Morgunblaðið - 13.03.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 5
FRÉTTIR
Ung hjón misstu aleiguna með Dísarfellinu
„Sakna mest myndanna“
UNG íslensk hjón, Helga Lárus-
dóttir og Arnar Már Ólafsson,
sem eru nýflutt til Þýskalands
ásamt tveimur ungum dætrum
sínum misstu aleiguna þegar Dís-
arfellið fórst, en búslóð þeirra var
í gámi um borð. Sjálf fóru þau út
í byijun febrúar en þar sem þau
fá ekki íbúð fyrr en nú um miðjan
mars, fluttu þau inn í bráða-
birgðahúsnæði.
„Þetta var eiginlega allt sem
við áttum - nema stelpurnar okk-
ar tvær. Það var verst fyrsta dag-
inn en nú er þetta ekkert mál.
Ég held að maður geti ekki verið
að gráta þessa hluti. Ég sakna
mest myndanna og annarra per-
sónulegra muna en það þýðir auð-
vitað ekkert að vera að velta sér
upp úr því. Þetta eru mestallt
hlutir sem hægt er að bæta,“ seg-
ir Helga.
Arnar Már starfar sem golf-
kennari hjá klúbbi í bænum Haren
í norðvesturhluta Þýskalands,
rétt við hollensku landamærin.
Síðan þau komu út hafa þau dval-
ið í orlofsibúð, þar sem allur hús-
búnaður fylgir, en þau flytja á
næstu dögum í nýtt hús. Þeim
hefur verið lofað að tryggingarn-
ar skili sér innan hálfs mánaðar.
Spurð um fyrstu viðbrögð við
fréttunum segir Helga að auðvit-
að hafi sér orðið mjög illa við.
„Bróðir Arnars, sem hafði raðað
í gáminn og sent hann af stað,
hringdi í okkur í hádeginu á
sunnudaginn og leyfði mér að
hlusta með sér í símanum á frétt-
irnar í útvarpinu. Fyrst var þetta
auðvitað áfall, þangað til ég fór
að hugsa hvað væri verðmætt í
raun og veru.“
HELGA Lárusdóttir og Arnar Már Ólafsson á góðri stundu síð-
astliðið sumar.
Sýni vegna
skelfiskof-
næmis könn-
uð erlendis
Þórshöfn. Morgunblaðið.
KÚFISKVINNSLA hófst hjá
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
síðla hausts í fyrra og hafa nokkr-
ir byrjunarörðugleikar komið fram
við vinnslu.
í samtali við Pál Matthíasson,
heilsugæslulækni á Þórshöfn, kom
fram að starfsfólk í kúfiskvinnsl-
unni hefur fengið öndunarfæraein-
kenni við vinnu sína þar en slíkt
er ekki með öllu óþekkt við vinnslu
skelfísks. Samkvæmt beiðni Páls
komu á staðinn nú í vikunni lækn-
ir frá Vinnueftirlitinu og hjúkrun-
arfræðingur frá Vífilsstöðum og
voru tekin sýni úr starfsfólki kú-
fiskvinnslunar en vinnsla var þá í
gangi. Sýnin verða ekki greind
hérlendis heldur send út og óvíst
hvern tíma það tekur.
Að sögn heilsugæslulæknisins,
Páls Matthíassonar, er Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar öll af vilja gerð
til að leysa vandann. „Loftræsting
var aukin, fyllsta öryggis er gætt
og eins vel staðið að málum og
hægt er,“ sagði Páll ennfremur.
Koma fagfólksins frá Vinnueftir-
litinu er því einn þátturinn í því
að greina vandamálið í kúfisk-
vinnslunni.
Reykjavíkurborg
Rafiðnaðar-
menn sam-
þykktu
samning
RAFIÐNAÐARMENN hjá
Reykjavíkurborg samþykktu
í gærmorgun leiðréttan kja-
rasamning við borgina.
Samningurinn hafði áður ver-
ið borinn undir atkvæði á
fundi á þriðjudag og þá felld-
ur með eins atkvæðis mun.
Samkvæmt upplýsingum
Rafiðnaðarsambandsins kom
fram á fyrri fundinum að
ákvæði um nema væru ekki
rétt í samningnum. Akveðið
var að samninganefnd færi
og fengi þau leiðrétt og stóðu
samningafundir fram eftir
þriðjudagskvöldi.
Á fundi kl. 8 á miðviku-
dagsmorgun var samningur-
inn svo borinn aftur upp eftir
leiðréttingar. Atkvæði
greiddu 83 eða 79% af þeim
sem voru á kjörskrá. 58 sögðu
já, eða 69,8%, 23 sögðu nei
eða 27,8% en 2 seðlar voru
auðir.
!
i
í
I
i
I
i
i
i
!
í
!
Reykjavík - Akureyri
Páskaliljur (silki)
Oflv t
Blómaval Sigtúni og Sælgætisgerðin
Móna hafa tekið höndum saman
og opnað Páskaland fyrir „böm“
|Í á öllum aldri. Sannkallaður
ævintýraheimur páskanna með
páskaeggjum, lifandi
mf, kantnum ogfuglum ífaglega
jJÉLfej skreyttum páskaskógi....
Sjón er sögu rtkari
Kertahringir
rn i i l . ‘JM
HfovffoUN ODDI HF.