Morgunblaðið - 06.12.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 31
Aðventutónleikar
í nýrri kirigu
Síðdegis-
stund í Skál-
holtsskóla
SÍÐDEGISSTUND verður í Skál-
holtsskóla sunnudaginn 8. desember
nk. þar sem fjallað verður um
„Mannlíf í Skálholti á 17. öld“. Stein-
unn Jóhannesdóttir rithöfundur talar
um „Tvær gamlar ambáttir austan
og vestan Skálholts" og Sigurður
Pétursson iektor talar um „Brynjólf
biskup og fólkið frá Bræðratungu".
I erindi sínu segir Steinunn sögu
sem hófst um miðjan júli 1627 er
sá atburður gerðist í Vestmannaeyj-
um sem síðan hefur verið kallaður
Tyrkjaránið. Þaðan var rænt á 300
manns, körlum, konum og börnum.
í hópnum voru meðal annars tvær
konur sem verða umræðuefni Stein-
unnar, þær Guðríður Símonardóttir
gift Eyólfi Sölmundarsyni sjómanni
og síðar Hallgrími Péturssyni og
Ásta Þorsteinsdóttir eiginkona séra
Ólafs Egilssonar í Ofanleiti. Báðar
konurnar voru í þeim fámenna hópi
sem átti afturkvæmt til íslands 10
árum síðar, en þá skildu leiðir. Báð-
ar náðu háum aldri og báðar tengj-
ast lokaþættinum í þeim fjölskyldu-
harmleik sem átti sér stað í Skál-
holti eftir miðja öldina. Daði Hall-
dórsson sem ekki fékk að eiga barns-
móður sína Ragnheiði biskupsdóttur
kvæntist dótturdóttur Ástu. Þegar
hann hafði hlotið uppreisn æru og
prestsvígslu sótti hann um að verða
aðstoðarprestur séra Hallgríms Pét-
urssonar í Saurbæ. Varð Daði til
þess að leiða saman þessar tvær
gömlu ambáttir á ný, spyr Steinunn
m.a. í erindi sínu.
I erindi sínu rekur Sigurður Pét-
ursson eftirfarandi sögu: Hinn 10.
febrúar árið 1631 léstGísIi Hákonar-
son lögmaður í Bræðratungu 48 ára
að aldri. Brynjólfur Sveinsson, síðar
biskup, dvaldist þá hjá foreldrum
sínum að Holti í Önundarfirði. Hafði
hann stundað nám í Kaupmannahöfn
en var enn embættislaus. Ekki er
vitað til þess að hann hafi verið Gísla
kunnugur en samt yrkir hann mikið
erfiljóð um hann á latínu. Við það
vakna ýmsar spurningar og þótt
ekki sé gerlegt að svara þeim öllum,
er víst að sú röð atburða sem hófst
með láti Gísla Hákonarsonar mark-
aði tímamót í lífi Brynjólfs. Sam-
skiptin við fólkið frá Bræðratungu
áttu eftir að verða mikil, og vinátta
héist með því og Brynjólfi allt til
æviloka hans 5. ágúst 1675 segir
Sigurður m.a. í erindi sínu.
Dagskráin hefst kl. 15. Að loknum
erindunum verður boðið upp á kaffi,
jólaglögg og smákökur. Síðan verða
fyrirspurnir og almennar umræður.
Verð er 800 kr. og eru veitingar
innifaldar í því.
AÐVENTUTÓNLEIKAR
Söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu 1996 verða
haldnir sunnudaginn 8.
desember, mánudaginn
9. desember og miðviku-
daginn 11. desmber og
hefjast þeir alla dagana
kl. 20.30.
Tónleikarnir verða
haldnir í hinni nýju
Grensáskirkju sem verð-
ur vígð fyrsta tónleika-
daginn. Flytjendur auk
söngsveitarinnar eru
Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópran og kammersveit.
Stjórnandi er Bernharð-
ur Wilkinson, raddþjálf-
ari Elísabet Erlingsdótt-
ir og píanóleikari á æf-
ingum Guðríðar St. Sig-
urðardóttir. Flutt verður
fjölbreytt dagskrá ís-
lenskra og erlendra tónverka
sem mörg tengjast aðventu og
jólum.
