Morgunblaðið - 06.12.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 21
ERLENT
Reuter
Ferðafrelsi á ný
AUNG San Suu Kyi, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Búrma,
ávarpar liðsmenn lýðræðissam-
taka sinna á hátíðarsamkomu í
gær. Hún hvatti herforingjastjórn
landsins til að stuðla að þjóðar-
sátt með því að hætta að ofsækja
stjórnarandstæðinga. Stjórnvöld
settu upp vegatálma við heimili
Suu Kyi sl. mánudag vegna mót-
mælaaðgerða stúdenta gegn her-
foringjastjórninni og komu í veg
fyrir alla umferð að og frá hús-
inu. Var leiðtoginn og friðarverð-
launahafinn því í reynd í stofu-
fangelsi í nokkra daga en þessum
hömlum var aflétt í gær.
Sljórnvöld héldu Suu Kyi í
stofufangelsi í sex ár en í fyrra
fékk hún ferðafrelsi. Hún sagði í
gær að viðbrögð stjórnvalda til
að hindra andófið og störf sín
væru fáránleg. „Eins og þið vitið
eru vegatálmarnir ýmist á staðn-
um eða ekki," sagði hún frétta-
mönnum og bæti við að þótt þetta
væri óviðunandi væri ekki hægt
að neita því að þetta væri svolítið
fyndið. Suu Kyi hvatti í ávarpi
sínu til þess að ríki Samtaka Suð-
austur- Asiuríkja, ASEAN, neit-
uðu Búrma um aðild meðan her-
foringjarnir tröðkuðu á mann-
réttindum landsmanna.
Bjóðum ykkur velkomin
í breytta, glæsilega búð,
fulla af irýjum og fallegum
gj afavörum.
KOSTA BODA, Kringlunni, sími 568 9122
j
Blað allra landsmanna!
-kjarni málsins!
IDAG FOGNUM VIÐ
40 ARA AFMÆLI
í dag verða skrifstofur okkar og umboðsmanna
um land allt með opið hús í tilefni dagsins.
og þiggið kaffi og kökur.
TRYGGINGA-
MIÐSTÖÐIN HF.
Aðalstræti 6-8 • 101 Reykjavík • Sínii 515 2000