Morgunblaðið - 25.06.1996, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1M,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Strand djúpbátsins
Fagraness
Könnun Félagsvísindastofnunar á fylgi forsetaframbjóðenda
Greinir á
_* um leyfi-
legan far-
þegafjölda
ÚTGERÐ djúpbátsins Fagraness
fékk sérstaka undanþágu til að taka
fleiri farþega en skipið er skráð
fyrir þegar það fór í Jónsmessuferð
sína. Siglingin endaði uppi á skeri
við Æðey á laugardagskvöldið.
Siglingamálastofnun og útgerðina
greinir hins vegar á um innihald
undanþágunnar.
Gott veður var á strandstað við
Æðey og komust allir farþegarnir,
226 eða 227 samkvæmt upplýsing-
um útgerðarinnar, ómeiddir í land
um nóttina. Skipið náðist á flot á
sunnudag og er nú komið í slipp á
Akureyri til viðgerðar. Skipstjóri
Fagraness segist hafa rekist á sker-
ið vegna eigin mistaka.
Heiðar Kristinsson skipstjóri tel-
ur sig hafa haft undanþágu til að
taka 235 farþega en Sigurjón Hall-
grímsson hjá Siglingamálstofnun
..!UL tsegist hafa veitt munnlegt leyfi fyr-
ir 220 farþegum. Hann telur það
þó engu breyta um óhappið og hann
og talsmenn útgerðarinnar fullyrða
að nægur björgunarbúnaður hafi
verið um borð fyrir alla sem þar
voru.
Mikilvægt að vita fjöldann
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á ísafirði, segist hafa hug-
leitt það að kalla saman almanna-
varnanefnd þegar hann var látinn
vita um strandið. Hann hafi hins
vegar metið aðstæður svo að ekki
væri ástæða til þess. „Þetta óhapp
sýnir að mjög brýnt er að öll björg-
unartæki séu í lagi og til taks ef
^.- ..óhöpp verða,“ segir sýslumaður.
Hann bætir því við að mikilvægt
sé að höfð sé nákvæm tala á farþeg-
um í hverri ferð.
■ Strand Fagranessins/12
*
A Austurvelli
ÞAÐ er létt yfir unga fólkinu
sem hugar að fararskjótanum á
grasinu á Austurvelli. Veðrið
hefur leikið við landsmenn
lengst af júnímánuði þótt aðeins
hafi rignt síðustu daga.
Munurinn á Olafi og
Pétri 8,4 prósentustig
ÓLAFUR Ragnar Grímsson nýtur fylgis 41,7%
kjósenda sem afstöðu taka, Pétur Kr. Hafstein
33,3%, Guðrún Agnarsdóttir 20,1% og Ástþór
Magnússon 4,9% samkvæmt nýrri skoðanakönnun,
sem Félagsvísindastofnun hefur gert fyrir Morgun-
blaðið á fylgi forsetaframbjóðenda. Hlutfall
óákveðinna er nú komið niður í 7,2% og 3,8% segj-
ast ætla að skila auðu eða ætla ekki að kjósa.
Munurinn á fylgi frambjóðendanna mælist tals-
vert minni en í seinustu könnun sem gerð var
fyrir rúmri viku en sú könnun var gerð áður en
Guðrún Pétursdóttir dró framboð sitt til baka.
Munurinn á Ólafi Ragnari og Pétri er nú 8,4
prósentustig en í seinustu könnun var munurinn
á fylgi þeirra 10,7 prósentustig.
Samkvæmt könnuninni eykst fylgi Péturs og
Guðrúnar öllu meira en fylgi Ólafs Ragnars en
samkvæmt mati Félagsvísindastofnunar eru þó
breytingar á fylgi frambjóðendanna frá seinustu
könnun í flestum tilvikum innan skekkjumarka.
Fylgi Ólafs var 40,4% S seinustu könnun en er
41,7% nú. Fylgi Péturs var 29,7% í seinustu könn-
un en mælist 33,3% nú. Fylgi Guðrúnar var 17%
í seinustu könnun en fer í 20,1% nú. Fylgi Ást-
þórs stendur nánast í stað, var 4,7% en mælist
4,9% nú. I seinustu könnun var fylgi Guðrúnar
Pétursdóttur 8,3%.
Flestir stuðningsmenn Péturs og Ólafs
segja Guðrúnu næstbesta kost
Þeir sem gáfu upp hvern þeir hygðust kjósa
voru spurðir hver frambjóðendanna væri næst-
besti kosturinn og nefndu þá 68,1% stuðnings-
manna Ólafs Ragnars og 62,2% stuðningsmanna
Péturs Kr. Hafstein Guðrúnu Agnarsdóttur sem
næstbesta kost. 17,6% stuðningsmanna Péturs
nefndu Ólaf Ragnar sem næstbesta kost og 17,9%
stuðningsmanna Ólafs Ragnars nefndu Pétur sem
næstbesta kost.
