Morgunblaðið - 31.08.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Tæknival hf.
Úr milliuppgjöri 30.júni 1996
Rekstrarreikningur Mnijónir króna 1996 1995 Breyting
Rekstrartekjur 941,3 665,9 +41,4%
Rekstrarqjöld 892.5 633.9 +40.8%
Rekstrarhagnaður 48,7 32,0 +52,2%
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (9,4) (1,6) -487,5%
Hagnaður fyrir skatta 39,3 33.7 +16.6%
Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga 0,06 0,2 -50,0%
Hagnaður ársins 30,9 23,5 +31,5%
Efnahagsreikningur 30. júní: 1996 1995 Breyting
1 Eianir: \
Veltufjármunir 413,6 465,0 -11,1%
Fastaf jármunir 132,9 107,0 +24,2%
Eignir samtals 546,5 572,0 -4,5%
1 Skuidir og eiqiO fó: \
Skammtímaskuldir 247,9 377,5 -34,3%
Langtímaskuidir 55,5 53,4 +3,9%
Eigið fé 243,1 141,1 +72,3%
Þar af hlutafé 120,0 100,0 +20,0%
Skuldir og eigið fé samtals 546,5 572,0 -4,5%
Sjódstreymi
Handbært fé frá rekstri 30,7
HB og Miðnes undirrita viljayfirlýsingu um sameiningu
Stefnt að samruna um
áramót undir nafni HB
HARALDUR Böðvarsson hf. á
Akranesi og Miðnes hf. í Sandgerði
hafa undirritað viljayfirlýsingu um
sameiningu fyrirtækjanna tveggja
undir nafni Haraldar Böðvarssonar.
Gert er ráð fyrir að sameiningin
taki gildi 1. janúar 1997, en fram
að þeim tíma verður samvinna fyrir-
tækjanna tveggja aukin.
Að sögn Sturlaugs Sturlaugsson-
ar, aðstoðarframkvæmdastjóra
Haraldar Böðvarssonar hf., mun
aukin samvinna fyrirtækjanna
tveggja í raun fela það í sér að þau
verði rekin sem eitt fram að samein-
ingu um áramót.
„Það byijar nýtt kvótaár nú 1.
september og það eru hagsmunir
beggja fyrirtækja að þau nái að
hámarka tekjur sínar og lágmarka
kostnað. Því verða þau rekin með
nánast eitt fyrirtæki í huga og
kvóti, vinnsla og önnur aðstaða
verða samnýtt," segir Sturlaugur.
Hann segir að þessar aðgerðir
séu fyrsta lotan í sameiningu fyrir-
tækjanna og farið verði út í hagræð-
ingaraðgerðir í rekstri hins nýja
fyrirtækis, þegar sameiningunni sé
að fullu lokið.
Að sögn Sturlaugs munu um 450
starfsmenn starfa hjá Haraldi Böð-
varssyni eftir sameininguna. Hann
segir ekkert liggja fyrir um neinar
uppsagnir á starfsfólki í tengslum
við sameininguna.
Sem kunnugt er var upphaflega
rætt um að sameina HB, Krossvík,
Miðnes og Þormóð ramma hf. á
Siglufirði, en síðastnefnda fyrirtæk-
ið dró sig út úr sameiningarviðræð-
unum fyrr í þessum mánuði.
Gunnar Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Miðness, segir að auðvelt
hafi verið að ganga frá sameiningu
fyrirtækjanna tveggja, þar sem
nánast hafi aðeins verið eftir að
ákveða hlutaskiptinguna.
Hann segist vera mjög ánægður
með að þessi sameining sé nú í
höfn, enda hafi hún skipt fyrirtæk-
ið miklu máli. Þessari sameiningu
fylgi möguleikar á aukinni sérhæf-
ingu og þar með hagræðingu, m.a.
með samnýtingu á kvóta og skipum
sem styrki grundvöll fyrirtækisins.
Hlutur HB í nýja
fyrirtækinu 73%
Hlutafé hins sameinaða fyrirtæk-
is verður 1.100 milljónir króna og
verður hlutur HB tæp 73% við sam-
einingu en hlutur Miðness rúm 27%.
Hið sameinaða félag mun ráða yfir
rúmlega 21 þúsund tonna aflaheim-
ildum í þorskígildum talið.
Félagið mun reka tvo frystitog-
ara, þrjá ísfisktogara, þrjú nóta-
skip, einn vertíðarbát, tvö frystihús,
fiskimjölsverksmiðju og síldar- og
fiskverkun, auk stoðdeilda. Höfuð-
stöðvar þess verða á Akranesi.
Tæknival hf. með 31 milljónar hagnað
Afkoma mun betri
en áætlað var
TÖLVU- og hugbúnaðarfyrirtækið
Tæknival hf. skilaði alls um 31 millj-
ónar króna hagnaði fyrstu sex mán-
uði ársins. Á sama tíma í fyrra var
hagnaðurinn 23 milljónir.
Þetta er mun betri afkoma en
áætlanir gerðu ráð fyrir og má fyrst
og fremst rekja hana til um 41%
veltuaukpingar á tímabilinu frá því
í fyrra. Á meðfylgjandi töflu má sjá
helstu stærðir úr milliuppgjöri fyrir-
tækisins.
