Morgunblaðið - 25.06.1996, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stéttarfélög lögreglumanna segja ástandið í miðbænum kalla á nýtt skipulag
Harðnandi ofbeldi og
árásir miskunnarlausari
Sparkað í höfuð ungs löggæzlu
manns aðfaranótt sunnudags
SPARKAÐ var í höfuð ungs lög-
reglumanns aðfaranótt sunnudags
í miðbæ Reykjavíkur. Lögregla
hugðist handtaka mann vegna
skemmdarverka á bifreið en maður-
inn og unnusta hans, sem bar hnúa-
jám, höfðu lent í átökum við þriðja
mann, sem kom að og hugðist koma
í veg fyrir frekari skemmdir. Árás-
armaðurinn sparkaði í lögreglu-
manninn með þeim afleiðingum að
hann nefbrotnaði.
Forsvarsmenn lögreglumanna
telja að ofbeldi fari harðnandi, árás-
ir séu miskunnarlausari og ástandið
í miðbænum kalli á endurskoðun
löggæslunnar. Þá er ástæða til að
endurskoða aðbúnað og starfsör-
yggi afleysingamanna í lögreglunni
að mati formanns Lögreglufélags
Reykjavíkur. Þeir hafa ekki leyfí til
að bera sama búnað og fullgildir
lögreglumenn en klæðast sams kon-
ar einkennisbúningum.
Sá sem sparkaði í andlit lögreglu-
mannsins kveðst ekki hafa vitað
að um lögreglumann væri að ræða,
að sögn Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, og ekki er talið að um ásetning
hafí verið að ræða. Honum var
sleppt eftir yfírheyrslur hjá RLR
og verður málið sent saksóknara.
Málinu óviðkomandi að um
sumarmann var að ræða
Guðmundur Guðjónsson yfírlög-
regluþjónn segir að hart sé tekið á
árásum á lögreglumenn og til
marks um það hafi á þessu ári ver-
ið kveðinn upp dómur um fjögurra
mánaða óskilorðsbundna fangelsis-
vist yfir manni sem veittist að lög-
reglumönnum sem hugðust hneppa
hann í varðhald. Guðmundur tekur
fram að í þessu tiltekna árásarmáli
frá því um helgina hefði engu máli
skipt þótt um fullmenntaðan lög-
reglumann hefði verið að ræða,
enda hafí lögreglumaðurinn verið í
sameiginlegri aðgerð með tveimur
reyndum mönnum.
Góð reynsla af sumarmönnum
Lögreglumenn, sem lokið hafa
fyrri hluta náms í Lögregluskóla
ríkisins, hafa leyfi til þess að bera
kylfu og varnarúða, samkvæmt
starfsreglum, gefnum út af dóms-
málaráðuneyti. Sumarafíeysinga-
menn hafa hins vegar að öllu jöfnu
viku þjálfun að baki og mega ekki
bera fyrrgreindan búnað, að sögn
Guðmundar, en til þess er ætlast
að þeir séu í fylgd reyndari lög-
reglumanna og þannig sé málum
háttað innan lögreglunnar í Reykja-
vík. „Kylfunotkun er hins vegar
ekki algeng. Það koma kannski upp
nokkur tilvik á ári þar sem þeirra
er þörf og hið sama gildir um úð-
ann,“ segir hann. Guðmundur segir
lögregluna í Reykjavík ráða 27
sumarafleysingamenn eða rúm 10%
af heildarmannafla. Hann segir að
sumarafleysingamönnum hafi verið
fækkað verulega undanfarin ár,
þeir hafi fyrir nokkrum árum verið
á milli 50 og 60. Ástæðan sé að
verulegu leyti samdráttur í rekstri
og fækkun í lögregluliði almennt.
Hann segir vandað vel til vals á
sumarafleysingamönnum, þeir
komi margir hveijir sumar eftir
sumar og af þeim sé góð reynsla.
Ekki megi merkja að sumarmenn
slasist meira en aðrir lögreglumenn.
„Þetta fyrirkomulag, að vera með
sumarafleysingamenn, hefur gert
okkur kleift að krækja í mjög hæfa
menn sem annars hefðu ekki geng-
ið til liðs við okkur. Lögregluliðið í
heild hefur þannig orðið betra fyrir
bragðið," segir Guðmundur.
