Morgunblaðið - 06.12.1996, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Delta og Continental
ræða um samruna
New York. Reuter.
BANDARÍSKU flugfélögin Delta
Air Lines og Continental Airiines
eiga í viðræðum um hugsanlegan
samruna að sögn The New York
Times.
Samkomulag er ekki í sjónmáli,
en viðræðurnar hafa staðið í
nokkra mánuði og eru ekki lengur
á frumstigi að sögn blaðsins.
Continental átti frumkvæði að
viðræðunum og á ekki í viðræðum
við önnur flugfélög um hugsanleg-
an samruna samkvæmt fréttinni.
Stærsta flugfélag heims?
Delta er þriðja stærsta flugfé-
lag Bandaríkjanna, Continental
er það fimmta stærsta og ef sam-
eining verður að veruleika verður
komið á fót stærsta flugfélagi
heims, en United Airlines skipar
þann sess nú.
Blaðið hefur eftir sérfræðingi í
greininni að samruni af þessari
stærðargráðu muni sennilega leiða
til tilrauna til að sameina fleiri
flugfélög sem vilji varðveita sam-
keppnishæfni sína. Minnzt er á
USAir og Northwest flugfélögin í
þessu sambandi.
Samstarf við Air France
Bæði Delta og Continental eru
samstarfsaðilar Air France í al-
þjóðaflugi. Continental hefur
bækistöð í Houston, Texas, en
Delta í Atlanta í Georgíu.
Markaðsverð Continental er
1,83 milljarðar dollarar og hagn-
aður var 224 milljónir dollara af
rúmlega 5,8 milljarða dollara
rekstrartekjum á síðasta ári.
Hagnaður Delta var 156 milljónir
dollara að teknu tilliti til óreglu-
legra gjalda að fjárhæð 829 millj-
ónir dollara vegna endurskipu-
lagningar. Rekstrartekjur félags-
ins námu 12,46 milljörðum dollara.
Continental er undir stjórn fjár-
málamannsins Davids Bonder-
mans, sem bjargaði félaginu frá
gjaldþroti og kann að vera reiðu-
búinn að selja hlutabréf sín meðan
verð þeirra er hátt að sögn kunn-
ugra.
Talsmenn Delta og Continental
vilja ekkert um málið segja.
Flugvélasýning á Indlandi
FIMM daga sýning á flugvélum
stendur yfir þessa dagana í
útjaðri indversku borgarinnar
Bangalore, en flestir stærstu
flugvélaframleiðendur í heimi
taka þátt í syningunni, svo sem
Boeing, McDonnelI Douglas og
Aerospatiale.
NÓATIÍN117, HRINGBRAUT 121, AUSTURVERI, ROFABÆ 38, KLEIFARSEL118,
LAUGAVEGI 116.HAMRAB0RG KÓP., FURUGRUND KÓP., MOSFELLSBÆ.
GM krefst 6 millj-
arða marka af VW
Frankfurt. Reuter.
GENERAL MOTORS mun krefj-
ast að minnsta kosti sex milljarða
marka, eða 3,8 milljarða dollara,
í skaðabætur af Volkswagen í
málaferlum í Bandaríkjunum
vegna ásakana um iðnnjósnir að
sögn þýzka tímaritsins Stern.
Tímaritið segir forsendu þessar-
ar bráðabirgðatölu GM þá að þeg-
ar háttsettir starfsmenn hafí hætt
þar störfum 1993 og hafið störf
hjá VW hafi þeir haft á brott með
sér rúmlega 4.000 síður af leyni-
legum upplýsingum um verð á um
110.000 bílahlutum. VW hefur
neitað öllum ásökunum.
Ef bandarískur kviðdómur tek-
ur afstöðu með GM og þýzka
dótturfyrirtækinu Opei munu
bandarísk lög um fjárglæfra, sem
eiga við í málinu, sjálfkrafa leiða
til þess að fjársektir verða þrefalt
meiri, þannig að svo getur farið
að VW verði að greiða tæplega
20 milljarða marka.
