Morgunblaðið - 09.06.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.06.1996, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Fyrstu laxarn- ir í Kjósinni Míkið af laxi genginn upp fyrir Laxfoss VEIÐI hófst í Laxá í Kjós í gær- morgun og um miðjan morgun voru veiðimenn búnir að landa nokki-um löxum, flestum 10 til 13 punda. Fremur lítið vatn var í ánni og sólskin. Síðustu daga hafa menn séð talsverða fískför neðst í ánni og var ljóst við opnun veiða að mikið af þeim laxi var genginn upp fyrir Laxfoss og farinn að dreifa sér í ánni fram í dal, þar sem erfitt getur reynst að finna hann. „Ég fékk fallega 13 punda hrygnu í Klingeberg strax í morg- un, fiskurinn tók litla rauða Frances. Menn hafa verið að mis- reikna sig og nota mikið maðk- inn, en sannleikurinn er sá að skilyrðin núna henta fluguveiði miklu betur, enda hafa flestir þessara laxa sem komnir eru á land veiðst á flugu,“ sagði Sverr- ir Þorsteinsson veitingamaður í Kaffi Mílanó í samtali við Morg- unblaðið á bökkum Laxár í Kjós í gærmorgun. Á meðan rabbað var við Sverri setti veiðifélagi hans í lax á flugu í Kvíslafossi og landaði nokkru síðar öðrum 13 punda. Að sögn Sverris höfðu menn séð laxa frammi í Pokafossi, sem er langt frammi í dal og sjálfur hafði hann trú á þyí að lax væri genginn í Bugðu. Síðdegis í gær hófst veiði í Kjarrá í Borgarfirði og á morgun byija hjólin að snúast í Hafijarð- ará og Laxá í Aðaldal. Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson SVERRIR Þorsteinsson með fyrsta flugulax sumarsins úr Laxá í iyós, 13 punda hrygnu. Mikil eftirspum eftir málmiðnaðarmönnum LEITA þarf tíu ár aftur í tímann til þess að finna sambærilega grósku og nú er í málmiðn- aði hér á landi. Gerður hefur verið samningur um smíði á 30 tonna rækjuskipi fyrir Sauð- krækinga í Skipasmíðastöðinni hf. á ísafirði og er þetta fyrsta nýsmíðin í mörg ár á fiski- skipi. Skipasmíðastöð Njarðvíkur hefur sótt um atvinnuleyfi fyrir átta Pólveija og mikil eftirspum er eftir málmiðnaðarmönnum. Ing- ólfur Sverrisson deildarstjóri hjá Samtökum iðnaðarins segir að margt bendi til aukinnar þenslu í greininni enda verkefnin næg. Átta pólskir málmiðnaðarmenn hafa verið við störf hjá Slippstöðinni á Akureyri við endur- bætur á einum úthafstogara Mecklenburger Hochseefischerei, dótturfyrirtækis Útgerðarfé- lags Akureyringa. „Það er heldur að fjölga í stéttinni hér og að koma inn í hana á Reykjavíkursvæðinu fagmenn sem höfðu farið í önnur störf. Aðal- vandamálið hjá okkur er skortur á hæfum mönnum. Óskilgreind mannaflaþörf Það er svo mikið um að vera á öllum svið- um. Það vantar menn í stálmannvirkjagerð og í skipaiðnaðinn, bæði viðgerðir og meiriháttar breytingar. Það eru líka mörg verkefni í smíði á vinnslulínum fyrir fiskvinnslu og útgerðir og mörg verkefni eru einnig framundan í tengslum við kælitækni. Það eru í raun engin takmörk fyrir því hve mörgum starfsmönnum þessi grein getur bætt við sig miðað við ríkjandi aðstæður og áframhaldandi stöðugleika í efnahagslíf- inu,“ segir Ingólfur. „Við höfum lagt áherslu á að fyrirtæki séu samkeppnishæf um verkefni og vinnuafl. Þess vegna höfum við mótað þá stefnu að nýta þá möguleika sem ný lög um stéttarfélög og vinnu- deilur bjóða upp á til þess að þróa upp vinnu- staðasamninga meira en verið hefur,“ segir Ingólfur. Stefán Sigurðsson framkvæmdastjóri Skipa- smíðastöðvar Njarðvíkur segir að skortur sé á málmiðnaðarmönnum hérlendis og þess vegna hafi verið ákveðið að sækja um atvinnuleyfi fyrir átta Pólveija. „Það er ekki fyrr en líður á haustið að við sjáum hversu varanleg þessi aukning er,“ sagði Stefán. Hann sagði að þrátt fyrir góða verkefna- stöðu nú væri verið að breyta átta íslenskum skipum í Póllandi og þijú skip til viðbótar væru á leið þangað. Þetta væru mun kostnað- arsamari breytingar en þau verkefni sem grein- in byggi við hér á landi. Stefán segir að vandi skipasmíðaiðnaðarins nú sé sá að á samdráttar- tímunum hafi fyrirtækin minnkað verulega umsvif sín og ráði nú ekki við stærri