Að sögn Rúnars Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Tæknivais hf.,
gera áætlanir fyrir árið í heild ráð
fyrir um 85 milljóna króna hagnaði
fyrir skatta og 1.963 milljóna veltu.
Hann segir að júlímánuður sé jafnan
lakasti tími ársins hjá fyrirtækinu,
en besti tíminn jafnan frá september
til ársloka. „Ég hef enga ástæðu til
að ætla annað en að áætlunin stand-
ist. Það er mikið líf núna og ágúst-
mánuður kemur vel út,“ sagði hann.
Aukin umsvif í öllum deildum
Rúnar segir að umsvifin hafi auk-
ist tiltölulega jafnt í öllum deildum
og þær séu að gera betur en áætlan-
ir gerðu ráð fyrir.
Eiginfjárstaða Tæknivals hefur
styrkst verulega á þessu ári, bæði
vegna hagnaðar og útboðs á nýju
hlutafé. Eins og sést á meðfylgjandi
töflu nam eigið fé í lok árs 243
milljónum og hafði aukist um 102
milljónir. Lokagengi á hlutabréfum
Tæknivals hf. í viðskiptum á Verð-
bréfaþingi í gær var 5,2 og hefur
það hækkað um 147% frá áramótum.
fj/ómistti
Fáðu pér miða fyrir kl. 20,20 í kvöld
Morgunblaðið/Þorkell
Stærsti inn-
kaupapoki í
heimi í
Kringlunni
FRIÐRIK Sophusson fjármála-
ráðherra vígði í gær stærsta
plastpoka í heimi að viðstöddu
fjölmenni í Kringlunni. Pokan-
um er ætlað að vekja athygli
á átakinu „íslensk versiun -
allra hagur,“ sem Kaupmanna-
samtökin, Féiag íslenskra stór-
kaupmanna, Hagkaup og Sam-
tök samvinnuverslana standa
fyrir. Með áletrun á pokanum
eru þeir landsmenn, sem ætla
í verslunarferðir til útlanda í
haust, hvattir til að bera saman
verð, gæði, skilarétt o.fl. þar
og hér heima.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmanna-
samtakanna, segir að átakið
sé þörf áminning þeim íslend-
ingum, sem ætla í verslunar-
ferðir fyrir jólin. Með því sé
verið að vekja fólk til umhugs-
unar um þau viðskipti sem
flytjist úr landi með þessum
hætti.
Póstverslun
Fríhafnar
lögð niður
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur
lagt póstverslun Fríhafnarinnar í
Leifsstöð niður og framtíð komu-
verslunarinnar er í athugun.
Viðskiptavinum Fríhafnarinnar
hefur staðið til boða að greiða fyrir
vörur með greiðslukortum í gegnum
síma. Farþegar sem leið eiga um
flugvöllinn hafa síðan getað sótt vör-
una fyrir kaupandann. Þannig að
viðskiptavinir Fríhafnarinnar hafa
ekki þurft að fara af landi brott til
að kaupa vöru án álagðra gjalda rík-
issjóðs.
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtaka Islands,
segir samtökin fagna ákvörðun ráðu-
neytisins um að hætta póstviðskipt-
um í Fríhöfninni. „Aftur á móti hef-
ur ráðuneytið ekki tekið ákvörðun
um hvort komuverslunin verði rekin
áfram og við munum halda áfram
kröfunni um að henni verði breytt á
þann veg að þar verði eingöngu selt
áfengi og tóbak. Við höfum óskað
eftir því að verslunar- og þjónustu-
rými í flugstöðinni verði aukið og
ráðuneytið tekur undir þær óskir,“
segir Sigurður.
Ekki náðist í Helga Ágústsson,
ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis,
vegna málsins.
-----♦---------
Strengur
selur hlut sinn
íSkyggni
STRENGUR hf. hefur selt allan hlut
sinn í hugbúnaðarfyrirtækinu
Skyggni hf., en fyrirtækið átti 50%
hlutafjár á móti Burðarási hf. Kaup-
andi bréfanna var Skyggnir, en fyrir-
tækið hefur þegar selt Tölvumyndum
hf. þennan hlut. Stefnt er að því að
fyrirtækin tvö verði sameinuð í kjöl-
farið, að því er fram kemur í frétt.
Skyggnir var stofnaður af Streng
og Burðarási í apríl á síðasta ári og
er heildarhlutafé fyrirtækisins 10
milljónir króna. Aðalverkefni félags-
ins hefur verið sala á viðskiptahug-
búnaðinum Fjölni, sem Strengur er
umboðs- og dreifíngaraðili fyrir.
Tölvumyndir hafa starfað á sama
sviði en sérhæft sig í Microsoft hug-
búnaðir.
Ástæða þess að Strengur ákveður
að selja hlut sinn nú er að söluaðilum
á viðskiptahugbúnaðinum Fjölni hefur
íjölgað mjög upp á síðkastið og í ljósi
þess varð það að samkomulagi að
Strengur drægi sig út úr Skyggni.
Fyrirtækið mun þó áfram vera söluað-
ili á Fjölni.