Morgunblaðið - 09.06.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ1996 35
I
I
I
I
i
I
i
I
j
1
I
j
á
i
i
i
MINNINGAR
KRISTJÁN
SYL VERÍUSSON
+ Kristján Sylver-
íusson fæddist í
Reykjavík 9. febr-
úar 1915. Hann lést
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur í Foss-
vog-i 3. júní síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Sylveríus Hall-
gTÍmsson, f. 20.6.
1888, d. 13.4. 1977,
og Helga Krisljáns-
dóttir, f. 6.2. 1887,
d. 6.8.1979. Systkini
Kristjáns eru Olöf
Sigurborg er lést í
frumbernsku, Hall-
grímur, f. 13.6. 1918, d. 15.8.
1990, andvana fæddur drengur,
f. 8.6. 1921, og Ólöf Sigurborg,
f. 8.6. 1921.
Hinn 25. júlí 1945 kvæntist
Krislján fyrri konu sinni, Þuríði
Jóhannesdóttur, f. 2.6. 1911, d.
5.4. 1988. Kristján
tók saman við Sól-
borgu Kristínu
Jónsdóttur, f. 29.12.
1921, og kvæntist
henni 26.5. 1994.
A sinni löngu
starfsævi kom
Kristján víða við, en
lengst af starfaði
hann sem hafnar-
verkamaður hjá
Eimskipafélagi Is-
lands. Kristján var
lengi í Taflfélagi
Reykjavíkur, ásamt
því sem hann tók
virkan þátt í ýmsum félagsmál-
um er snertu verkalýðsbarátt-
una á sínum yngri árum.
Utför Kristjáns fer fram frá
Fossvogskirkju á morgun,
mánudaginn 10. júní, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
paradís sem hægt er að hugsa sér,
upp til Guðs.
En hér eiga allir sem þekktu
Kristján eftir að sakna hans, vegna
þess að hann var góður og yndisleg-
ur maður sem flestir elskuðu og
dáðu.
Á hendur fel þú honum,
sem himna stýrir borg,
það allt er áttu í vonum,
og allt er veldur sorg.
Hann bylgjur getur bundið
og bugað storma her,
hann fótstig getur fundið
sem fær sé handa þér.
Mín sál, því örugg sértu,
og set á Guð þitt traust.
Hann man þig, vís þess vertu,
og verndar. endalaust.
Hann mun þig miskunn krýna.
Þú mæðist litla hríð.
Þér innan skamms mun skína
úr skýjum sólin blíð.
(Bj. Halld.)
Elsku amma Bogga, ég votta þér
mína dýpst.u samúð og styð þig á
þessum sorgartímum.
Hafdís Jóna.
t
Eiginmaður minn,
KRISTINN ERLENDUR KALDAL,
Suðurgötu 45, Keflavík,
varð bráðkvaddur 6. júní.
Bjarnheiður Björnsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur og bróðir,
MAGNÚS RAGNARSSON,
Orrahólum 7,
Reykjavik,
lést á heimili sínu 21. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Kærar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug.
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn,
faðir og systkini.
í dag kveð ég mætan mann og
vin. Það voru margar stundirnar
er við Kristján heitinn sátum saman
og ræddum þjóðfélagsmálin í fortíð
og nútíð. Kristján leyndi á sér því
hann var fróður um menn og mál-
efni. Hann kunni margar skemmti-
legar frásagnir af samtíðarmönnum
sínum og málefnum er gaman var
að uppiifa með honum í frásagnar-
gáfu hans.
Ég geymi í minningunni margar
góðar stundir með ljúfum vin sem
gaf mér svo margt í spjalli okkar
og vináttu.
Að lokum bið ég þess að Guð
styrki alla þá er kveðja slíkan mann,
ekki síst systur hans og eftirlifandi
eiginkonu, Boggu ömmu, er horfir
á eftir góðum eiginmanni, félaga
og vin. Guð geymi þig.
Björgvin Björgvinsson.
Hve fagurt ljómar ljósa her
á loftsins bláa geim.
Hve milt og blítt þau benda mér
í bústað Drottins heim.
(V. Briem)
Nú er Kristján okkar dáinn. Okk-
ur líður vel að veikindum hans sé
lokið, en söknuður og tómleiki verð-
ur ávallt þegar við komum í heim-
sókn til ömmu Boggu. Eftir stendur
minningin um góðan mann sem tók
okkur alltaf svo vel.
