Morgunblaðið - 21.12.1996, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 49
I
I
>
Jólapakkaskákmót Hellis á sunnudag
Yfir 300 þátttakendur á
grunnskólaaldri hafa
skráð sig á mótið
» TAFLFELAGIÐ Hellir stendur fyrir
svokölluðu Jólapakkaskákmóti
| sunnudaginn 22. desember kl. 14.
Mótið verður haldið í Þönglabakka
1, efstu hæð, en fyrirhugað er að
Hellir flytji starfsemi sína þangað
eftir áramótin.
Yfir 300 krakkar hafa þegar
skráð sig á mótið, en aðgangur er
ókeypis meðan húsrúm leyfir. Þetta
er því eitt fjöimennasta skákmót
| sem haldið hefur verið hér á landi.
* Rétt til þátttöku hafa allir 15 ára
£ og yngri.
Keppt verður í fjórum flokkum:
Flokki fæddra 1981-1983, flokki
fæddra 1984-5, flokki fæddra
1986-7 og flokki fæddra 1988 og
síðar. Tefldar verða 5 umferðir með
10 mínútna umhugsunartíma á
mann.
Jólapakkar eru í verðlaun fyrir
þijú efstu sætin í hverjum flokki.
Auk þess verður happdrætti um 3
jólapakka í hveijum aldursflokki
fyrir sig. Mótið tekur um 3 klst.
Athugið að mótið fer fram í
Þönglabakka 1, efstu hæð. Sami
inngangur og hjá Bridssambandinu
og Keilu í Mjódd.
Aukatónleikar
Emilíönu og
Páls Óskars
VÍFILFELL og Háskólabíó hafa
ákveðið að bæta við aukajólatón-
| leikum kl. 23 laugardaginn 21.
desember vegna mikillar aðsóknar
að þeim fyrri. Emilíana og Páll
Óskar syngja og leika hvort í sínu
lagi efni af nýútkomnum plötum
sínum.
Miðaverð er 550 kr. og rennur
ágóðinn af tónleikunum til Mæðra-
styrksnefndar. Forsala fer fram í
Japis-búðunum og Háskólabíói.
FRÉTTIR
Nýju sólári
fagnað
NOKKRIR áhugamenn sem nefna
sig Nýsýnarhópinn vilja vekja at-
hygli á að nýtt sólár hefst laugardag-
inn 21. desember, á vetrarsólstöðum,
með sólstöðumínútunni kl. 14.06 og
skjóta á loft flugeldi í Grófinni í
Reykjavík þar sem sagnir herma að
verið hafi lendingarstaður fyrstu
landnámsfjölskyldunnar en frá hafn-
argerðinni 1913-1917 hefur hann
verið kaffærður með gijóti, möl og
malbiki, segir í fréttatilkynningu.
Á vetrarsólstöðum er sólin að
hækka á ferli sínum miðað við jörð.
Þá vill hópurinn vekja athygli á að
Gunnar Marel, eigandi langskipsins
íslendings, hyggst færa það í naust
inn í Elliðaárvogi ef hægt verður
vegna veðurs og íslaga en hann legg-
ur frá landi úr Suðurbugt í Reykja-
víkurhöfn kl. 15 á laugardaginn.
Gjaldsvæði 3 án
gjaldskyldu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að bílastæði
sem tilheyra gjaldsvæði 3 í miðborg
Reykjavíkur, það er að segja á Mið-
bakka, Ingólfsgarði, Skúlagötu 4-6
og við Landakot, verði án gjaldskyldu
laugardaginn 21. desember 1996.
Um leið er athygli vakin á því að
eftir sem áður þarf að greiða venju-
legt tímagjald fyrir afnot annarra
gjaldskyldra stöðumæla og á miða-
stæðum á umræddum tíma.
Þá er bent á að afnot bílastæð-
anna í bílahúsunum í miðborginni eru
áfram um óákveðinn tíma án endur-
gjalds á verslunartíma á laugardög-
um, eins og verið hefur frá því í maí
1995.
Upplýsingar um það hvaða gjald-
svæði miðamælar tilheyra er að finna
á þeim sjálfum en við bílastæðin á
gjaldsvæði 3 eru jafnframt skilti með
áletruninni P.
■ FÉLÖG ungra sjálfstæðis-
manna i Reykjavík, Garðabæ,
Hafnarfirði, Kópavogi, Mos-
fellsbæ og á Seltjarnarnesi
halda sameiginlegt jólaknall.
Gleðin verður í húsi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, Valhöll, og
hefst kl. 22. Húsið hefur nú verið
endurnýjað að innan og öll að-
staða til skemmtanahalds orðin
mun betri en áður var, til dæmis
eru komin ný hljómflutningstæki
í kjallarann.
