Morgunblaðið - 26.10.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 27
GEITAOSTAR hafa ávallt
verið í miklu uppáhaldi hjá
mér og yfírleitt vel ég mér
nokkra slíka af ostaborðum í Frakk-
landi, hvort sem er á veitingahúsum
eða í verslun.
Bragð geitaosta er töluvert frá-
brugðið bragði þeirra osta er unnir
eru úr kúamjólk. Oft er sagt að þeir
séu með „ullarbragði". Peir eru yfir-
leitt skjannahvítir en geta verið nær
hvernig sem er í laginu. Margir af
vinsælustu ostunum líkjast helst
rúllutertum, sem sneiðar eru skom-
ar af. Aðrir eru í formi pýramíta,
keilna eða kúlna. Geitaostar era
sjaldan mjög stórir. Bragðsvið
þeirra er sömuleiðis allvítt.
Þeir geta verið mildir og
þægilegir eða bragðsterkir
og kröfuharðir. Skiptir
þar mestu máli hversu
lengi osturinn hefur
fengið að þroskast, en
jafnframt auðvitað
hvers konar ost er um
að ræða. Mildan,
hrærðan brauðost eða
„alvöm“ geitaost.
Bestu geitaostamir
koma frá Mið-Frakk-
landi og þeir þekktustu
frá héraðinu Berry.
Geitaostar geta verið
mjög góðir í matargerð og til
dæmis er forréttur er sam-
anstendur af grænu salati og
heitum geitaosti mjög vin-
sæll í Frakklandi. Margs-
konar vín geta gengið með
geitaosti. I Sancerre drekka
menn hvítvín sitt með ostunum
en sjálfum fínnast mér rauðvín
oftast eiga betur við. Með
mildum ostum myndi ég
mæla með vönduðum Beaujolais-
vínum (Brouilly, Morgon, Beaujola-
is-Village) eða þá ungu Búrgundar-
víni. Með bragðmiklum geitaostum á
borð við Crottin getur hins vegar
verið alveg óvitlaust að fá sér öflugra
rauðvín, t.d. Búrgundai-vín af góðum
árgangi eða vandaðan Bordeaux.
íslenska úrvalid
Það er orðið nokkuð síðan inn-
flutningui' á erlendum ostum var
heimilaður en leit mín að geitaostum
var árangurslaus í fyrstu. En nú
fyrir skömmu flæddu geitaostarnir
inn í verslanir.
í ostaborði og kæliskápum Hag-
kaups kom ég auga á alls sjö geita-
osta sem hlýtur að teljast ágæt
frammistaða. Ostar þes.sir reyndust
jafnframt spanna allt sviðið frá
mildum, mjúkum ostum upp í alvöi-u
ost er skilaði verulegum geitarkeim
til neytandans.
Sælkerinn
Franskur geitaostur er
farinn að sjást í íslensk-
um verslunum en hann
á sér marga aðdáendur.
Steingrímur Sigur-
geirsson er einn þeirra
og bragðaði á þeim
tegundum er
hann fann.
I mildasta flokknum lentu ostarn-
ir Cabridoux, Langot de Berry og
Chavroux. Cabridoux og Chavroux
eru litlir hvítir turnar en Langot-
osturinn rúlla með dökku „ösku-
falli".
Cabridoux reyndist mjög bi'agð-
mildur, rjómakenndur og mjúkur.
Það vottar fyrir geitarbragði, en
ekki það miklu að það ætti að stuða
neinn. Langot var ekki síður mildur,
feitur og mjúkur. Bragð hans er
þægilegt, þetta er viðkunnanlegur
ostur en að sama skapi ekki mikill
ostur. Chavroux-turninn var aftur á
móti töluvert saltari en þessir tveir.
Það er minni geit í honum, hann er
bragðdaufur og fremur óspennandi
að mínu mati.
Þessa osta mætti flokka sem
geistaosta fyrir byrjendur og
Frakkar myndu líklega frekar telja
þá hæfa sem smurost ofan á brauð
heldur en alvöruost sem sómar sér á
kvöldverðarborðinu eftir aðalrétt-
inn.
Osturinn La Zick de France sker
sig nokkuð úr í þessum hópi. Rúlla
þessi er hvað öll einkenni varðar lík-
ari ágætum Brie en því sem maður
tengir venjulega við geitaosta. Rúll-
an sem smökkuð var reyndist vera
með þokkalegan kjarna og osturinn
var farinn að þroskast nokkuð, sem
kannski dregur úr geitareinkennun-
um í osti af þessu tagi. En þótt Zick
þessi teljist ekki mjög geitarkennd-
ur vakti hann þó athygli og ánægju
þeirra er hann smökkuðu.
