Morgunblaðið - 06.12.1996, Síða 64
34 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Ljóska
Ferdinand
WEY, I HEAR^/fiR5T YOUR C0L0RIN6/ PLACE BOOK WON IN FIR5T PlAŒ^j^WHAT?^ THE TEACHER ENTEREP YOUR PICTURE5IN THE C0L0RIN6 C0NTE5T, AhlD Vni) IijnN' I DIDN T C0L0R ANh' PICTURE5ÍÍ I KEEP TELLIN6 _JTHEM THATÍ^
^
Ég heyri að Fyrsta Kennarinn sendi Ég litaði ekki nein-
litabókin þín sæti í myndirnar þínar ar myndir! Ég er
Hann er hund-
urinn þinn,
Ég þoli
þetta ekki.
sé í fyrsta hverju?
sæti.
í litasamkeppn- alltaf að segja
ina og þú vannst! þeim það!
Kalli Bjarna.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Um „tjónabíla“
Frá Birni Péturssyni:
í MORGUNBLAÐINU 28. nóvem-
ber sl. birtist lesendabréf frá
Bjarna Þór Gylfasyni, þar sem
fjallað er um „tjónabíla“ og jafn-
framt um siðferði mitt í viðræðu
við blaðamann DV sem hringdi
fyrir nokkru og spurði um bílasölu-
mál.
Niðurlagi bréfs Bjarna Þórs vil
ég svara með því að biðja hann
að lesa aftur það sem hann tekur
orðrétt úr DV-viðtalinu .. að
tryggingafélag tekur ekki við bíl
nema bíllinn verði fyrir altjóni eða
svo miklu að ekki þyki borga sig
að geta við hann“. Hér er að sjálf-
sögðu verið að íjalla um þann rétt
tryggingafélaga að ákvarða sjálf
hvort hagstæðara sé að kaupa bíl
af tjónþola eða bæta tjónið með
viðgerð og því fráleitt að túlka orð
mín svo, að allir bílar sem trygg-
ingafélög kaupi séu gjörónýtir.
Ef Bjarni Þór hefði nú haft fyr-
ir því að hringja sjálfur og kynna
sér skoðanir mínar á „tjónabílum"
í stað þess að gera mér upp
skoðanir og þekkingarskort efa ég
að iiann hefði drepið niður penna
og ritað umrætt lesendabréf.
Það er staðreynd að svokallaðir
„tjónabílar" eru verðminni og ann-
markar eru á sölu þeirra, t.d. til
bifreiðaumboða sem uppítökubif-
reiðar í nýjar. En hver er orsökin?
Ef „tjónabílar“ færu eingöngu í
hendur fagmanna væri þetta ekki
staðreynd. Astandið er fyrst og
fremst tilkomið vegna þess að
hver sem er getur keypt „tjónabíl“
og gert við hann að vild með til-
liti til gæða og kostnaðar. Ekki
má heldur gleyma því að alltaf er
talsvert um að bílar lendi í tjóni
sem ekki fæst bætt (m.a. vegna
óréttar í umferðinni) og þessir bíl-
ar fara gjarnan „heim í skúr“ og
þar er reynt að gera við á sem
ódýrastan hátt og oft af vangetu
og skorti á fagþekkingu.
„Tjónabíll“ sem fengið hefur
fullnægjandi viðgerð af fagmanni,
er yfirleitt jafngóður og annar
sambærilegur. Það er hörmulegt
að „fúskarar eða bílabraskarar"
hafa í raun skaðað orðstír og hag
fagmanna eins og staðreynd er.
I starfi mínu hjá Félagi ís-
lenskra bifreiðaeigenda hefi ég
kynnst alltof mörgum dæmum þar
sem fólk hefur orðið fyrir barðinu
á óprúttnum seljendum „tjóna-
bíla“. Tjónið hefur verið sagt
„smávægilegt“ en reynst mikið og
viðgerð síðan ófullnægjandi. Fé-
lagið hefur haft á stefnuskrá sinni
að allir bílar sem verða fyrir miklu
tjóni verði sérskoðaðir og gengið
úr skugga um að þeir hafi fengið
fullnægjandi viðgerð og faglega
skoðun að henni lokinni, áður en
þeir fari út í umferðina á ný.
Við skulum taka saman hönd-
um, fagmenn, bílasalar og bif-
reiðaeigendur og reyna að færa
það ástand sem ríkir í ásættanlegt
horf.
BJÖRN PÉTURSSON,
starfsmaður FÍB.
Skrekkur og
Hagaskóli
Frá Flosa Kristjánssyni:
í MORGUNBLAÐINU hinn 3.
desember er örstutt grein, rituð
af nemanda í Arbæjarskóla, þar
sem leitt er að því getum að nem-
endur Hagaskóla hafi haft sig
mjög í frammi með ólátum á
Hæfileikakeppni grunnskólanna
hinn 21. nóvember síðastliðinn.
Rétt mun vera hermt að hávær
mótmæli brutust út er dómnefndin
tilkynnti niðurstöðu sína. Viðstödd
börn létu ýmsu lauslegu rigna yfir
leiksviðið til að tjá andstöðu sína
við úrslitin. Vi.rðist sem þeim hafi
ekki verið ljóst að það var hlut-
verk dómnefndar að meta, út frá
sínum eigin forsendum, hver atrið-
anna væru verðugust að skipa
efstu sætin.
Hátt í tvö þúsund unglingar
voru í Laugardalshöllinni þennan
dag og meðal þeirra voru um það
bil 250 nemendur úr Hagaskóla.
Þeir sátu aftarlega á áhorfendap-
öllunum og létu vísast sitt ekki
eftir liggja í hávaðamyndun.
Ritari áður nefnds bréfs telur
að mjög mikið hafi borið á hávaða
frá Hagaskólanemendum og er
þetta fyrsta og eina ábending í
þá veru sem félagsstarfskennurum
í Hagaskóla hefur borist um mál-
ið. Forsvarsmenn keppninnar hafa
ekki haft eitt einasta orð um
slæma framkomu okkar barna við
þetta tilefni.
Mun þess nú verða freistað að
ganga úr skugga um sannleiks-
gildi fram kominna ásakana og
gera viðeigandi ráðstafanir til að
koma í veg fyrir að meint ólæti
verði aftur höfð í frammi. Enn
fremur munum við kappkosta, hér
eftir sem hingað til, að styðja við
bakið á þeim nemendum okkar
sem leggja í það mikia vinnu og
sköpun að búa til frumsamin atr-
iði til að bera fram á hæfileika-
keppni grunnskólanna.
Virðingarfyllst,
FLOSI KRISTJÁNSSON,
foreldri í Vesturbæ og kennari í
Hagaskóla.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.