Morgunblaðið - 26.10.1996, Síða 4

Morgunblaðið - 26.10.1996, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Utlit fyrir verulegan samdrátt í úthafsveiðum á næsta ári Byrjað að leita að nýjum verkefnum fyrir flotann VERÐI sá samdráttur í úthafsveiðum á næsta ári sem útlit er fyrir þýðir það kringum tveggja mánaða úthald fyrir um 50 íslenska togara. Menn verða þá að leita annað eftir verkefnum fyrir þennan flota og eru reyndar þegar byijað- ir. Þetta kom fram í máli Sigurbjörns Svavars- sonar útgerðarstjóra Granda á ráðstefnu um úthafsveiðar íslendinga í gær og hann spurði jafnframt hvert flotinn ætti að leita. Sigurbjöm lýsti því í upphafi máls síns hversu umfangsmiklar úthafsveiðar íslenska togara- flotans væru orðnar, í Smugunni, á Flæmska hattinum, á úthafskarfa og sfld; 20-40 skip væru á hveiju svæði í nokkra mánuði í senn og aflaverðmætið skipti milljörðum. Sigurbjörn^ Svavarsson og Jens Valdemars- son forstjóri ísbús fjölluðu um möguleg úthafs- veiðisvæði fyrir íslensku skipin. Sagði Sigur- björn að lítið væri um stofna á Norður-Atlants- hafi sem nýta mætti meira, nema hugsanlega rækju í Smugunni, og hefðu verið gerðar lítils- háttar tilraunir í þá átt. Á Atlantshafshrygg væru helst möguleikar fyrir stóra línu- og neta- báta sem frysta myndu aflann um borð og fyr- ir togskip væm kannski helst möguleikar í lög- sögum annarra ríkja eða á öðrum alþjóðlegum hafsvæðum, og nefndi hann Falklandseyjar og Namibíu sem dæmi og að hugsanlegt væri að komast að hjá ESB- ríkjum. Sagði hann þó ljóst að þróunin og aukningin í þessum veiðum yrði hægari á næstu árum en verið hefði. Helstu möguleikarnir á fjarlægum miðum Jens Valdemarsson minnti á að ekki ætti að vera íslendingum framandi að stunda veiðar fjarri heimahögum, aðrar þjóðir hefðu fyrr á árum veitt hér við land, nánast upp undir kart- öflugörðum landsmanna. Jens sagði að úthafs- veiðin væri ekki tilviljanakennd, menn hefðu verið og væru að leita skipulega að nýjum möguleikum, og sagði þá vera m.a. við strend- ur Suður-Ameríku, svo sem við Falklandseyjar, Chile og Argentínu, í Indlandshafi, við Víetnam og Kamtsjatka. Við Suður-Ameríku mætti til dæmis veiða mun meiri rækju en nú væri gert og það sama mætti segja um Indlandshaf. Þar ættu Islendingar þegar ítök í rækjuvinnslu og væri unnið bæði úr veiddri rækju og ræktaðri. Jens sagði mjög ólíkt að stunda veiðar við Suður-Ameríku og Indland. Stormar og kuldi gerðu mönnum erfitt fyrir við strendur Suður- Ameríku en þangað gætu menn hins vegar siglt skipum sínum beint og hafið veiðar, engan sér- stakan búnað eða breytingar þyrfti að gera á skipunum. Það yrði hins vegar að gera væri förinni heitið til Indlands. Þar væri hiti slíkur að setja yrði í skipin kælibúnað bæði fyrir mann- skap og vél og það kallaði á dýrar breytingar. Fimm til- boð í vín- búðir í Kópavogi FORVALSGÖGN um áfengisútsölu í Kópavogi, sem áætlað er að opna 1. mars nk., voru opnuð sl. fimmtu- dag. Fimm tilboð bárust en í for- valsgögnum var kveðið á um að húsnæði sem boðið væri fram yrði að vera í verslunarhverfi í Engi- hjalla, Hamraborg eða Smáranum. Hulda Finnbogadóttir, eigandi umboðs- og heildverslunarinnar Lyon, bauð fram Hamraborg 5, Bónus bauð fram Smáratorg, en Bónus er leigutaki verslunarmið- stöðvar sem reist verður í Smára- hvamminum. Faghús ehf. og Miðjan ehf. bjóða fram húsnæði í Hlíða- smára 12, Fofnir ehf., eignarhalds- félag Kópavogs-Kjarnans, húsnæði í Engihjalla og Listakaup