Morgunblaðið - 06.12.1996, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996
AÐSEIMDAR GREIIMAR
MORGUNBLAÐIÐ
5x86133 MHz
16 MB vinnsluminni
Hraðvirkt 60ns, 72 pinna EDO minni
1620 MB Harður diskur
Mjög hraðvirkur Enhanced IDE, 9 ms,
15" Super VGA skjár
Tölvustýrður PnP, Energy Star, MPRII
8x hraða geisladrif
Play og skip takkar til að spila hljómdiska
Sound Blaster 16PnP
Stórgott hljóðkort.innbyggt FM útvarp
200 W Risa Hátalarar
Skila allri tónlist og hljóði óaðfinnanlega
k,129,900
5x86180MHz
16 MB vinnsluminni
Hraðvirkt 60ns, 72 pinna ED0 minni
1280 MB Harður diskur
Mjög hraðvirkur Enhanced IDE.10 ms
14" Super VGA skjár
Full screen PnP, Energy Star, MPRII
8x hraða geisladrif
Play og skip takkar til að spila hljómdiska
16 Bita PnP hljóðkort
Meö Wave uppfærslumöguleika
120 W Stórir Hátalarar
Góður kraftur og góð hljómgæði
».99,900
Tölvulistinn
Skúlagötu 61 • 105 RVK
Sími 562 6730
Hágöngfumiðlun
- óbyggðir í vörn
MORGUNBLAÐIÐ
hefur á undanförnum
mánuðum vakið athygli
á nauðsyn þess að
stefnumarkandi um-
ræður fari fram á Al-
þingi og meðal almenn-
ings um það hvemig
beri að standa að vernd-
un óbyggða og öræfa.
Fjöldi einstaklinga hef-
ur bent á að ef okkur á
að takast að lifa í sátt
og samlyndi við náttúru
landsins verði að brejrta
þeirri skilgreiningu á
hagsmunum okkar að
stundargræðgi fái að
ráða á kostnað um-
hverfís og mannlífs.
Ákvörðun skipulagsstjóra
höfð að engu
Nú hefur það gerst að umhverfis-
ráðherra hefur fellt úr gildi úrskurð
skipulagsstjóra ríkisins um að fram
fari nýtt mat á umhverfisáhrifum
vegna byggingar Hágöngumiðlunar.
Skipulagsstjóri ríkisins úrskurðaði að
svo mikið skorti á rannsóknir vegna
fyrirhugaðrar miðlunar að ekki væri
hægt að fallast á framkvæmdina,
ekki einu sinni með skilyrðum. Hing-
að til hefur gætt nokkurrar sjálf-
virkni í afgreiðslu svipaðra mála.
Samkvæmt lögum um mat á um-
hverfísáhrifum Ieggur framkvæmda-
raðili fram skýrslu um mat sitt á
umhverfisáhrifum til Skipulagsstjóra
ríkisins sem ákveður hvort heimila
skuli framkvæmdina, hafna henni,
eða leyfa með tilteknum skilyrðum.
Almenningi og fagaðilum gefst kostur
á að gera athugasemdir við skýrsl-
una. Þar til nú hefur
skipulagsstjóri fallist á
nær allar óskir fram-
kvæmdaraðila og um-
hverfisráðherra staðfest
þá úrskurði athuga-
semdalaust.
Náttúran
alltaf í vörn
Umræður um eignar-
hald á hálendinu og
framtíðarskipan þess
með tilliti til vaxandi
umferðar ferðamanna
um óbyggðirnar hafa
ekki leitt til neinnar nið-
urstöðu, því miður.
Smæð íslensku þjóðar-
innar hefur gert það að verkum að
okkur hefur enn ekki tekist að menga
umhverfí okkar óbætanlega eða gjö-
reyða dýralífi cg skóglendi svo að
ekki verði til baka snúið. En við ger-
um okkar besta. Skotveiðimenn ösla
um óbyggðirnar og skjóta það sem
til næst, árnar eru ofveiddar og sum-
staðar mengaðar og viðkvæm nátt-
úra landsins er særð svöðusárum sem
aldrei gróa. Vegna skuldbindinga
okkar við evrópska efnahagssvæðið
voru sett lög um mat á umhverfis-
áhrifum sem kveða meðai annars á
um að tilgreint skuli á viðeigandi
hátt bein og óbein, jákvæð og nei-
kvæð, skammtíma og langj;íma, aft-
urkallanleg og óafturkallanleg áhrif
sem fyrirhuguð starfsemi hefur t.d.
