Morgunblaðið - 06.12.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 27
LISTIR
Jóhann G.
sýnir á
Argentínu
JÓHANN G. Jóhannsson mynd-
listar- og tónlistarmaður sýnir um
20 ný myndverk í Jakobsstofu
Argentínu steikhúss, Barónsstíg
lla, Reykjavík í tengslum við
„Jólaævintýri Argentínu" sem
hófst 28. nóvember s.l.
Öll verkin sem eru á sýning-
unni eru unnin á þessu ári. Sjö
verkanna voru á samsýningunni
„Myndlist + 4“ sem haldin var í
Stúdíói Bubba í október sl.
Jóhann hefur starfað jöfnum
höndum að myndlist og tónlist frá
því að hann hélt fyrstu einkasýn-
ingu sína 1971. Hann hefur hald-
ið ijölda einkasýninga og tekið
þátt í nokkrum samsýningum.
Hann hefur áður haldið tvær
einkasýningar í Argentínu steik-
húsi í tengslum við Lyst & List.
Jólatónleikar
í Grafarvogi
JÓLATÓNLEIKAR Tónlistarskól-
ans í Grafarvogi verða laugardag-
inn 7. desember í Grafarvogs-
kirkju.
Yngri deild kl. 10, eldri deild
kl. 11 og 14.
Allir velkomnir.
Ólöf sýnir í
Skotinu
NÚ stendur yfir málverkasýning
Ólafar R. Guðjónsdóttur í Skotinu,
Félagsmiðstöð aldraðra, Hæðar-
garði 31.
Ólöf er að mestu sjálfmenntuð í
myndlist og hefur málað frá því á
unga aldri. Hún hefur haldið einka-
sýningar í Bergen, Ósló, Jónshúsi
og í veitingahúsinu Tilverunni í
Hafnarfirði, einnig tók hún þátt í
samsýningu aldraðra í Ráðhúsinu
í Reykjavík 1993.
Á sýningunni eru eldri og yngri
verk, olía á striga, akrýl, vatnslitir
og blönduð tækni. „Upplifun á ís-
lensku landslagi, blómum og fólki,
náin skoðun myndefnis og tjáning
þess sem fyrir augun ber og ekki
verður sagt með orðum er það sem
Ólöf leitast við að fá fram í mynd-
um sínum“, segir í kynningu.
Sýningin stendur til 29. des-
ember og er opin alla virka daga
frá kl. 10-16.
Anna Leós
sýnir vatns-
litamyndir
ANNA Leós opnar sína fimmtu
myndlistarsýningu laugardaginn
7. desember kl. 14 í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
Anna sýnir 43 vatnslitamyndir,
sem allar eru unnar á þessu ári.
Áður hefur Anna haldið nokkrar
sýningar. Ráðhúsið er opið virka
daga frá kl. 8-19 en um helgar
frá kl. 12-18.
Nemendatón-
leikar í Lang-
hoitskirkju
TÓNSKÓLI Sigursveins D. Krist-
inssonar heldur tvenna nemenda-
tónleika um þessa helgi. Tónleikar
forskóladeildar verða í Langholts-
kirkju laugardaginn 6. desember
ki. 14. Þar koma fram u.þ.b. 150
nemendur í söng, Ieik og dansi og
flytja m.a. tónverkið Árstíðirnar
eftir John Speight.
Sunnudaginn 8. desember verða
svo tónleikar Suzukideildar kl. 14
í Fella- og Hólakirkju. Þar koma
fram 70 nemendur deildarinnar og
flytja íjölbreytta efnisskrá.
Állir velkomnir.
Konur lesa úr
verkum sínum
ÁRLEG bókmenntakynning
menningar- og friðarsamtaka ís-
lenskra kvenna verður á morgun
laugardag kl. 14 að Vatnsstíg 10,
en þar munu átta konur lesa úr
verkum sínurn.
Þær eru; Dagný Kristjánsdótt-
ir, Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún
Helgadóttir, Herdís Helgadóttir,
Hrafnhildur Valgarðsdóttir, Jó-
hanna Kristjónsdóttir, Vigdís
Grímsdóttir og Vilborg Dagbjarts-
dóttir.
euphorbia pulcherrima
Slaðsetning: Plantan þarf að njóta góðrar
birtu. Kjörhitastig er um
20°C.
Vökvun: Haldið moldinni rakri.
Áburðargjöf er ekki
nauðsynleg á blómgunar-
tímanum.
Athugið: Plantan er viðkvæm fyrir
dragsúg og kulda, því er
nauðsynlegt að söluaðilar
pakki henni vel inn fyrir
viðskiptavini sína.
Blómaframleiðendur
Húsgögn unnin úr
íslenskum rekaviði
FRANK Reitenspiess, þýskur
myndlistarmaður opnar sýn-
ingu á húsgögnum unnum úr
íslenskum rekaviði í gullsmiðju
og listmunahúsinu „Ofeigi“
Skólavörðustíg 5, laugardaginn
7. desember kl. 17.
Frank er búsettur hérlendis
og hefur undanfarið ár hannað
og smíðað húsgögn úr íslensk-
um reka. Hönnun þessi hefur
þá sérstöðu að ekki er um
fjöldaframleidda hluti að ræða,
hver hlutur er einstakur og
efnið í hann sérstaklega valið
af kostgæfni. Hann leggur
áherslu á að veðrað yfirborð
rekans njóti sín og kallar hrá-
leika efnisins ennfremur fram
með því að tefla saman ólíkum
efnum.
Hver hlutur hefur sína sér-
stöku sögu þrátt fyrir að vera
nýsmíðaður. Húsgögnin
eru sérsmíðuð og
númeruð.
Frank nam við
Myndlistahá-
skólann í
Berlín og hef-
ur tekið þátt í
samsýningum
hérlendis.
Sýningin er opin
á verslunartíma og
lýkur 23. desember
HEIMILI - HEILSA - BÆKl
OKKAR
FYRSTU M
KYNNI
TISKA 9
KONUR SEM j
SÖÐLUÐU UM
LÓFALESTUR
Ný þjónusu víð lesendur!
JOLASKRAU
Islendingar segja frá
f/rrverandi forseti íslands i einstöku viðtaii
Unnur Arngrimsdóttir og Felix Bergsson á ólíkum krossgötum
ÁRAMOTASPÁ AMY ENGILBERTS
GEKK EG YNR SJO OG
LAND...
fewSPOKTTOI
Heimsfrægir gönguskór!
SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 552 7425,
FAXAFENI 12 SÍMI 588 6600