Morgunblaðið - 31.08.1996, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.08.1996, Blaðsíða 29
MORXSIÍN MLAÐÍÐ i.ai’(1ar!M\(,'i;h 31; áöúsí 4 óoé' mSENBAR GRiiNAR Til hamingju með vel unnin störf ÞANN 2. september 1991 stofnuðu foreldr- ar barna með krabba- mein, Styrktarfélag krabbameinssjúkra bama. Markmiðið með stofnun félagsins var að veita krabbameins- sjúkum börnum og að- standendum þeirra styrk, bæði félagsleg- an og fjárhagslegan. Nú á fimm ára afmæli styrktarfélagsins er vissulega ástæða til að óska þeim sem á sínum tíma stóðu að stofnun félagsins og öllum þeim sem starfað hafa í félaginu síðan, til hamingju með árajigur erfiðisins. Árið 1993 stóð félagið fyrir lands- söfnun til styrktar fjölskyldum krabbameinssjúkra barna. Söfnunin tókst vel og síðan þá hafa foreldrar eða aðstandendur krabbameins- sjúkra barna getað sótt um fjár- hagslegan stuðning. Stofnun sjóðs- ins skipti sköpum fyrir ijölskyldur barna sem greinst hafa með þennan alvarlega sjúkdóm. Því þrátt fyrir það að við stærum okkur á hátíðar- stundum af góðu ttyggingakerfí þá er staðreyndin sú að foreldri á ein- ungis rétt á 7 veikindadögum á ári, til að sinna veiku barni sínu. Hvað þessi réttindi varðar erum við langt á eftir þeim þjóðum sem við berum okkur saman við. Það er löngu orðið tímabært að stéttarfélögin beiti sér af hörku fyrir úrbótum á þessu sviði. Það er augljóst að í þjóðfélagi þar sem báðir foreldrar vinna oftar en ekki langan vinnudag til að fram- fleyta sér og sínum hefur það í för með sér verulega röskun á ijárhag Ijölskyldunnar þegar annar, jafnvel báðir, verða í langan tíma án at- vinnu vegna veikinda barna. Áfallið og þeir erfiðleikar sem fylgja í kjöl- far þess að barn greinist með alvar- legan sjúkdóm eru þyngri en tárum tekur þó ekki bætist við áhyggjur af fjárhagslegri afkomu. Styrktarfé- lag krabbameinssjúkra barna hefur hvað eftir annað vakið athygli á slaklegum réttindum aðstandenda til að dvelja með og annast börn sín í langvarandi erfíðum veikindum. Það væri vel við hæfi á fimm ára afmæli félagsins að úr þessu yrði bætt. Þrátt fyrir að allir viðurkenni að þegar barn greinist með erfiðan sjúkdóm hefur það í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir barnið sjálft sem og alla fjölskyldu þess þá tekur tryggingakerfið ekki þátt í þeim kostnaði sem því fylgir að leita aðstoðar sálfræðings utan sjúkrahúsa. Styrktarfélagið hefur greitt þennan kostnað fyrir félags- menn sína, en jafnframt barist fyrir því að fá heilbrigðisvöld til þess að viðurkenna í verki þörfina fyrir aukna starfsemi sálfræðinga og fé- lagsráðgjafa á barnadeildum. Félag- ið hefur einnig styrkt starfsfólk úr heilbrigðisþjónustunni til að sækja fundi og ráðstefnur erlendis, þar sem fjallað er um málefni krabba- meinssjúkra barna. Þá keypti félag- ið íbúð í Reykjavík sem stendur opin ljölskydlum barna utan af landi sem dveljast þurfa um langan tíma í Reykjavík vegna veikinda þeirra. Ég tel einnig að ötult starf félags- manna hafi skilað aðstandendum veikra barna ýmsum leiðréttingum á tryggingakerfinu, t.d. hvað varðar greiðslur umönnunarbóta. Þannig mætti eflaust lengi upp telja þau vcrkefni sem félagið hefur ráðist í. Síðast en ekki síst vil ég þó nefna það að með tilkomu félagsins varð til hópur þar sem starfað er í anda samhjálpar þar sem félagsmenn eru óþrejiandi við að styðja, hugga og örva, þrátt fyrir að hafa flestir geng- ið í gegnum þá miklu erfiðleika og sorg sem því fylgir þegar fjölskyldu- meðlimur greinist með alvarlegan sjúkdóm. Margrét Frímannsdóttir Þó margt hafi áunn- ist á undanförnum árum hvað varðar rétt- indi þessa hóps þjóðfé- lagsþegna eigum við mikið verk óunnið. Það kemur vel í ljós við lest- ur álits nefndar sem vann á vegum heil- brigðis- og trygginga- ráðuneytis. Nefndinni var ætlað að skoða rétt- arstöðu barna sem eiga við Iangvarandi erfið veikindi að stríða og einnig réttindi aðstand- enda þeirra. Nefndin skilaði tillögum til úr- bóta til ráðuneytisins. Síðan hefur heldur lítið gerst. Ef við stjómmálamenn tileinkum okkur þó ekki væri nema brot af þeim baráttu- Með tilkomu félagsins, segir Margrét Frí- mannsdóttir, varð til hópur þar sem starfað er í anda samhjálpar. vilja sem einkennir störf félaganna í styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna væru skrefin í átt til réttlætis fleiri og stæmi. Til hamingju með 5 ára starfsfer- il, Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Höfundur er formaður Alþýðu- bandalagsins. Nýttu þér 2 kr. sjálfsafgreiðsluafslátt af hverjum bensínlítra á eftirtöldum þjónustustöðvum Olís. » Sæbraut við Kleppsveg • Mjódd í Breiðholti + 2 kr. • Gullinbrú í Grafarvogi • Klöpp við Skúlagötu • Ánanaustum » Hamraborg, Kðpavogi • Reykjanesbraut, Garðabæ • Vesturgötu, Hafnarfirði » Suðurgötu, Akranesi ‘Viðbótarafsláttur vegna framkvæmda. AHÍER15K JPmiy jjjm Bjmam M B m Jv Jrfm wLJLjr 'mLm MLJf m Hæð: 173 cm. Dýpt: 60 cm. Breidd: 90.8 cm. fsskápur 365 lítrar. Frystir 188 lítrar. Fáanlegur hvítur, svartur og til klæðningar í samræmi við innréttinguna þína. Þessi glæsi- legi ameríski kæli- og frystiskápur sem er meö sterkri og fallegri innrétt- ingu, klakavél sem gefur mulinn ís, ísmola og rennandi vatn er nú fáanlegur fyrir aöeins... 189.900,- L. MAYTAG .val bandarískra neytenda Wðe rumvi8wi6inaál'<'f4 Þvottavél 9,5 Kg. Þurrkari 9,5 Kg. 89.900,-* 6 ml'Æ *staðgreiðsluverð VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR RflHftKKIHRÍLIIN iSLflNDS If - ANNO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.