á dýr og plöntur, jarðmyndanir og
landslag. Rannsóknir á lífríki þess
svæðis sem Hágöngumiðlun á að
þekja liggja ekki fyrir og skipulags-
stjóri úrskurðaði að þær skuli fara
fram áður en ráðist verður í fram-
Jón
Kjartansson
$ # $
• • •
SH UTILIF Hffl
G LÆSIBÆ . SlMI BB1 2022
Úlpur, kr. 7.895 - 9.795,-. Treyjur, (úr pile) kr. 3.895 - 4.195,-
Húfur, kr. 1.150 - 2.295,-. Fingravettlingar, kr 1.250 -1.295,-
Treflar, kr. 1.095,-
Stæröir: 4-16
Það á ekki að breyta
farvegi fallvatna eða
sökkva hálendinu, segir
Jón Kjartansson, til
þess eins að uppskera
spúandi málmbræðslur.
kvæmdina. Embætti skipulagsstjóra
hefur einnig bent á það að fleiri
kostir séu mögulegir og má í því
sambandi benda á þá meginreglu
stjórnsýslulaga sem kveður á um að
stjórnvaldi sé ávallt skylt að velja
það úrræði sem vægast er. Umhverf-
isráðherra lætur sér nægja að „ás-
ættanleg" vitneskja liggi fýrir um
áhrif framkvæmdarinnar. Það er
ekki ábyrg stjómsýsla.
Víkingslund ráðamanna
Með fyrirhyggjulausum fram-
kvæmdum og þeirri skilgreiningu að
peningasjónarmið fái að ráða á
kostnað náttúrunnar verða mistök
gerð sem aldrei verður hægt að
bæta. Sú tæknihyggja sem virðist
ráða ákvörðunartöku stjórnmála-
manna er óábyrg. Hinn mikli
frmkvæmdamaður og mannvinur
Thor Jensen komst svo að orði árið
1925: „Þeir, sem hingað komu og
slógu eign sinni á þetta land og reistu
hér byggðir og bú, voru víkingar í
eðli sínu og uppruna. Með víkings-
lund slógu þeir eign sinni á landið.
Með víkingslund létu þeir greipar
sópa um hin upprunalegu gæði fjall-
konunnar. Þeir fundu landið með víð-
lendum skógum og víðáttumiklum
graslendum. Þeir tóku landið til nota,
en ekki til ræktunar. Þeir eyddu,
brenndu og spilltu gróðri og ftjó-
magni jarðarinnar, svo að nú eru
víða sandauðnir, melar og blásin
börð, þar sem áður voru grösugar
lendur.“
Hollt væri hveijum þeim sem tek-
ur endanlega ákvörðun um tiltekna
framkvæmd sem framkajlar óaftur-
kallanleg áhrif á náttúru íslands sem
við fengum í vöggugjöf að hafa þessi
spakmæli heimsmannsins að leiðar-
ljósi. Þess vegna á ekki að breyta
farvegi fallvatna eða sökkva hálend-
inu undir uppistöðulón til þess eins
að tryggja spúandi málmbræðslum
orku. Við skulum vera fyrirmynd
þeirra sem taka landið til ræktunar
en ekki nota.
Höfundur er bóndi.
Helgarpósturinn
o g krabbameins-
læknirinn
SKAÐSEMI tóbaks
og áhrif óheftari versl-
unar með tóbak var
viðfangsefni tveggja
nýlegra tölublaða Hel-
garpóstsins, 44. tbl. og
46. tbl. í seinna tölu-
blaðinu var rætt við
Þórarin E. Sveinsson
yfirlækni krabba-
meinsdeildar Land-
spítala _ og stjórnar-
mann í ÁTVR. Viðtalið
við Þórarin var lesið
fyrir hann áður en
blaðið fór í prentun. í
grein í Morgunblaðinu
28. nóv. sl. segir Þór-
arinn að „fyrirsögn og
inngangur fréttarinnar var í engu
samræmi við innihald hennar“.
