Morgunblaðið - 25.06.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ1996 2 7
Af goðum og
geimverum
LEIKLIST
Tjarnarbíó
LIGHT NIGHTS
Höfundur, leikstjóri og leikmynda-
hönnuður: Kristín G. Magnús. Að-
stoð;u'leikstjóri: Magnús S. Halldórs-
son. Ljósahönnun: David Walters.
Tæknimaður: Björgvin Franz Gísla-
son. Búningan Ragnheiður Þor-
steinsdóttir og Dóróthea Sigurfinns-
dóttir. Grímur: Jón Páll Bjömsson
og Sigríður Rósa Bjamadóttir. Dans:
Elín Sigríður Eggertsdóttir. Leik-
endur: Darren Foreman, Elín Sigríð-
ur Eggertsdóttir, Helgi Kristinsson,
Ingibjörg Þórisdóttir, Kristín G.
Magnús, Marteinn Amar Marteins-
son og Oddur Jónas Jónasson. Upp-
lestur af segnlbandi: Kristín G.
Magnús, Martin Regal, Robert Ber-
man og Terry Gunnell. Laugardagur
22. júní.
SÝNING Light Nights á laugar-
dagskvöldið kom að mörgu leyti
skemmtilega á óvart. Undirritaður
sá uppfærsluna fyrir tveimur árum
og hafði gaman af, meira vegna
þess hve sýningin var skemmtilega
gamaldags en vegna efnisins
sjálfs. Þættirnir um óhreinu börnin
hennar Evu og geimverurnar gáfu
þeirri uppfærslu sérstakan súr-
realískan blæ.
Þá fór Kristín G. Magnús með
nær allt talað efni en nú hefur hún
fengið til liðs við sig unga leikara
og kraftmiklar áhugamanneskjur
sem fá að spreyta sig meira en
áður. Þetta lífgar óneitanlega upp
á sýninguna því það er alltaf gam-
an að sjá nýtt hæfileikafólk
spreyta sig á sviði.
Sýningunni er skipt í tvo þætti
þar sem ofið er saman fróðleik og
skemmtiefni. Fyrri þátturinn er
helgaður baðstofulífi og heimi
þjóðsagnanna og sá seinni greinir
frá landnámi Islands og gullöld
þjóðveldisins. Báðir enda þeir svo
á dramatískum þáttum, annars
vegar um forynjur á kreiki á nýj-
ársnótt og sögunni um djáknann
á Myrká og hins vegar um Völu-
spá og ragnarök og sögunni um
móður mína í kví kví.
Það er sjaldan dauður punktur
á sýningunni, atriðin taka við
hvert af öðru og þótt fetta mætti
fingur út í einstök atriði - hvort
útburðarsagan á heima á víkinga-
öld, að ragnarök eru þýdd „Twil-
ight of the Gods“, sem er um-
deilt, og að pijónað sé aftan við
söguna um djáknann - gerir það
ekkert til því hér ráða dramatísk
áhrif meira en heimildagildi text-
ans.
Skyggnur, sem eru sýndar á
tjaldi, sérstaklega landslagsmynd-
irnar, vel hönnuð ljós, dramatísk
tónlist og ýmis leikhljóð setja mik-
inn svip á sýninguna. Þrír ensku-
mælandi Islendingar lesa fróð-
leikskorn og skáldskap af bandi
og ber þar af rödd Martins Regals
í útburðarsögunni.
Hápunktur sýningarinnar er í
lokin þegar Ingibjörg Þórisdóttir
leikur völvuna sem Völuspá er
kennd við. Ingibjörg persónugerir
hina alvitru völvu á meðan rödd
Terrys Gunnells hljómar af band-
inu og færir okkur í allan sann-
leika um kvæðið og merkingu
þess. Þarna er persónan lifandi
komin eins og Ulfbrún í bókum
Vilborgar Davíðsdóttur.
Elín Sigríður Eggertsdóttir er
tíguleg álfkona og trúverðug Guð-
rún/Garún auk þess sem hún sér
um dans í verkinu. Marteinn Arn-
ar Marteinsson býr til skemmtileg-
an seiðkarl. Helgi Kristinsson
skapar djákna sem slær Drakúlu
og Frankenstein við og marbendill
hans er vinalegt og kvensamt
skrýmsli.