Yfir 30% þeirra sem segjast ætla að kjósa
Guðrúnu sögðu að enginn annar frambjóðandi
kæmi til greina, en það hlutfall er mun lægra
hjá hinum frambjóðendunum. 32,2% þeirra sem
hyggjast kjósa Guðrúnu nefndu Ólaf Ragnar sem
næstbesta kost og sama hlutfall nefndi Pétur sem
næstbesta kost. 31,4% stuðningsmanna Ástþórs
nefndu Guðrúnu sem næstbesta kost.
Eindregnari afstaða
stuðningsmanna flokka
76,7% kjósenda Alþýðubandalags sögðust nú
ætla að styðja Ólaf Ragnar samanborið við 70,3%
í seinustu könnun. 60,5% kjósenda Sjálfstæðis-
flokks ætla að kjósa Pétur samanborið við 56,3%
í seinustu könnun og 66,7% kjósenda Kvennalista
ætia að kjósa Guðrúnu en þeir voru 50% í sein-
ustu könnun.
49,2% karla og 34,2% kvenna styðja Ólaf Ragn-
ar, 26,9% kvenna og 13,2% karla styðja Guð-
rúnu. 34,4% kvenna og 32,3% karla ætla að kjósa
Pétur og_4,4% kvenna og 5,3% karla ætla að kjósa
Ástþór. Ólafur Ragnar nýtur mests fylgis meðal
eldri kjósenda en Pétur sækir meira fylgi til yngstu
kjósendahópanna en aðrir frambjóðendur.
■ Hlutfall óákveðinna/6
Morgunblaðið/Þorkell
Ríkisskattstjóri áætlar á þá sem ekki skila þungaskatti
Yfir 20% eigenda
létu ekki lesa af
YFIR 1.700 greiðendur þunga-
skatts komu ekki með bíla sína til
aflestrar í þessum mánuði og er
skatturinn áætlaður á þá. Greiðend-
ur þungaskatts á landinu öllu eru
yfir 8.000. Mikið álag hefur verið
á embætti ríkisskattstjóra vegna
þessa, en embættinu hefur með
nýrri reglugerð verið falin inn-
heimta skattsins.
Fyrr í þessum mánuði var gefin
**5t ný reglugerð um innheimtu og
eftirlit með þungaskatti. Með henni
var gerð sú breyting að innheimta
skattsins var falin ríkisskattstjóra,
en tollstjóri sá áður um innheimt-
una. Gjalddögum var breytt og
gjaldfrestur styttur. Jafnframt voru
sett ákvæði um hvernig fara ætti
með þá sem ekki láta lesa af mælum
sínum og greiða ekki skattinn á
réttum tíma, en ákvæði um þetta
voru óskýr í eldri reglugerð.
Samkvæmt reglugerðinni ber
greiðendum þungaskatts að láta
lesa af mælum sínum þrisvar á ári,
fyrir 10. febrúar, 10. júní og 10.
október. Yfir 1.700 greiðendur
þungaskatts létu hjá líða að fara
með bíla sína í álestur fyrir 10. júní
sl. og sendi ríkisskattstjóri þeim
áætlun í síðustu viku. Hann áætlar
8.000 kílómetra á alla fólksbíla og
32 þúsund kílómetra á allar at-
vinnubifreiðar og er það algerlega
óháð því hvernig þær hafa verið
notaðar eða hvort þær hafa yfirleitt
verið í notkun á gjaldtímabilinu.
790 þúsund krónur í áætlun
Mikið álag hefur verið á embætti
ríkisskattstjóra vegna þessa undan-
farna daga, enda telja margir að
áætlun embættisins sé í engu sam-
ræmi við notkun ökutækjanna.
Upphæð þungaskatts fer eftir
stærð bílanna. Fólksbílar greiða
7,09 krónur fyrir hvern ekinn kíló-
metra, en atvinnubílar mun meira.
Algengasti flokkur vörubifreiða er
23 tonna flokkurinn, en bílar í hón-
um greiða 24,71 krónu fyrir hvern
kílómetra. Þessir bílar eru því að
fá á sig áætlun frá ríkisskattstjóra
upp á 790.720 krónur.
Þeir sem ekki sætta sig við áætl-
un ríkisskattstjóra eiga að fara með
bíla sína í skoðanastöðvar og láta
lesa af mælum sínum. Álesturinn
er síðan sendur til ríkisskattstjóra
sem kæra. Hann úrskurðar og send-
ir leiðréttingu til bifreiðaeigandans
ásamt álagi, sem er 1% af fjárhæð
þungaskatts vegna hvers dags sem
dregið hefur verið að koma með
ökutækið til álestrar fram yfir lok
álestrartímabils. Álagið getur hæst
orðið 10%.
Þróunarsjóður
sjávarútvegsins
Tilboðum
hafnað
STJÓRN Þróunarsjóðs sjávar-
útvegsins hafnaði á fundi sín-
um í gær tveimur tilboðum sem
borist höfðu í hlutabréfaeign
sjóðsins en ákvað að óska eftir
viðræðum við tilboðsgjafa.
Sjóðurinn á nú eftir í eigu
sinni hlutabréf í þremur sjávar-
útvegsfyrirtækjum, Tanga hf.
á Vopnafirði, Meitlinum hf. í
Þorlákshöfn og Búlandstindi
hf. á Djúpavogi.
■ Vill ræða/20