Morgunblaðið - 12.10.1996, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Nemendur í heimilisfræði
undirbúa kennslu
Sjón er
sögn ríkari
SÝRUSTIGIÐ í Tomma og Jenna
ávaxtasvaladrykk er svipað og í
kóki og í einum gulum M&M-
hnetupoka er sykur sem samsvar-
ar 94 sykurmolum og fita sem
samsvarar 8 grömmum af litlum
smjörstykkjum.
Hópur nemenda á þriðja ári í
heimilisfræðivali við Kennarahá-
skóla Islands var í vikunni að setja
upp kennslufræðiverkefni þar sem
þeir áttu að sýna fram á næring-
arinnihald fæðunnar á hlutlægan
hátt'. „Tilgangurinn með verkefn-
um af þessu tagi er að segja frá
innihaldi matvörunnar á áþreifan-
legan hátt. Það er ekki að furða
að nemendur hafí valið fítu, sykur
og sýrustig matvæla því þessir
þættir hafa verið áberandi í um-
ræðunni um mataræði skólabama
að undanfömu", segir Brynhildur
Briem, kennari þeirra. Matvörum-
ar völdu nemendumir af handa-
hófi en svona verkefni eru hugsuð
til að setja upp í skólum.
Súrir drykkir leysa upp
tennur
Einn nemandinn hafði samband
við framleiðendur ýmissa drykkja
og fékk uppgefíð sýmstig þeirra.
Því lægri sem talan er því súrari
er vökvinn. Súrir vökvar leysa upp
tennur bama og unglinga. Eins
og sést í meðfýlgjandi töflu kom
kók verst út en vatnið var besti
kosturinn.
Sumar mjólkur-
afurðir feitar
Þá kannaði einn nemandínn
sykur-, og fítuinnihald í engja-
þykkni með morgunkomi, skyri,
hrísmjólk með karamellusósu,
þykkmjólk með pemm og eplum,
kvargi með blábeijum og skóla-
skyri með vanillu. Niðurstaðan
var sú að engjaþykknið væri fítu-
mest, innihéldi 8,1% fítu í 100
grömmum og næst á eftir kæmi
hrísmjólkin með 6,3% fítu í 100
grömmum. Fituminnst var skyrið
sem inniheldur engan viðbættan
sykur og einungis 0,2% fítu.
Kvargið inniheldur mestan syk-
ur af þessum tegundum, alls em
9 grömm í hveijum 100 grömm-
um.
Eins og sést á myndunum er
áhrifaríkt að sjá næringarinni-
haldið framsett á þennan hátt.
Sýrustig ýmissa drykkja Nemandinn fékk eftirfarandi upplýsingar frá framleiðendum.
Heiti Sýrustig (pH)
Kók 2,8
Tommi og Jenni ávaxtadrykkur 3,0
Tommi og Jenni appelsínudrykkur 3,1
Epla Svali 3,2
„Diet“ kók 3,4
Hi-C 3,4
Appelsínu Svali 3,5
Trópí eplasafi 3,6
Trópí appelsínusafi 3,8
Trópí ananassafi 4,1
Mjóik 6,7
Kakómjólk 6,7
Vatn í Reykjavík 9,0
SEM dæmi tók einn nemandinn húðaða hafrahringi sem heita
Frosted Cheerios. I 30 gramma skammti af þessu tiltekna
morgunkorni eru 13 grömm af sykri. Borði börn 30 grömm
af þessu morgunkorni daglega í einn mánuð borða þau þar-
með 390 grömm af sykri.
í EINUM 454 gramma poka
af M&M-hnetum eru 2.420
hitaeiningar. Fitan er um
121 g sem samsvarar um það
bil 8 litlum smjörstykkjum
og pokinn inniheldur um 242
g af sykri sem eru um 94
sykurmolar.
NEMENDURNIR sem stóðu að verkefnunum. Aftari röð frá vinstri: Rósa
Guðbjartsdóttir, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Ólafía Sigurðardóttir, Klara Sig-
urmundadóttir, Björg Ársælsdóttir, Harpa Hafliðadóttir, Sigurborg Stefáns-
dóttir, Steingerður Olafsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Matthildur Hanens-
dóttir og Helga Guðjónsdóttir.
Ljósmynd/Kristinn
200 GRAMMA staukur af kartöfluflögum inniheldur 76 grömm af fitu, þar af eru
20 grömm mettuð fita en 56 grömm ómettuð fita. 3,6 grömm af salti eru í skammtin-
um. Engjaþykkni með morgunkorni er fitumest, í hverjum 100 grömmum er 8,1 g
af fitu og 5,0 grömm af viðbættum sykri. Næst á eftir kemur hrísmjólk með kara-
mellusósu. í 100 grömmum er 6,3 grömm af fitu en ekki vissi nemandinn um sykur-
magnið. Þá er kvargið sykurmest, eða alls um 9 grömm í 190 grömmum. Fitan er
hinsvegar 5,8 grömm í hveijum 100 grömmum.
Brettamarkaður
hjá Blómavali
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Handverksfólk á Garðatorgi
Kaffi Pucc-
ini opnar
f GÆR, föstudag, var opnað nýtt
kaffíhús, Kaffí Puccini, á Vitastíg
10A. Auk þess verður starfrækt þar
verslun sem selur kaffí, te og tengd-
ar vörur.
í fréttatilkynningu frá Kaffi Pucc-
ini kemur fram að fyrirtækið hefur
einkaumboð fyrir Norðurlönd á kaffi,
te og tengdum vörum frá bandaríska
fyrirtækinu Bamies Coffee & Tea
Company Inc. Sérstakir sæikera-
drykkir verða á boðstólum, boðið upp
á smárétti, léttvín og bjór. Um þess-
ar mundir eru vatnslitamyndir eftir
Svein Bjömsson listmálara til sýnis
á kaffihúsinu. Kaffi Puccini verður
opið frá klukkan 10-23.30 frá sunnu-
degi til fimmtudags og frá 10-01 á
föstudögum og laugardögum.
í DAG, laugardag, opnar Blóma-
val við Sigtún brettamarkað sem
hiotið hefur nafnið: Á einu bretti.
Þar gefst fólki kostur á að kaupa
ýmsan varning á ódýrara verði
en gengur og gerist. Vörurnar
eru settar fram á einfaldan og
hráan hátt og öllum kostnaði
haldið niðri.
Um 100 vöruliðir standa til
boða með þessum hætti. Til dæm-
is er þarna að finna reykelsi á
99 krónur, reiðhjólakörfu á 250
krónur, brauðkassa á 399 krón-
ur, útidyramottu úr kókos á 249
krónur og serviettur á 99 krón-
ur. Ekki er langt í að jólavörur
verði teknar upp og stendur til
að brettamarkaðurinn verði til
frambúðar í Blómavali.
I dag, laugardag og á morgun,
sunnudag, mun handverksfólk sýna
og selja vörur sínar á Garðatorgi í
Garðabæ. Að þessu sinni eru það
um fjörutíu einstaklingar sem koma
með vörur á torgið og meðal þeirra
er Árni Elfar sem teiknar andlits-
myndir á staðnum.
Kvenfélag Garðabæjar sér um
kaffísölu og verslanir á torginu
verða opnar lengur en venjulega á
laugardaginn.
Handverksmarkaðurinn er opinn
frá 10-18 í dag en frá 12-18 á
morgun, sunnudag.