Sýninguna vantar bara herslu-
muninn til að renna saman í
sterka heild, en einstaka hnökrar:
efni lesið þegar hægt væri að
leika, hljóðstyrkur ónógur í byrj-
un atriðs og yfirkeyrður leikur á
einstaka stað dregur úr heildar-
áhrifunum. En það er enginn vafi
á að hópur vestur-íslenskra
kvenna sem var á sýningunni
naut hennar til fullnustu. Hún er
enda mjög hæfileg fyrir ferða-
menn sem hafa einhveija vitn-
eskju um ísland og langar til að
vita meira. Sýningin endaði á
punkti sem gaf henni heildrænt
yfirbragð: Höfum við glatað trú
forfeðranna á álfa og forynjur en
tekið upp í staðinn trú á geimver-
ur?
Sveinn Haraldsson
Lúðra-
sveitin
Svanur til
Austur-
ríkis
LÚÐRASVEITIN Svanur
heldur af stað í dag, þriðju-
dag, í j-ónleikaferð til Austur-
ríkis. í þessari sex daga ferð
hafa verið skipulagðir tónleik-
ar í tengslum við tvær lúðra-
sveitir, aðra í Graz og hina í
St. Michaél sem er í nágrenni
Graz.
Tónleikarnir verða með
þjóðlegu ívafi og verða sýndar
myndir af ísiandi á meðan á
tónleikunum stendur. Einnig
verða tveggja tíma tónleikar
á aðaltorgi Graz og síðan
móttaka á eftir með borgar-
stjóra Graz.
í ferðinni munu 26 hljóð-
færaleikarar skipa sveitina
ásamt stjórnandanum Haraldi
A. Haraldssyni.
Gróska
BOKMENNTIR
Ljóð
BLANOTT
Ljóð Listahátíðar 1996. Mál og menn-
ing. Reykjavík 1996 - 71 bls.
EINHVERJUM kann að finnast
það álitamál að efna til ljóðasam-
keppni. Pegasus hefur löngum
þótt vafasamur keppnishestur og
eins víst að hann fljúgi sína leið.
Eigi að síður verður því ekki á
móti mælt að slík samkeppni er
kærkominn vettvangur skáldum,
ungum sem reyndum. Það sjáum
við á þátttöku í ljóðasamkeppni
Listahátíðar í Reykjavík. Þangað
bárust 525 ljóð eftir um tvö hundr-
uð skáld og segir það okkur nokk-
uð um gróskuna í skáldskapar-
garðinum íslenska.
Ekki verður heldur annað sagt
en að vel hafi verið staðið að
keppninni og ekki síst útgáfu á
úrvali ljóðanna, Blánóttu. Reyndar
er slíkt úrval.ekki heildstætt verk
en gefur góða mynd af marg-
breytileika ljóðaheimsins hér á
landi. Skáldin sækja víða fanga
og í bókinni er jafnt að finna harm-
ræn ljóð og fyndin, hefðbundin ljóð
og nútímaleg.
Mörg þekkt skáld eiga ljóð í
bókinni; Jóhann Hjálmarsson, Pét-
ur Gunnarsson, Stefán Snævarr,
Þuríður Guðmundsdóttir og Njörð-
ur P. Njarðvík svo að einhver séu
nefnd. En minna þekkt skáld hafa
einnig fengið rými í henni. Þannig
eru þijú kjarnyrt en dálítið myrk
náttúruljóð í bókinni eftir Erling
Sigurðarson frá Grænavatni. Sér-
staka eftirtekt mína vöktu einnig
ljóð um skáldskapinn og listþörfina
eftir Jón Val Jensson og Orn Úlf-
ar Sævarsson. Ljóð Jóns nefnist
Friðlaus og fjallar um friðlausan
mann sem ráfar um bæinn ærður
af fegurð en rændur skáldagáf-
unni: „Sjálfur kvað hann vansælu
sína / allri sælu betri / og sín
óortu ljóð / yndislegust þeirra
allra.“ Kvæði Arnar Úlfars er ein-
falt, skondið og stutt. það nefnist
Tík:
Ó! Dagar!
