Morgunblaðið - 09.06.1996, Page 50

Morgunblaðið - 09.06.1996, Page 50
50 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ EVRÓPUKEPPIMIN í KNATTSPYRNU - E-RIÐILL Standast Kró- atar álagið? MARGIR bíða spenntir eftir framgöngu Króatíu í Evrópu- keppninni í Englandi og liðinu er spáð velgengni. Þegar Mi- roslav Blazevic tók við þjálfun liðsins 1994 að ósk vinar síns, Franjo Tudjman forseta Króat- íu, sagði hann að Króatía ætti marga af bestu knattspyrnu- mönnum heims og liðið yrði Evrópumeistari f Englandi. Blazevic, sem er 59 ára, fyrrum þjálfari Nantes í Frakklandi, 1989 til 1991, hefur síðan dreg- ið nokkuð í land. |argir af leikmönnum Króatíu voru lykilmenn í unglinga- landsliði Júgóslavíu, sem varð heims- meistari 1987 í Chile. Robert Pros- inecki, leikmaður Barcelona, er þar fremstur í flokki. Hann var mjög öflugur hjá Rauðu Stjörnunni frá Belgrad, fór þaðan til Real Madrid, en náði sér þar aldrei á strik vegna þrálátra meiðsla. Það var ekki fyrr en fyrir ári að hann sýndi hve hæfí- leikaríkur leikmaður hann er, er hann lék með Real Oviedo. Johan Cruyff fékk hann þá til liðs við Barcelona. Leikmenn Króatíu hafa yfir mik- illi tækni að ráða og eru sókndjarfir, fljótir að snúa leiknum sér í hag, með leiftursóknum. Fremstir í flokki eru Zvonimir Boban, AC Milan, áður- nefndur Prosinecki og Davor Suker, Sevilla, sem mun leika með Real Madrid næsta keppnistímabil. Hann var keyptur á sínum tíma til Sevilla til að leysa Diego Maradona af hólmi. „Fyrsti leikur okkar, gegn Tyrkjum, Sukur sterkasta vopn Tyrkja TYRKLAND hefur ekki verið með í hópi þeirra stóru síðan 1954 í HM í Sviss. Undir stjóm Fatih Terim, sem tók við landsliðinu 1993 af Sepp Piontek, fyrrum landsliðs- þjálfara Danmerkur, rættist draum- ur Tyrkja. Terim gerði tólf breyt- ingar á landsliðshópnum, valdi unga og metnaðarfulla leikmenn, sem snéru blaðinu við. „Ég hef alltaf sagt við mína leikmenn, að það er baráttan sem skilar árangri. Ég vil að leikmenn mínir mæti í hvern leik til að leggja sín hundrað pró- sent fram,“ sagði Terim, sem vill hafa landsliðið eins samhent og félagslið væri. Stjarna Tyrkja er Hakan Sukur, markaskorarinn mikli, sem segir eftir hvert mark sem hann skorar: „Þetta var gert fyrir þig, þjálfari!" Sukur, 24 ára, sem leikur eins og enskur miðherji, fór frá Galatasaray til Torínó fyrir tveimur árum, en náði sér ekki á strik þar, fékk heim- þrá - fór heim á ný eftir að hafa leikið fimm leiki og aðeins skorað eitt mark. ítalskur blaðamaður skrifaði þegar Sukur fór, að hann ætti eftir að skora mikið þegar hann væri kominn heim á ný. Hann hitti naglann á höfuðið, því að Suk- ur gerði fimm mörk í fyrstu þremur leikjum Galatasary og hélt upptekn- um hætti með landsliðinu. Hann er sterkasta vopn Tyrkja í EM. Tyrkir eru með fljóta og leikna leikmenn, sem verða undir mikilli pressu í EM. Menn efast um að þeir hafi styrk til að standast álag- ið, að það fari fyrir þeim eins og Grikkjum í HM í Bandaríkjunum - þeir nái sér ekki á strik. hefur mesta þýðingu. Ef við náum okkur