Morgunblaðið - 06.12.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 47
AÐSENDAR GREINAR
Hækkun sjálf-
ræðisaldurs leys-
ir engan vanda
I FYRRI grein
minni sýndi ég fram á
að hækkun sjálfræðis-
aldurs úr sextán árum
í átján tryggir ekki
vernd barna og ung-
menna betur en gert
er í dag. Einnig sýndi
ég fram á að ekki
hentar alltaf að sam-
ræma íslensk lög er-
lendum. I þessari
grein hyggst ég hrekja
þá röksemd fyrir
hækkun sjálfræðisald-
urs sem mest hefur
verið fjallað um í fjöl-
miðlum þ.e. að hún
auðveldi meðferð á
ungum fíkniefnaneytendum.
Leysir sjálfræðissvipting
fíkniefnavandann?
Sú napurlega staðreynd blasir
við þjóðinni að hluti íslenskra ung-
menna glímir við aivarleg vandamál
varðandi neyslu fíkniefna. Það er
eðlilegt að bregðast við slíkri stað-
reynd með ósk um að ungmenni
verði vernduð fyrir skaðlegum
áhrifum þess konar efna. Spurning-
in er því: Hvernig er best að hjálpa
ungmennum sem eiga við sh'k
vandamál að stríða og hindra að
aðrir leiðist út í neyslu fíkniefna?
Segja má að tvær leiðir séu færar.
Fyrri leiðin er sú einfaldari. Hún
felst í því að svipta íslensk ung-
menni sjálfræði og gefa þeim þann-
ig þá tilfinningu að þau beri enga
ábyrgð á lífi sínu. Þess í stað fram-
Ég bið þingmenn að
sýna ekki það pólitíska
getuleysi að taka undir
slíkar kröfur, segir
Elsa B. Valsdóttir í
þessari síðari grein
sinni gegn hækkun
sjálfræðisaldurs.
lengist ábyrgðarleysi æskunnar og
við sem eldri og „vitrari" erum
munum axla ábyrgðina fyrir þau.
Seinni leiðin snýst um traust og
ábyrgð fólks á eigin lífi. Hún felst
í því að treysta ungmennum til að
velja rétt þegar fíkniefni eru annars
vegar og hjálpa þeim til þess með
fræðslu og forvörnum.
Nauðungarmeðferð?
Með því að grípa til aðgerða eins
og þeirrar, að hækka sjálfræðisald-
ur, án þess að sýnt hafi verið fram
á að það muni skila einhverjum
árangri, erum við einungis að friða
okkar eigin samvisku. Það eru léleg
rök fyrir hækkun sjálfræðisaldurs
að hún sé nauðsynleg til að hægt
sé að skikka ungmenni í fíkniefna-
meðferð án tillits til vilja þess.
Meðferð sem byggist á nauðung í
stað samvinnu er ekki líkleg til að
skila árangri. Auk þess er þegar
heimild í íslenskum lögum til að
svipta einstaklinga sjálfræði stofni
þeir sjálfum sér eða
öðrum í hættu með
framferði sínu. Þetta
ákvæði er m.a. látið ná
yfir þá sem hafa skerta
dómgreind af völdum
neyslu vímuefna, jafnt
ungmenna sem ann-
arra einstaklinga.
Oþolandi
heimilisaðstæður
Því miður er hag
ungmenna ekki alltaf
best borgið á heimili
foreldra sinna. Óregla,
vanræksla og ofbeldi
hefur gert æsku of
margra að hreinu hel-
víti. Þeim, sem við slíkar aðstæður
búa, er enginn greiði gerður með
því að framlengja vistina. Þessu
hafa talsmenn hækkunar sjálfræð-
isaldurs svarað á þann veg að taka
verði sérstaklega á undantekning-
artilvikum sem þessum. Með því
kveða þeir sinn eigin málflutning í
kútinn: íslendingar á aldrinum 16
til 18 ára eru um ellefu þúsund'og
flestir þeirra eru heilbrigðir og
hraustir, sem betur fer. Það er und-
antekning en ekki regla að ung-
menni neyti fíkniefna og það er á
þeim undantekningartilvikum, sem
á að taka sérstaklega, í stað þess
að svipta heila kynslóð sjálfræði í
misskilinni tilraun til bjargar fá-
mennum hluta hennar.
