Morgunblaðið - 09.06.1996, Síða 53

Morgunblaðið - 09.06.1996, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ i I I 3 í I í < i i i i ( l < FRÉTTIR Fyrirlest- ur um stúlkur og stærðfræði DR. ELIZABETH Fennema frá University of Wisconsin heldur fyr- irlestur í Odda, húsnæði Háskóia Islands, á morgun, mánudag kl. 15. Fyrirlesturinn nefnist Sókn stúlkna á stærðfræðitengdar brautir fram- haldsskóla og háskóla. Dr. Fen- nema er einn kunnasti fyrirlesari heims á þessu sviði og hefur staðið þar í fararbroddi í rannsóknum. Fyrirlesturinn er haldinn í boði Flat- ar — Samtaka stærðfræðikennara 9g Félagsvísindadeildar Háskóla íslands. Samtök stærðfræðikenn- ara standa einnig fyrir kennara- námskeiði um þetta málefni í Kenn- araháskóla íslands dagana 10.-14. júní. Hér á landi hefur sókn stúlkna í stærðfræðinám og stærðfræði- tengt nám ekki aukist í sama mæli og sókn kvenna almennt í fram- halds- og háskólanám. Hið sama á við víðar en sums staðar má þó greina hæga en stöðuga breytingu. I nokkrum löndum hefur verið unn- ið að því með stuðningi yfirvalda að kynna stúlkum betur en áður möguleika og margbreytileika í störfum sem hvíla á stærðfræði- tengdri menntun. Slíkt hefur skilað nokkrum árangri. Einnig hefur sjónum verið beint að því hvernig skólar geti í stærðfræðináminu náð betur til allra einstaklinga og hvað þurfi þar að koma til í vali inntaks og leiða. Alþjóðlegu samtökin um stærð- fræðimenntun, The International Commission on Mathematical In- struction, hafa gefið þessu máli sérstakan gaum og héldu fyrir nokkrum árum fjölþjóðlega ráð- stefnu undir yfírskriftinni Gender and Mathematics Education. Dr. Elizabeth Fennema, sem hér er stödd, var aðalfyrirlesari á þeirri ráðstefnu. Fyrirlesturinn er opinn öllum sem áhuga hafa á þessu málefni. —----♦-------- Félag eldri borgara Ferð norður til móts við Færeyjafara FELAG eldri borgara í Reykjavík efnir til ferðar til Akureyrar í bytj- un júlí til að taka á móti félögum sem þá eru að koma frá Færeyjum. Lagt verður af stað 4. júlí klukk- an 9 og dvalið verður á Hótel Vin, Hrafnagili við Eyjafjörð, í þtjá daga og munu félagar í Félagi eldri borg- ara norðan og sunnan heiða halda með sér kynningar- og skemmti- fundi þessa daga, og enn eru nokk- ur sæti laus, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Sunnudaginn 7. júlí verður haldið suður Kjöl og kvöldverður snæddur í Uthlíð í Biskupstungum. Farar- stjóri er Geir Björnsson og hægt er að fá frekari upplýsingar á skrif- stofu Félags eldri borgara. Blað allra landsmanna! -kjarnimálsins! ÆTTARMÓT niðja Brynjólfs Einarssonar, hreppstjóra á Sóleyjarbakka verður haldið að Flúðum laugardaginn 22. júní nk. Áríðandi er að þeir þátttakendur, sem enn hafa ekki tilkynnt þátttöku, tilkynni hana nú þegar til einhverra neðangreindra. Eirfkur, sími 557 8896, Ester, sími 567 6018, Guðmundur, sími 487 5015, Halldóra, sími 557 1412, Kristmann, sími 481 1971, Sigrún, sími 482 2487, Steindór, sími 566 6591, Valdimar, sími 533 0315 og Aðalbjörg, símar 462 3121 og461 1052. Mæting og skrásetning hefst kl. 10.00 í Félagsheimilinu að Flúðum og frekari upplýsingar um dagskrá mun liggja þarfyrir. Mótsnefndin. TILKYNNING FRÁ DÓMSMÁLARÁÐUNEYTINU um ísetningu ökurita sem skráir aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Dómsmálaráðuneytið hefur gert samkomulag við Vegagerðina um framkvæmd reglna um aksturs- og hvíldartíma ökumanna í innanlands- flutningum. Nokkur verkstæði hafa verið