á strik verður erfítt að stöðva okkur,“ segir þjálfarinn Bazevic. Þó svo að margir séu bjartsýnir á gengi Króatíu, vilja leikmenn vara við of mikilli bjartsýni. „Við þurfum að hafa heppnina með okkur til að komast í átta liða úrslit,“ sagði Sla- ven Bilic, sem leikur fyrir West Ham. Foringi liðsins og fyrirliðinn Suker segir að það yrði frábært ef Króatía kæmist í átta liða úrslitin. Sex leikmenn eru í liðinu, sem urðu heimsmeistarar unglinga í Chile. Prosinecki, hjarta liðsins, sem hefur ljón húðflúrað á hægri fót, vamarmaðurinn Robert Jami, Real Betis, Dubravko Pavlicic, Hercuies, Igor Stimac, Derby County, sem hefur verið orðaður við Manchester United, Suker og Boban. Boban og Prosinecki eru lykil- mennimir á miðjunni í 3-5-2 leikað- ferð, en koma til með að fá aðstoð frá Aljosa Asanovic eða Mario Stanic, miklum markaskorara hjá CS Briigge í Beigíu. Útheijar eru Jarni og Nikola Jurcevic, sem eru sterkir bæði í sókn og vöm. Jarni er geysi- lega fljótur og leikinn. Vinstri framheiji er Suker, sem skoraði tólf mörk í tíu leikjum í und- ankeppni EM - oft kallaður „mar- tröð markvarðanna." Peter Schmeichel, markvörður Dana, hefur sagt að skot Suker séu óútreiknanleg og hann geti skorað mörk í öllum regnbogans litum. Við hlið Suker leikur Alen Boksic, eitraður sóknar- leikmaður, sem Juventus hefur ákveðið að kaupa frá Lazíó. DAVOR Suker, hinn hættulegi framherjl og fyrirllöl Króatíu, er sá sem Peter Schmeichel, markvörður Dana, óttast mest. Annad ævintýri? NÆR landslið Portúgals að end- urtaka ævinýrið fyrir þrjátíu árum - frá HM í Englandi 1966, þegar „Svarta perlan" Eusebio og félagar náðu að slá f gegn, en urðu að játa sig sigraða í undanúrslitum fyrir Englending- um, sem urðu heimsmeistarar. Portúgalar töpuðu einnig í und- anúrslitum í EM í Frakklandi 1984. Þjálfari liðsins Antonio Oliveira vonar að betri árangur náist nú. „Þá þarf heppnin að vera með okkur." Landslið Portúgals er byggt upp á leikmönnum sem hafa fagnað tveimur heimsmeistaratitlum 20 ára, 1989 og 1991, og heimsmeistaratitli unglingalandsliða 1989. Kunnustu leikmenn liðsins eru miðvallarleik- mennirnir Luis Figo, Barcelona, og Paulo Sousa, Juventus. „Við höfum verið að auka sjálfstraust okkar og ná yfirvegun og festu í leik okkar - og munum reyna að fylgja því fast eftir í öllum leikjum okkar,“ segir Oliveira. Þegar Figo var spurður um möguleikana í EM, sagði hann: „Það getur allt gerst. Við höfum leikið vel í undankeppninni og erum ákveðnir að gera það einnig í Englandi.“ Rui Costa, Fiorentína, mun að öll- um líkindum leika við hliðina á Figo og Sousa á miðjunni, ásamt Oceano Cruz, Sporting Lissabon. Joao Pinto, Benfíca, á einnig eftir að leika stórt hlutverk - frábær leikmaður, með mikla yfírferð. Margir telja að fyrirliði og mark- vörður liðsins, Vitor Baia, sem leikur með Porto, en er á förum til Barcel- ona, sé sá leikmaður, sem á eftir að vera mest í sviðsljósinu - ekki vegna þess að hann fái eitthvað meira en gera en aðrir markverðir, heldur vegna þess að þarna er á ferðinni