Þegar ljóð gátu byrjað á Ó!
Einfaldleiki og barnsleg heið-
ríkja einkennir einnig fallegt ljóð
Maríu Karenar Sigurðardóttur,
Regn:
Þetta er svona dagur
þegar litlar stúlkur
dunda sér
við að raða regndropum
ofaní gular fötur
hengja þær svo á stýrin
og bjóða í hjólreiðaferð.
Vitaskuld skiptir einnig miklu
máli að vel hefur tekist til um val
á verðlaunaljóðum. Ljóð Ragnars
Inga Aðalsteinssonar, Krossar og
staðreyndir, sem hlaut 3. verðlaun,
er haganleg smíð þar sem trúarleg
tákn og mannlýsingar eru látin
bera uppi hugleiðingar um eðli
sannleikans. Kvæði Þórðar Helga-
sonar, Stjörnur, kemur nokkuð á
óvart, meistaralega uppbyggð son-
netta um eilífð himinljósa sem
brenna á „traustum, fornum arni“.
Raunar á Þórður einnig önnur ljóð
í bókinni sem mér þykja ekki síðri,
einkum ljóðið Kal sem er með
bestu ljóðum Þórðar.
Það kemur mér hins vegar ekki
á óvart að Gunnar Harðarson skuli
hljóta fyrst.u verðlaun í þessari
ljóðasamkeppni. Þann mann hef
ég lengi haft alvarlega grunaðan
um skáldlega hugsýn og kvæði
hans Blánótt staðfestir þann grun.
Dómnefndin rökstyður verðlauna-
veitingu sína m.a. með því að „hin
víða sýn þessi yfir sögu og samt-
íð“ hafi laðað hana æ meir að
þessu verki. Mér þykir þó ekki
''síður mikilvægur hinn kryfjandi
og myndríki hugur á bak við verk-
ið. Kvæðið er nefnilega ekki ein-
ungis persónuleg ferð sem hefst í
fjarlægu og stríðshijáðu landi og
endar um blánótt á okkar hrjós-
truga landi með „niðinn af brim-
hljóði sögunnar í huganum“. Held-
ur ekki síður heimspekileg krufn-
ing, spurningar um okkar innsta
inni, hlut áforma og reyndar, áhrif
manns á umhverfi og umfram allt
efasemdir um gildi sjálfumglaðra
hugmynda mannsins og örugga
trú hans á mikilleik sinn og snilli.
Blánótt er eiguleg bók. Fá úrvöl
ljóða státa af jafnmörgum nýjum
og bitastæðum verkum. Hér hefur
vel tekist til um val á ljóðum í
bókina og dómnefndin á þakkir
skildar fyrir vel unnin störf. En
umfram allt er bókin gleðilegur
vottur um töluverða gróskutíð í
íslenskri ljóðagerð.
Skafti Þ. Halldórsson
Honda Civic 5 dyra 90 hestöfl
traustur fjölskyldubíll
Honda Civic 3ja dyra 90 hestöfl
glæsilegur sportbíll
su ma rti I boö
fallegustu bílarnir nú meö meiri búnaöi
1.384.000.-
staðgreitt á götuna
innifaliö umfram staöalbúnaö
- álfelgur
- vindskeið
- þjófavörn
- samlitir stuðarar
1.399.000.-
staögreitt á götuna
innifaliö umfram staöalbúnaö
- álfelgur
- þjófavörn
- geislaspilari
- 1 50 w hátalarar
1.749.000.-
staðgreitt á götuna
Honda Accord 1.8i 115 hestöfl
uppfyllir kröfur vandlátra
innifaliö umfram staðalbúnaö
- álfelgur
- vindskeið
- þjófavörn
Umboðsaðilar Honda
á Akureyri: Höldur hf., Tryggvabraut 12, S: 461 3000
á Egilsstöðum: BiIa- og Búvélasalan ehf., Miðási 19, S: 471 2011
í Keflavík: Bílasalur Suðurnesja., Grófinni 8, S: 421 1200
u
VATNAGARÐAR24
S: 568 9900