Morgunblaðið - 25.06.1996, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
MO, THE Blö aUE5TIOM
IS, D0E5TME RAKE 60
IM5IDE THE BUNKER OR
0UT5IDE THE BUNKER?
©1996 Untted Feature Syndtoale, Inc.
I5THERE LIFE
50MEWHERE EL5E 1
INTHEUNIVERSE?
THAT'5 THE BI6
QUE5TI0N..
b
Er til líf einhvers staðar annars
staðar í alheiminum? Það er
stóra spurningin.
— Nei, stóra spurningin er
hvort hrífan fer í sandgryfjuna
eða utan hennar?
JHímr0»mIhtaí>ií>
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Iðnmenntun
í uppnámi
Frá Áma Brynjólfssyni:
Jafnræðis krafist
BJARNI Ólafsson skrifaði 11.6.
ágæta grein í „Smiðju“ Morgun-
blaðsins, sem bar heitið „Menntun
húsasmiða“ og fjallaði aðallega um
þann vanda sem skapast þegar
iðnnemar komast ekki í starfsþjálf-
un hjá meistara og fá því ekki að
ljúka sveinsprófi. - Þarna segir
hann vera um misrétti að ræða sem
þarfnist úrbóta og að vel kæmi til
greina að greiða meisturum og/eða
fyrirtækjum hluta launa ef þau
vildu taka nema í starfsþjálfun.
Það er ekki auðvelt að leysa
þetta vandamál, einkum vegna
fastheldni á gamla siði, en að
greiða meisturum eða fyrirtækjum
fyrir að taka nema í starfsþjálfun
mun fjölga vandamálunum og
skapa úlfúð á vinnustöðum.
Sveinspróf í verslun?
Að því er best verður séð liggur
vandamálið í einangrun iðnfræðsl-
unnar og að sérstök lög og reglu-
gerð skuli gilda fyrir allar iðngrein-
ar, sem eru yfir 60. Vandamálið
er að vinnurétturinn er löggiltur,
þannig að störf við þessar greinar
eru óheimil nema að undangengnu
sveinsprófi. Sveinsprófið er í flest-
um tilfellum æði óljós stærð og
ræðst að miklu leyti af því hveijir
eru í prófnefnd hveiju sinni. -
Prófnefndarmenn þurfa ekki að
hafa neina kennslufræðilega
menntun eða þekkingu á að semja
eða halda próf.
Allt iðnnám sem talist getur til
sérþekkingar getur farið fram í
skóla, ekki síður en t.d. verslun-
arnám. - Hvað myndu menn segja
ef kaupmenn og verslunarfólk tæki
upp á því að krefjast þess að starfs-
greinin yrði löggilt og enginn fengi
réttindi til verslunarstarfa nema
að undangengnu sveinsprófi? -
Prófið héldu sveinsprófsnefndir
verslunarinnar, að undangenginni
starfsþjálfun á vinnustað. - Þyki
þetta fráleitt, - hvað þá með hið
gamalgróna sveinspróf?
Heiðarleiki
Frá Þuríði Sigurðardóttur:
EINKENNILEGT hvað trúmál virð-
ast hafa dregist inn í umræðuna
um komandi forsetakosningar.
Deilt hefir verið sérstaklega á
einn frambjóðenda fyrir að hann
kaus heldur að staðfesta eið með
drengskaparheiti, en leggja við
guðsnafn. Mér finnst það bera vott
um hreinskilni og heiðarleika, sem
ber að meta.
ÞURÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
Hjallabraut 3, Hafnarfirði.
Sveinsprófið er óþarfi
Vandi iðngreinanna liggur m.a.
í því að sveinspróf eru algjörlega
óþörf, - en til þess að friða þá
íhaldssömustu mætti gefa loka-
prófi í skóla þetta nafn, gangi það
ekki á móti jafnréttislögum. -
Fjöldi kvenna tekur sveinspróf at-
hugasemdalaust.
Öll vinna er þannig vaxin að hún
þarfnast einhverrar þjálfunar, al-
veg án tillits til menntunar. Góð
vaxandi almenn menntun er mann-
réttindi, sérnám kemur þar á eftir
í bland við annað, - en iðngrein-
arnar hafa gagnstæða röðun,
„kjaftafögin“ eru minna metin.
Vinnustaðaþjálfun tryggir ekki
alhliða verklega reynslu, hún ræðst
af verkefnum fyrirtækjanna sem
veita hana og hæfni samstarfs-
manna,. en oft er hún einhæf og
takmörkuð.
Tölvuvæðum starfsþjálfun
í fyrstnefndri grein er sagt að
nú verði húsasmiðir að læra að
annast viðgerðir eldri húsa, en
hvar á að læra þetta. - Þennan
lærdóm verður að fá í skóla, erfitt
er að koma við slíkri kennslu á
vinnustað, jafnvel þótt pláss feng-
ist. Ur þessu má þó hugsanlega
bæta með nútímatækni.
Við lifum á tölvuöld og erum svo
heppin að eiga hugbúnaðarsmiði
sem eru gjaldgengir á heimsmark-
aði. Þessum mönnum ætti að vera
létt að gera kennsluforrit sem
gerðu það að verkum að á tölv-
uskjá mætti leysa næstum hvaða
viðfangsefni sem eru þess virði að
teljast til sérnáms. Við þetta ynn-
ist tvennt, færni í meðferð tölva
lærðist um leið og viðfangsefni
handverksins eru leyst. - Þennan
möguleika ætti að skoða áður en
farið er að greiða niður laun í
starfsþjálfun, - sveinsprófið er
varla á förum alveg á næstunni.
ÁRNI BRYNJÓLFSSON,
Rauðalæk 16, Reykjavík.
Merking á
fylgjum
ALGENGT er að senda skjöl
sem fylgjur (attachments) til
Morgunblaðsins með rafræn-
um pósti. Því miður er veruleg-
ur misbrestur á að upplýsingar
séu látnar fylgja með um
hvaða forrit hafi verið notað
þegar skjalið var stofnað. Það
eru því vinsamleg tilmæli að
framvegis sé þess getið hvaða
forrit var notað við gerð fylgj-
unnar og einnig vélagerð, PC,
Macintosh eða aðrar vélar.
Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekkiiylgir- fyrirva.ri.hér að lútandi.