Tónleikarnir standa í rúma
Síðasta sýning--
arhelgi Tuktar
MYNDLISTARSÝNINGU 16
myndlistarmanna í fangelsinu við
Síðumúla 28, Tukt, lýkur sunnu-
daginn 8. desember. Sýningin hefur
vakið mikla athygli og hafa nú vel
á annað þúsund gestir lagt þangað
leið sína. Myndlistarmennirnir sýna
innsetningar og hefur hver þeirra
einn fangaklefa til umráða en auk
þess er fangelsið í heild til sýnis.
Sýningin er opin virka daga frá
16-20 og um helgar frá 14-18.
Aðgangseyrir er 200 krónur fyrir
16 ára og eldri, þar af renna 50
krónur til Verndar - fangahjálpar.
Dýr - Gripir og
indverskar
kvikmyndir
SAMSÝNING félaga í Listhúsi 39,
Strandgötu 39 í Hafnarfirði, verður
opnuð næstkomandi laugardag kl.
16-18. Þeir sem eiga verk á sýning-
unni eru; Aðalheiður Skarphéðins-
dóttir, Auður Vésteinsdóttir, Einar
Már Guðvarðarson, Elín Guð-
mundsdóttir, Guðný Hafsteinsdótt-
ir, Hjördís Frímann, Ingiríður Óð-
insdóttir, Lárus Karl Ingason, Mar-
klukkustund og eru aðgöngu-
miðar seldir í bókabúðinni Kilju,
Háaleitisbraut 58-60, hjá söngfé-
lögum og við innganginn.
grét Guðmundsdóttir, Pétur Bjarna-
son, Sigríður Erla Guðmundsdóttir,
Sigríður Ágústsdóttir og Súsanna
Christensen.
Við opnunina verður sýnt úr ind-
verskum söngvamyndum eftir leik-
stjórana og leikarana Kishore Kum-
ar og Raj Kapoori í tilefni af hátíð
ljóssins þar í landi.
Samsýningin „Dýr - Gripir"
stendur til 24. desember og er opin
á verslunartíma.
Jólasýning
Þjóðminja-
safnsins
Á NIKULÁSMESSU, föstudaginn
6. desember kl. 17. kveikir Vilborg
Dagbjartsdóttir rithöfundur og
kennari á jólatré í forsal Þjóðminja-
safnsins. Þá mun Vilborg segja frá
jólahaldi í bernsku sinni á Vestdals-
eyri.
Við það tækifæri verður opnuð
jólasýning safnsins í Bogasal þar
sem verða til sýnis leikföng þriggja
kynslóða. Leikföngin eru hluti af
safni sem Elsa E. og Þór Guðjóns-
son og fjölskylda afhentu Þjóð-
minjasafni íslands að gjöf nýlega.
Elsa starfaði um árabil við safnið
og var síðast deildarstjóri Textíl-
og búningadeildar.
í besta hugsanlega heimi
KVIKMYNPIR
Sagabíó
ÞRJÁR ÓSKIR
„Three Wishes“ ★ Vi
Leikstjóri: Martha Coolidge.
Aðalhlutverk: Patrick Swayze,
Mary Elizabeth Mastrantonio,
Joseph Mazzello og Michael O’Keefe.
Buena Vista International. 1996.
ÞEGAR Hollywood og sérstak-
lega Disney-kompaníið tekur á
vandamálum venjulegs amerísks
millistéttarfólks þarf einatt að not-
ast við sykursæt bætiefni. Vanda-
málin geta í sjálfu sér verið mjög
raunveruleg og harmurinn mikill
eins og í þessar nýjustu mynd
Patricks Swayzes, Þijár óskir, en
af því gullna reglan í Hollywood
gerir kröfu um farsælan endi er
ekkert að marka þau. Aldrei. Yngsti
sonurinn getur verið að deýja úr
krabbameini, faðirinn dáinn í
Kóreu, eldri sonurinn lagður í ein-
elti. En bíddu bara. Áður en þú
veist af er kominn flækingur og
einhvers konar andlegur kraftur inn
á heimilið í formi Swayze og hunds-
ins hans og þeir bókstaflega redda
öllu. Vandamálin verða að fantasíu.