glæsilegur knattspyrnumaður, með mikið öryggi og sjálfsaga. Hann ligg- ur yfir myndböndum af leikjum sem hann hefur fengið á sig mark í, ákveðinn að láta ekki mistök endur- taka sig. íþróttafréttamann völdu hann besta markvörð Evrópu 1995. Baia, 26 ára, var dæmdur í tveggja mánaða keppnisbann í mars sl. fyrir slagsmál í deildarleik í Portúgal, þá fékk hann í fyrsta skipti á knatt- spyrnuferli sínum að sjá rauða spjaldið. Hann á metið í að halda markinu hreinu í Portúgal, lék í 1.192 mín. með Porto keppnistíma- bilið 1991-92 án þess að fá á sig mark. Sóknarleikmenn liðsins eru mjög markagráðugir - fremstur er Domingos Oliveira, Porto, sem hefur nautn af því að sjá knöttinn í net- möskvunum og við hlið hans leikur Joao Vieira Pinto, Benfica. Þeir eru báðir fljótir og grimmir. Leikmenn Portúgals, sem eru ung- ir og léttleikandi, geta komið skemmtilega á óvart í EM, eins og gömlu refirnir gerðu í HM í Eng- landi 1966. Danir fá mikinn stuðning Evrópumeistararnir frá Dan- mörku hefja titilvörn sína í Englandi með aðeins þijá leikmenn sem voru í meistaraliðinu 1992 í Svíþjóð, markvörðinn Peter Schmeichel, Manchester United, Kim Vilfort, Bröndby og Brian Laudrup, Glasgow Rangers. „Press- an verður meiri á okkur nú, heldur en í Svíþjóð þar sem við komum inn á síðustu stundu fyrir Júgóslava, sem voru settir í bann,“ segir Rich- ard-Möller Nielsen, þjálfari Dana. „Við leikum gegn þremur þjóðum sem leika mjög hraða og skipulagða knattspyrnu, þannig að ekkert lið í riðlinum getur bókað sigur fyrir- fram.“ „Ég óttast Króata, sem eru um þessar mundir með besta landslið Evrópu,“ segir hershöfðinginn og lykilmaður þeirra Dana, Michael Laudrup. Danir hafa aðeins tapað einum af síðustu sextán landsleikj- um sínum, unnið tíu af fjórtán á síðustu sautján mánuðum. Éini leik- urinn á þessu tímabili sem þeir hafa tapað, er fyrir Þjóðveijum í mars, 0:2. Nokkar nýjar stjörnur hafa skot- ist fram í sviðsljósið að undan- förnu, eins og hinn markagráðugi Mikkel Beck, sem leikur með Fort- una Köln og Erik Bo Andersen, markakóngur í Danmörku 1995, sem tók skotskóna með sér til Glasgow Rangers. „Eg vii engu spá um framgöngu okkar í Englandi, árangur okkar ræðst af hvort við höfum heppnina með okkur,“ sagði Nielsen, sem stjórnar danska liðinu í síðasta sinn í Englandi - við starfi hans tekur Bo Johansson, fyrrum landsliðs- þjálfari íslands. Þá er líklegt að Michael Laudrup kveðji einnig, hann er á leið til Japans eftir góð ár hjá Barcelona og Real Madrid. Það mæðir mikið á þessum snjalla leikmanni á miðj- unni og þá mun markvörðurinn Peter Schmeichel eflaust verða í sviðsljósinu. Danir fá mikinn stuðning, þar sem reiknað er með að yfir 15.000 rauðir og hvítir stuðningsmenn þeirra haldi yfir Norðursjó að hætti Víkinga forðum, til að hetja á velli í Englandi. „Við höfum alltaf leikið best þegar við höfum komið saman á mótum og haft mikinn stuðning frá fjölmörgum löndum okkar, sem gera allt til að skemmta sér sem best eins og við - andrúmsloftið þjappar okkur saman,“ sagði Schmeichel. Það