Sumarafleysingar
tímaskekkja
Jónas Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna, og
Óskar Bjartmarz, formaður Lög-
reglufélags Reykjavíkur, eru sam-
mála um að ekki eigi að ráða aðra
til lögreglustarfa en þá sem til þess
hafa verið menntaðir. Það tíðkist
ekki annars staðar í Evrópu að
afleysingafólk sé tekið í lögregluna.
Afleysingamenn fá aukaaðild að
félögum lögreglumanna þegar þeir
fara á launaskrá og segja bæði
Jónas og Óskar að félögin standi
vörð um réttindi þeirra eins og ann-
arra félagsmanna. „Ógnun við
þessa menn er ógnun við stéttina
alla. Annaðhvort þarf að auka mjög
menntun afleysingafólks eða
byggja lögreglulið upp þannig að
það sé sjálfu sér nægt,“ segir Jónas.
Harðnandi heimur
Óskar segir ljóst að breyta þurfi
löggæslunni vegna ástandsins í
miðbænum. Hann segir að miðað
við hvernig almenn löggæsla hafí
þróast á undanförnum misserum
teljist viku námskeið vart nægur
undirbúningur og endurskoða verði
hlutverk sumarafleysingamanna,
aðbúnað þeirra og öryggi. Þjálfun
til löggæslu fái menn ekki á nokkr-
um dögum. „Þetta hefur tíðkast í
áratugi og var kannski í lagi áður
fyrr, en heimur harðnandi fer. Lög-
reglumenn eru í hættu, það er
hrækt á þá, þeir grýttir og svívirtir
á ýmsan hátt,“ segir Óskar.
Jónas segir að árásin á lögreglu-
manninn verði tekin til umræðu á
fundi framkvæmdastjórnar félags
síns á næstu dögum og í framhaldi
af því verði málið tekið upp við
dómsmálaráðuneytið.
Olíuskip *
vaktaðí
höfninni
OLÍUFLUTNINGASKIPIÐ Malik-
Traider, sem selur olíu til skipa á
Reykjaneshrygg, lagðist við Ægis- |B
garð í gær vegna vélarbilunar. k
Skipið er girt af og var vaktað í
nótt til að bægja frá umferð. Að
sögn slökkviliðsins í Reykjavík eru
um 4.000 tonn af olíu um borð í
skipinu. Gert er ráð fyrir að viðgerð
ljúki í dag og að skipið haldi úr höfn
í kvöld.
----» ♦ ♦---
Norðurlandamót í brids
Baráttaum 1
efstu sætin
SVIAR, Norðmenn og íslendingar
beijast um Norðurlandameistaratit-
ilinn í brids en þessar þjóðir hafa
forystu í opna flokknum þegar |
mótið er hálfnað.
Svíar eru efstir með 102 stig,
Norðmenn hafa 92 og íslendingar
91 en langt er í næstu þjóðir.
íslenska liðið vann Dani, 23:7, í
fjórðu umferð í gær en gerði síðan
jafntefli við Finna, 15:15, í fímmtu
umferð í gærkvöldi.
í kvennaflokki töpuðu íslending-
ar fyrir Dönum, 10:20, í fjórðu
umferð en unnu Finna, 16:14, í
fimmtu umferð og eru í fimmta |
sæti með 56 stig. Svíar eru lang- »
efstir með 109 stig. Ekki er spilað j
í mótinu í dag. |
■ Skin og skúrir/47
Morgunblaðið/Sverrir
Prinsessan af
Tælandi í heimsókn
ins í Tælandi. Hún kom til lands-
ins á sunnudag með flugvél frá
SAS ásamt 46 manna fylgdar-
liði, þar á meðal forstjóra SAS
í Tælandi. Samvinnuferðir-
Landsýn sjá um skipulagningu
ferðarinnar hér á landi.
Fyrsti viðkomustaðurinn var
Bláa lónið og síðan var haldið
til Bessastaða, þar sem forseti
íslands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir bauð til óformlegrar te-
drykkju. Um kvöldið snæddi
hópurinn kvöldverð í Perlunni.