Málið rætt
á fundi WTO
Jafnframt segir efnahagsmála-
ráðherra Þjóðveija, Gunter
Rexrodt, að hann muni ræða mála-
ferli VW og GM við bandaríska
embættismenn á fundi Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar WTO á fundi
hennar í Singapore 7.-13. desem-
ber. Rexrodt sagði að fínna yrði
lausn, sem báðir aðilar gætu sætt
sig við.
Fyrri fréttir hafa hermt að GM
muni fara fram á skaðabætur á
bilinu 100 milljóir dollara til 7,5
milljarðar dollarar.
Forstjóri Opel, David Herman,
hefur sagt Reuter að ekki hafi
verið ákveðið hve miklar skaða-
bætur verði farið fram á.
Stern sagði að upplýsingamar
í málinu hefðu auðveldað VW að
skera niður árlegan kostnað um
fjóra milljarða marka og sparað
fyrirtækinu um 10% af 40 milljörð-
um marka, sem það verði til bíla-
hluta árlega.
GM heldur því fram að Jose
Ignacio Lopez de Arriortua fv.
innkaupastjóri hafi notað um-
ræddar upplýsingar til að minnka
innkaupakostnað Volkswagens
um 700 milljónir marka og gera
að engu yfirburði Opels vegna 20%
minni kostnaðar.
Frakkar hættir við
að selja Thomson
París. Reuter.
FRANSKA stjórnin hefur aflýst Skrifstofa Juppé forsætisráð-
umdeildri sölu rafeindaiðnfyrir-
tækisins Thomson SA, en segir
að nýjar viðræður um söluna geti
hafizt fljótlega.
Fyrir tæpum mánuði var
ákveðið að aflýsa sölu ríkisbank-
ans CIC.
Sölu Thomsons er aflýst á sama
tíma og Alain Juppé forsætisráð-
herra stendur sig illa í skoðana-
könnunum og vill komast hjá ann-
arri vinnudeilu í líkingu við verk-
fall vörubílstjóra.
Kóresk sala
óvinsæl
Franska fjármálaráðuneytið
sagði í yfirlýsingu að hætt hefði
verið við að selja Thomson Lagard-
ere Groupe vegna mótmæla gegn
fyrirætlunum um að selja raf-
eindatækjadeild fyrirtækisins suð-
ur-kóreska fyrirtækinu Daewoo
Electronics.
herra sagði að „ráðfæringar
mundu hefjast fljótiega í því skyni
að einkavæðing geti farið fram á
grundvelli sem verður ákveðinn
bráðlega."
Einnig sagði að einkavæðing
væri nauðsynleg til að Frakkar
réðu yfir rafeindatækni- og her-
gagnaiðnaði á heimsmælikvarða.
Grynnka þarf
á skuldum
Franck Borotra iðnaðarráð-
herra sagði að einkavæðing Thom-
sons og sérstaklega margmiðlun-
arfyrirtækisins TMM (Thomson
Multimedia) væri nauðsynleg
framtíð fyrirtækisins.
Borotra sagði að TMM þyrfti
að grynnka á skuldum, sækja inn
á nýja markaði og bæta sam-
keppnisstöðu sína til að eiga auð-
veldar með að nýta tæknigetu sína
og mannauð.
Stóra margmiðlunartölvan á tilboðsverði!
Trust Pentium 166
SoundWave 240 hátalarar
1280 Mli diskur
«Jölvukjör
verstun
heimíTanna
á-jr « r / r l/ r J /ri í- r\ r/ ^
pai| *
iVleiriháttar jólatilboð!
J.V/ III IJ bWU I I I ! I I I I I
€rn I * I IJ V II S W JIXJUIVUI l «1 lliuuua J
Faxafeni 5
108 Reykjavík
Sími 533 2323
Fax 533 2329
tolvukjor@itn.is
N V H £ R J 1 ' 0 E P E
Intel Triton HX kubbasett
15" PV litaskjár
16 bita hljóðkort
8 hraða geisladrif
Aðllns kr. 139.|00
Opið virka daga 12:00-18:30
fimmtudaga 12:00-22:00
og laugardaga 10:00-16:00