Morgunblaðið - 25.06.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 19ð6 23
ERLENT
Hasina
tekin við
NÝR forsætisráðherra Bangla-
desh, Sheikh Hasina, tók bros-
andi til starfa í höfuðborginni
Dhaka í gær. Hasina, sem er
dóttir frelsishetju Bangladesh,
Mujiburs Rahmans, sór embætti-
seið á sunnudag í höll Abdurs
Ramans Biswas, forseta. Sagði
'Hasina það vera forgangsverk-
efni stjórnar sinnar að koma í
veg fyrir hryðjuverk og gæta
laga og reglna.
Flokkur Hasina, Awami-fylk-
ingin, fékk 146 þingsæti af 300
í kosningum sem haldnar voru
fyrr í mánuðinum. Flokkur fyrr-
um forsætisráðherra, Begum
Khaleda Zia, fékk 116 sæti. í
þriðja sæti varð Jatiya-flokkur-
inn, með 32 þingsæti, og nýtur
Hasina stuðnings hans. Meðal
ráðherra í stjórn hennar er Anw-
ar Hossain Manju, aðalritari Jati-
ya, en leiðtogi flokksins og fyrr-
um forseti landsins, Hossain Mo-
hammad Ershad, situr í fangelsi.
Þegar Hasina hafði svarið
embættiseiðinn hét hún því að
styrkja stoðir fjölflokkalýðræðis
í Bangladesh, sem hefur lengst
af verið stýrt af hershöfðingjum
þann aldarfjórðung sem liðinn
er frá stofnun þess.
Ríkisstjórnarfundur var hald-
inn í gær, og mæltist Hasina til
þess, að hvorki opinberar skrif-
stofur né einkafyrirtæki skyldu
hafa uppi mynd af henni. Þess í
stað skyldi hengja upp myndir
af föður hennar, Mujibur Ra-
hman, sem leiddi Bangladesh til
sjálfstæðis frá Pakistan 1971, og
var tekinn af lífi eftir byltingu
1975.
♦ ♦ »
Pol Pot sagð-
ur heill heilsu
Pailin í Kambódíu. Reuter.
POL Pot, leiðtogi Rauðu Kmeranna
í Kambódíu, er við góða heilsu og
gegnir mikilvægu hlutverki í her
skæruliðanna, að þvi er fulltrúi
Rauðu Kmeranna í Pailin-héraði í
vesturhluta Kambódíu sagði á
sunnudaginn.
Fyrr í mánuðinum höfðu borist-
óstaðfestar fregnir þess efnis að
Pol Pot, sem er 68 ára gamall,
hefði látist úr malaríu. Hann hefur
ekki sést opinberlega í rúm 15 ár.
Talsmenn Rauðu Kmeranna
sögðu sér hafa verið skemmt við
að heyra fjölmiðla greina frá því
að leiðtogi þeirra væri látinn.
Talið er að rúm milljón Kambód-
íumanna hafi verið tekin af lífi, eða
látist af völdum þrælkunarvinnu
eða sjúkdóma í valdatíð Pols Pots
óg Rauðu Kmeranna í Kambódíu
frá því í apríl 1975 og þar til Víet-
namar réðust inn í landið síðla í
desember 1978.
URTE PENSIL
Sólhattur - Propolis
Steinefnaríkar jurtir
sera auka úthald
og vellíöan.
BI0-SIL1CA
Sfyrir háriö, neglurnar,
húðina, bandvefi
I og beinin.
I SKALLIN PLUS
vinur magans,
hreinsandi
,og grennandi.
RAUIT PANAX GINSENG
(400 mg. belgir) - skerpir athygli og eykur þol.
JARN í melassa og sojaolíu virkar vel.
Fæst í inörgum heilsubúðuni,
apótekum og mörkuðum.
BIO-SELEN UMB..SIMI 557 6610
DEMANTAHUSIÐ 37
25-45% AFSLÁTTUR
AF GULL- OG SILFURSKARTGRIPUM
í NOKKRA DAGA VEGNA BREYTINGA
DEMANTAHÚSIÐ
Borgarkringlunni, sími 588 9944
Reuter
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar á eftirtöldum gjöldum: Staðgreiðslu og
tryggingagjaldi til og með 5. tímabili með eindaga 15. júní 1996 og virðisaukaskatti til og með
16. tímabili með eindaga 5. júní 1996 og öðrum gjaldföllnum álagningum og ógreiddum hækkunum er
féllu í gjalddaga til og með 15. júní sl. á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðis-
aukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi
þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila,
skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt
skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftir-
litsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan
tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi
og álögðum opinberum gjöldum, sem eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignar-
skattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðniánasjóðs- og iðnaðannála-
gjald, þróunarsjóðsgjald, atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald
í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar bamabætur,
ofgreiddur barnabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur,
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttar-
vöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda að þeim
tíma liðnum.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda.
Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 10.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.000 kr. og
stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að
gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald, vörugjald og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara.
Reykjavík, 25. júní 1996.
Gjaldheimtan í Reykjavík
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Gjaldheimtan á Seltjarnamesi
Gjaldheimtan í Garðabæ
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Gjaldheimtan í Mosfellsbæ
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á
Keílavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgamesi
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
í Stykkishólmi
í Búðardal
á Isafirði
í Bolungarvík
á Patreksfirði
á Hólmavík
á Siglufirði
á Sauðárkróki
á Akureyri
á Húsavík
á Ólafsfirði
á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Neskaupstað
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vfk
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum