Morgunblaðið - 25.06.1996, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
STRAND FAGRANESSINS
Djúpbáturinn Fagranes strandaði í góðu veðri við Æðey seint á laugardagskvöld
Morgunblaðið/Egill Egilsson
FAGRANES hallaði fljótlega eftir strandið á Háuskerjum við Æðey, eins og sjá má á myndinni. Farþegarnir hópuðust upp á þilfar og biðu flutnings í land.
Hafði undanþágu
fyrir 220 farþega
í þessari ferð
HEIÐAR Kristinsson skip-
stjóri í ati uppi í brú.
í þyrpingu áður en komið er að
Djúphólma. „Ég tók næsta ysta
skerið frá Djúphólmanum, hélt að
það væri það ysta og ætlaði að
smeygja mér með því. Skipið var
komið á mjög íiæga ferð en það
var of seint að stoppa þegar ég
áttaði mig,“ sagði Heiðar.
Jónas í Æðey segir að Fagra-
nes hafi verið í rennunni en að-
eins einni bátslengd of norðar-
lega. Heiðar hefur verið stýri-
maður á Fagranesi frá áramót-
um og var áður lengi í strandsigl-
ingum á stærri skipum. Hann
hefur tvisvar siglt skipinu að
FJÖLNIR Baldursson fékk
allt yfir sig í eidhúsinu.
bryggju í Æðey og taldi sig
þekkja aðstæður vel. „En greini-
lega ekki nógu vel,“ segir hann.
Skerin eru ómerkt og sjókort
ekki nákvæm að þessu leyti. Jón-
as í Æðey segir að gamli Djúp-
báturinn hafi oft kitlað botninn
við Æðey, eins og víðar í Isafjarð-
ardjúpi, en þó aldrei strandað
beinlínis.
Gleðskapurinn heldur áfram
Gott veður var þegar óhappið
varð, logn og ládautt. Skipið sat
fast utan í skerinu og ákvað Heiðar
skipstjóri að flytja fólkið upp á eyj-
HÁTT í 230 farþegar voru í
skemmtiferð með Djup-
bátnum Fagranesi á ísa-
fjarðardjúpi þegar hann strandaði
á skeri við Æðey á laugardags-
kvöldið. Gott veður var á staðnum
og sluppu allir ómeiddir. Skipið
hafði munnlega undanþágu til að
flytja fleiri farþega en venjulega
en Siglingamálastofnun og útgerð-
ina greinir á um hvort undanþágan
náði til þess fjölda sem var um borð
í skipinu eða heldur færri. Ekki er
vitað til þess að fleira fólk hafi
verið um borð í skipi sem strandað
hefur hér við land.
Djúpbáturinn Fagranes var í ár-
legri skemmtiferð um Isafjarðar-
djúp, svokallaðri Jónsmessuferð,
þegar óhappið varð. Farið var frá
bryggju á Isafirði um kl. 20 á laug-
ardagskvöldið og þegar skipið
strandaði, um klukkan 22.30, hafði
skipið verið á Kaldalóni og var að
koma til hafnar í Æðey. Þar var
Jónas Helgason bóndi að undirbúa
varðeld og harmonikkuspil fyrir
hópinn. Talið er að með skipinu
hafi verið 226 eða 227 farþegar,
samkvæmt upplýsingum útgerðar-
innar, auk sex manna áhafnar.
Tók feil á skeri
„Þetta var bara aulaháttur hjá
mér, ég tók feil á skeri,“ segir
Heiðar Kristinsson, stýrimaður á
Fagranesi, sem vár skipstjóri í ferð-
inni. Lenti skipið utan í svokölluðum
Háuskeijum rétt við bryggjuna í
Æðey. Þar eru fjögur sker saman
, Morgunblaðið/Egill Egilsson
PETUR Bjarnason dró fram harmonikkuna og lék nokkur lög
á meðan beðið var eftir flutningi upp í Æðey.
una áður en reynt yrði að losa skip-
ið, þótt hann teldi ekki mikla yfir-
vofandi hættu. Segist hann hafa
hugsað sér að reyna að koma skip-
inu að bryggju og farþegarnir gætu
þá haft-skjól þar. Fólkið var sel-
flutt þessa 200-300 metra sem
vantaði upp á að skipið næði
bryggju. Slöngubátur skipsins var
notaður við flutningana og annar
sams konar bátur frá Tyrðilmýri,
sem var úti í Æðey, og svo bættist
Jónas bóndi í hópinn með sinn bát
og björgunarbáturinn Daníel Sig-
mundsson frá ísafirði kom og tók
síðustu farþegana.
Ber mönnum saman um að flutn-
ingarnir hafi gengið vel. Heiðar er
sannfærður um að það hafi verið
rétt ákvörðun að senda fólkið í land
áður en reynt var að draga skipið
af skerinu, þótt það hafi reyndar
kóstað það að flóðið tapaðist. Reynt
var að koma skipinu af skerinu
fyrir eigin vélarafli og með aðstoð
Daníels og fleiri lítilla báta en ekk-
ert gekk.
Kveikt var í bálkestinum og gleð-
skapurinn hélt áfram í landi. Ein-
hveijir kvörtuðu undan kulda og
var þeim komið í hús hjá Jónasi og
fjölskyldu. Reynir Ingason, fram-
kvæmdastjóri Hf. Djúpbátsins, seg-
ir að fólk hafi tekið þessu óhappi
afar vel og skipstjórinn tekur undir
það, segir að um borð hafi verið
töluvert af gömlum sjómönnum sem
hafi haft róandi áhrif á aðra far-
þega.
Fluttir í Súðavík og Ögur
Þegar ljóst varð að skipið næðist
ekki af skerinu á þessu flóði var
gengið í það að fá báta til að flytja
fólkið upp á fastalandið. Heiðar
skipstjóri segir að eftir á að hyggja
megi segja að rétt hafi verið að
drífa fólkið strax upp á land, ekki
að bíða eftir að skipið losnaði. Reyn-
ir Ingason segir að engir stórir
bátar hafi verið tiltækir í það verk-
efni og tíma tekið að finna báta eða
eigendur þeirra. Þegar Daníel Sig-
mundsson var hættur að reyna að
draga Fagranes hóf hann að flytja
fólkið í land. Fleiri bátar bættust
fljótlega við og voru farnar nokkrar
ferðir.
Daníel fór fyrstu ferðina inn í
Súðavík með elstu farþegana í veg
fyrir rútur. Skúli Skúlason, skip-
stjóri á björgunarbátnum, segir að
það hafi tekið of langan tíma og
eftir það hafi farþegarnir verið
fluttir upp í Ögur enda hafi það
staðist á, rúturnar verið komnar
þangað fyrir næstu ferðir. Hluti
farþeganna fór síðan til ísafjarðai'.
Skúli skráði í dagbók sína að síð-
ustu farþegamir hefðu verið búnir
i
c
i
6
t
I
C
e
t
i
e
i
i