Morgunblaðið - 25.06.1996, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
STRAND FAGRANESSINS
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 1996 13
að yfirgefa Æðey klukkan 5.05 um
morguninn. Sumir voru þá enn á
leið til ísafjarðar.
Skúli segir að flutningarnir hafi
gengið ágætlega eftir að þeir hóf-
ust. Hann segir að farþegarnir hafi
verið í ágætu ásigkomulagi, sumum
hefði brugðið í upphafi en flestir
verið rólegir. Einhver kurr var í
fólkinu þegar flutningarnir í land
voru að hefjast og tók lögreglan á
Isafirði þá við stjórninni. Tveir lög-
regluménn voru komnir í Ögur og
fór annar út í eýjuna. Oddur Árna-
son aðalvarðstjóri segir að ástandið
á fólkinu hafi almennt verið gott,
einhver ölvun og þeim sem kvartað
hafðu undan kulda hefði verið kom-
ið í húsaskjól hjá Jónasi bónda.
Sérstök leyfi fyrir farþega
Ekki reyndi á björgunarbúnað
Fagraness vegna þess hvað veður
var gott. Þannig voru björgunarbát-
ar skipsins ekki settir á flot. Heiðar
skipstjóri segir að það hefði að sjálf-
sögðu verið gert ef eitthvað hefði
verið að veðri en tekur fram að
ekki hefði verið farið í þessa farð
í slæmu veðri. í þessu tilviki hefði
verið hentugra fýrir farþegana að
stíga beint um borð í slöngubátana
úr skutlúgu skipsins. Allir hafi ver-
ið settir í björgunarbelti. Ekki var
hægt að loka lúgunni aftur og var
hún opin alla nóttina eða þar til það
uppgötvaðist, að einhver hafði rekið
sig í stöng og með því aflagað still-
inguna.
Djúpbáturinn Fagranes hefur al-
mennt leyfi til að flytja 170 far-
þega. Eru björgunarbátar fyrir
rúmlega þann fjölda, auk slöngu-
báta og fleka. Heiðar skipstjóri seg-
ir útgerðina fá stöku sinnum sér-
staka undanþágu hjá Siglingamála-
stofnun fyrir fleiri farþega vegna
ferða innan Djúps. Ber útgerðinni
ekki saman við Siglingamálstofnun
um það hvað margir máttu fara
með skipinu. Skipstjórinn telur sig
hafa haft munnlegt leyfi fyrir 235
farþegum en Siguijón Hallgríms-
son, starfsmaður Siglingamála-
stofnunar á ísafirði, segist hafa
veitt leyfi fyrir 220 farþegum. Sig-
urjón segir að undanþágur fyrir
ferðir af þessu tagi hafi verið veitt-
ar einu sinni eða tvisvar á ári, yfir-
leitt munnlega seinni árin. Telur
hann að þessi fjöldi og þó fleiri
væru hefði engin áhrif á stöðugleika
skipsins. Skipstjórinn segir að bætt
hafi verið við björgunarbát vegna
þessarar ferðar og framkvæmda-
stjóri útgerðarinnar segir að björg-
unarbátar hafi verið fyrir 270
manns. Sigurjón Hallgrímsson segir
að síðast þegar hann taldi björgun-
arbelti um borð í Fagranesi hafi
þau verið 240.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á ísafirði, segist hafa hug-
leitt það að kalla saman almanna-
varnanefnd þegar hann var látinn
vita um strandið. Hann hafi hins
vegar metið aðstæður svo að ekki
væri ástæða til þess. „Þetta óhapp
sýnir að mjög brýnt er að öll björg-
unartæki séu í lagi og til taks ef
óhöpp verða,“ segir sýslumaður.
Hann bætir því við að mikilvægt
sé að höfð s§ nákvæm tala á farþeg-
um í hverri ferð. Það skipti máli
við leit.
Á flot á hádegisfóðinu
Varðskipið Ægir kom að Fagra-
nesi um nóttina. Til öryggis var náð
í mengunarvarnabúnað til ísafjarð-
ar og þijá menn sem fylgja honum
því lífríkið er viðkvæmt á þessum
slóðum. Tókst Ægi að draga Fagra-
nes af skerinu á hádegisflóðinu á
sunnudag, það var komið á flot
rétt fyrir klukkan 14, að sögn Sig-
urðar Steinars Ketilssonar skip-
herra. Þegar kafarar frá varðskip-
inu könnuðu skemmdir kom í ljós
að botnstykki á dýptarmæli hafi
brotnað af þannig að um 20 sentí-
metra rifa myndaðist inn í skolp-
tank eldhússins. Var það þétt að
utan eftir því sem mögulegt var og
tappar settir í niðurföll. Skipið sigldi
síðan sjálft til hafnar á ísafirði og
var komið þangað um klukkan
hálfsex síðdegis í gær. Heiðar Krist-
insson skipstjóri segir að lekinn sé
það lítill að aðeins þurfi að dæla á
fjögurra tíma fresti.
Fagranes er nú komið í slipp á
Akureyri og vonast útgerðarstjór-
inn til þess að viðgerð þurfí ekki
að taka nema einn dag. Nú er há-
annatími við ferðamannaflutninga
á Hornstrandir svo lögð er áhersla
á að skipið komist sem fyrst aftur
í rekstur. Lögreglan tók skýrslu af
skipstjóra og fleiri úr áhöfninni á
sunnudag, strax og skipið kom til
ísafjarðar. Verða þær lagðar fram
í sjóprófum sem haldin verða í Hér-
aðsdómi Vestfjarða á ísafirði. Út-
gerðin fól í gær lögmanni sínum
að óska eftir sjóprófum, eins og
henni ber skylda til samkvæmt lög-
um. Beiðnin hafði þó ekki borist
embættinu síðdegis í gær.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
FAGRANES á strandstað á Háuskerjum við innsiglinguna til Æðeyjar, varðskipið Ægir í forgrunni.
til kaupa, framkvæmda eða endurskipulagningar
Þeir sein hafa í hyggju að taka til hendinni, hvort
sem er við kaup á íbúðarhúsnæði, í sambandi við
viðbyggingu eða breytingu á fasteign eða einfaldlega
við að endurskipuleggja fjármálin, eiga liauk í horni
þar sein Búnaðarbankinn er.
Búnaðarbankinn býður lán til allt að 25 ára vegna
þessara hluta.
Lánin eru verðtryggð með föstum vöxtum á bilinu
6,75% - 8,45%. Þau eru tryggð með veði í íbúðar-
húsnæðfog fara vaxtakjör eftir veðsetningarhlutfalli
eignarinnar.
Afgreiðsla á lánsumsóknum gengur iljótl og vel
fyrir sig og þessi lán henta því vel fólki sem ætlar
að hefjast handa nú í sumar.
Leitið upplýsinga um kjör og skilmála í útibúum
Búnaðarbankans.
00 BUNAÐARBANKINN
v^/ -Traustur banki
Þegar sótt er um lánið linrfnð hnfn veðbóknrvottorð, fasteigna- og brunabótamatsvottorð og síðnstu greiðstuseðla nf lánum.