ehf. hús- næði á Dalvegi 2. Umfangsmikill björgunarleiðangur varnarliðsins tókst giftusamlega Þrjátíu í áhöfnum björgun- arvélanna ÞRJÁTÍU vamarliðsmenn, sem eru í áhöfn tveggja Sikorsky- þyrla, einnar Orion eftirlitsvélar og einnar Hercules-eldsneytisvél- ar, tóku þátt í björgun japansks sjómanns á fimmtudag. Upplýs- ingaskrifstofa varnarliðsins segir að kostnaður vegna hverrar ferð- ar sé aldrei reiknaður út sérstak- lega og þar á bæ vildu menn ekki giska á kostnaðinn. Þyrlubjörgun- arsveit varnarliðsins hefur bjarg- að 296 mannslífum á síðustu 25 árum, eða tæplega 12 mannslífum áári. Eins og Morgunblaðið hefur skýrt frá barst Landhelgisgæsl- unni beiðni um aðstoð á miðviku- dag vegna alvarlega veiks sjó- manns um borð í japönsku skipi. Flugdrægi TF-LIF, Super Puma þyrlu Landhelgisgæslunnar, er ekki nóg til að hægt væri að sinna beiðninni, en japanska skipið var 480 milur suður í hafi. Tvær þyrlur og aðstoðarvél Leitað var til þyrlubjörgunar- sveitar varnarliðsins og lögðu tvær Sikorsky HH-60G Pave Hawk þyrlur af stað frá Keflavík- urflugvelli kl. 16.40 á miðvikudag. Með í för var HC-130 Hercules- eldsneytisvél, þar sem nauðsyn- legt reyndist að taka eldsneyti á leiðinni. í björgunarleiðangra af þessu tagi fara ávallt tvær þyrl- ur, önnur aðalþyrla, með fjögurra manna áhöfn, og varaþyrla með 5 manna áhöfn. I Hercules-vélinni voru 8 í áhöfn. Þegar þyrlurnar komu að jap- anska skipinu, Shinmei Maru, var mjög hvasst, níu vindstig, úrhell- isrigning og ölduhæðin var 12 metrar. Lágskýjað var og dimmt og voru tilraunir til að hífa sjó- manninn um borð í þyrlu gefnar upp á bátinn. Þyrlurnar tvær og eldsneytisvélin sneru því aftur til Keflavíkurflugvallar, en Shinmei Maru var siglt áleiðis til íslands, þar sem reyna átti björgun á ný á fimmtudeginum. Á fimmtudagsmorgun kl. 10.35 fóru þyrlurnar tvær aftur af stað. Að þessu sinni var með í för P-3C GRÆN-( LANDÍÍ 7Lent við Sjúkrahús r Reykjavíkur kl. 14.30 /' / .... 7" \ / . \ L //r /■' *■-■■'■ / \ L-~...- jc , í___________/ ______________\ Kcflavíkur- 2Tvær Sikorsky HH-60G 1...............-l-u-^-ö"ur; Pave Hawk þyriur fóm frá Keflavíkurflugvelli kl. 16.40 á miðvikudag. Með í för var Hercules-eldsneytisvél. ISLAND 4Á fimmtudagsmorgun kl. 10.35 fóm þyriumar aftur af stað. Með í för var P-3C Orion vél sjóhersins og þar um borð var japanskur túlkur. rv11"1;." , /■ SHerkúles-eldsneytisvél iagði upp kl. 12.30 til móts vi£ þyrlumar. t~q; L' 3Sjö til átta stiga vindur og um 12 metra ölduhæð komu í veg fyrir björgun. Þyriur og eldsneytisvél sném við. , .. - 6Japanska skipið var statt um 180 milur undan Reykjanesi þegar þyriurnar komu að því. Sjómaðurinn var hífður um borð kl. 12.47 w |V < HAlTOiÍ^- /'.Rockall X |J * <a) C ROCKAfÍ /y/ ' \\ ^ SLÉTTAN //,/■■:''-■ j) ' l ■ "//// .c; „ .. } \ . // „s j. ' --- « // W/ ■’ -v < IJapanska skipið Shinmei Mam var 480 sjómílur suður af Isiandi, utan flugdrægis TF-LÍFAR. Um borð var veikur sjómaður /\ \ & Þrjú tilboð á Patreksfirði Sama dag voru opnuð forvals- gögn um áfengisútsölu á Patreks- firði sem einnig er áætlað að opna á næsta ári. Þtjú tilboð bárust, frá versluninni Högginu, Aðalstræti 8, Geirseyrarbúðinni, Áðalstræti 73, og Byggingafélaginu Byggi á Þórs- götu 10. Einungis var um forval að ræða en ÁTVR mun velja þá sem hún telur hæfa til að taka þátt í út- boði. Gert er ráð fyrir að tilboð verði opnuð 15.