í
!
J
j
I
.1
I
J
4
i
■J
4
i
0
4
i
4
4
Leigubifreiðastjórar
Atvinnuleyfishafar með starfsleyfi á
Stór-höfuðborgarsvæðinu óskast
á Bifreiðastöð Hafnarfjarðar.
Sími 555 0 888
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðing vantar sem fyrst til starfa
vegna forfalla. Um er að ræða 50% starf.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
í síma 554 0400.
Heilsugæslustöð Kópavogs.
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóri óskast á nótaskip.
Vélarstærð 810 kw.
Upplýsingar í síma 481 1104.
Isfélag Vestmannaeyja hf.
Garðabær
Fræðsiu- og menningarsvið
Skóiadeild
Hofsstaðaskóli
- kennari -
Vegna forfalla er óskað eftir kennara í tvo
mánuði, janúar og febrúar 1997, við Hofs-
staðaskóla í Garðabæ.
Starfið er almenn bekkjarkennsla.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 565 7033.
Grunnskólafulltrúi.
Hótel Eyjaferðir
Til sölu er Hótel Eyjaferðir í Stykkishólmi sem
í eru 14 gistiherbergi, flest með baði. Hótel-
ið er á einum vinsælasta ferðamannastað
landsins og er mikið bókað fyrir næsta sumar.
Öll viðskiptasambönd fylgja með í sölu, auk
þess sem Eyjaferðir bjóða kaupanda sér-
samninga í siglingum sínum, en fyrirtækið
hefur stóraukið skipakost sinn nýlega.
Lóð gistihússins býður upp á mikla stækkun-
armöguleika.
Nýlega hefur fundist mikið magn af heitu vatni
við Stykkishólm, sem á eftir að auka vinsæld-
ir staðarins til mikilla muna í framtíðinni.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu Eyjaferða.
Eyjaferðir,
Aðalgötu 2, Stykkishólmi,
sími 438 1450.
Skipstjórafélag íslands
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Borgar-
túni 18, 3. hæð, laugardaginn 28. desember
nk. kl. 14.00.
Stjórnin.
Verkamannfélagið Dagsbrún og
Verkakvennafélagið Framsókn
halda jólatrésskemmtun í Borgartúni 6,
4. hæð (Rúgbrauðsgerðin), sunnudaginn 29.
desember nk. kl. 15.00
Gengið kringum jólatré og sungið, jólasvein-
ar koma í heimsókn og boðið verður upp á
góðar veitingar fyrir börn og fullorðna.
Miðaverði er stillt í hóf, kostar 300 kr. fyrir
börn, frítt fyrir fullorðna.
Miðasala er á skrifstofum félaganna.
Skrifstofa Dagsbrúnar er í Skipholti 50D,
2. hæð, og skrifstofa Framsóknar er í Skip-
holti 50C, 1. hæð. Opið er frá kl. 9.00 til
17.00 alla virka daga.
Vélstjórafélag íslands
Aðalfundur
Vélstjórafélag íslands boðar til aðalfundar
laugardaginn 28. desember 1996 kl. 14.00.
Fundurinn verður haldinn í Brautarholti 30,
3. hæð, Reykjavík.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Léttar veitingar í boði að loknum fundi.
Fundur vélstjóra
á farskipum
verður haldinn í Borgartúni 18, 3. hæð, föstu-
daginn 27. desember kl. 14.00.
Fundurvélstjóra
á fiskiskipum
verður haldinn í Borgartúni 18, 3. hæð, föstu-
daginn 27. desember kl. 17.00.
Mannlíf og saga
Ritröðin Mannlíf og saga í Þingeyrar- og
Auðkúluhreppum hinum fornu fæst hjá okkur.
Mál og menning,
Laugavegi 18.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2S33
Frá Ferðafélagi íslands
Sunnudagur 22. desember
kl. 10.30
ESJA - sólstöðuganga frá Esju-
bergi upp á Kerhólakamb (856
m). Fólk á eigin bílum velkomið
með. Ath. að klæðast skjólgóð-
um flíkum. Verð kr. 1.000.
Brottförfrá Umferðamiðstöðinni,
austanmegin, og Mörkinni 6.
31. des. - 2. jan. (3 dagar)
Þórsmörk - áramótaferð F.l.
Brenna, kvöldvökur, gönguferö-
ir. Áramót í óbyggðum eru
spennandi ævintýri. Ósóttir mið-
ar seldir eftir jói.
Ferðafélag fslands óskar félags-
mönnum og farþegum gleði-
legra jóla og þakkar ánægjuleg
samskipti.
Ferðafélag íslands.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.