faggilt til að annast frágang ökurita í bifreiðir og önnur eru á lokastigi faggildingar. Ekkert á að vera því til fyrir- stöðu að eigendur (umráðamenn) bifreiða, sem ber skylda til að hafa viðurkenndan ökurita í bifreiðinni og ekki hafa þegar látið viðurkenna hann á faggiltu verkstæði, láti gera það. Lögregla og vegaeftirlitsmenn munu fylgjast með að gengið verði frá viðurkenndum ökurita í bifreiðir sem skulu hafa slíkan búnað og að öllum reglum um aksturs- og hvíldartíma verði framfylgt. Eftirfylgnin verður þessi: a. Frá og með 1. júlí nk. skal eigandi (umráðamaður) bifreiðar hafa látið ganga frá ökurita í hana á faggiltu mælaverkstæði, eða a.m.k. vera með skriflega staðfestingu í bifreiðinni um að hann hafi frátekinn tima á slíku verkstæði til að láta ganga frá ökurita í bifreiðina. b. Frá og með 1. ágúst nk. skal eigandi (umráðamaður) bifreiðar hafa látið ganga frá ökurita I bifreiðina á faggiltu mælaverkstæði. Fyrst um sinn verður eftirfylgnin mest á þeim svæðum þar sem mæla- verkstæði hafa verið samþykkt og gagnvart þeim bifreiðum og öku- mönnum, sem eru í langakstri. Vegagerðin og lögregia hafa heimild til að fresta aðgerðum í landshlutum þar sem eigendur (umráðamenn) bifreiða hafa ekki haft aðstöðu til að fá ökurita viðurkennda í bifreiðir, enda sé bif- reiðin þá ekki notuð utan þess svæðis. Til þess að komast hjá óþægindum eru eigendur (umráðamenn) bif- reiða sem falla undir þá skyldu að hafa viðurkenndan ökurita í ökutækinu til að skrá aksturs- og hvíldartíma ökumanna á skráningarblað, eindregið hvattir til að hlíta í öllu reglum, sem dómsmálaráðuneytið hefur gefið út um aksturs- og hvíldartíma o.fl. í innanlandsflutningum og við flutning innan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. reglugerð nr. 136/1995. Vegagerðin mun veita allar nánari upplýsingar um framkvæmd regln- anna, ísetningu á ökuritum og eftirlit með aksturs- og hvíldartíma öku- manna. Dómsmálaráðuneytið, 4. júní 1996. F.h.r. <^)Tq uji' 1 ■ Á''(- U SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1996 MIÐANN FÆRÐU HJÁj McDONALD’S!yES==rt.d. '“TSahliMcD°nr?, — öfekiítrt (4 ! n/ivcföU“fŒtrtrt^ stk.) af rt"1 ^L/kolurtt F^^ðirttt. -ntboðið.^^07' ABS -í:r.Lv:assmita SEMENTSBUNDIN FLOTEFNI Uppfylla ströngustu gæöakröfur I PR0NT0 PREST0 REN0V0 Gólf • Rakaheld án próteina • Níðsterk • Flraðþornandi • Dælanleg • Flentug undir dúka og til ílagna $ Iasmirh/f. iðnaðargólf Smiðjuvegur 70,200 Kópavogur Sfmar: 564 1740, 892 4170, Fax: 554 1769 tæknilcg lullkomnun hagstætt verð lctt St meðfærilcgt txki Eí þú vilt ná augum og cyrum fólks skaltu kynna þér nýja LitePm 210 margmiðlunarvarpann frá InFocus Systems. Þú varpar upp myncl- böndum og tölvugrafík mcð cin- stökurn myndgæðum og innbyggðir JBL hátalarar tryggja öflugt hljóð. Árangurinn læturckki á sérstanda. LitePm 210 myndvarpinn cr tækni- lcga fullkominn cn samt afar cinfaldurogþægilcgurínotkun. Og citt cnn - vcrðið cr ótrúlcga hagstætt. Þú gctur því óliikað nýtt þér tæknina og varpað ljósi á málið - mcð vönduðu tæki frá virtum framlciðanda. RADÍÓSTOFAN'NÝHERJI SKIPHOLTI 37 - SlMI 569 7600 Alltaf skrefi á undan InFccus Við verðum með opið hús helaina 8. og 9. júní kl. 13-16 í Scania salnum í Hekluhúsinu í tilefni af komu tveggja nýrra Scania Berkhof nútubíla í eigu Vestfjarðaleiöa. Venið velkomin, kynniö ykkun bifreiðarnar og piggið léttar veitingar. SCANIA í Hekluhúsinu 9. júnf kl.13-16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.