er enginn öruggur að skora hjá þessum snjalla mark- verði, sem óttast aðeins einn leik- mann - Króatann Davor Suker. „Hann er óútreiknanlegur." Króatía Danmörk Portúgal Tyrkland Markverðir: Markverðir: Markverðir Markverðir: 1 Drazen Ladic (Croatia) 1 Peter Schmeichel (Man. United) 1 Vitor Baia (Porto) 22 Rustu Recber (Fenerbahce) 22 Tonci Gabric (Hajduk) 16 Lars Högh (Óðinsvé) 22 Rui Correia (Braga) 21 Sanver Goymen (Altay) 12 Marijan Mrmic (Varteks) 22 Mogens Krogh (Bröndby) 12 Alfredo Castro (Boavista) 1 Adnan Erkmen (Ankaragucu) Varnarleikmenn: Varnarmenn: Varnarmenn: Varnarmenn: 3 Robert Jarni (Real Betis) 2 Thomas Helveg (Udinese) 2 Carlos Secretario (Porto) 3 Alpay Ozaian (Besiktas) 5 Nikola Jerkan (Real Oviedo) 3 Marc Rieper (West Ham) 16 Helder Cristovao (Benfica) 2 Recep Cetin (Besiktas) 4 Ogor Stimac (Derby) 5Jes Högh (Fenerbahce) 5 Fernando Couto (Parma) 20 Biilent Korkmaz (Galatasaray) 6 Slaven Bilic (West Ham) 20Jacob Laursen (Silkeborg) 21 Paulo Madeira (Belenenses) 8 O. Temizkanoglu (Trabzonsp.) 15 Dubravko Pavlicic (Hercules) 4 Lars Olsen (Bröndby) 3 Paulinho Santos (Porto) 13 Rahim Zafer (Genclerbirligi) 2 Nikola Jurcevic (Freiburg) 12 Torben Piechnik (Árhus) Miðvallarspilarar: Miðjumenn: 18 Elvis Brajkovic (1860 Miinchen) 14 Jens Risager (Bröndby) 4 Oceano Cruz (Sporting) 15 Tayfun Korkut (Fenerbahce) 20 Dario Simic (Croatia) Miðjumenn: 6 Jose Tavares (Boavista) 10 Oguz Cetin (Fenerbahce) 14 Zvonimir Soldo (Croatia) 8 Claus Thomsen (Ipswich) 13 Dimas Teixeira (Benfíca) 16 Sergen Yalcin (Besiktas) Miðjumenn: 18 Kim Vilfort (Bröndby) 20 Luis Figo (Barcelona) 19 Tolunay Kafkas (Trabzonspor) 10 Zvonimir Boban (AC Milan) 13 Henrik Larsen (Lyngby) 19 Paulo Sousa (Juventus) 17 Abdullah Ercan (Trabzonspor) 8 Robert Prosinecki (Barcelona) 7 Brian Steen Nielsen (Öðinsvé) 7 Vitor Paneira (Guimaraes) 5 Tugay Kerimoglu (Galatasaray) 7 Aljosa Asanovic (Hajduk) 10 Michael Laudrup (Real Madrid) Sóknarleikmenn: 4 Vedat Inceefe (Karabukspor) 16 MÍaden Mladenovic (Salzburg) 17Allan Nielsen (Bröndby) 15 Domingos Oliveira (Porto) Sóknarleikmenn: 13 Mario Stanic (FC Briigge) 6 Michael Schjönberg (Oðinsvé) 8 Joao Vieira Pinto (Benfiea) 6 Ertugrul Saglam (Besiktas) Sóknarmenn: Sóknarmenn: 18 Antonio Folha (Porto) 7 Hami Mandirali (Trabzonspor) 9 Davor Suker (Reai Madrid) 11 Brian Laudrup (Rangers) 14 Pedro Barbosa (Sporting) 11 Orhan Cikirikci (Trabzonspor) 11 Alen Boksic (Lazíó) 9 Mikkel Beck (Fortuna Köln) 9 Ricardo Sa Pinto, (Sporting) 9 Hakan Sukur (Galatasary) 19 Goran Vlaovic (Padova) 15 Erik Bo Andersen (Rangers) 17 Hugo Porfirio (Uniao Leiria) 18 Arif Erdem (Galatasaray) 21 Igor Cvitanovic (Croatia) 19 Stig Töfting (Árhus) 10 Rui Costa (Fiorentína) 14 Saffet Sancakh (Kocaelispor) 17 Igor Pamic (Osijek) 21 Sören Andersen (Álaborg) 11 Jorge Cadete (Celtic) 12 Faruk Yigit (Kocaelispor) Þjálfari: Miroslav Blazevic. Þjálfari: Richard-Möller Nielsen. Þjálfari: Antonio Oliveira. Þjálfari: Fatih Terim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.