-30. nóvember og þá verði tilboð metin og hagstæð- asta boði tekið eða öllum hafnað. Samningar verði síðan undirritaðir um miðjan desember. ♦ Hátt í 40.000 hafa séð Djöflaeyjuna NÚ HAFA um 37.500 íslendingar séð nýjustu kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Djöflaeyjuna. I fréttatilkynningu frá framleiðanda kemur fram að engin íslensk kvik- mynd hafi hlotið jafn mikla aðsókn hérlendis undanfarin ár. Fram kemur að myndin hafi hlot- ið mikla aðsókn á landsbyggðinni, til dæmis hafi yfir 1.000 áhorfendur séð hana á Akranesi. í fréttatilkynningu segir að allt útlit sé fyrir að fjörutíuþúsundasti gesturinn komi að sjá Djöflaeyjuna á sunnudag. Orion eftirlitsvél sjóhersins með 13 manna áhöfn. Um borð í henni var japanskur túlkur, starfsmað- ur öryggislögreglunnar á Kefla- víkurflugvelli, en enginn um borð í Shinmei Maru talaði ensku. Þegar björgunarleiðangurinn kom að japanska skipinu kl. 12.15 var það statt um 180 mílur suðsuð- austur af Reykjanesi. Greiðlega gekk að hífa sjómanninn um borð í aðalþyrluna og var því lokið kl. 12.47. Þyrlurnar sneru þá á ný til íslands. Eldsneyti á leið til Reykjavíkur Þrátt fyrir að síðari flugferðin væri mun skemmi en ferðin á miðvikudag þurftu þyrlurnar að taka eldsneyti á flugi. Hercules- eldsneytisvél lagði af stað frá Keflavíkurflugvelli kl. 12.30 til móts við þyrlurnar sem tóku elds- neyti á leið til Reykjavíkur. Aðalþyrlan lenti við Sjúkrahús Reykjavíkur kl. 14.30 á fimmtu- dag þar sem japanski sjómaður- inn var lagður inn. Hann var með þrálátt magasár og innvortis blæðingar. Búið að veiða um 20 þúsund tonn af síld TILKYNNT hafði verið um veiðar á tæplega 20 þúsund tonnum af síld á vertíðinni á hádegi í gær, skv. upplýsingum Samtaka fisk- vinnslustöðva. Þar af höfðu tæp sjö þúsund tonn farið í söltun, rúm fjögur þúsund tonn í frystingu og tæp sex þúsund í bræðslu. Góð sfldveiði hefur verið að und- anfömu í Héraðsflóa, út af Borgar- firði eystra, og hafa verið á annan tug sfldveiðiskipa á þeim slóðum seinustu daga. Lítil veiði var þó í fyrrinótt þar sem síldin stóð djúpt en menn gera sér vonir um viðvar- andi veiði á vænni og góðri síld sem þama er. Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur tekið á móti um fimm þúsund tonnum það sem af er vertíðinni. „Við erum búnir að salta í 25 þús- und tunnur. Það er 4-5 þúsund tunnum meira en á sama tíma í fyrra,“ segir Haraldur Jörgensen, löndunarstjóri hjá Síldarvinnslunni. „Síldin er mjög góð. Jón Sigurðsson GK kom í gær (fimmtudag) með þá bestu síld til löndunar sem við höfum séð á vertíðinni. Það var allt saman stórsfld en hann var með 300 tonn,“ segir Haraldur. Síldartorfa við Eldeyjarboða er enn óveiðanleg Fundist hefur síld í torfum suð- vestur af landinu, við Eldeyjarboða, og héldu þijú skip sem til veiða á svæðinu aðfaranótt föstudags en síldin reyndist ekki veiðanleg. Sjó- menn gera sér þó vonir um að veið- ar geti hafist á svæðinu innan tíðar og var Víkingur AK á siglingu á miðin við Eldeyjarboða í gær þar sem reyna átti aftur við sfldina í nótt. Sjórinn heitari en venjulega Að mati Viðars Karlssonar, skip- stjóra á Víkingi, eru aðstæður í sjónum óvenjulegar miðað við árs- tíma. „Sjórinn er kannski um fjór- um gráðum heitari heldur en hann ætti að vera miðað við árstíma. Þetta er allt óreglulegt og við vitum því ekki hvemig fiskurinn bregst við. Þegar við vorum að veiða síld í reknet í gamla daga var alltaf talað um að það þýddi ekkert að veiða á þessum slóðum fyrr en færi að kólna,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.