Ur ostaborðinu í Hagkaup í
Ki-inglunni var hægt að kaupa
sneiðar af osti er ber nafnið
Zickli og í kæhskáp var að
finna ostinn Soignon en þá
myndi ég vilja setja í milli-
flokk. Soignon er þykkur
ostur og minnir meira á
skyr en rjóma hvað ein-
kenni varðar. Bragðið er
töluvert sýi'umikið og
einnig töldu menn sig
greina nýtínda sveppi.
Þokkalegur ostur að flestu
leyti. Zickli var þó meira fyrir
minn smekk og í bragði hans
mátti gi'eina sitt lítið af hvoru.
Hann er mildur en geitarbragðið
þó áberandi. Hann er þurrari en
mjúku ostarnir en samt feitur
og rjómakenndur. I honum er
þó nokkur sýra en samt ekki of
mikil. Sem sagt hinn þokkaleg-
asti miðlungsostur, tilvalinn
viðbót á ostabakkann og lík-
lega sá ostur sem líklegastur er
til að finna breiða hóp aðdáenda.
Crntrtin bestur en
ekki fyrir alla
Langbesti osturinn reyndist hins
vegar vera Crottin de Chavignol,
sem framleiddur er í Sancerre.
Crottin-ostar eru litlir hnoðrar og
nafnið þýðir hrossatað, sem væntan-
lega er jafnt ætlað að vísa til lögun-
ar og stærðar ostsins sem hinnar
sterku iyktar. í þessum osti kemur
geitarbragðið fram í sinni hreinustu
mynd. Hann er ullarmMl, bragð-
sterkur og góður. Bragðið er nátt-
úrulegt og sveitalegt (les íjósalegt).
Hann er þurr og sýra töluverð og
ekki fyrir alla. Þetta er ekki að-
gengilegur ostur heldur ostur seni
gerir kröfur til neytandans. Fyrir
þá sem á annað bragð kunna að
meta góða bragðmikla osta og geita-
osta sérstaklega er það mikill við-
burður að svona ostar skuli nú vera
fáanlegir hér á landi. Vonandi verð-
ur framhald á því.
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Heimasíöa: http://www.apple.is
Krafibiddi tðha • lul af
ámM f| fréið!(
Color StyleWriter 1500:
Prentaðterð: „Thermal“-bleksprauta
Prentgæúi: 720x360 pát með mjúkum útiínum í sv/hv
360x360 pát fyrir lita- og grátónaprentun
Tengi: Háhraöa raötengi (885 Kbps)
Beintenging viö tölvunet meö StyleWriter
EtherTalk Adapter (aukabúnaður)
Hraði: Allt aö 3 síður á mínútu í svart/hvítu
Leturgerðir: Stuðningur við TrueType- og
Adobe PostScript letur
Pappírsmötun: Fjölnota bakki sem tekur allt aö 100 síöur
eöa 15 umslög
Prentefni: Flestallur pappir, glærur, „back-print film“,
umslög og limmiöar
i.ibvswV^m-vW'
PowerMacintosh 6320/120:
Örgjörvi: PowerPC 603e RISC
Tiftiöni: 120 megariö
Vinnsluminni: 12 Mb (má auka í 64 Mb)
Skjáminni:
Harðdiskur:
Geisladrif:
Skjár:
Diskadrif:
1
1.200 Mb
Apple CD1200Í (átta hraða)
Apple Multiple Scan 14" litaskjár
3.5" - les Mac- og PC-diska
Hnappaborð: Apple Design Keyboard
Nettengi: Innbyggt LocalTalk (sæti fyrir Ethernet-spjald)
Hljóö: 1B bita hljóð inn og út
Stýrikerfi: System 7.5.5, sem að sjálfsögðu er
á íslensku
Hugbúnaður: Hið fjölhæfa ClarisWorks 3.0. í forritinu er
ritvinnsla, töflureiknir, tvö teikniforrit, gagna-
grunnur og samskiptaforrit. Ritvöllur 3.0 -
stafsetningarleiðrétting og samheitaoröabók
og Málfræöigreining - kennsluforrit í íslenskri
málfræöi. Öll þessi forrit eru á íslensku.
Leikir o.fl.: Mac Gallery Clip Art, Thinkin' Things, At
Ease, Millies Math House, Click Art
Performa, Spin Doctor og Supermaze Wars.
Geisladiskar: Groliers Encyclopedia, Myst, Mega Rock
Rap 'n' Roll, RedNex, The Way Things Work,
Deadalus Encounter, Making Music, Aladdin
Activity Centre, Lion King Story Book og Toy
Story Preview