Gerir myndin lítið úr öllu því fólki
sem á raunverulega um sárt að
binda? Sannarlega. Hver öfundar
ekki svona fjölskyldu. En Holly-
wood hefur aldrei kært sig sérstak-
lega mikið um þennan leiðinda
raunveruleika og fólkið sem þar býr.
Þijár óskir er a.m.k. ekki fyrir
þá sem eru kaldhæðnislegir efa-
hyggjumenn. Hún er fremur handa
nýaldarsinnum og er einn angi af
hinum kosmíska heilunaranda.
Leikstjóri myndarinnar, Martha
Coolidge, er yfirleitt ekki sérlega
væmin eða vondur leikstjóri heldur
þvert á móti með báða fætur á jörð-
inni. Þetta skref hennar inn í fanta-
síuna er því hliðarspor og alls ekki
í hennar feminíska anda. Hún reyn-
ir hvað hún getur að draga úr
væmninni í þessum besta hugsan-
- lega heimi en allt kemur fyrir ekki.
Myndin er gerð í útjöskuðum endur-
minningarstíl líklega til að ná öllum
gömlu góðu lögunum inn á hljóðrás-
ina og ýtir það nokkuð undir þann
falska veruleika sem hún byggir
á. Og lausnirnar eru með ólíkindum
einfaldar. Þær eiga miklu frekar
heima í einhverri Hollywood sem
var fyrir fimmtíu árum.
Swayze er orðinn andlegur gúrú
Hollywoodborgar eftir hann var
draugur í „Ghost". Flækingurinn -
eins konar Shane nýaldarinnar -
er fremur litlaus í smásærri túlkun
hans en Swayze getur sett upp
þjáningarsvip sem er engum öðrum
líkur. Móðirin er leikin af Mary
Elizabeth Mastrantonio og er í það
heila furðulega kát og hress miðað
vjð deyjandi son og látinn eigin-
mann. Eldri drengurinn er ágætlega
leikinn af Joseph Mazzello.
Sumt gengur vel upp eins og
lýsingin á feðraveldinu í hverfinu
og hvernig eldri drengurinn þráir
að falla inn í hópinn og notfærir
sér Swayze í þeim tilgangi. Stund-
um hittir myndin á eitthvað sem
er satt. En mest er hún lygi.
Arnaldur Indriðason
Sýningar fram-
lengdar í Lista-
safni Kópavogs
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja þijár sýningar í Listasafni
Kópavogs til sunnudagsins 15. des-
ember. Um er að ræða 70 ára af-
mælissýningu Ljósmyndarafélags
íslands í Austursal, en á henni eru
bæði myndir eftir ljósmyndara sem
störfuðu á fyrstu árum og áratug-
um félagsins og starfandi Ijósmynd-
ara.
I vestursal er sýning bresks lista-
manns, Alistair Macintyre, en verk-
in á henni vann hann þegar hann
dvaldist á íslandi um þriggja mán-
aða skeið veturinn 1995.
Loks er á neðri hæð hússins sýn-
ing Guðbjargar Pálsdóttur á sjö
skúlptúrverkum úr birkikrossvið og
járni.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 12-18.
Jólalista-
smiðja í Nor-
ræna húsinu
JÓLALISTASMIÐJA fyrir börn á
aldrinum 6-12 ára verður starf-
rækt í Norræna húsinu laugardag
7. og sunnudag 8. desember kl.
10-16 báða dagana.
Starfandi verða þrír hópar sem
skiptast í leiklist, myndlist og tölvu-
list. Viðfangsefnið tengist komu
jólanna og verður sótt til jólaguð-
spjallanna. Leiðbeinendur eru Elísa-
bet Brekkan, Guðbjörg Lind Jóns-
dóttir og Katrín Sigurðardóttir. Alls
verður pláss fyrir 18 börn hvorn
daginn og taka þau þátt í öllum
hópverkefnunum.