Fyrirsögn fréttarinnar var: „Vill
afnema einkasölu ríkisins á tób-
aki.“ í Morgunblaðsgreininni stað-
festir Þórarinn fyrirsögnina: „Á
þeim níu mánuðum sem ég hef
starfað í stjóm ÁTVR hefur sú
skoðun mín styrkst að ríkið eigi
að hætta innkaupum og heildsölu-
dreifingu tóbaks.“ Að svo miklu
leyti sem inngangur og yfirfyrir-
sögn fréttarinnar i Helgarpóstinum
voru ekki orðrétt ummæli Þórarins
sjálfs var vakin athygli á að af-
staða Þórarins til óheftari tóbaks-
verslunar er á skjön við samþykkt-
ir krabameinsfélaganna. í Morgun-
blaðsgreininni nefnir Þórarinn
þessar andstæður ekki einu orði.
Rök Þórarins fyrir óheftri tób-
aksverslun eru markaðspólitísk;
ríkisstofnun eins og ÁTVR ætti
ekki að vasast í innflutningi og
dreifingu á tóbaki. Heilbrigðisrök
hníga aftur í þá átt að ríkissjóður,
eða opinber stofnun eins og ÁTVR,
skuli sjá um tóbaksinnflutning og
sölu. Takmarkandi aðgerðir til að
draga úr neyslu tóbaks leiða óhjá-
kvæmilega til fjárhagslegs tjóns
fyrir þá aðila sem höndla með
þessa vöru. Af leiðir að því fleiri
sem hagnast á tóbaksinnflutningi
og sölu því erfiðara verður að tak-
marka neysluna. Á meðan ríkis-
sjóður er stærsti aðilinn á þessum
markaði er auðveldara að kalla
almannavaldið til ábyrgðar og fá
það til að stemma stigu við neyslu
tóbaks.
Á forsíðu Helgarpóstsins var
viðtalið við Þórarin kynnt undir
eftirfarandi fyrirsögn:
„Krabbameinslæknir
vill auðvelda aðgang
að tóbaki.“ Fyrirsögn-
in er ályktun af skoð-
unum Þórarins. Ef
tóbaksinnflutningur,
sala og dreifing verður
alfarið færð í hendur
einkaaðila er eins víst
og nótt fylgir degi að
hagsmunaaðilar munu
gera það sem í þeirra
valdi stendur til að
auka söluna. Fjár-
munir sem áður voru
hjá ÁTVR yrðu rekstr-
arfé innflutningsfyrir-
tækja. Með margvís-
legri kynningu, auk auglýsinga
sem lög og reglur leyfa, yrði sá
þröskuldur lækkaður sem fólk þarf
að fara yfir áður en það fær sér
reyk. Flestir vita um þá heilsufars-
legu áhættu sem þeir taka með
reykingum. Markmið tóbaksfram-
leiðenda er að telja fólki trú um
að eftirsóknarvert sé að neyta tób-
Rök Þórarins gegn
óheftri tóbaksverzlun,
segir Páll Vilhjálms-
son, eru markaðs-
pólitísk.
aks og fá það til að taka áhætt-
una. Aðgangurinn að tóbaki verður
auðveldari eftir því sem það þykir
sjálfsagðara að reykja, eftir því
sem það verður sjálfsagðari þáttur
í lífsháttum okkar. Auglýsingar
tóbaksframleiðenda hafa nánast
ekkert upplýsingagildi, enda eiga
þær að búa til ímynd sem læknis-
fræðin veit að er fölsk; að heii-
brigði og reykingar fari saman.
Hugmyndir Þórarins um einka-
væðingu ÁTVR stuðla að aukinni
neyslu tóbaks. Það er fréttnæmt
þegar krabbameinslæknir er í þess-
ari stöðu og út á það gekk frétt
Helgarpóstsins. í stað þess að
agnúast út í Helgarpóstinn ætti
Þórarinn að velta fyrir sér hugtaki
sem heitir mótsögn.
Höfundur er ritstjóri
Helgarpóstsins.
Páll
Vilhjálmsson