verkefni sem annaðhvort eru unnin í Noregi eða Pól- landi. Ungir og vaskir byggingarverktakar Norðmenn í víking til íslands næsta sumar ÚR GRJÓTAÞORPI berast fréttir af byggingarfram- kvæmdum. Nú kunna menn að spyija hvar hægt sé að reisa nýbyggingar með góðu móti á þessum elstu slóðum Reykjavík- ur. í Ijós kemur að byggingar- verktakarnir eru lágir í loftinu og húsin ekki mikið hærri. Ætli ungu smiðirnir, Oddur, Bjartur og Benni, viti nokkuð af ljós- myndaranum enda eru þeir lík- lega niðursokknir í teikningar af blárauða kofanum sínum. NORÐMENN hafa í hyggju að sigla til Hafnar í Hornafirði, Vest- mannaeyja og Hafnarfjarðar næsta sumar, á u.þ.b. 100 þijátíu feta seglbátum og mótorbátum, auk farþegaskips, skólaskips og seglskipsins Sörlandet, en öflugur björgunarsveitabátur mun leiða alla lestina. Ennfremur er búist við 300-700 manns með flugvélum og búast forsvarsmenn siglingar- innar við allt að 2.000 Norðmönn- um til landsins. Hér eru staddir tveir forsvars- menn Florö siglingaklúbbsins í V- Noregi til að undirbúa fyrirhugað strandhögg. Sigjingaklúbburinn fékk nýverið sérstök verðlaun frá „Baatmagasinet“, stærsta mótor- sportblaði á Norðurlöndum vegna siglingar klúbbsins til Shetlands- eyja á 130 bátum í fyrrasumar. Mikil sigling til íslands Nú hefur klúbburinn ákveðið að efna til mikillar siglingar til íslands, Viking-konvoyen 1997, með viðkomu á Shetlandseyjum og Færeyjum í tengslum við vík- ingahátíð í Hafnarfírði 9.-13. júlí 1997. Samvinna mun vera milli Hafnar í Hornafirði og Hafnar- fjarðar um þennan viðburð þar sem bátarnir munu sigla til Hafn- ar en þeir hraðskreiðustu áfram til Vestmannaeyja og Hafnarfjarð- ar. Áætlað er að siglingin taki fjór- ar vikur. Yfirlýstur tilgangur ferð- arinnar er að minnast landnáms íslands frá V-Noregi fyrir rúmlega 1100 árum og styrkja vináttubönd og menningartengsl bræðraþjóð- anna. MORGUNBLAÐINU í dag fylgir 32 síðna blaðauki sem nefnist Húsið og garðurinn. ► l-56 í þjónustuhlutverki ►Reykjavíkurlistinn hefur nú set- ið í valdastóli í höfuðborginni hálft kjörtímabilið. Ingibjörg Sóirún Gíslasdóttir borgarstjóri situr því fyrir svörum um störf meirihlutans til þessa og það sem framundan er. /10 Upphaf hins skapandi manns ►Nýlegir fornieifafundir varpa ljósi á hvernig maðurinn skapaði listaverk, áhöld og blómleg samfé- lög fyrr en talið hefur verið. /12 Vaxandi þungi íbaráttuna ►Kosningaskrifstofur forseta- frambjóðendanna sóttar heim. /20 Á aö setja hámarks- aldurá Islendinga? ►Þannig spyr Inga Huld Hákonardóttir í síðari grein sinni um aðbúnað aldraðra hér á iandi. /22 Sagöi fyrst nei ■ síðan ókei ►í Viðskiptum/atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Pál Sigur- jónsson forstjóra verktakafyrir- tækisins ístaks. /24 B ► 1-32 Meistari Bowie ►David Bowie sem hér heldur tónleika innan skamms, er engin venjuleg poppstjama heldur er honum margt annað til listanna lagt. Að því komst Sindri Freysson þegar hann tók af honum hús í New York á dögunum. /1-6 Pílagrímsför enskunema ►Nokkrir nemar í enskuskor Há- skóla íslands hleyptu nýverið heimdraganum og héldu til fyrir- heitna landsins, Englands. 8 Meö bæði augun opin ►Panorama er heitið á nýrri ljós- myndabók Páls Stefánsson sem hér er brugðið upp svipmyndum úr. /16 C FERÐALOG /2 Grænland ►Fallegt land og freistandi. Þróunar er þörf ►Frá ráðstefnu um stefnumótun í ísienskri ferðaþjónustu. /4 D BILAR ► 1-4 Bílabúð Benna fær SsangYong ► Byijað að bjóða Musso jeppa, sem eru í svipuðum stærðarflokki og Mitsubishi Pajero og Nissan TerranoII. /1 Reynsluakstur ►Suzuki X-90 - óvenju- legur og vekur athygli. /4 FASTIR ÞÆTTIR Leiðari Helgispjall Reykjavíkurbi Skoðun Minningar Myndasögur Bréf til blaðsir ídag Brids INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1-6 iak Stjömuspá 42 28 Skák 42 28 Fólk í fréttum 44 28 Bió/dans 46 30 íþróttir 50 32 Útvarp/sjónvarp 52 40 Dagbók/veður 55 40 Mannlífsstr. lOb 42 Kvikmyndir 12b 42 Dægurtónlist 14b
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.