Morgunblaðið - 25.06.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ1996 25
ERLEIUT
Misjafnar móttökur
Berlín. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi II lauk í gær
vikulangri heimsókn í Þýskalandi.
Var honum vel fagnað af kaþólsku
fólki en ýmsir hópar aðrir efndu til
mótmæla vegna komu hans og
gerðu að honum hróp. Þýskir gyð-
ingar voru ánægðir með þau um-
mæli hans, að allt of fáir kaþólikk-
ar hefðu haft hugrekki til að snú-
ast gegn Hitler og nasismanum á
sínum tíma.
Hundruð manna hrópuðu ókvæð-
isorð að páfa þegar hann ók á
sunnudag að Brandenborgarhlið-
inu, „frelsishliðinu", sem er tákn-
rænt fyrir baráttu hins pólska páfa
gegn kommúnismanum á sínum
tíma. Þar flutti hann nokkur orð
og hvatti til lýðræðis og virðingar
fyrir mannréttindum.
Á sunnudagsmorgni flutti páfi
messu fyrir um 130.000 manns á
Ólympíuleikvanginum, sem Hitler
lét gera vegna leikanna 1936, og
blessaði þá tvo presta, sem létu líf-
ið vegna andstöðu við nasismann.
Jóhannes Páll páfi átti einnig
fund með leiðtogum mótmælenda-
kirkjunnar í Paderborn á laugardag
og hvatti þá til að halda áfram við
að brúa bilið á milli kirkjudeild-
anna. Hann tók þó fram, að Páfa-
garður gæti ekki verið sammála
mótmælendum um ýmsar kenning-
ar Marteins Lúters, sem hóf baráttu
sína fyrir siðaskiptunum 1517.
Reuter
PÁFI kemur til messunnar á Ólympíuleikvanginum í Berlín.
Búrma
Rannsaka
lát konsúls
Kaupmannahöfn. Reuter.
DANIR og Norðmenn sögðust í
gær myndu senda fulltrúa sína til
Búrma til þess að grafast fyrir um
dauða sameiginlegs konsúls ríkj-
anna þar, Leo Nichols, sem lést í
fangelsi á laugardaginn. Sögðu
búrmískir embættismenn hann
hafa fengið hjartaáfall. Nichols var
vinur Aung San Suu Kyi, leiðtoga
lýðræðissinna í Búrma.
Nichols var 65 ára gamall fjár-
málamaður af búrmískum og
breskum uppruna. Hann var hand-
tekinn af búrmískum yfirvöldum í
apríl og dæmdur í þriggja ára fang-
elsi fyrir að hafa notað síma og
faxtæki á heimili sínu án leyfis.
Diplómatar og stjórnarandstæð-
ingar telja þó líklegt að raunveruleg
ástæða þess, að Nichols var hand-
tekinn, hafi verið vinátta hans við
Suu Kyi, og að hann hafði veitt
Lýðræðisfylkingu hennar fjárhags-
legan stuðning.
Nichols var einnig fulltrúi Sviss
í Búrma og hafði sinnt erindrekstri
fyrir Finnland, þótt ekki væri hann
opinber konsúll Finnlands.
Danska utanríkisráðuneytið
greindi frá því í gær að sendiherra
Danmerkur í Thaílandi myndi fara
til Rangoon, höfuðborgar Búrma,
„eins fljótt og auðið er.“ Sendifull-
trúi Norðmanna í Singapore, sem
fór til Rangoon á föstudag til þess
að bjóða Suu Kyi stuðning, kom
aftur til Singapore í gær, en átti
að halda rakleiðis aftur til Rango-
on.
KilchenAid
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
50 ára frábær reynsla.
[ jfjf Einar
| mSm" | Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 * 562 2901 og 562 2900
Þrýstingur eykst á Bandaríkjaforseta vegna FBI-skjala
Clinton reiður undirmönnum
Nashville, Tennessee. R^uter.