I gær var farið að Nesjavöll-
um, Þingvöllum, Gullfossi og
Geysi og í dag á Vatnajökul og
í siglingu á Jökulsárlóni. Hópur-
inn heldur utan í fyrramálið.
Að sögn Þóru Th. Hallgríms-
son hjá Samvinnuferðum-Land-
sýn fylgir hópnum tökulið frá
tælenska sjónvarpinu, sem send-
ir glefsur úr íslandsferðinni um
gervihnött til Tælands einu sinni
á dag. Þóra segir að prinsessan
hafi alltaf haft mikinn áhuga á
norðrinu og þekki vel til íslend-
ingasagnanna.
PRINSESSAN af Tælandi er nú
stödd í einkaheimsókn hér á
landi. Galyani Vadhana heitir
hún og er eldri systtr konungs-
í RIÓRA
MEÐ blaðinu í dag fylgir
tólf síðna auglýsingablað
frá Kringlunni.
Nýtt fyrirtæki í lyfja-
verslun tengt Bónus 1
NÝSTOFNAÐ fyrirtæki, Lyfjabúð-
ir ehf., yfirtekur rekstur Hafnar-
fjarðar Apóteks um næstu mán-
aðamót og stefnir að því að opna
þijú ný apótek í haust. Nýju apó-
tekin verða við hlið Bónusverslan-
anna við Smiðjuveg í Kópavogi og
Iðufell í Reykjavík og það þriðja í
nýrri verslunarmiðstöð í Setbergs-
hverfí í Hafnarfirði.
Í framtíðinni er stefnt að því að
opna apótek í næsta nágrenni við
aðrar Bónusverslanir þar sem því
verður við komið.
Stofnendur Lyfjabúða ehf. eru
Almar Grímsson apótekari í Hafn-
arfjarðar Apóteki, Bessi Gíslason
lyfjafræðingur, Guðmundur
Reykjalín viðskiptafræðingur, Jó-
hannes Jónsson í Bónus og Harald-
ur Jóhannsson framkvæmdastjóri.
Hlutafé er 9,5 milljónir króna en
verður aukið í 20 milljónir í haust.
Framkvæmdastjóri hins nýstofn-
aða fyrirtækis er Guðmundur
Reykjalín eir hann var áður fram-
kvæmdastjóri Apótekarafélags ís-
lands.
Mætum þeirri áskorun sem
nýju lyfjalögin bjóða upp á
í apótekum Lyfjabúða ehf. verð-
ur boðið upp á lyf, hjúkrunar- og
sjúkragögn, heilsu- og hreinlætis-
vörur á hagstæðu verði, segir í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
„Með þessu erum við að skapa
okkur betri samkeppnisaðstöðu.
Við ætlum að mæta þeirri áskorun (
sem nýju lyfjalögin bjóða upp á, (
stofna nokkur ný apótek og láta L
þau vinna saman og ná þannig '
hagkvæmni í rekstri og betra
verði,“ segir Almar Grímsson, en
hann mun, jafnframt því að veita
Hafnarfjarðar Apóteki faglega for-
stöðu, annast faglega yfirstjórn
nýja fyrirtækisins.
Valt með 14 tonn af rækju
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
FLUTNINGABÍLL með tengivagn
valt við afleggjara í Kerlingar-
skarði á Snæfellsnesi um hádegis-
bil á sunnudag. I bílnum voru 14
tonn af rækju sem flutu út um
allt og er hann talinn gjörónýtur.
Bílstjórinn slapp ómeiddur.
Óhappið varð þar sem vegurinn
skiptist til Stykkishólms og Grund-
arfjarðar og ætlaði ökumaðurinn
að beygja inn til Stykkishólms. Á
umræddum vegarkafla er brött
brekka niður að afleggjaranum og
tókst ökumanni ekki að hægja
ferðina nægilega mikið til þess að
ná beygjunni með þeim afleiðing-
um að bíll og tengivagn ultu.
Flutningabílinn fór á hvolf en
tengivagninn á hliðina og dreifðist
farmurinn um allt. Var verið að
flytja 11 tonn af Eldeyjarrækju til
vinnslu á Bíldudal.
Morgunblaðið/Ámi