
á að nást með svo lítilli þjálfun enda
stríðir það gegn öllum lögmálum.
XXX
TÖRNIN í miðborg Reykjavíkur
er sívinsæll samkomustaður
yngstu borgaranna og hefur Vík-
veiji áður kvartað yfir því hversu
mikill óþrifnaður hefur verið í kring-
um tjarnarbakkann. Endur og gæsir
gera þar þarfir sínar einmitt þar sem
litla fólkið þrammar helst um og því
nauðsynlegt að reglulega sé hreinsað
til við Tjörnina, helst daglega.
Þessi mál virðast nú vera komin
í gott horf, að minnsta kosti hefur
verið allt annað að sjá umhverfi
Tjarnarinnar þegar Víkverji hefur
átt þar leið um síðustu vikurnar. Það
vekur hins vegar athygli á öðru
vandamáli, nefnilega Tjörninni
sjálfri. Hún hefur um árabil verið
fremur subbuleg og yfirleitt full af
alls kyns drasli.
Víkveiji hvetur því borgaryfirvöld
til að kanna hvort að ekki sé einhver
leið að hreinsa Tjörnina betur þannig
að þessi vinsæli áningarstaður barn-
anna, borgarbúa og ekki síst er-
lendra ferðamanna verði sú borgar-
prýði sem hann á að vera. Jafnframt
ættu borgarbúar að gera gangskör
í því að nota ruslafötur, til að losa
sig við plastpoka, dósir og flöskur
en ekki henda þeim í Tjörnina.
xxx
NÓG er til af ruslafötum á höf-
uðborgarsvæðinu. Víkveiji
hefur hins vegar aldrei fyllilega skil-
ið hvers vegna símklefar séu jafn-
sjaldséðir og raun ber vitni. Yfirleitt
eru sjálfsalar inni í verslunum eða
stofnunum en ekki á helstu götum
þar sem líklegt væri að ferðamenn
myndu leita að þeim.