Morgunblaðið - 31.08.1996, Blaðsíða 9
M OÍÍG U MÍL AÖl Ð;
LA U G ARD:ÁtíU R 31.
:;BT?99í»
FRETTIR
Skógræktin og Skeljungur í stígagerð á Þingvöllum
Skógurinn í Hrafnagjár-
hallinum aðgengilegri
Nýjar vörur frá
ARA
Jakkar,
pils,
blússur
Kringlunni 8-12 TISKUVERSLUN sími: 553 3300
SUMARIÐ 1958 voru gróðursettar
hundrað þúsund tijáplöntur með
eins metra millibili á um fjórtán
hektara svæði í Hrafnagjárhallinum
norðaustan Þingvallavatns. Nú, 38
árum seinna, eru hæstu trén orðin
um átta metrar á hæð og skógurinn
svo þéttur að erfitt er að komast
þar leiðar sinnar. Skógrækt ríkisins
og Skeljungur hafa nú tekið hönd-
um saman um að ryðja stíga í skóg-
inum í þeim tilgangi að gera hann
aðgengilegan fyrir almenning.
Kristinn Skæringsson, skógar-
vörður á Suðvesturlandi, stjórnar
framkvæmdunum fyrir hönd Skóg-
ræktarinnar. Hann var einnig verk-
stjóri við gróðursetninguna 1958
og segir að menn hafi ekki haft
mikla trú á því þá að plönturnar
myndu verða stórar.
„Það er hreint ótrúlegt hvað þessi
tré hafa vaxið á þessum tíma, því
að jarðvegurinn var mjög rýr. Við
vorum í vandræðum með að koma
þessum litlu plöntum niður og ein-
hvernveginn gerði maður þetta
kannski með því hugarfari að þetta
myndi ekki spretta, það myndi drep-
ast svo og svo mikið úr þessu. En
tilfellið er að það hefur bara ekki
drepist svo mikið úr því,“ segir
Kristinn.
Stígar jafnaðir
Hann segir að hugmyndin með
því að planta svona þétt hefði verið
sú að trén myndu skýla hvert öðru
meðan þau væru að komast upp.
Bilið á milli plantna hefði verið um
einn metri en nú orðið væri bil
milli plantna við gróðursetningu
aldrei minna en tveir metrar og oft
tveir og hálfur.
Vinna hófst í síðustu viku við að
ryðja stíg í gegnum skóginn, fella
tré og klippa greinar og hafa þrír
starfsmenn Skógræktar ríkisins
komið þar að verki. Þetta er þó
aðeins byijunin og verður haldið
áfram næsta sumar. Stígarnir verða
jafnaðir og borið ofan í þá kurl úr
trjám sem grisjuð verða úr skógin-
um.
Sest niður á sjónarhólum
Ætlunin er að leggja nokkrar
mislangar hringleiðir um skóginn,
með svokölluðum sjónarhólum, þar
sem komið verður fyrir borðum og
bekkjum, þar sem vegfarendur
geta tyllt sér niður og notið útsýn-
isins.
Aðspurður um hvort fyrir liggi
kort eða teikningar af fyrirhuguð-
um stígum, vill Kristinn sem minnst
segja. Hann vilji helst leggja stíginn
og færa hann svo inn á kortið, þann-
ig sé frekar hægt að láta stíginn
Morgunblaðið/Þorkell
GUNNAR E. Kvaran, upplýsingafulltrúi Skeljungs, og Kristinn
Skæringsson, skógarvörður, spá í spilin.
í
□Q I
KÓR
LANGHOLTSKIRICJU
Getum bætt við sö ngfólki í allar raddir.
Góð rödd og tónkeym er frumskilyrði. Söngíólfe með tónlistar-
menntun gengur jjó að öðru jöínu íyrir.
Nánari upplýsingar og innritun í Langfeoltsfeirfeju í síma 568 9430
á sferifstofutíma fyrir 7. september.
KÓRSKÓLI
LANGHOLTSKIRigu
fyrir töm og unglinga.
Sfeólinn verður settur 12. september fel. 17.00
Kennslugreinar eru tónfræði, tónfeeyrn, raddjijálfun og samsöngur.
Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum felufefean 17-18:20
Kennarar eru Signý Sæmundsdóttir óperusöngfeona, Laufey Ólaís-
dóttir tónmenntarbennari og Jón Stefánsson bantor.
Kennslugjald er fer.12.000 fyrir fevora önn.
Nánari upplýsingar og innritun í Langfeoltsfeirfeju í síma 568 9430
á sbrifstofutíma fyrir 12. september.
ÍSLEIFUR Kristinsson, starfsmaður Skógræktarinnar, ryður
sér braut gegnum þéttan skóginn.
aðlagast landinu. Sé byijað á því
að vinna alltof mikið á teikniborðinu
sé hætt við því að stígurinn verði
bara eitt beint strik.
Plönturnar sem gróðursettar
voru 1958 voru skógarfura, stafa-
fura, rauðgreni, sitkagreni og sitka-
bastarður. Skógarfuran þreifst ekki
vegna lúsar og- að sögn Kristins er
megnið af skógarfurunni dautt, þó
að ein og ein tóri enn. „Sitkabast-
arðurinn ber hinsvegar af, en hann
er blanda af sitkagreni og hvít-
greni. Hann vex jafnt og stöðugt
og veðrun hefur engin áhrif á hann.
Þó að sitkagrenið sé mjög fallegt,
þá er bastarðurinn enn skarpari,"
segir hann.
Hluti af stærra
samstarfsverkefni
Vinnan við stigalagninguna á
Þingvöllum er hluti af stærra sam-
starfsverkefni sem ber heitið
„Skógrækt með Skeljungi". Sam-
starfíð hófst árið 1993 og síðan
hefur Skeljungur hf. styrkt skóg-
rækt í landinu um 40 milljónir
króna, að sögn Gunnars E. Kvaran,
upplýsingafulltrúa Skeljungs.
Lagðir hafa verið göngustígar
og komið fyrir merkingum og án-
ingarstöðum í skóglendum Skóg-
ræktar ríkisins víða um land. Má
þar til dæmis nefna Vaglaskóg,
Jafnaskarðsskóg við Hreðavatn,
Haukadalsskóg í Biskupstungum
og Reykjarhólsskóg í Varmahlíð. Á
þessu ári hafa meðal annars verið
lagðir stígar í Þórsmörk og á Hall-
ormsstað, auk verkefnisins á Þing-
völlum.
ÓTTU ÞESS BESTA
í MAT OG DRYKK.
ÞAÐ KOSTAIl EKKl MEIRA.
e^AUTALUNDIR CARPACCIO
MEÐ SOjARISTAÐRI
HÖRPUSKEL OG
ENGIFEROLÍU.
‘MÁRINERAÐUR SKÖTUSELUR
í DIJON OG GRÆNPIPAR,
OFNBAKAÐUR MEÐ
HVÍTLAUKSSÓSU.
REIAIS &
CHATEAUX.
TTf
BERGSTAÐASTRÆTI 37
SÍMI: 552 57 00, FAX: 562 30 25
IRAMIZU.
SÝNISHORN ÚR MATSEÐLI.
ntíU
AJtofnnö «97+ munir
NÝKOMNAR VÖRUR
Antik munir, Klapparslíg 40, sími 552 7977
G)
ty5
Skólatöskur Mikið úrval
Mnifc fyrir alla aldurshópa
fh/f Gott verð
Laugavegi 58, sími 551 3311.
Persía
Opið laugardag og sunnudag.
Suðurlandsbraut 4ó v/Faxafen - Sími: 568 6999,