Sýning á verkum barnanna verð-
ur síðan sett upp í sýningarsal
Norræna hússins og opnuð sunnu-
daginn 15. desember, en þá verður
margt til skemmtunar í Norræna
húsinu í tilefni jólanna.
Þátttökugjald verður 300 kr. en
500 kr. ef matur er innifalinn. Veitt-
ur er afsláttur fyrir systkini. Þátt-
taka er bindandi.
Skráning fer fram í Norræna
húsinu hjá Árdísi eða Ingibjörgu.
Píanótónar
NÍNA Margrét Grímsdóttir heldur
kynningu á nýútkominni geislaplötu
sinni í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi, sunnudaginn 8. desem-
ber. Kynningin verður í formi
stuttra óformlegra tónleika og
spjalls um efni disksins.
Nína Margrét Grímsdóttir hefur
komið fram á einleiks- og kammer-
tónleikum í Evrópu, Bandaríkjunum
og Kanada. Platan sem kynnt verð-
ur í Gerðubergi er fyrsta geisla-
plata Nínu Margrétar, en á honum
leikur hún verk eftir Mozart og
Mendelssohn.
Dagskráin hefst kl. 15 og er
aðgangur ókeypis. Gestum gefst
kostur á að njóta veitinga á meðan
á kynningunni stendur, einnig verð-
ur hægt að festa kaup á plötunni
á sérstöku kynningarverði.
„8 plús 40
gera, 48“
SAMSÝNINGU 48 listamanna á
litlum myndum í Galleríi Fold við
Rauðarárstíg lýkur nú á sunnudag.
Sýningin nefnist 8 plús 40 gera 48,
en 8 karlar og 40 konur taka þátt
í henni. Myndirnar eru flestar nýjar
og hafa ekki verið sýndar áður.
Opið er í Galleríi Fold daglega
frá kl. 10-18, laugardaga frá kl.
10-17 og sunnudaga 14-17.
KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
UM GRAM GÆÐIN ÞARF ENGINN AÐ EFAST
OG VERÐIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ HAGSTÆÐARA.
ALLT AÐ 10.000 KR. VERÐLÆKKUN
Á EINSTÖKUM CERÐUM CRAM KÆLISKÁPA.
GRAM Ytri mál mm: Rými lítr. Staðgr.
gerð: B x D x H kæl.+fr. kr.
Kæliskápar án frystis:
K-130 550 x601x 715 116 39.990
K-155TU 550 x601x 843 155 47.490
KS-200 550x601x1065 195 48.440
KS-240 550x601x1265 240 53.980
KS-180TU 595 x601x 843 168 49.990
KS-300E 595x601x1343 271 56.990
KS-350E 595x601x1542 323 63.980
KS-400E 595x601x1742 377 71.970
Kæliskápar með frysti
KF-120 550 x601x 715 94 + 14 41.990
KF-135TU 550 x601x 843 109 + 27 48.980
KF-184 550x601x1065 139+33 48.980
KF-232GT 550 x601 xl 285 186+33 56.940
KF-263 550x601x1465 197 + 55 54.990
KF-245EG 595x601x1342 168 + 62 62.990
KF-355E 595x601x1742 272 + 62 69.990
KF-345E 595x601x1742 190 +133 79.990
Frystiskápar:
FS-100 550 x601x 715 77 39.990
FS-133 550 x601x 865 119 46.990
FS-175 550x601x1065 160 52.990
FS-150 595 x601x 900 131 48.970
FS-250E 595x601x1342 224 59.990
FS-290E 595x601x1542 269 69.990
FS-340E 595 x601 xl 742 314 78.990
Frystikistur:
HF-234 HF-348 800 x695x 850 1100 x695x 850 234 348 42.980 48.980
HF-462 1400 x695x 850 462 56.980
| HF-576 1700 x695x 850 576 72.980
FB-203 800 x695x 850 202 45.980
FB-308 1100x695x 850 307 52.990
(FB-gerðir hafa 75mm einangrun - orkusparandi)
EURO og VISA raðgreiðslur án útborgunar.
FRÍ HEIMSENDING - og við fjarlægjum
gamla tækið án aukakosnaðar.
/rQniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420