Morgunblaðið - 26.10.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 21
ERLEIMT
Talsmaður SAS segir óvíst að sviknir varahlutir hafi verið í Douglas-þotum félagsins
„í FYRSTA lagi er alls óvíst að
um svikna varahluti hafi verið að
ræða. í öðru lagi verður að teljast
ólíklegt að þessar flugvélar hafi
verið notaðar á íslandsleiðinni, þó
ekki sé hægt að útiloka að ein
þeirra hafi flogið þangað á þessu
tímabili," sagði Simen Revold, tals-
maður SAS-flugfélagsins í Ósló, í
samtali við Morgunblaðið um
meinta svikna varahluti sem fund-
ust í nokkrum þotum félagsins fyr-
ir skömmu.
Skipt var um þrýstivökvaleiðslur
í hreyfibúnaði stjómflata á vængj-
um sjö SAS-þotna, einni MD-80
og sex DC-9, eftir að ábendingar
komu frá bandaríska loftferðaeftir-
litinu (FAA) um, að hugsanlega
Heilagar
miðalda-
konur voru
haldnar
lystarstoli
Róm. The Daily Telegraph.
HEILÖG Katrín frá Síena og fleiri
helgar konur á miðöldum voru
haldnar lystarstoli, að því er fram
kom á ráðstefnu lækna og sálfræð-
inga í San Gimignano á Ítalíu á
dögunum.
Rauði þráðurinn í fyrirlestrunum
var að lystarstol væri ekki nútíma-
fyrirbæri, heldur sjúkdómur sem
hefði heijað á mannkynið í margar
aldir. Margar helgar konur á mið-
ötdum hefðu verið haldnar lystar-
stoli, þeirra á meðal heilög Teresa
frá Avila, dulhyggjukona sem end-
urbætti reglu karmelíta og gerði
hana að strangri meinlætareglu.
í fyrirlestrunum kom fram að
margar nútímakonur, sem eru
haldnar lystarstoli, eigi það sameig-
inlegt með miðaldakonunum að
hneigjast til dulhyggju vegna
bældra tilfinninga.
Uppreisn gegn stjórnsamri
móður
Heilög Katrín frá Síena var dul-
hyggjukona sem stuðiaði að trúar-
vakningu meðal samtímamanna
sinna og lést 33 ára að aldri.
Skömmu áður hafði hún fengið
hugboð um að hún væri „kramin
af skipi kirkjunnar“, sem hún hafði
helgað líf sitt. Hún lamaðist vegna
heilablóðfalls og lést skömmu síðar.
Þegar heilög Katrín var 15 ára
tók hún að neita að borða og bar
þvi við að hún vildi hreinsa sig af
„ódyggðinni græðgi“. Hún sagði að
hún vildi borða en það væri vilji
Guðs að hún fastaði til að bæta
fyrir syndirnar.
Einn fyrirlesaranna, Mario Reda,
yfirmaður sálfræðistofnunar há-
skólans í Síena, sagði hins vegar
að Katrín hefði í reynd verið að
hafna stjórnsamri móður sinni og
umheiminum.
Móðir hennar, sem varð barns-
hafandi 25 sinnum og náði 100 ára
aldri, vildi að Katrín yrði íturvaxin
og reyndi að þröngva henni til að
borða. Katrín fann einnig til sektar-
kenndar vegna dauða systur sinn-
ar, sem var ári yngri, og föður síns.
Þegar önnur systir Katrínar lést
reyndi móðirin að knýja hana til
að giftast mági sínum til fjár. Katr-
ín var þá fimmtán ára og neitaði
að giftast manninum, helgaði sig
guði og fastaði.
- kjarni málsins!
Kröfur stöðugt hertar
Þotur með vafasömum leiðslum fiugu vart til íslands
hefði varahlutabirgir, Jacman Airc-
raft, selt svikna varahluti í
McDonnel Douglas-þotur.
„Við settum í gang mikla rann-
sókn á þotum okkar og varahluta-
lager vegna ábendingar FAA. Hún
varðaði vökvaleiðslur, sem Jacman
hafði selt á tímabilinu 1988-92.
Við keyptum ekki slöngur af þeim
á þessu tímabili, heldur miklu síð-
ar, eða 1993-94. Þeim fylgdu eðli-
leg vottorð þess efnis, að um raun-
verulega varahluti í Douglas-vélar
væri að ræða. En þegar við báðum
um frekari upplýsingar virtist erf-
iðleikum bundið af hálfu framleið-
anda að útvega þær. Eins og al-
vöruflugfélagi sæmir vildum við
ekki velkjast í vafa um öryggi
leiðslanna og tókum þær úr flug-
vélunum, sem þær höfðu verið sett-
ar í.
„Fræðilega séð getur hafa verið
um svikna hluti að ræða, en þó
ekkert sem bendir til að svo hafi
verið að ræða. Við rannsökuðum
þrýstivökvaleiðslumar hvetja fyrir
sig eftir á og í ljós kom, að þær
uppfylltu allar kröfur sem gerðar
eru og gott betur. Það var aldrei
um hættu að ræða þó þær væru í
flugvélunum. Og þó ein slanga
springi eru hreyfikerfi stjórnflat-
anna venjulega tvö eða þreföld,“
sagði Revold.
„Það er stöðugt verið að herða
öryggiskröfur og bæta eftirlit með
flugvélum og viðhald þeirra. í því
sambandi vinnum við eftir mjög
ströngum stöðlum evrópskra flug-
málayfirvalda. Þá eiga flugfélög
og yfirvöld samstarf þvert á öll
landamæri er leitt hefur til framf-
ara á sviði flugöryggismála," bætti
hann við.
Aðspurður um hvort þotumar
sjö hefðu verið brúkaðar á Islandsr-
útu SAS, sagði Revold: „Það verð-
ur að teljast afar ólíklegt. Hugsan-
lega gæti MD-80 þotan hafa flogið
einhvern tímann á flugleiðinni, en
Grand Cherokee - fullkominn farkostur
19 4 6 - 1 9 9 6
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600
Grand Cherokee sameinar á einstakan máta þægindi iúxusbíls og kraft
og styrk jeppans. Ríkulegur staðalbúnaður, vandaður frágangur, gott
innra rými og öryggisbúnaður eins og hann gerist bestur gera Grand
Cherokee að fyrirmynd annarra bifreiða.
Grand Cherokee Laredo 4.0 185 hestöfl
Grand Cherokee Limited 4.0 185 hestöfl
Grand Cherokee Limited 5.2 220 hestöfl
Grand Cherokee Turbo Diesel 2.5 116 hestöfl
kr. 3.780.000-
kr. 4.460.000-
kr. 4.650.000-
kr. 3.430.000-
Búðu þig undir veturinn og festu
kaup á Grand Cherokee jeppa.
Jeep Grand Cherokee er framleiddur af Chrysler Corporation. Jöfur hf. er einkaumboðsaöili
Chrysler á Islandi. Chrysler veitir ekki ábyrgð á þeim bifreiöum sem fluttar eru á milli landa
af fyrirtækjum eða einstaklingum, öðrum en Chrysler eða einkaumboðsaðilum þess.
ðJeep