BILL Ciinton Bandaríkjaforseti er
„mjög reiður" yfir því að undirmenn
sínir í Hvíta húsinu skuli ekki geta
veitt fullnægjandi svör við því hvern-
ig á því standi að skrár y_fir rúmlega
fjögur hundruð manns voru fengnar
frá bandarísku alríkislögreglunni,
FBI, með óréttmætum hætti, að því
er blaðafulltrúi forsetans, Mike
McCurry, sagði í gær
McCurry sagði við blaðamenn í
flugvél forsetans á leið frá Washing-
ton til Nashville að forsetaembættið
myndi ekki kanna málið frekar, en
forsetinn vonaði að Kenneth Starr,
sem skipaður var saksóknari í
Whitewater-málinu og á nú að kanna
þetta mál, kæmist til botns í því.
Það kom í ljós að skrárnar hefðu
verið fengnar frá FBI þegar þing-
nefnd var að rannsaka annað mál,
sem varðar brottrekstur þeirra, sem
sáu um ferðamál forsetaembættis-
ins, snemma árs 1993. Á skránum
voru meðal annars repúblikanar,
sem höfðu starfað í stjórninni í for-
setatíð George Bush, þar á meðal
James Baker, utanríkisráðherra.
Síðan hefur Bob Dole, væntanleg-
ur forsetaframbjóðandi repúblikana,
ítrekað gagnrýnt Clinton fyrir að
virða ekki réttindi borgaranna.
McCurry sagði að repúblikanar
hefðu meiri hug á að nota málið í
pólitískum tilgangi, en að leiða það
til lykta.
Ýmsir málsmetandi demókratar
hafa.hins vegar sagt að þeim lítist
ekki á að starfsmenn forsetans safni
upplýsingum um háttsetta and-
stæðinga á laun. Tveir demókratar
í dómsmálanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings, Paul Simon og
Patrick Leahy, sögðu um helgina
að það ætti að reka þann, sem hef-
ur umsjón með öryggismálum varð-
andi starfsfólk, Craig Livingstone.
Hann var reyndar sendur í leyfi á
launum í síðustu viku eftir að FBI
gagnrýndi vinnubrögðin í Hvíta
húsinu harðlega í skýrslu fyrir að
afla skjalanna eftir ólögmætum
leiðum.
‘Krossar á íeiði
íRjjðfrítt stát — varanCegt efni
tKJrossarnir eru framteiddir
úr fivítfiúðuðu, ryðfríu státi.
Minnisvarði sem endist
um ófcomna tíð.
Sóltfoss m/geisCum.
SCceð 100 sm. frájörðu.
'TvöfaCdur ífoss.
ðíœð 110 smfrájörðu.
Hringið í síma 431 1075 og fáið litabækling.
BLIKKVERK
Dalbraut 2, 300 Akranesi.
Sími 431 1075, fax 431 3076.
Laxá i Þingeyjarsýslu
„Ég nota GSM símann minn í borg-
inni og kemst ekki af án hans. En
þegar ég set vöðlurnar og stöngina
i bílinn og skrepp í lax pá tek ég
alltaf með mér NMT stmann minn.
Það er ábyrgðarhlutur að vera
sambandslaus í óbyggðum og ég
gœti ekki hugsað mér að vera án
langdrœgninnar og öryggisins sem
fylgir pví að vera með NMT far-
sima með sér. Svo er alltaf gaman
að hringja í kunningjana og stríða
peim aðeins pegar sá stóri hefur
tekið.“
Þormóður Jónsson, laxveiðimaður
„Get ekki verið án langdrœgm
og öryggis NMT í veiðinm“
NMT farsímamir hafa fyrir löngu sannað notagildi sitt á íslandi. Dreifikerfið
fyrir NMT farsímana er víðtækt og símarnir eru langdrægir. Þessir kostir gera
NMT að ákjósanlegum valkosti fyrir þá sem eru á ferð um sveitir landsins,
óbyggðir og ekki síður á hafi umhverfis landið. íslenska NMT síma má einnig
nota á Norðurlöndum.
NMT símar - þegar langdrægni og öryggi skipta máli.
PÓSTUR OG SÍMI