Við þökkum góðar samveru-
stundir sem við áttum með Krist-
jáni og ömmu Boggu. Við biðjum
góðan Guð að varðveita Kristján.
Elsku amma Bogga, við biðjum
góðan Guð að gefa þér styrk á þess-
ari erfiðu stundu.
Thelma Rut og Sandra Ósk.
Hann Kristján, maðurinn hennar
ömmu Boggu, er nú dáinn eftir
erfið veikindi. Hann var okkur
langömmubörnunum hennar alltaf
svo góður og okkur þótti reglulega
vænt um hann. Mig langar að
kveðja Kristján með þessum fáu
orðum.
Það er nú alltaf þannig að líf
verður að dauða og dagur verður
að nótt. Nóttin og dauðinn eiga það
sameiginlegt að þau eru endir á
einhveiju sem er yfirleitt dásam-
legt. En nóttin getur verið björt á
sumrin og dauðinn getur stundum
verið góður fyrir þann sem deyr.
Hann getur losnað undan þjáning-
um og kvölum og farið í mestu
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðirm,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt sem Guði er frá.
(V. Briem)
•Hinsta kveðja,
Helena og Lilja María.
t
Okkar kæri
GISSUR INGI GEIRSSON
frá Byggðarhorni, Flóa,
Víðivöllum 17,
Selfossi,
er látinn.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey að hans
ósk. Grafreitur hans verður í Laugar-
dalakirkjugarði.
Við þökkum af alhug þeim, sem önnuð-
ust hann af alúð og hlýju í veikindum hans, og einnig þökkum
við öllum þeim, sem haft hafa samband, sent blóm og samúðar-
kort nú við lát hans. Það gleymist aldrei.
Ásdi's Lilja Sveinbjörnsdóttir,
Geir Gissurarson,
Kolbrún Ylfa Gissurardóttir,
Vigdís Rós Gissurardóttir
og fjölskyldur þeirra,
Geir Gissurarson eldri,
systkini og fjölskyldur þeirra.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
HULDA JÓNSDÓTTIR,
Tjarnargötu 24,
Keflaví,
sem lést 4. júní, verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudag-
inn 11. júní kl. 1 3.30.
Jónas Þór Arthúrsson,
Ólafur Jóhannsson,
Jóna Maria Jóhannsdóttir,
Sigurður Jóhannsson,
tengdadóttir og barnabörn.
t.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ERLENDUR ERLENDSSON
fyrrv. leigubifreiðastjóri,
Mávahlíð 20,
verður jarðsunginn frá Hallgrimskirkju
miðvikudaginn 12. júní kl. 13.30.
Sigríður Hannesdóttir,
Garðar Erlendsson,
Ólafur Erlendsson,
Sævar Erlendsson,
Þuriður Erlendsdóttir,
Hannes Erlendsson,
Erlendur Erlendsson,
Guðjón Erlendsson,
Ragnheiður Erlendsdóttir,
Jóhanna Erlendsdóttir,
Sigurrós Erlendsdóttir,
Jón Erlendsson,
Ragnhildur Agústsdóttir,
Guðjón Jónsson,
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Anna Karlsdóttir,
Kristin Jónsdóttir,
Davið Steinþórsson,
Jóhann Gylfi Gunnarsson,
Kristján Jóhannsson,
Ragnheiður Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lúxusútgáfa á einstöku tilboði
Við vorum að fá til landsins sérstaka lúxusútgáfu af
Volvo 850 sedan á einstöku tilboðsverði.
Tilboðið er fólgið í því að þú færð frían aukahlutapakka
að verðmæti hvorki meira né minna en 137.400 kr.
í þessum pakka er:
• Líknarbelgur fyrir farþega
• Fjarstýring fyrir samlæsingu
• Þokuljós
• SC-800 útvarp/segulband
• 8 hátalarar
• Armpúði að framan m/glasahaldara
• Volvo taumottur
Athugið að einnig er tilboð
á Volvo 850 station.
VOtVÖ Volvo 850 sedan kostar með þessum aukahlutum auk ríkulegs
BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST staðalbúnaðarfrá aðeins: 2.648.000 kr. Stgr. sjálfskiptur.
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SlMI 515 7010