Skyldur og réttindi
haldist í hendur
í fyrri grein minni nefndi ég
stuttlega þær skyldur sem að lögum
fylgja því að verða sextán ára og
sjálfráða. Ein þeirra er skattskyld-
an. Maður skyldi ætla að fylgis-
menn hækkunar sjálfræðisaldurs
legðu til að skyldur sem þessi
myndu falla niður samhliða sjálf-
ræðissviptingunni. Úr því að taka
ætti í burtu réttindi hlytu skyldurn-
ar að að fara sömu leið, enda eigi
einstaklingur, sem ekki er hæfur
til að ráða sínum dvalarstað eða
gera eigin vinnusamninga lengur,
varla að borga skatta. En nei, þetta
hefur enginn forræðishyggju-
sinnanna minnst einu orði á. Ung-
menni mættu áfram vera féþúfa
fyrir ríkissjóð þó að þau þyrftu jafn-
framt að þola sviptingu borgara-
legra réttinda sinna.
Pólitískt getuleysi
Fyrir Alþingi liggja nú þegar
frammi tvö frumvörp, frá Kvenna-
lista annars vegar og Þjóðvaka,
Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi
hins vegar, sem bæði fela í sér þá
réttindasviptingu ungmenna sem
hér hefur verið fjallað um. Við ger-
um ungu fólki engan greiða með
því að taka frá því lýðræðisleg rétt-
indi og ábyrgð á lífi sínu. Það er
einungis ódýr leið til að friða sam-
visku þeirra sem ekki geta á annan
hátt tekið á vandamálunum sem við
blasa. Eg bið þingmenn að sýna
ekki af sér það pólitíska getuleysi
að taka undir þessa kröfu.
Höfundur er formaður
Heimdallar, FUS.
Elsa B.
Valsdóttir
- Gœðavara
Gjafdvara — matar- og kaffistell.
Allir verdflokkar.
^GVIóv)y\V\V- VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versate.
Margfalt betri myndgæði
- það er á kristaltæru!
PHILIPS ryður brautina að fullkomnum
mynd- og hljómgæðum með tækninýjungum
eins og 100 riðum (hz), Digital Scan,
stafrænni leiðréttingu á mynd, Crystal Clear,
DNR myndsuðeyðir, Incredible Sound o.fl.
Þettu eru kannski torskilin hugtök
en árangurinn er öllum Ijós:
Flöktminni, hreinni og skarpari mynd
en þú hefur nokkurn tíma séð
og hljómur sem erhrein unun að upplifa!
PHILIPS 29" PT9131 PHILIPS 29" PT828
» Svartur, flatur Black line
Super Crystal Clear
myndlampi sem gefur allt að
35% meiri skerpu.
• 100Hz flöktfrí, stafræn
úrvinnsla á mynd.
• DigitalScan
• DNR (Digital Noise
Reduction) myndsuðeyðir.
■ 120W Dolby Pro-logic
heimabíómagnari með
bassa- miðju og
2 bakhátölurum
o.m.fl.
' Svartur, flatur Black line
myndlampi sem gefur allt að
35% meiri skerpu.
* lOOHzflöktfrímyndfyrirþá
kröfuhörðu
• Digital Scan
* DNR (Digital Noise
Reduction) myndsuðeyðir.
• 120W Pro-logic hljóðkerfi
með bassa- miðju og
2 bakhátölumm
o.m.fl.
PHILIPS 28" PT8702
• Svartur, flatur Black line
Super Crystal Clear
myndlampi sem gefur allt að
35% meiri skerpu.
• lOOHzflöktfrímyndfyrir þá
kröfuhörðu
• „Digital Scan“
• DNR (Digital Noise
Reduction) myndsuðeyðir.
• „Incredible sound“ stilling
og sér bassahátalari
o.m.fl.
PHILIPS 28" PT7302
• Svartur, flatur Black line
myndlampi sem gefur allt að
35% meiri skerpu.
• 100Hz flöktfrí mynd fyrir þá
kröfuhörðu
• DNR (Digital Noise
Reduction) myndsuðeyðir.
• „Incredible sound“ stilling
o.m.fl.
218.405 kr.stgr. I I 189.900 kr.stgr. I miniiiimna I 139.900 kr.stgr.
©
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
Umboðsmenn um land allt.
Fyrir þá sem spá í myndgæði: