Morgunblaðið - 13.03.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 11
ÁHRIF Á VAXTABÆTUR
SÖMU LAUN, MISSTÓRAR EIGNIR
FYRIR breytingu Kr. FYRIR breytingu Kr.
Samanl. tekjur hjóna 3.000.000 Samanl. tekjur hjóna 3.000.000
Fasteignamat íbúðar 6.000.000 Fasteignamat íbúðar 10.000.000
Skuldir vegna íbúðar 4.000.000 Skuldir vegna íbúðar 4.000.000
Eignir mínus skuldir 2.000.000 Eignir mínus skuldir 6.000.000
Vaxtagjöld 280.000 Vaxtagjöld 280.000
Frá dragast 6% af tekjuskattstofni -180.000 Frá dragast 6% af tekjuskattstofni -180.000
Skerðing vegna eigna 0 Skerðing vegna eigna -28.181
Vaxtabætur kr. 100.000 Vaxtabætur kr. 71.619
EFTIR breytingu Kr. EFTIR breytingu Kr.
Samanl. tekjur hjóna 3.000.000 Samanl. tekjur hjóna 3.000.000
Fasteignamat íbúðar 6.000.000 Fasteignamat íbúðar 10.000.000
Skuldir vegna íbúðar 4.000.000 Skuldir vegna íbúðar 4.000.000
Eignir mínus skuldir 2.000.000 Eignir mínus skuldir 6.000.000
Vaxtagjöld 280.000 Vaxtagjöld 280.000
Frá dragast 3% af tekjuskattstofni -90.000 190.000 Frá dragast 3% af tekjuskattstofni -90.000 190.000
Frá vaxtagjöldum dragast 1,5% af fasteignamati Vaxtabætur -90.000 kr. 100.000 Frá vaxtagjöldum dragast 1,5% af fasteignamati Vaxtabætur -150.000 kr. 40.000
MISMUNANDI LAUN, JAFNSTÓRAR EIGNIRl
FYRIR breytingu Kr. FYRIR breytingu Kr.
Samanl. tekjur hjóna 3.000.000 Samanl. tekjur hjóna 4.500.000
Fasteignamat íbúðar 6.000.000 Fasteignamat íbúðar 6.000.000
Skuldir vegna íbúðar 4.000.000 Skuldir vegna íbúðar 4.000.000
Eignir minus skuldir 2.000.000 Eignir mínus skuldir 2.000.000
Vaxtagjöld 280.000 Vaxtagjöld 280.000
Frá dragast 6% af tekjuskattstofni -180.000 Frá dragast 6% af tekjuskattstofni -270.000
Vaxtabætur kr. 100.000 Vaxtabætur kr. 10.000
EFTIR breytingu Kr. EFTIR breytingu Kr.
Samanl. tekjur hjóna 3.000.000 Samanl. tekjur hjóna 4,500.000
Fasteignamat íbúðar 6.000.000 Fasteignamat íbúðar 6.000.000
Skuldir vegna íbúðar 4.000.000 Skuldir vegna íbúðar 4.000.000
Eignir mínus skuldir 2.000.000 Eignir mínus skuldir 2.000.000
Vaxtagjöld 280.000 Vaxtagjöld 280.000
Frá dragast 3% af tekjuskattstofni -90.000 Frá dragast 3% af tekjuskattstofni -135.000
190.000 145.000
Frá vaxtagjöldum dragast 1,5% af fasteignamati Vaxtabætur -90.000 kr. 100.000 Frá vaxtagjöldum dragast 1,5% af fasteignamati Vaxtabætur -90.000 kr. 55.000
Breytingar á barnabótum
Fjölskyldur með
meðaltekjur fá
hærri bætur
AÐ MATI fjármálaráðuneytisins
koma breytingar, sem gerðar verða
um næstu áramót á barnabótum
og vaxtabótum, einna hagstæðast
út fyrir fjölskyldur með meðaltekj-
ur.
Að sögn Maríönnu Jónasdóttur,
deildarstjóra efnahagsskrifstofu
fjármálaráðuneytisins, eru meðal-
tekjur fjölskyldu með tvö börn á
bilinu 200-250 þúsund krónur á
mánuði. „Eg held að það sé hægt
að halda því fram með góðri sam-
visku að breytingarnar séu hag-
stæðastar fyrir þær því þessar fjöl-
skyldur fá hærri barnabætur en
áður,“ sagði Maríanna.
Gagnrýnt hefur verið að tekju-
tengja á barnabæturnar alfarið,
sem þýðir að þegar barnafjölskyld-
ur fara upp fyrir ákveðin tekju-
mörk missa þær bæturnar. Nú fá
allar barnafjölskyldur a.m.k. lág-
marksbætur. Maríanna sagði að
þetta hefði verið talin skárri kostur
en að taka upp ótekjutengdar bæt-
ur því þá hefði þurft að lækka
hámarksfjárhæðirnar og það hefði
komið mjög illa út fyrir tekju-
lægstu hópana.
Dregið úr skuldahvata
Vaxtabótakerfinu verður breytt
þannig, að tekjuviðmiðun minnkar
og bæturnar skerðast í hlutfalli við
Stærð og verðmæti eignar, en ekki
eignir umfram skuldir.
Maríanna sagði, að núverandi
vaxtabótakerfi hefði verið gagn-
rýnt fyrir að hvetja fólk til skulda-
söfnunar og með því að afnema
nettóeignatengingu væri dregið úr
þeim hvata. Um leið væri tekin upp
viðmiðun við fasteignamat, sem
ekki væri eins skuldahvetjandi, og
drægi raunar úr að fólk kaupi sér
mjög stórt húsnæði og safni skuld-
um til að ná fullum vaxtabótum.
Framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bandsins gagnrýndi í Morgunblað-
inu í gær, að miðað væri við fast-
eignamat, og benti á að þetta kæmi
betur út fyrir fólk á landsbyggðinni
þar sem fasteignamat væri lægra
en á höfuðborgarsvæðinu.
Um þetta sagði Maríanna, að sú
leið sem farin var hafi verið talin
uppfylla það skilyrði, að vera nokk-
urn veginn laus við skuldahvatann.
Um leið væri verið að viðhalda
þeirri tekjujöfnun, sem nú er í kerf-
inu, því ákveðin fylgni væri á milli
tekna og stærðar og verðmætis
fasteigna. Önnur leið hefði verið
að afnema bæði eigna- og tekju-
viðmiðum og taka upp fastar bætur
en það hefði þýtt að allir hefðu
fengið það sama óháð kringum-
stæðum.
Fulltrúar aldraðra hafa gagnrýnt
jaðaráhrif ellilífeyris og annarra
tryggingabóta. Að sögn Maríönnu
er hins vegar ekki sérstaklega kom-
ið til móts við þessa hópa með þeim
breytingum sem fyrirhugaðar eru í
skattamálum.
FRÉTTIR
TAXTAKAU P FÆRT N
Morgunblaðið/Júlíus
SVEIGJA er eftir skipinu miðju þar sem rifa kom í það. Myndin er tekin sjávarmegin á útfalli í gær.
Fyrsta
olían úr
Víkartindi
DÆLT var á milli 6-8 tonnum
af hráolíu úr Víkartindi í gær.
Búist er við að það taki einn til
tvo daga að hita svartolíutanka
skipsins upp svo hægt verði að
dæia henni frá borði og verður
byijað á því verki í dsag. Um 300
tonn af svartolíu eru í skipinu.
Ágætlega gengur að koma ol-
íubílum að skipshlið en ekki er
farið að reyna á það að aka þeim
fuilhlöðnum til baka aftur yfir
sandinn.
STARFSMAÐUR Olíudreif-
ingar dælir fyrstu oliunni frá
borði Víkartinds í gær.
OLÍUBRÁK er í fjörunni en
ekki er þó um alvarlega
mengun þar að ræða.
Dæmi: Taxtakaup með breytilegum mætingarbónus Laun skv. efsta taxta, kr. 60.118, með nám- skeiðsálagi og fastlaunauppbót, breytilegur mætingarbónus, 7% Breyting Dæmi: Taxtakaup með prósentuálagi Laun skv. efsta taxta í fata og skinnaiðnaði, kr. 60.118, með námskeiðsálagi og fastlauna- uppbót ásamt 20% yfirborgun
Laun skv. kauptaxta kjarasamnings 60.118 Laun skv. kauptaxta kjarasamnings 60.118
Breytilegur mætingarbónus, 7% 4.208 Yfirborgun: 20% 12.024
Samtals fyrir hækkun 64.326 Samtals fyrir hækkun 72.142
Almenn launahækkun 4,2% 2.702 Almenn launahækkun 4,2% 3.030
Laun eftir hækkun 68.386 6,31% Laun eftir hækkun 75.172 4,20%
Þar af nýr kauptaxti Þar af nýr mætingarbónus, 0% 68.386 8.268 0 -4.208 Þar af nýr þriggja ára taxti Mismunur er ný yfirborgun, sem reiknast 9,923% á nýjan taxta 68.386 8.268 6.786 -5.238
Dagvinnulaunahækkanir og nýtt taxtakerfi
Dæmi um að taxtar hækki
strax um rúm 8.000
LAUNATAXTAR iðnverkafólks
hækka umtalsvert í krónum talið
frá undirritun kjarasamninganna
sem náðust sl. mánudag milli
Landssambands iðnverkafólks og
vinnuveitenda.
Hlutur dagvinnutaxta er aukinn
sérstaklega á móti kjarasamnings-
og/eða ráðningarsamningsbundn-
um álags- og aukagreiðslum. Þann-
ig hækka t.d. föst mánaðarlaun iðn-
verkamanns eftir fimm ár hjá sama
fyrirtæki úr 60.118 í 68.386 kr. frá
gildistöku samningsins. Síðar á
samningstímanum verða laun hans
svo komin yfir 70 þúsund. í bókun
samningsaðila segir m.a. að ef ráðn-
ingarkjör starfsmanns eru þannig
að hann taki laun skv. hærri launa-
flokki eða starfsaldursþrepi en hann
á tilkall til skv. kjarasamningi skal
hann endurraðast í hinu nýja taxta-
kerfi miðað við raunverulegan
starfsaldur og starfssvið.
20% yfirborgun verður 9,9%
eftir breytinguna
í ofangreindu dæmi um laun iðn-
verkamanns í efsta taxta í fata- og
skinnaiðnaði, sem var með 60.118
með námskeiðsálagi- og fastlauna-
uppbót ásamt 20% yfirborgun, voru
heildarlaun hans fyrir gerð samn-
ingsins 72.142 kr. Almenn launa-
hækkun frá undirritun er 4,2% og
nema heildarlaun hans eftir hækk-
un 75.172. Vegna þeirrar aðferðar
sem samningsaðilar urðu ásáttir um
við færslu taxta að greiddu kaupi
er hinn nýi kauptaxti viðkomandi
starfsmanns kominn í 68.386 eins
og áður segir, en mismunurinn er
ný yfirborgun að upphæð 6.786 kr.
eða 9,923% sem reiknast á nýja
kauptaxtann í stað 20% áður.
Ef sami starfsmaður væri með
breytilegan 7% mætingarbónus þá
reiknast þær greiðslur einnig sem
hver önnur laun Fyrir hækkun var
hann með 60.118 kr. kauptaxta og
4.208 kr. mætingarbónus. Við
launahækkun um 4,2% hækka heild-
arlaun hans í 68.386 en mætingar-
bónusinn reiknast allur inn í nýja
taxtann. „Þar sem samið hefur ver-
ið sérstaklega um kaup fýrir yfir-
vinnu og það er hærra en nýi kaup-
taxtinn segir til um hefur hann eng-
in áhrif til hækkunar á yfirvinnu-
greiðslu," segir einnig í bókuninni.